Morgunblaðið - 08.03.2017, Side 20

Morgunblaðið - 08.03.2017, Side 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2017 Í vikunni sem leið lagði hópur sjómanna fram kæru vegna at- kvæðagreiðslu um kjarasamninga þeirra við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, samn- ingarnir voru undirrit- aðir af forsvars- mönnum sjómanna og SFS aðfaranótt 18. febrúar síðastliðinn. Kynningu og atkvæðagreiðslu lauk að kvöldi 19. febrúar. Hvaða reglur voru í gildi? Sjómenn telja á sér brotið þar sem þeim þótti ekki nægur tími til kynninga eða í atkvæðagreiðsluna sjálfa. Því sendu þeir fyrirspurn með kæru um að atkvæðagreiðslan yrði dæmd ólögmæt á grunvelli þeirra almennu reglna er um at- kvæðagreiðslu gilda. Það er nefni- lega ekki tekið á því í lögum um stéttarfélög og vinnudeilur (nr. 80/ 1938) eða í samþykktum og/eða lögum félaganna hvernig atkvæða- greiðslu á kjörstað skuli háttað. Því liggur það beinast við að félög- in hreinlega gangi að því, án vand- kvæða, að heimfæra þær einu regl- ur sem mögulegt er að nota í þessu samhengi en það er 9. gr. reglugerðar ASÍ sem ber heitið „Reglugerð um leynilega alls- herjar atkvæða- greiðslu meðal fé- lagsmanna aðildarsamtaka ASÍ“. Í þessari grein er fjallað um atkvæða- greiðslu á kjörstað, þar segir að kjör- fundur skuli standa yfir í a.m.k. tvo daga, minnst 8 klst. hvorn dag, og skal þess gætt að valinn sé sá tími dagsins er félagsmenn eiga hægast með að sækja kjörfund. Upphaf atkvæðagreiðslunnar skal auglýst með a.m.k. 7 sólarhringa fyrirvara en þó er aðilum með samþykki ASÍ heimilt að ákveða að upphaf atkvæðagreiðslu megi auglýsa með skemmri fyrirvara en þó ekki skemmri en tveggja sólar- hringa. Þó svo að þessi tími sýnist lítill þá er það ljóst að þó hafa menn haft fyrir því að setja lág- marksreglur um atkvæðagreiðslur á kjörstað. Hvernig í ósköpunum getur reglugerð ASÍ ekki átt við aðildarfélög þess eins og SSÍ nema þegar það hentar? Notað það sem hentar Mér sýnist að menn tíni ein- faldlega sitt lítið af hverju úr þessari reglugerð ASÍ, vinnurétt- arlöggjöfinni og samningsvaldi sínu og heimfæri það á þá afsök- un að það hafi verið „hluti af samningum við SFS að keyra at- kvæðagreiðsluna hratt í gegn“ skv. ummælum Hólmgeirs Jóns- sonar, formanns kjörstjórnar og framkvæmdastjóra Sjómanna- sambands Íslands. Einu rökin sem hann telur sig geta sett fram á þessu stigi eru að nú þegar hafi verið búið að kynna hluta af samningnum og að þetta hafi ver- ið betra en að fresta verkfalli! Ef það er ekki rangt skilið hjá mér þá var sá samningur sem var kynntur áður felldur með miklum meirihluta, hvernig í ósköpunum telja menn þá að sú kynning eða sá samningur sé grundvöllur að seinni kynningu á samningi? – sem reyndar er það illa skrifaður og illa frágenginn að mögulegt er að túlka hann á marga vegu, oft- ast SFS í hag, og er það svo sem ekki skrítið þar sem pressan var gríðarleg og hafði verið það sóla- hringana á undan. Bæði formaður og framkvæmdastjóri Sjómanna- sambands Íslands telja engin lög hafa verið brotin eða reglur vegna atkvæðagreiðslunnar – heldur er þetta fyrirkomulag al- veg í lagi þar sem þeir í krafti um- boðs síns fyrir sjómenn „sömdu“ við SFS um að „keyra atkvæða- greiðsluna hratt í gegn“. Hvað fær þessa menn til þess að halda það að umboð þeirra sé svo vítt að þeir geti enn og aftur haldið áfram að gambla með kjarasamninga sjó- manna í eigin þágu eða a.m.k. í einhverra annarra þágu en sjó- mannanna sjálfra. Vegið að lýðræðinu Það er afar einkennilegt að for- svarsmenn sjómanna vilji beita sér fyrir því að sjómenn fái ekki nægjanlegan tíma til þess að kynna sér efni þessa samnings, sem er langt frá því að vera ein- faldur, sérstaklega í ljósi þess að sjómenn hafa ríka hagsmuni af því að kynna sér hann til hlítar áður en þeir greiða atkvæði um hann. Þetta fyrirkomulag og það sjálftökuvald sem samninga- nefndirnar taka sér í þessu máli er síður til þess fallið að auka traust á milli þeirra og sjómanna, bilið stækkar og stækkar, því miður. Það er allt rangt við það að sjómenn, er greiða forsvars- mönnum sínum laun með fé- lagsgjöldum, beri ekki traust til þeirra nema í mjög takmörkuðum mæli. Þessi framkoma og fyr- irkomulag gerir lítið annað en að kæfa niður lýðræði og sýna þeim mönnum er staðið hafa í lengsta verkfalli sögunnar þá óvirðingu að bera ekki virðingu fyrir hags- munum þeirra! Mölbrotið traust í allar áttir Til hamingju, forsvarsmenn sjó- manna! Nú þurfið þið ekki bara að byggja upp og efla traust á milli sjómanna og útgerðarmanna þeirra heldur líka á milli ykkar og ykkar eigin félagsmanna. Til ham- ingju með þessi tíu skref aftur á bak í kjara- og mannréttinda- baráttu sjómanna sem þið færðuð gagnaðilum ykkar á silfurfati – þá með undarlegustu atburðarás í samningalotu kjaradeilu sem fyr- irfinnst. Úr því sem komið er má líta svo á að dagar ákveðinna for- svarsmanna séu taldir sem tals- menn sjómanna, þessir aðilar pressuðu af miklum þunga á sam- þykki þessara undarlegu samninga með þeim hætti að koma fram með lokatilboð á fáránlegum tíma og það einungis frá hluta samninga- nefndar sjómanna en þó í nafni þeirra allra og síðar með pressu á hraða þessarar margumtöluðu at- kvæðagreiðslu. Hvort menn sjái það sjálfir eða þurfi meiri tíma í valdaleik verður tíminn einn að leiða í ljós. Eftir Heiðveigu Maríu Einarsdóttur »Bilið á milli útgerða og sjómanna stækkar og stækkar – því miður. Heiðveig María Einarsdóttir Höfundur er viðskiptalögfræðingur og fyrrverandi sjómaður. heidveigmaria@gmail.com Hvert fór lýðræðið?– Hvert fór virðingin? Íslenskir stjórn- málamenn eru tals- menn kjósenda á þingi (a.m.k. að nafninu til). Því mið- ur eru þeir um leið andstæðingar neyt- enda. Hvernig stend- ur á þessu? Það ætlar til dæm- is að standa mjög í þingmönnum að koma á vestrænu fyrirkomulagi í áfengisverslun á Íslandi. Fyrirkomulagið skal þess í stað vera það strangasta sem finnst í okkar heimshluta. Hvers vegna? Af því að þessir helvítis neytendur kunna sér víst ekki hóf. Nú eru viðraðar hugmyndir um að koma öflugustu leiðinni til að hætta að reykja – rafsígarett- unum – í felur og bak við skatta- brynju. Tiltölulega skaðlaus gufa leysir af eiturefnamettaðan tób- aksreykinn en það dugir þing- mönnum ekki. Geta þeir sem vilja hætta að reykja ekki bara hætt því eða þakið líkama sinn með plástrum og troðið tyggjói í munninn á sér? Þurfa þessir hel- vítis neytendur endilega að blása frá sér vatnsgufu sem allar rann- sóknir sýna að er mörg hundruð sinnum skaðminni en tóbaksreyk- urinn? Nei takk, segja sumir þingmenn, og halda áfram að gera illt verra. Síðan eru það þessir ökumenn sem þurfa að fylla vegina á leið inn og út af höfuðborgarsvæðinu. Ofan á eldsneytis- og bílaskatt- ana á að bæta við tollahliðum til að fjármagna vegauppbyggingu. Geta þessir helvítis ökumenn – neytendur gatnakerfisins – ekki bara dreift sér skynsamlega á vegina á öllum tímum sólarhrings þótt í því felist enginn hvati fyrir þá sjálfa? Nei, hér þarf að rukka nýja skatta ofan á þá gömlu. Er þá ekki snyrtilegra að selja veg- ina og leyfa einkaaðilum að finna leiðir til að dreifa álaginu og byggja upp flutningsgetu vega- kerfisins? Einkaaðilar geta byggt farsíma- og vöruflutningakerfi. Þeir geta líka byggt vegakerfi. Þá geta neytendur hætt að vera helvítis neyt- endur og orðið venju- legir neytendur. Svo er það blessað heilbrigðiskerfið. Neytendur þess geta ekki látið sig veikjast nægilega lítið til að skattgreiðslur þeirra sem skattgreiðenda dugi til að lækna þá. Þeir þurfa að sofa á göngum og bíða á biðlistum. Hel- vítis neytendur heilbrigðisþjón- ustu, látið heilbrigðiskerfið í friði! Nú eða dreifið ykkur í gler- augnaverslanirnar, frjálsasta af- kima heilbrigðisþjónustu á Ís- landi. Þar er tekið við ykkur með bros á vör. Svo eru það neytendur heita- vatnsins og rafmagnsins. Hellis- heiðarvirkjun var reist fyrir ykk- ur en stefnir nú í að verða risavaxið umhverfisslys og töpuð fjárfesting fyrir eigendur sína sem um leið eru skattgreiðendur sem um leið eru neytendur. Þurf- ið þið nokkuð allt þetta heita vatn og rafmagn? Farið í kalda sturtu og slökkvið ljósin! Helvítis neytendur. Þingmenn eru e.t.v. talsmenn kjósenda en þeir kæra sig lítið um þessa helvítis neytendur. Kannski væri ráð að einkavæða svolítið í ríkisrekstrinum svo neytendur hætti að vera svona mikill höfuðverkur fyrir upp- tekna þingmenn? Þessir helvítis neytendur Eftir Geir Ágústsson Geir Ágústsson »Neytendur eru mikill höfuðverkur fyrir þingmenn. Geta þeir ekki komið áhyggjum sínum af þeim yfir á aðra? Höfundur er verkfræðingur geirag@gmail.com Flestum er ljóst að miklar deilur hafa staðið um þá ákvörðun að byggja nýja viðbyggingu á Hringbraut í stað þess að velja að byggja nýtt sjúkra- hús frá grunni á besta stað á höf- uðborgarsvæðinu. Þegar litið er yfir söguna er ljóst að nýjan spítala við Hringbraut hefði átt að opna í kringum aldamótin síðustu, um það ber álagið og ástand húsnæð- isins glöggt vitni. Við höfum hins vegar ákveðið að byggja á röngum tíma og á röngum stað. Rökin um að mun hagkvæmara sé að reka nýtt sjúkrahús heldur en gamalt sjúkrahús í fjölda bygg- inga hafa engu skilað, rökin um að mun ódýrara sé að byggja á opnu svæði heldur en að hnoðast í Þing- holtunum þar sem þarf að sprengja klappir til að koma fyrir húsgrunni skipta engu máli, sú staðreynd að aðgengi að lóð Land- spítalans sé þegar afar erfitt og fari hratt versnandi er svarað með ósannindum, útúrsnúningum eða ábendingum um nýja 150 milljarða Borgarlínu. Við erum ákveðin í að vista okkar veikasta fólk á bygg- ingarstað næsta áratuginn, það er enginn smámetnaður. Búið er að gera nokkrar skoð- anakannanir þar sem komið hefur fram að meirihluta kjósenda telur Hringbraut vera lakan kost fyrir þessar gríðarlegu húsbyggingar sem stendur til að reisa. Sama segja þeir starfsmenn Landspít- alans sem tekið hafa þátt í slíkum könnunum. Ekkert af þessu hefur raskað ró þeirra sem ábyrgðina bera. Alþingi hefur verið bent á að hægt sé að gera fjárhagslega og skipulagslega áreið- anleikakönnun á þessari ákvörðun um byggingu á Hringbraut fyrir upp- hæð sem nemur ca. 0,01% af bygging- arkostnaði. Þessu sýnir enginn áhuga og er það skýrt dæmi um að þing- menn ætla ekki að taka neina ábyrgð á meðferð skattfjár í þessu verk- efni. Það sýnir líka skort á fag- mennsku og ábyrgri fjár- málastjórn. Ákvörðun um að halda áfram að byggja við spítalann á Hringbraut er nú bráðum 20 ára. Á þessum tíma hefur mjög margt breyst, meðal annars er búið að ákveða að flugvöllurinn skuli hverfa og í staðinn komi íbúðarhúsnæði fyrir þúsundir manna. Á þessum tíma hefur umfang ferðaþjónustu margfaldast og þús- undir hótel herbergja risið í næsta nágrenni við Hringbraut með til- heyrandi umferð og öngþveiti. Á þessum árum hefur íbúum í aust- urhluta borgarinnar fjölgað mikið og stór hverfi risið í nágranna- sveitarfélögum þar sem tugir þús- unda íbúa hafa komið sér fyrir. Allt eru þetta breytur sem sýna að nýr spítali ætti að byggjast austast á höfuðborgarsvæðinu. Ein staðreynd til viðbótar hefur komið í ljós á þessum langa tíma en hún er sú að eldri húsakynnin eru mikið verr farin af myglu og rakaskemmdum en talið var og líklega er ráðlegra að rífa húsin en að vista þar fárveikt fólk næstu áratugina. Stefnufesta er kostur í mörgum málum en í öðrum leiðir hún til mikils tjóns. Allar þessar staðreyndir ættu að duga til að þessi ákvörðun væri tekin upp og forsendur metnar á ný. Þar sem við erum nú komin með nýjan ráðherra heilbrigðis- mála sem ekki sýnir nein merki um að meta þetta stóra verkefni sjálfstætt tel ég best að láta hér staðar numið í baráttunni og nota tímann í eitthvað sem skilar ár- angri. Ég hef haft ánægju af því gras- rótarstarfi sem unnið hefur verið í Samtökum um betri spítala á betri stað. Þar hafa komið saman arki- tektar, skipulagsfræðingar, verk- fræðingar, læknar, viðskiptafræð- ingar, hagfræðingar og fjöldi leikmanna. Allir hafa unnið þar óeigingjarnt sjálfboðaliðastarf, borgað með verkefnum og auglýs- ingum á sama tíma og ríkissjóður hefur fjármagnað áróður holl- ustuvina þeirra sem styðja metn- aðarleysið við Hringbraut. Okkar hugur stóð eingöngu til þess að sjúklingar fengju nýjan spítala á besta stað, að starfsmenn fengju besta mögulega vinnustað- inn og aðstandendur kæmust til og frá spítalanum með greiðum hætti. Einn stór þáttur í okkar baráttu sneri að því að til næstu 50 ára væri rekstur nýs sjúkra- húss á besta stað mun ódýrari kostur en sá sem búið er að velja. Þeim sparnaði verður fórnað á alt- ari þrjósku og hræðslu við breyt- ingar. Almannahagur réð okkar för, hann mætti oftar vera ráðandi þáttur í ákvörðunum hins op- inbera. Félögum mínum þakka ég sam- starfið og læt hér staðar numið. Rangur spítali á röngum stað og á röngum tíma Eftir Hermann Sævar Guðmundsson » Ljóst er að nýjan spítala við Hring- braut hefði átt að opna í kringum aldamótin síð- ustu, um það ber álagið og ástand húsnæðisins glöggt vitni. Hermann Sævar Guðmundsson Höfundur er framkvæmdastjóri. hermann@kemi.is ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.