Morgunblaðið - 08.03.2017, Síða 26

Morgunblaðið - 08.03.2017, Síða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2017 Þetta er jákvætt og lifandi samfélag umvafið stórbrotinni nátt-úru,“ segir Elín Einarsdóttir, oddviti Mýrdalshrepps, en hún á50 ára afmæli í dag. „Við erum mjög vel í sveit sett hvað varðar ferðaþjónustu og hún er orðin okkar stærsti atvinnuvegur og afleidd störf tengd henni. Í ár gerum við ráð fyrir að ein milljón ferðamanna heimsæki sveitarfélagið.“ Margir heimamenn hafa byggt myndarlega upp í afþreyingu og gistingu. „Talsverðar byggingaframkvæmdir standa yfir á vegum einkaaðila og einnig sveitarfélagsins. Hér eins og víða annars staðar vantar sárlega íbúðarhúsnæði og við reynum að bregðast við því eins og við getum. ,,Við njótum góðs af vextinum en honum fylgja líka áskoranir.“ Mýrdalshreppur afmarkast af Jökulsá á Sólheimasandi að vestan og Blautukvísl á Mýrdalssandi að austan. Íbúarnir í hreppnum eru núna um 560 en þeim hafði fækkað niður í 480 um tíma. Elín er fædd og uppalin í Sólheimahjáleigu og býr þar með manni sínum, Jónasi Marinóssyni, og í félagi við son sinn, Einar Frey, og hans fjölskyldu. Þar eru þau með sauðfjárbú og ferðaþjónustu. Elín á fjögur börn; Jónu Sólveigu alþingismann, Einar Frey aðstoðar- framkvæmdastjóra og Snorra Björgvin og Jóhann Braga framhalds- skólanema. Elín er einnig kennari við Víkurskóla. „Ég er svo heppin að þau störf sem ég sinni eru jafnframt helstu áhugamál mín. Við Jónas förum norður í land á afmælisdaginn, maðurinn minn er Svarfdælingur og okkur finnst alltaf óskaplega gaman að fara norður, ég tók það fram yfir utanlandsferð. Það er svo hressandi að koma norður og mannlífið skemmtilegt.“ Oddvitinn Elín með Víkurfjöru og Reynisdranga í baksýn. Nóg um að vera í Mýrdalshreppi Elín Einarsdóttir er fimmtug í dag G rímur Hákonarson fæddist á Landspít- alanum í Reykjavík 8. mars 1977 en ólst upp í í Kársnesinu í Kópa- vogi. „Ég var alltaf á sumrin hjá afa í Vorsabæ í Flóa og er skrítin blanda af stórborgarbóhem og sveitamanni. Eftir að ég var búinn með Kársnes- skóla, fór ég í Menntaskólann við Hamrahlíð og það voru mjög mót- andi ár. Að koma úr Kópavogi og í MH var eins og að frelsast. Ég var framsóknarmaður en breyttist í sósíalista, var mjög aktífur í stjórn- málastarfinu þar og hef síðan alltaf haft áhuga á stjórnmálum og sögu. Ég fór að gera stuttmyndir og í skól- anum kynntist ég mönnum eins og Rúnari Rúnarssyni og við gerðum tvær myndir saman. Síðan tók ég smá u-beygju því ég var ekki alveg viss um að kvik- Grímur Hákonarson kvikmyndaleikstjóri – 40 ára Leikstjórinn Grímur er kominn á kortið í hinum alþjóðlega kvikmyndageira og spennandi verkefni eru fram undan. Bóhem og sveitamaður Hrútar Grímur ásamt Sigurði Sigurjónssyni og Theodóri Júlíussyni, aðal- leikurunum í kvikmyndinni Hrútar sem hefur hlotið fjölda viðurkenninga. Morgunblaðið/Styrmir Kári Í dag, 8. mars, er Hanna S. Antoníusdóttir ljósmóðir 80 ára. Hún verður með heitt á könnunni heima hjá sér milli kl. 15 og 19. Árnað heilla 80 ára Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Morgunblaðið gefur út þann 23. mars glæsilegt sérblað um HönnunarMars –– Meira fyrir lesendur PÖNTUNARFRESTUR AUGLÝSINGA: fyrir kl. 12, mánudaginn 20. mars. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Hátíðin verður haldin víðs vegar um Reykjavík þar sem saman koma íslenskir hönnuðir og sýna fjölbreytt úrval nýrrar íslenskrar hönnunar og arkitektúrs af margvíslegu tagi. HönnunarMars DesignMarch Reykjavík 23.-26.03.2017

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.