Morgunblaðið - 08.03.2017, Side 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2017
Hljómsveitin Nýdönsk fagnar 30
ára starfsafmæli í ár og vinnur nú
að gerð hljómplötu sem verður
hljóðrituð í Kanada og Íslandi á
vormánuðum, skv. tilkynningu frá
sveitinni. Á plötunni mun hún m.a.
njóta fulltingis strengjasveitar. 23.
september mun Nýdönsk svo halda
„sannkallaða tímamótatónleika í
Eldborgarsal Hörpu þar sem öllu
verður tjaldað til“, eins og því er
lýst í tilkynningu frá sveitinni.
Þá er einnig sagt frá því að Ný-
dönsk muni nýta sér hópfjármögn-
unarsíðuna Karolina Fund til að
fjármagna útgáfu plötunnar að
hluta, þar sem nú séu breyttir tímar
í hljómplötuútgáfu. Aðdáendum
sveitarinnar muni því gefast tæki-
færi til að kaupa mismunandi út-
gáfusnið í forsölu og tryggja að
platan komi út í september.
Ný plata og tímamótatónleikar
Þrítug Hljómsveitin Nýdönsk fagnar 30 ára starfsafmæli á þessu ári. Hún
ætlar að fjármagna næstu plötu að hluta með söfnun á Karolina Fund.
Listahátíðin List í ljósi var haldin í
annað sinn á Seyðisfirði 24. og 25.
febrúar sl. en hátíðin er haldin til að
fagna komu sólar. Tugir listamanna,
bæði innlendra og erlendra, tóku
þátt í hátíðinni og sýndu litrík ljós-
verk sín víða um bæinn, eins og sjá
má af meðfylgjandi ljósmyndum.
Sesselja Hlín Jónasardóttir og
Celia Harrison eru stofnendur hátíð-
arinnar og segir Sesselja að hátíðin
hafi verið einkar vel heppnuð. „Við
fengum reyndar óveður á föstudeg-
inum en laugardagurinn var algjör-
lega fullkominn, stjörnubjart og
norðurljósin létu sjá sig. Þetta var
fullkominn dagur,“ segir hún.
Spurð út í viðbrögð bæjarbúa seg-
ir Sesselja að allir séu í skýjunum,
hátíðin hafi heppnast það vel. Þá hafi
blaðamaður frá ferðavefnum Lonely
Planet sótt hátíðina í þeim tilgangi
að skrifa um hana og verið frá sér
numinn.
Sesselja segir ákveðna áhættu
fólgna í því að halda hátíð á þessum
árstíma, þegar allra veðra er von og
því hafi verið ákveðið að láta hana
standa yfir í tvo daga. Veðrið hafi þó
ekki sett strik í reikninginn hvað
inniviðburði hátíðarinnar varðar.
Meðal þeirra var systurhátíð List-
ar í ljósi, kvikmyndahátíðin Flat
Earth, sem hófst 20. febrúar og lauk
26. febrúar. Á henni voru sýndar 40
stuttmyndir, vídeóverk, hreyfi-
myndir og heimildarmyndir eftir
innlenda og erlenda listamenn.
Sesselja segir hátíðina verða
haldna aftur að ári og að allt stefni í
að hún verði umfangsmeiri en sú
sem haldin var í ár. Undirbúningur
fyrir hana hefjist brátt.
helgisnaer@mbl.is
„Þetta var fullkominn dagur“
Seyðisfjörður baðaður litum og ljósi á List í ljósi Óveður á föstudegi og norðurljós á laugardegi
Tunga Abby Portner, sem hefur m.a. starfað með hljómsveitinni Animal
Collective, bjó til stóra tungu á gamla skólann og varpaði á hann ljósverki.
Ljósmyndir/Ómar Bogason
Fegurð Seyðisfjörður skartaði sínu fegursta með ljóslistaverkum og norðurljósum á stjörnubjörtum himni.
Hús Verk eftir listakonuna Hlín Lobsang sem nefnist „Húsið“.
Á fjalli „Tonight we dream“ nefnist þetta verk eftir Elisu Artesero.
Snjókorn Verkið „Each snowflake“
eftir listakonuna Elisu Artesero.
TOPPUR ehf
Bifreiðaverkstæði
TOPPUR er viðurkennt
þjónustuverkstæði fyrir
Skemmuvegi 34 • Kópavogi • Sími 557 9711 • toppur@toppur.is
ÍSLENSKA KÍSILSTEINEFNIÐ FRÁ GEOSILICA
INNIHELDUR HREINAN JARÐHITAKÍSIL
*Rannsóknir hafa sýnt fram á þessi áhrif, kísilvatnið er fæðubótarefni og kemur ekki í staðinn fyrir lyf.
Nánari upplýsingar má finna á www.geosilica.is
geoSilica kísilvatnið fæst í öllum helstu apótekum,
heilsuvöruverslunum, Hagkaupum, Nettó,
Fjarðarkaupum og vefverslun geoSilica.
KRISTÍN
JÚLÍUSDÓTTIR
„Ég heiti Kristín
og var ráðlagt að
prófa geosilica
vegna hármissis. Fékk nokkra skallabletti líklegast
vegna áfalls og að vera 23 með skalla var ekki
drauma aðstæðurnar! Fyrst leit þetta ekkert
svakalega vel út þar sem hárið virtist ekki ætla að koma til baka. Ég byrjaði að taka
þetta inn á hverjum degi og viti menn. Hárið byrjaði að vaxa á ógnarhraða!
Ég er svo ánægð að þetta gerðist svona fljótt því læknarnir sögðu að kannski kemur
það aftur kannski ekki og ekki til eitthvað úrræði sem er betra en annað.
En geosilica fékk allavega hárið til þess að vaxa!
Hér er smá fyrir og eftir myndir. “
• Styrkir bandvefinn*
• Stuðlar að þéttleika í beinum*
• Styrkir hár og neglur*
• Stuðlar að betri myndun kollagens
fyrir sléttari og fallegri húð*