Morgunblaðið - 08.03.2017, Síða 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2017
Norræn kvikmyndahátíð hefst í
Norræna húsinu í dag og stendur
yfir í viku, til 15. mars. Aðgangur
að sýningum er ókeypis (frímiða
má nálgast á heimasíðu Norræna
hússins, www.norraenahusid.is) og
eru allar kvikmyndirnar sýndar
með enskum texta. Markmið hátíð-
arinnar er að gefa Íslendingum
tækifæri til að sjá breitt úrval
vandaðra kvikmynda og kynna það
nýjasta í norrænni kvikmynda-
gerð, hvetja til umræðu og eiga
góðar stundir saman, eins og segir
í tilkynningu en samstarfsaðilar
hátíðarinnar eru sendiráð Norður-
landanna á íslandi.
Kvikmyndaveislan hefst í kvöld
kl. 19 með sýningu á opnunar-
mynd hátíðarinnar, hinni norsku
Tusen ganger god nat eftir leik-
stjórann Erik Poppe en með aðal-
hlutverk í henni fara Juliette Bin-
oche og Nikolaj Coster-Waldau.
Leikstjórinn er einnig einn hand-
ritshöfunda og er handritið byggt
á reynslu hans af því að starfa
sem stríðsljósmyndari á sjöunda
áratugnum.
Á föstudaginn, 10. mars, munu
tveir áhugaverðir heimild-
armyndaleikstjórar svara spurn-
ingum gesta að loknum sýningum.
Kl. 17 verður sýnd heimild-
armyndin Dugma: the Button eftir
hinn norska Pål Refsdal. Hún
fjallar um unga menn sem hafa
ákveðið að fórna lífi sínu fyrir al-
Kaída í Sýrlandi. Refsdal er um-
deildur, áhugaverður leikstjóri og
fyrrverandi blaðamaður fyrir
norska herinn, segir í tilkynningu
og að árið 2009 hafi hann verið
tekinn til fanga af talibönum og
tekið upp íslamstrú. Hann hafi
unnið með og fjallað um fjölda
uppreisnarhópa um allan heim.
Kl. 20 verður svo sýnd heimild-
armyndin BUGS eftir danska
kvikmyndagerðarmanninn Andr-
eas Johnsen. Í henni ferðast hann
um heiminn með hópi sérfræðinga
og kynnir sér venjur og hefðir í
skordýramatargerð. Johnsen situr
fyrir svörum að lokinni sýningu.
Fjöldi mynda verður sýndur á
hátíðinni og þá einnig fyrir börn,
m.a. norsk teiknimynd eftir leik-
stjórann Suzie Templeton sem
byggð er á tónlistarævintýri Ser-
gei Prokofiev, Pétur og úlfurinn,
frá árinu 1936. Hún hlaut Óskars-
verðlaun árið 2008 sem besta
teiknimyndin í flokki stuttmynda.
Upplýsingar um allar myndir há-
tíðarinnar má finna á vef Norræna
hússins, nordichouse.is.
Foreldrar Úr kvikmyndinni Forældre sem sýnd verður á hátíðinni. Søren
Malling hlaut verðlaun danskra kvikmyndagagnrýnenda, Bodil, sl. helgi
fyrir túlkun sína á Kjeld í kvikmyndinni. Hér sést hann með leikkonunni
Miri Ann Beuschel í myndinni en Beuschel leikur eiginkonu Kjeld, Vibeke.
Breitt úrval vand-
aðra kvikmynda
Kvikmyndahátíð í Norræna húsinu
Tónlistarævintýri Úr teiknimynd-
inni norsku um Pétur og úlfinn.
Bandaríski rapp-
tónlistarmað-
urinn sem kallar
sig Chance the
Rapper og
hreppti þrenn
Grammy-
verðlaun á dög-
unum hefur
ákveðið að gefa
grunnskólum í
heimaborg sinni, Chicago, eina
milljón dala, um 108 milljónir króna.
Þegar Michelle Obama, fyrrverandi
forsetafrú í Bandaríkjunum, frétti
af gjöfinni skrifaði hún á samfélags-
miðla að Chance væri gott dæmi um
máttinn sem fælist í listmenntun.
Chance gaf féð nokkrum dögum
eftir að hann átti fund með ríkis-
stjóra Illinois, Bruce Rauner, til að
ræða fjársvelti almenningsskóla í
ríkinu. Rauner stöðvaði lagafrum-
varp sem gerði ráð fyrir 215 millj-
óna dala aukaframlagi til grunn-
skólanna og flutti féð þess í stað í
eftirlaunasjóði opinberra starfs-
manna.
Chance gefur grunnskólum milljón dali
Chance the Rapper
Tónlistardeild Listaháskóla Íslands
býður í dag, miðvikudag, kl. 16.30
til 18, til málþings um tónlistar-
ferðamennsku. Fer það fram í Sölv-
hóli, tónleikasal LHÍ á horni Klapp-
astígs og Skúlagötu.
Aðalgestur málþingsins er Barry
Cheesman en hann er einn eigenda
ferðaskrifstofu sem sérhæfa sig
m.a. í ferðum fyrir áhugafólk um sí-
gilda tónlist. Aðrir gestir eru þau
Örvar Már Kristinsson, leið-
sögumaður og óperusöngvari, og
Steinunn Birna Ragnarsdóttir, pí-
anóleikari og óperustjóri Íslensku
óperunnar. Málstofustjóri er Svava
Bernharðsdóttir, víóluleikari við
Sinfóníuhljómsveit Íslands, aðjunkt
við LHÍ og leiðsögumaður.
Málþing um tónlistarferðamennsku
Óperustjórinn Steinunn Birna Ragn-
arsdóttir er einn gesta málþingsins.
Wolverine er búinn að eldast, heilsu hans hef-
ur hrakað, hann býr við stöðuga verki, og á við
drykkjuvandamál að stríða. Logan er að nið-
urlotum kominn en þarf að hugsa um hinn
heilsulitla Prófessor X þar sem þeir fela sig
nærri landamærum Mexíkó.
Metacritic 75/100
IMDb 9,0/10
Laugarásbíó 17.15, 20.00, 22.45
Sambíóin Egilshöll 17.00, 20.00, 22.45
Sambíóin Keflavík 20.00, 22.45
Smárabíó 16.30, 16.50, 19.30, 19.50, 22.30, 22.45
Háskólabíó 18.00, 21.10
Borgarbíó Akureyri 20.00, 22.20
Logan 16
A Dog’s Purpose 12
Hundur reynir að finna tilgang með lífinu, í gegnum nokkur
æviskeið og nokkra eig-
endur.
Metacritic 43/100
IMDb 4,9/10
Sambíóin Álfabakka
17.40, 20.00, 22.20
Sambíóin Egilshöll 20.00
Sambíóin Kringlunni
20.00, 22.20
Sambíóin Akureyri 20.00,
22.20
Sambíóin Keflavík 20.00
The Lego Batman Movie Það er ekki nóg með að Batman þurfi að kljást við glæpa-
mennina í Gotham borg, held-
ur þarf hann að ala upp dreng
sem hann hefur ættleitt.
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 75/100
IMDb 7,9/10
Laugarásbíó 17.40
Sambíóin Álfabakka 17.40,
20.00
Sambíóin Kringlunni 17.40
Sambíóin Akureyri 17.40
La La Land Morgunblaðið bbbbb
Metacritic 93/100
IMDb 8,5/10
Sambíóin Álfabakka 20.00
Sambíóin Egilshöll 17.20,
20.00
Sambíóin Kringlunni 17.20,
20.00, 22.40
Sambíóin Akureyri 22.20
Fifty Shades
Darker 16
Metacritic 32/100
IMDb 5,0/10
Sambíóin Egilshöll 22.15
Sambíóin Kringlunni
20.00, 22.30
Borgarbíó Akureyri 17.30
xXx: Return of
Xander Cage 12
Metacritic 42/100
IMDb 5,6/10
Sambíóin Álfabakka 22.10
Sambíóin Egilshöll 22.40
Gamlinginn 2 IMDb 6,5/10
Sambíóin Álfabakka 20.00
Hidden Figures Háskólabíó 18.30
Split 16
Metacritic 62/100
IMDb 7,5/10
Laugarásbíó 22.30
Smárabíó 20.00, 22.40
Háskólabíó 21.10
Borgarbíó Akureyri 20.00
Fist Fight 12
Metacritic 37/100
IMDb 5,9/10
Sambíóin Álfabakka 17.50,
20.00, 22.10
Sambíóin Egilshöll 17.50,
20.00, 22.10
Sambíóin Akureyri 20.00
Sambíóin Keflavík 22.20
Manchester by the
Sea 12
Lee er skyldaður til að snúa
heim og hugsa um yngri
frænda sinn.
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 96/100
IMDb 8,1/10
Háskólabíó 21.00
Borgarbíó Akureyri 17.30
The Space
Between Us Metacritic 33/100
IMDb 6,5/10
Smárabíó 17.10, 20.00
Gold 12
Metacritic 49/100
IMDb 6,5/10
Laugarásbíó 20.00
Rings 16
Metacritic 25/100
IMDb 5,7/10
Sambíóin Álfabakka 22.40
Hjartasteinn
Morgunblaðið bbbbm
IMDb 7,9/10
Smárabíó 17.30, 22.45
Háskólabíó 18.10
John Wick:
Chapter 2 16
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 75/100
IMDb 8,6/10
Laugarásbíó 20.00, 22.30
Borgarbíó Akureyri 22.40
T2: Trainspotting 12
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 62/100
IMDb 7,9/10
Smárabíó 20.15, 22.50
Moonlight
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 99/100
IMDb 8,2/10
Háskólabíó 18.10
Bíó Paradís 17.30, 20.00
Rogue One:
A Star Wars Story 12
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 66/100
IMDb 8,3/10
Sambíóin Álfabakka 22.20
Rock Dog Útvarp dettur af himnum of-
an og beint í hendurnar á
tíbetskum Mastiff risahundi.
Metacritic 49/100
IMDb 5,7/10
Sambíóin Álfabakka 18.00
Sambíóin Egilshöll 18.00
Sambíóin Kringlunni 18.00
Sambíóin Keflavík 18.00
Stóra stökkið IMDb 6,9/10
Laugarásbíó 18.00
Smárabíó 15.40, 17.50
Syngdu Metacritic 60/100
IMDb 7,3/10
Smárabíó 15.15
Vaiana Metacritic 81/100
IMDb 8,3/10
Sambíóin Álfabakka 17.40
Tröll Metacritic 45/100
IMDb 6,8/10
Smárabíó 15.10
Toni Erdmann
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 94/100
IMDb 7,7/10
Bíó Paradís 18.00
Paterson
Morgunblaðið bbbbb
Metacritic 90/100
IMDb 7,7/10
Bíó Paradís 20.00
Kate Plays Christine
Fréttakonan Christine Chub-
buck fyrirfór sér í beinni út-
sendingu árið 1974. þegar
Kate Lyn Sheil undirbýr sig
fyrir að leika hana 40 árum
síðar reynist erfitt að grafa
upp heimildir um hana.
Metacritic 75/100
IMDb 6,4/10
Bíó Paradís 22.30
The Salesman
Emad og Rana eru ungt par
sem leika aðalhlutverkin í
uppfærslu á leikriti Arthur
Miller, Dauði sölumanns.
Metacritic 86/100
IMDb 8,2/10
Bíó Paradís 22.00
Una
Una kemur í vinnuna til Ray
til þess að gera upp sam-
bandið sem þau áttu í mörg-
um árum áður.
Metacritic 68/100
IMDb 7,0/10
Bíó Paradís 18.00
Elle/Hún
Morgunblaðið bbbbb
Metacritic 89/100
IMDb 7,3/10
Bíó Paradís 22.30
Kvikmyndir
bíóhúsannambl.is/bio
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna