Morgunblaðið - 08.03.2017, Page 33

Morgunblaðið - 08.03.2017, Page 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2017 Tíu hugmyndir að leikverki fyrir útskriftarhóp leikarabrautar Listaháskóla Íslands á næsta ári bárust í leikritasamkeppni skólans og Félags leikskálda og handrits- höfunda og var hugmynd að leik- verki eftir Kristján Þórð Hrafnsson valin af dómnefnd. Listaháskólinn hefur samið við Kristján um upp- setningu á verkinu sem nefnist Aðfaranótt og er í tilkynningu lýst sem áleitinni rannsókn á árásar- girni og ofbeldi sem eigi sér ólíkar birtingamyndir í samskiptum fólks og sé um leið spegill á samskipta- mynstur samtímans. „Verkið gerist í næturlífi Reykja- víkur og varpar upp svipmyndum úr lífi og samskiptum ungs fólks sem tengist hvað öðru með ólíkum hætti. Efnistök Kristjáns eru áleitin og efnið aðkallandi; í gegnum brot úr samtölum raðast upp mynd af of- beldisglæp og spurningunni er varpað upp um hver sé fær um að fremja slíkan glæp,“ segir í tilkynn- ingu. Dómnefnd skipuðu leikkonan og handritshöfundurinn Nanna Kristín Magnúsdóttir, Stefán Jóns- son, fagstjóri leikarabrautar og Steinunn Knútsdóttir, deildar- forseti sviðslistadeildar LHÍ. Hugmynd Kristjáns varð fyrir valinu Leikskáldið Kristján Þórður Hrafnsson. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Valgeir Sigurðsson, upptökustjóri og tónlistarmaður hjá Bedroom Community, er tónlistarstjóri Eddu, viðamikillar leiksýningar sem var frumsýnd í Norska þjóðleikhúsinu um helgina og hefur fengið ein- róma lof norskra gagnrýnenda. Einn þekktasti leikhúsmaður samtímans, Rob- ert Wilson, setur sýninguna upp en leiktextann vann Jon Fosse, einn virtasti rithöf- undur Norð- manna, upp úr íslensku Eddukvæð- unum. Valgeir segir sýninguna glæsilegt sjónarspil en tónlistin er eftir bandaríska dúettinn CocoRosie – systurnar Bianca og Sierra Casady, og tónskáldið Arvo Pärt. Auk þess að leikstýra sýningunni skapar Wilson leikmynd og lýsingu. Hann sló í gegn á sínum tíma fyrir samstarfið við tónskáldið Philip Glass þegar þeir settu upp hina frægu óperu Glass Einstein on the Beach en meðal annarra samstarfs- manna Wilson gegnum tíðina má nefna William S. Burroughs, Allen Ginsberg, Lou Reed, Tom Waits, David Byrne, Laurie Anderson, Marina Abramovic, Mikhail Bar- yshnikov og Lady Gaga. Wilson alráður í leikhúsinu Edda er þriðja sýningin sem Ro- bert Wilson setur upp við tónlist CocoRosie en hinar fyrri voru Pétur Pan í Berlín og Ævintýri Púskins í Moskvu. Valgeir segir að hann hafi verið fenginn að verkefninu vegna þess að hann hafi verið upptöku- stjóri á tónlist CocoRosie. „Ég hef unnið lengi með Coco- Rosie og þær stungu upp á því að ég sæi um tónlistina í verkinu,“ segir Valgeir. Í fyrri uppfærslum með Wilson var CocoRosie með hljóm- sveit í sýningunni en að þessu sinni hljóðritaði Valgeir tónlistina og vann hana inn í verkið í samvinnu við Wil- son en söngurinn er lifandi. „Við tókum tónlistina upp úti í fyrrasumar og hentum henni síðan á milli okkar í nokkra mánuði. Ég mætti síðan til Óslóar með eins mik- ið af efni og ég gat en þær systur komu ekki sjálfar á staðinn fyrr en síðustu vikuna.“ Valgeir var hins vegar viðstaddur vinnuna við upp- færsluna í nær tvo mánuði, „að vinna úr upptökunum og spinna í kringum það sem við vorum búin að for- vinna,“ eins og hann segir. Valgeir segir að það hafi verið nokkuð nýtt fyrir Wilson að hafa ekki á staðnum hljóðfæraleikara sem gætu brugðist við hugmyndum hans. „Það má segja að hann sé alráður í leikhúsinu og menn eiga að bregðast við hugmyndum hans,“ segir Valgeir. „Hann hefur unnið með frábæru samstarfsfólki gegnum tíðina en ég hafði bara séð Einstein on the Beach á sviði fyrir nokkrum árum og það var algjörlega magn- að.“ Hatar realisma Tónlistin eftir Arvo Pärt hljómar þar sem kaflaskil eru í verkinu, og myndar eins konar andstæðu við tónlist CocoRosie sem er að hluta sungin á ensku en myndar líka hljóð- heiminn við texta Fosse. Sýningin er rúmir tveir tímar, án hlés. Valgeir segir að verkið megi kalla söngleik, „eða dans- og söngvamynd! Wilson vinnur gríðarlega mikið kringum tónlistina og hljóðmyndina. Og hann hatar realisma! Þetta er heildrænt leikhús þar sem allir þætt- ir eru jafn mikilvægir, tónlistin, hreyfingarnar, textinn, lýsingin, hvert einasta smáatriði skiptir máli“. Og hann svarar játandi spurning- unni hvort Wilson hafi viljað breyta miklu varðandi tónlistina og hljóð- heiminn. „Það var nóg að gera og stundum öskrað!“ Hann hlær. Valgeir hrósar allri vinnuaðstöðu í Norska þjóðleikhúsinu, sem sé til mikillar fyrirmyndar. „Sem er eins gott því Wilson gerir miklar kröfur. Og hann notar gjarnan gamlar leik- húsaðferðir og sviðsmennirnir eru mikilvægir; þegar ísjakar hreyfast yfir sviðið eru þeir dregnir til af sviðsmönnum. Allt þarf að vera gríðarvel samhæft.“ Fosse vinnur leiktextann úr Eddukvæðunum og Valgeir segist hafa verið fenginn til að þýða svolít- inn texta yfir á íslensku. „Nokkrar setningar fá að hljóma, Wilson vildi láta gamla málið heyrast,“ segir hann. Í haust verður sýningin sett upp í Árósum í Danmörku, en hún er menningarborg Evrópu í ár. Sviðið þar er minna en í Ósló og því verður einhver aðlögun en Valgeir veit ekki hvort breyta þurfi hljóðmyndinni. Hann hefur áður samið tónlist fyr- ir leikhús og unnið með leikhúsfólki. „Mér finnst mjög gaman að vinna þar sem mörg listform koma svona saman, og það er krefjandi á annan hátt en í stúdíóinu,“ segir hann. „Og það hefur verið mjög lærdómsríkt að vinna með þeirri goðsögn sem Robert Wilson er. Ég gat því ekki sagt nei við þessu tækifæri.“ Ljósmynd/Lesley Leslie-Spinks Goðafræðin „Þetta er heildrænt leikhús þar sem allir þættir eru jafn mikilvægir, tónlistin, hreyfingarnar, textinn, lýsingin, hvert einasta smáatriði skiptir máli,“ segir Valgeir um uppfærsluna á Eddu í Norska þjóðleikhúsimu. Valgeir vann með Wilson að Eddu í Ósló  Viðamikil og margbrotin sýning í Norska þjóðleikhúsinu Valgeir Sigurðsson Miðasala og nánari upplýsingar 5% SÝND KL. 8 SÝND KL. 6 SÝND KL. 8, 10.30 SÝND KL. 10.30 SÝND KL. 5.15, 8, 10.45 SÝND KL. 5.40 PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til kl. 16 mánudaginn 13. mars. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is SÉRBLAÐ Fermingarblað Morgunblaðsins kemur út föstudaginn 17. mars Fermingarblaðið er eitt af vinsælustu sérblöðum Morgunblaðsins. Fjallað verður um allt sem tengist fermingunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.