Morgunblaðið - 08.03.2017, Side 36
MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 67. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR.
1. Hildur lætur Sindra heyra það
2. Fanginn lést í gær
3. Andlát: Jóhannes Tryggvason
4. Sonur J-Lo biður hana um að fara …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Alþjóðlegi kvennadagurinn er í dag
og mun KÍTÓN, félag kvenna í tónlist,
á Íslandi, hefja nýja tónleikaröð í
kvöld, Open mic, á Café Rosenberg. Í
röðinni geta allar tónlistarkonur
komið fram og flutt tónlist að eigin
vali. Tónlistarkonan Elíza Newman
verður kynnir og gestgjafi í kvöld og
hefjast leikar kl. 20.30.
Tónleikaröð helguð
konum á Rosenberg
Tríó píanóleik-
arans Sunnu
Gunnlaugsdóttur
leikur bland af
nýju efni og verk-
um af eldri disk-
um sínum í kvöld
kl. 21 á djass-
kvöldi Múlans í
Björtuloftum í
Hörpu. Auk Sunnu skipa tríóið Þor-
grímur Jónsson og Scott McLemore.
Tríó Sunnu Gunn-
laugs á Múlanum
Leiksýningin Babette’s Feast, þ.e.
Gestaboð Babettu, í leikstjórn Pálínu
Jónsdóttur, verður frumsýnd í The
Connelly Theater í New York í dag.
Sýningin er meistara- og útskriftar-
verkefni hennar frá leikstjórnardeild
Columbia-háskóla, en hún samdi
einnig leikgerðina eftir sögu Karenar
Blixen. Leikkonan sem
fer með hlutverk
flóttakonunnar Ba-
bettu flúði Íran ung
að árum með fjöl-
skyldu sinni og
settist að í
Bandaríkj-
unum.
Leiksýning Pálínu
frumsýnd í New York
Á fimmtudag Norðan eða norðaustan 8-13 m/s með slyddu eða
rigningu, en léttskýjað suðvestan til. Hiti um eða yfir frostmarki við
suður- og austurströndina en annars vægt frost.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Víða hæg austlæg eða breytileg átt, en
norðaustan 8-13 m/s og slydda eða snjókoma norðvestantil og
rigning austast. Hiti 0 til 5 stig.
VEÐUR
Skautafélag Akureyrar þarf
nú að treysta á önnur lið í
baráttu sinni um að ná 2.
sæti Hertz-deildar karla í ís-
hokkí, eftir að liðið tapaði
fyrir Esju á heimavelli í gær
í æsilegum leik, 6:5. SA er
þremur stigum fyrir ofan
Björninn og á eftir leik við
SR. Björninn á eftir leiki
við Esju og SR og er
með mun betri marka-
tölu. Björninn ræður því
eigin örlögum. »2
Örlögin ekki leng-
ur í höndum SA
„Ég einbeiti mér algjörlega að ÍBV um
þessar mundir. Ef mér berast fyrir-
spurnir eða tilboð að utan skoða ég
það mál að loknu keppnistímabilinu í
vor. En meðan keppnistímabilið
stendur yfir hér heima ein-
beiti ég mér algjörlega að
því að ná
sem
bestum
árangri
með ÍBV,“ segir
Theodór Sigur-
björnsson, sem hefur far-
ið á kostum með Eyja-
mönnum í handbolta í
vetur. »4
Einbeiti mér að því að
ná árangri með ÍBV
„Þegar nýi þjálfarinn tók við (Friðrik
Ingi Rúnarsson) voru allir tilbúnir að
heyra hvað hann hefði fram að færa
og vinna með honum. Hann breytti
áherslunum og eftir að við vorum all-
ir komnir á sömu blaðsíðu þá small
liðið saman. Við erum betra lið,“ seg-
ir Amin Stevens, leikmaður Keflavík-
ur, sem farið hefur á kostum í Dom-
inos-deildinni í körfubolta í vetur. »2
Allir á sömu blaðsíðu og
liðið small saman
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Fyrir um 30 árum voru vídeó-
leigur á hverju horni en nú eru
þær ámóta algengar og hvítir
hrafnar. Aðalvídeóleigan á Klapp-
arstíg 37 í Reykjavík stendur enn
undir nafni og Reynir Maríuson
hefur staðið þar vaktina nánast í
þrjá áratugi.
„Er lífið ekki svolítið þannig að
maður flýtur með straumnum nið-
ur ána, svo kvíslast hún og fyrir
einhverja tilviljun rennur maður í
einhverja kvísl,“ segir Reynir
spurður um hvers vegna hann hafi
opnað vídeóleigu á sínum tíma.
Leggur samt áherslu á að ævi-
langur áhugi á kvikmyndum sé
fyrst og fremst ástæðan.
Hugsjónaeldur og stórt hjarta
Aðalvídeóleigan hefur alltaf ver-
ið opin frá klukkan þrjú á daginn
til klukkan hálftólf á kvöldin. „Af-
greiðslutíminn tekur mið af lífinu í
miðbænum og hentar því vel,“ seg-
ir Reynir. „Fólkið hérna er ekki
mikið að æsa sig fyrir hádegi og
rjúka út til að leigja myndir.“
Úrvalið í Aðalvídeóleigunni hef-
ur alltaf verið mikið. Reynir segir
að í byrjun hafi hann komið sér
upp gríðarlega miklu safni af
myndum á VHS-spólum. DVD hafi
síðan tekið markaðinn yfir á ótrú-
lega stuttum tíma. „Ég hef því
þurft að koma mér upp safninu
tvisvar en áherslurnar hafa lítið
breyst,“ segir hann. Bendir á að
hann hafi alla tíð lagt áherslu á að
bjóða upp á svokallað heimsbíó
(World Cinema), myndir frá ýms-
um heimshornum, þekktar og
óþekktar, bæði svonefndar költ-
myndir, listrænar myndir, Holly-
wood-myndir, seríur og fleira. „Ég
er alls með rétt undir 30 þúsund
titla, en í gamla daga var algengt
að flottar leigur væru með þrjú til
fimm þúsund titla.“
Reynir segir að Woody Allen sé
vinsælasti leikstjórinn frá upphafi,
en annars séu óskir viðskiptavina
nánast jafnmargar og þeir séu. Því
skipti öllu að vera með mikið úrval.
Leigan er ekki í stóru rými og á
bak við í afgreiðslu eru hilluveggir
þaktir af gömlum VHS-spólum.
„Það var fátt annað hægt að gera
við spólurnar,“ segir Reynir.
„Leigan sjálf er ekki stór en hug-
myndin, hugsjónin og hjartað í
henni er miklu stærra,“ heldur
hann áfram.
Hann segir að samkeppnin frá
sjónvarpsstöðvum og símafyrir-
tækjunum sé eðlileg, en ólöglega
niðurhalið sé annars eðlis. „Það er
gegndarlaust jafnt hér sem erlend-
is. Þetta er miklu alvarlegra mál
en fólk vill viðurkenna og vegna
þessa tapast miklar tekjur og mikl-
ir skattar.“
Ferðamenn leggja gjarnan leið
sína í Aðalvídeóleiguna en fæstir til
þess að leigja myndir. „Þeir líta
fyrst og fremst á þetta sem safn,
eru dolfallnir að enn skuli vera til
vídeóleiga með svona mikið úrval,“
segir Reynir. „Fjórða kynslóð við-
skiptavina er farin að mæta til
okkar og önnur og þriðja kynslóð
eru bara nokkuð algengar, en þetta
er þó að verða ansi þungur róður.
Vekja má athygli á því að kvik-
myndahátíðir og annað tengt af-
þreyingu hefur haft góðan aðgang
að styrkjum og hjálp, sem við höf-
um því miður ekki notið.“
Reynir segir að hugsjónaeld-
urinn haldi sér gangandi. „Ég hef
ógurlega gaman af þessu og hef
sem betur fer aldrei orðið svo veik-
ur að ég geti ekki mætt í Aðal-
vídeóleiguna,“ segir Reynir, betur
þekktur undir nafninu Aðal-Reynir.
Með nær 30 þúsund titla
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Aðalvídeóleigan Reynir Maríuson hefur staðið vaktina á Klapparstígnum nánast í þrjá áratugi.
Reynir og Aðal-
vídeóleigan á
Klapparstíg í 30 ár
Safn Hilluveggir Aðalvídeóleigunnar eru þaktir af gömlum VHS-spólum.