Morgunblaðið - 23.05.2017, Síða 14

Morgunblaðið - 23.05.2017, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2017 flísar fyrir vandláta PORCELANOSA Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Helga Björk Laxdal, skrifstofustjóri borgarstjórnar, hvetur til þess að Reykjavíkurborg nýti heimildir m.a. um rafræna atkvæðagreiðslu í sam- ræmi við ákvæði laganna og blandi íbúakosningum ekki saman við framkvæmd borgarstjórnarkosn- inga. Helga telur að sparnaður við að halda tvennar kosningar á sama tíma sé óverulegur miðað við þá áhættu sem tekin er við að flækja framkvæmd borgarstjórnar- kosninganna sjálfra. Það var stjórnkerfis- og lýðræðis- ráð borgarinnar sem óskaði um- sagnar Helgu um tillögu ráðsfull- trúa Framsóknar og flugvallarvina um að fram færi íbúakosning í Reykjavík samhliða borgarstjórnar- kosningum árið 2018. „Tillagan er svohljóðandi: „Stjórnkerfis- og lýðræðisráð Reykjavíkur- borgar sam- þykkir að leggja til við Borgar- stjórn Reykjavík- ur að fram fari íbúakosning í Reykjavík sam- hliða borgar- stjórnarkosningum 2018. Stjórn- kerfis- og lýðræðisráði verði falin undirbúningur og að leggja fram til- lögur að spurningum sem lagðar yrðu fyrir borgarbúa í kosning- unum.“ Á fundinum var samþykkt að vísa tillögunni til umsagnar skrifstofu borgarstjórnar og er óskað eftir því að í umsögninni komi fram sundur- liðun á kostnaðarmati vegna stakra íbúakosninga annars vegar og kosn- inga samhliða sveitarstjórnar- kosningum hins vegar. Fram kemur í svari Helgu að raunkostnaður vegna kosninga í Reykjavík, hvort sem um er að ræða eitt eða tvö kjördæmi, hafi verið á á bilinu 75 til 80 milljónir króna. Þar sé launakostnaður lang- stærsti liðurinn, um 45 mkr., en þar er ótalinn kostnaður við þóknanir yfirkjörstjórna. Gera megi ráð fyrir að kostnaður við að halda íbúakosn- ingar samhliða geti orðið allt að 40 milljónir króna til viðbótar, að mestu launakostnaður. Helga segir að nauðsynlegt sé að hafa tvöfalda kjörskrá og tvo kjörkassa inni í hvorri kjördeild. Talning þyrfti að fara fram á tveimur stöðum ef telja ætti á sama tíma. Það yrði töluverð- um erfiðleikum háð að manna slíka framkvæmd með reyndu fólki. Mælir gegn íbúakosningu  Slík kosning samhliða borgarstjórnarkosningum rándýr Helga Björk Laxdal Sigtyggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Stjórn Faxaflóahafna samþykkti á fundi í síðustu viku að leggjast gegn aukinni móttöku á spilliefnum á lóð- inni Klettagarðar 9 í Sundahöfn. Fyrirtækið Efnaráð ehf, sem áður hét Sindraportið hf. og þar áður Hringrás hf. hafði sent til Umhverf- isstofnunar starfsleyfisumsókn um að taka á móti 2.000 tonnum af spilli- efnum og sóttmenguðum úrgangi og 4.000 tonnum af raf- og rafeindatækjaúrgangi til endur- vinnslu. Umhverfisstofnun sendi fyr- irspurn til skipulagsstjóra Reykja- víkur sem framsendi erindið stjórn Faxaflóahafna til umsagnar. Fyrir stjórnarfundinn var lagt fram minnisblað Gísla Gíslasonar, hafnarstjóra Faxaflóahafna, og Hild- ar Gunnlaugsdóttur, skipulagsfull- trúa. Niðurstaða þeirra var svohljóð- andi: „Hafnarstjórn hefur þegar álykt- að um að starfsemi Sindraportsins hf./Hringrásar ehf. skuli flytja af lóð- inni Klettagarðar 9 og hefur lóðar- leiguhafi tekið jákvætt í flutning starfseminnar gegn ákveðnum fyr- irvörum um nýtt athafnasvæði fyrir starfsemina. Á síðustu árum hafa komið upp atvik á lóðinni og liggur m.a. fyrir ítarleg skýrsla Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins um bruna sem þar hafa orðið. Þessi atvik mæla eindregið gegn því að starfsemin þar verði aukin. Það á einnig við um mót- töku á spilliefnum. Fyrirtækið Efna- rásin ehf. mun vera dótturfélag Hringrásar ehf., en hvorugur aðilinn er beinn handhafi lóðarleiguréttinda heldur munu þeir hafa lóðina og mannvirki á henni að leigu frá Sindraportinu hf.“ Lögmaður Sindraportsins sendi Faxaflóahöfnum bréf í desember síð- astliðnum þar sem fyrirtækið lýsti sig tilbúið til að taka upp viðræður um flutning Sindraportsins. Fram kemur í minnisblaði Gísla og Hildar að náist ekki samkomulag um flutning starfseminnar af lóðinni Klettagarðar 9, þá falli gildandi lóða- leigusamningur úr gildi árið 2023, eða eftir 6 ár. „Með hliðsjón af framangreindu er lagst gegn því að fyrirtækinu verði veitt aukið starfsleyfi og heim- ilað að auka þannig við starfsemi á lóðinni,“ segir í minnisblaðinu. Hafna aukinni starfsemi  Efnaráð ehf. sótti um leyfi til að taka á móti alls 6.000 tonnum af spilliefnum og raftækjaúrgangi í Klettagörðum  Stjórn Faxaflóahafna vill þessa starfsemi burt Morgunblaðið/Ómar Úrgangur Efninu er safnað saman í Klettagörðum áður en það er sent úr landi. Þarna hafa komið upp eldsvoðar. „Okkur finnst vanta jákvæðar frétt- ir frá Vestmannaeyjum. Ég tel að það sé gott fyrir vini okkar í 101 að vita að við erum oft að gera ágætis hluti,“ segir Ómar Garðarsson, rit- stjóri blaðsins Frétta í Vestmanna- eyjum. Starfsmenn útgáfunnar Eyjafrétta eru í dag að ganga frá 64 síðna blaði sem fer í aldreifingu á höfuðborgarsvæðinu á fimmtudag og er einnig dreift með Morgun- blaðinu út um landið auk þess sem Eyjafréttir dreifa því sérstaklega í heimabyggðinni og um Suðurland. Ómar segir að ritstjórnin hafi um tíma haft áhuga á að gefa út blað með jákvæðum fréttum af mannlífi og atvinnulífi í Vestmannaeyjum og dreifa sem víðast. Segist hann strax hafa fundið fyrir miklum velvilja og fyrirtækin hafi gert ritstjórninni kleift að ráðast í þetta með aug- lýsingum og beinum styrkj- um. „Við erum að kynna samfélag- ið okkar og segja frá því sem hér er að gerast. Fáum meðal annars ungt fólk til að segja frá því hvers vegna það býr í Eyjum og utanaðkomandi til að segja frá kynnum sínum af staðnum. Við segjum frá atvinnulíf- inu og vekjum athygli á Vest- mannaeyjum sem áfangastað ferða- fólks. Ég von að það komist til skila hvað við erum flott hérna,“ segir Ómar. helgi@mbl.is Blaðinu Fréttum dreift á fastalandinu  Finnst vanta jákvæðar fréttir úr Eyjum Ómar Garðarsson „Við fylgjumst með gangi mála, en ég á ekki von á niðurstöðum úr sýnatöku nærri því strax,“ segir Sigrún Ágústs- dóttir, sviðsstjóri á Umhverfis- stofnun, spurð um gangsetningu Kísilmálmverk- smiðju United Silicon í Helguvík. Kristleifur Andrésson, fram- kvæmdastjóri öryggis- og umhverf- ismála hjá fyrirtækinu, segir að gangsetning á ofni verksmiðjunnar fari hægt en vel af stað. „Það getur tekið nokkra daga og upp í tvær til þrjár vikur að ná ofn- inum í full afköst. Þangað til kross- um við fingur og fylgjum áætlun ráðgjafafyrirtækisins Multiconsult en starfsmaður þeirra er hér og fylgist með gangi mála,“ segir Kristleifur og bendir á að ekki finn- ist nein lykt í verksmiðjunni sjálfri. Ofn verksmiðjunnar fer hægt af stað United Silicon í Helguvík. Opið hús verður á Hraunkoti í Aðal- dal í S-Þingeyjarsýslu á fimmtudag, uppstigningardag, frá kl. 13 til 16. Hjónin Kolbeinn Kjartansson og Tora Katinka Bergeng hyggjast safna fé til styrktar barnaheimili í Kenía, en þar alast upp stúlkur sem misst hafa foreldra úr alnæmi. Hingað til hafa þær þurft að flytja á heimavist þegar þær fara í mennta- skóla en nú stendur til að byggja menntaskóla hjá barnaheimilinu og bjóða börnum í þorpinu líka upp á frekari skólagöngu. Hjónin heim- sóttu barnaheimilið í febrúar, hrif- umst af starfinu og vilja leggja sitt af mörkum. Á Hraunkoti er fjöl- breytt dýralíf, kýr, naut og kálfar, kindur og nýfædd lömb, hænur, hundur og hestar og nýlega fædd- ust sex kanínuungar. Þá verða hest- arnir til taks og teymt undir þeim sem vilja fara á bak. Aðgangseyrir er 1.000 krónur á mann og innifalið, fyrir utan það að fá að heilsa upp á dýrin, er kaffi, vöfflur og djús. Ferð til fjár fyrir börnin Vor Nýfædd lömb í Hraunkoti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.