Morgunblaðið - 23.05.2017, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2017
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur
Lögfræðingafélags Íslands
verður haldinn miðvikudaginn 31. maí 2017
í húsnæði LMFÍ, Álftamýri 9, kl. 17.00
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Fyrir fundinum liggur fyrir tillaga um heildar-
endurskoðun á lögum félagsins, sjá nánar
á heimasíðu: www.logfraedingafelag.is
Stjórn LÍ.
Lögfræðingafélag Íslands
Álftamýri 9, 108 Reykjavík.
www.logfraedingafelag.is
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri, sem hér segir:
Fellsbraut 4, Svfél. Skagaströnd, fnr. 213-8848, þingl. eig. Sigurbjörg
Írena Rúnarsdóttir, gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf.,
mánudaginn 29. maí nk. kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra
22. maí 2017
Tilkynningar
Samþykkt breyting
deiliskipulags Ægis-
brautar - Vallholts 5
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti
11. apríl 2017 breytingu á deiliskipulagi
Ægisbrautar vegna Vallholts 5.Tillagan var
auglýst samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulags-
laga nr. 123/2010. Athugasemdir bárust og
hefur þeim sem gerðu athugasemdir, verið
send umsögn sveitarstjórnar. Deiliskipulagið
er samþykkt með þeirri breytingu að bíla-
stæðum var fjölgað úr 12 í 16. Hægt er að
kæra samþykkt sveitarstjórnar til úrskurðar-
nefndar umhverfis- og auðlindamála.
Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu
auglýsingar um gildistöku deiliskipulagins í
B-deild Stjórnartíðinda.
Sviðstjóri skipulags- og
umhverfissviðs Akraneskaupstaðar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9, gönguhópur 1 kl. 10.15, vatns-
leikfimi í Vesturbæjarlaug kl. 10.50, tálgað í tré kl. 13, postulínsmálun
kl. 13, jóga kl. 18.
Boðinn Brids og kanasta kl. 13.
Borgir Sundleikfim kl. 7.30 með Brynjólfi í Grafarvogssundlaug og
sundleikfimi aftur kl. 13.30 í dag. Botsía kl. 9 í Borgum, helgistund kl.
10.30 í Borgum, leikfimi í Egilshöll kl. 10.30 og heimanámskennsla kl.
16.30 í dag í Borgum. Ljósmyndaklúbbur Korpúlfa kl. 16 í Borgum.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-
10.30. Lesið og spjallað kl. 10.30. Botsía kl. 10.40-11.20. Hjúkrunar-
fræðingur með viðveru frá kl. 11-11.30. Bónusrútan kemur kl. 12.30.
Leshópur hittist kl. 13-14.30. Gönguhópur kl. 13.30, tekinn léttur
hringur um hverfið. Opið kaffihús kl. 14.30-15.30.
Bústaðakirkja Engin samvera er á miðvikudaginn en tekið er á móti
munum þann dag milli kl 15-16, fyrir handavinnusýninguna sem er á
uppstigningadag. Minnum á messuna kl. 14 á uppstigningardegi,
séra Kristín Pálsdóttir og Hólmfríður djákni þjóna fyrir altari. Glæður
syngja undir stjórn Ástu Haraldsdóttur. Kaffihlaðborð í boði kirkjunn-
ar á eftir í safnaðarsal, allir hjartanlega velkomnir.
Dalbraut 18-20 Handavinnusamvera kl. 9, félagsvist kl. 14.
Fella-og Hólakirkja Kyrrðarstund kl. 12 í umsjá Krisínar djákna og
Arnhildar organista. Síðasta samvera eldri borgarastarfsins. Við
gerum okkur glaðan dag og grillum pylsur og Þorvaldur kemur með
nikkunna. Verið velkomin
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Landið skoðað með nútímatækni kl.
13.50. Kaffiveitingar kl. 14.30-15.30. Nánari upplýsingar í síma
411 2550. Verið öll velkomin.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Bútasaumur kl. 9-12, glerbræðsla kl. 9-
13, handavinna kl. 13-15, félagsvist kl. 13.30-16.30. Allir velkomnir í
félagsvistina, verð 200 krónur og verðlaun fyrir efstu sæti. Verið vel-
komin á Vitatorg, Lindargötu 59, sími 411 9450.
Garðabær Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl.
9.30-16. Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara í síma
617 1503. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 14-15.45. Stóla-
jóga í Jónshúsi kl. 11. Qi-gong í Sjálandsskóla kl. 9.10. Karlaleikfimi í
Sjálandsskóla kl. 13. Botsía í Sjálandsskóla kl. 13.45. Bónusrúta fer frá
Jónshúsi kl 14.45. Félagsvist kl. 20.
Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Keramikmálun kl.
9-12. Glervinnustofa með leiðbeinanda kl. 13-16. Leikfimi gönguhóps-
ins kl. 10-10.30. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.45 stólaleikfimi, kl. 13 handavinna,
kl. 13 hreyfi- og jafnvægisæfingar, kl. 13.30 alkort, kl. 14 hreyfi- og
jafnvægisæfingar.
Grensáskirkja Kyrrðarstund kl. 12.
Gullsmári Myndlist kl. 9, botsía kl. 9.30, ganga kl. 10, kanasta kl. 13.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9– 14. Morgunleikfimi kl. 9.45. Jóga kl. 10.10–
11.10. Hádegismatur kl. 11.30. Bónusbíllinn kl. 12.15. Félagsvist kl.
13.15. Kaffi kl. 14.15.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, jóga kl. 9, 10 og 11.
morgunleikfimi kl. 9.45, matur kl. 11.30. Opin vinnustofa frá kl. 13,
tálgun. Helgistund kl. 14, séra Ólafur Jóhannsson, kaffi kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið kl.
8.50, thai chi kl. 9, leikfimi kl. 10, Spilastund með nemendum úr
Réttarholtsskóla kl. 11 og göngutúr kl. 13 með þeim. Bónusbíll kl.
12.40, brids kl. 13, Kríur myndlistarhópur kl. 13, bókabíll kl. 14.30,
síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir í Hæðargarð, nánar í síma
411 2790.
Selið Sléttuvegi Selið er opið kl. 10 til 16 í dag. Upp úr kl. 10 er
boðið upp á kaffi og gott að kíkja í spjall og lesa blöðin. Hádegismatur
er kl. 11.30-12.30 og kaffi og meðlæti kl. 14.30-15.30. Nánari upplýs-
ingar hjá Maríu í síma 568 2586. Allir hjartanlega velkomnir í Selið
óháð aldri og búsetu.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi kl. 7.15. Kaffispjall í króknum kl. 10.30.
Pútt á Eiðistorgi kl. 10.30. Karlakaffi í safnaðarheimilinu kirkjunnar kl.
14. Handverkssýning eldri bæjarbúa á Seltjarnarnesi opnar í Salnum
á Skólabraut nk. fimmtudag 25. maí kl. 15. Sýningin verður svo opin
föstudag og laugardag kl. 14-18. Sölubásar og vöfflukaffi.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Skák kl. 13, allir velkomnir. Fjörður,
Flateyjardalur og Siglufjörður 13.–16. ágúst. Ekið frá Reykjavík til
Akureyrar. Á öðrum degi er ekið norður Flateyjardalsheiði allt út á
Flateyjardal. Á þriðja degi er haldið út í Fjörður (Hvalvatnsfjörð) um
Leirdalsheiði (á velútbúnum fjallabílum). Á fjórða degi er ekið aftur ti-
Reykjavíkur en um Eyjafjörð, Ólafsfjörð og Siglufjörð. Upplýsingar í
síma 588 2111
Vesturgata 7 Fótaaðgerð kl. 9. Glerskurður (Tifffanýs) kl. 13-16,
Vigdís Hansen.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
Vélar & tæki
Vinnulyftur ehf
Eigum á lager nýjar skæralyftur frá
Skyjack og bómulyftur frá Niftylift.
eyvindur@simnet.is, sími 774 2501
www.skyjack.is.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
VIÐHALD
FASTEIGNA
Lítil sem stór verk
Tímavinna eða tilboð
℡
544 4444
777 3600
jaidnadarmenn.is
johann@2b.is
JÁ
Allir iðnaðarmenn
á einum stað
píparar, múrarar, smiðir,
málarar, rafvirkjar
þakmenn og flísarar.
✝ Guðný Krist-jánsdóttir
fæddist 22. júlí
1932 í Glaumbæ í
Reykjadal. Guðný
lést á Hjúkrunar-
heimilinu Hlíð 15.
maí 2017.
Hún var dóttir
hjónanna Kristjáns
Jónssonar frá
Úlfsbæ, f. 22.7.
1900, d. 1.6. 1976,
og Evu Tómasdóttur frá Brett-
ingsstöðum, f. 11.5. 1907, d.
27.5. 1982.
Guðný átti tvö systkini, þau
Erlu Kristjánsdóttur, f. 8.4.
1929, d. 7.4. 2016, og Erlend
Kristjánsson, f. 22.9. 1934, d.
26.4. 2007.
Guðný ólst upp í Glaumbæ
hjá foreldrum sínum en árið
1950 hóf hún sambúð með eft-
irlifandi maka sínum, Brynjari
Axelssyni. Foreldrar Brynjars
voru Sveina Jóhanna Randíður
Jakobsdóttir, frá Akureyri, f.
15.11. 1911, d. 7.11. 1967, og
Aksel Oshaug frá Melbu, Nor-
egi, f. 9.8. 1900, d. 27.2. 1966.
Guðný og Brynjar bjuggu fé-
lagsbúi með foreldrum hennar
en síðar tóku þau alfarið yfir bú-
skapinn og bjuggu hefð-
bundnum búskap í Glaumbæ þar
til árið 1979 að þau
brugðu búi og og
fluttu til Akureyr-
ar.
Þann 19. nóv-
ember 1955 giftust
Guðný og Brynjar.
Þeirra börn eru
fjögur. 1) Kristín, f.
29.1. 1951, hennar
börn eru Sveina
Björk, Guðný og
Sunna Hlín. 2) Jón
Kristján, f. 21.8. 1952, hans börn
eru Margrét, Hulda Guðný,
Brynja Herborg og Andri Freyr.
3) Lilja, f. 7.3. 1961, maki Helgi
Erlendsson, hennar börn eru Ja-
nus Þór, Ingibjörg, Birgir, Halla
og Alexander. 4) Valþór, f. 24.4.
1963, maki Valdís Lilja Stef-
ánsdóttir, börn Eva Kristín,
Brynjar, Þórgnýr og Stefán.
Guðný vann ýmis störf með-
fram búskap, en lengst af vann
hún við mötuneyti Laugaskóla.
Á Akureyri fékkst hún við
ýmis störf, fyrstu árin á mokka-
deild Sambandsins, síðar á
Sjúkrahúsinu á Akureyri en
seinustu starfsárin vann hún í
Glerárskóla.
Útför Guðnýjar fer fram frá
Akureyrarkirkju í dag, 23. maí
2017, og hefst athöfnin klukkan
13.30.
Jæja mamma mín, nú ertu far-
in, laus við verkina og farin í
Sumarlandið. Auðvitað verður
maður að sætta sig við það, þó
sárt sé, en þegjandi verður því
ekki tekið, það væri nú annað-
hvort, strákur sem átti mömmu
eins og þig þegir ekki þegar í
boði er að tala svolítið um þig, við
þig. Nú get ég sagt það sem þú
átt skilið án þess að þú hreyfir
mótmælum eða drepir málum á
dreif þegar einhver ætlaði að
þakka þér eða koma þér í þá
stöðu að þurfa að þiggja, því ef
einhver lifði eftir þeirri einföldu
speki að sælla er að gefa en
þiggja þá varst það þú og fyrir
það vil ég þakka þér af alhug, það
held ég nú.
Allir ættu að eiga mömmu,
flestir eiga hana, því miður ekki
allir, ég var þó einn af þeim
heppnu, ég fékk eina alveg ein-
staka og þar að auki fékk ég að
hafa þig lengur en flestir og fyrir
það er ég þakklátur. Ég, Valdís
og okkar börn fengum svo ríku-
lega að njóta þinnar skilyrðis-
lausu ástar og manngæsku, ekki
sóttist þú eftir veraldlegum gæð-
um eða metorðum heldur deildir
þú öllu, gafst allt sem þú áttir og
alltaf var til nóg og þegar hóp-
urinn stækkaði þá stækkaði
hjartað með, alltaf tími og pláss.
Fórnfýsi, gleði, hlátur, jákvæðni,
umhyggja – já umhyggja, fyrir
öllum sem þú kynntist á lífsleið-
inni. Gamla sveitunga eða aðra
sem komu lengra að og þurftu að
dvelja á Sjúkrahúsinu þurftir þú
að heimsækja, athuga hvort eitt-
hvað væri sem hægt væri að að-
stoða með, nú ekki var þá verra
að fá fréttir af fólkinu í leiðinni.
Þú ræktaðir vini og fjölskyldu og
varst til eftirbreytni í þeim efn-
um, það held ég nú.
Endalokin eru ekki í okkar
höndum og mig grunar að þú
hafir ætlað að hafa þau öðruvísi,
þér fannst þú þurfa að sjá um
pabba lengur, en örlögin höguðu
því öðruvísi og nú syrgir pabbi
þig en við reynum eftir bestu
getu að styðja hann og hlúa að
honum, hann er samt svo sterk-
ur, þrátt fyrir sinn sjúkdóm, og
nú þarf hann ekki að hafa
áhyggjur af þér, þrátt fyrir að
þér fyndist það nú hreinasti
óþarfi, þá hafði hann það nú
samt. Fyrir tæpum 70 árum
lædduð þið lófum ykkar saman
og enn hélt hann þegar þú fórst,
það var sorglegt en um leið svo
fallegt.
Góða ferð mamma.
Þinn sonur
Valþór.
Einu sinni slóst ég við ömmu
mína með pappakassa þangað til
kassarnir liðuðust í sundur. Einu
sinni fékk afi ekkert kjötfars af
því að við amma ákváðum á sama
tíma að klína því hráu í andlitið
hvor á annarri. Einu sinni pissaði
ég smá á mig eftir að ég varð hálf
fullorðin því amma kitlaði mig
svo hrikalega í miðjum átökum.
Þetta hljómar svolítið eins og við
amma höfum ekki verið sáttar.
Þvert á móti amma var ein af
bestu vinkonum mínum.
Hin ljúfa bernskuminning er
góðviðri í Reykjadal, ys og þys í
Glaumbæ og hlýr faðmur ömmu
og afa eftir langan dag úti. Síðar
fluttu þau til Akureyrar og eins
erfitt og mér þótti að kveðja
Glaumbæ þýddi þetta fleiri sam-
verustundir. Samverustundir
sem ég fæ aldrei þakkað. Amma
var alltaf til staðar, þegar for-
eldrar mínir þurftu pössun, á 17.
júní þegar þurfti að hvíla sig milli
dagskrárliða, á öskudaginn þeg-
ar hægt var að gista hjá ömmu
og afa og hitta síðan öskudags-
liðið fyrir utan Mokkadeildina.
Síðast en ekki síst veturinn sem
ég bjó hjá þeim afa í Skarðshlíð
40. Ó, þvílíkur vetur. Hlátur og
meiri hlátur. Gestagangur, og
aumingja afa var þvælt þegar
okkur ömmu langaði í eitthvað
gott. Kvöldin með Geir og Gunnu
þegar ég var spæld í að baka am-
erískar og síðan var setið og
spjallað og hlegið. Oft hætti ég
við plön með vinkonunum til að
eyða frekar tíma með þeim
gömlu. Amma var einstakur kar-
akter, hláturmild, ákveðin og vin-
ur vina sinna. Síðast en ekki síst
var hún Amma með stóru A-i.
Elsku amma, passaði mig, hún
passaði börnin mín og studdi mig
alla tíð. Að leiðarlokum er þakk-
læti mér efst í huga. Þakklæti
fyrir að hafa átt einstaka ömmu,
þakklæti fyrir að hafa þó fengið
að hafa hana svona lengi, samt er
ég svo ekki reiðubúin að sleppa.
Elsku amma, nú situr þú í
sumarlandinu, syngur með Erlu
systur þinni, tuðast með Evu
langömmu og öllum hinum sem
farnir eru á undan. Þangað til
næst, góða ferð og hafðu hjart-
ans þakkir fyrir allt og allt. Elska
þig ávallt.
Guðný Jóhannesdóttir.
Guðný
Kristjánsdóttir