Morgunblaðið - 23.05.2017, Síða 27
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2017
http://uni.hi.is/bjorntho/ritaskra.
Auk heimspekinnar er Björn mik-
ill áhugamaður um sögu og sam-
félagsmál og hefur setið í stjórn
Öldu, félags um sjálfbærni og lýð-
ræði, frá stofnun þess 2011: „Ég
fylgist vel með fréttum og ástandi
mála nær og fjær og hef þungar
áhyggjur af stöðu lýðræðisins í sam-
tímanum, þ. á m. þeim heilaþvotti
sem samfélagsmiðlar fá fólk til að
iðka og útbreiða.
Auk þess hef ég yndi af að rækta
garðinn minn og njóta lífsins í faðmi
fjölskyldunnar í friði fyrir massa-
túrisma. Ég leyfi mér að dreyma um
betri heim þar sem ekki er allt falt
og fegurðin, sköpunin og hin sanna
lífsgleði blómstrar.
Þá má geta þess að ég hef mikinn
áhuga á knattspyrnu, er óforbetran-
legur KR-ingur og liðtækur badmin-
tonspilari í hópi jafningja.“
Fjölskylda
Eiginkona Björns er Sigrún Alba
Sigurðardóttir, f. 26.2. 1973, lektor í
menningarfræði við Hönnunar- og
arkitektúrdeild LHÍ.
Foreldrar hennar: Hjónin Sig-
urður Ingvarsson, f. 5.7. 1935, d. 2.8.
2015, sölustjóri hjá Flugleiðum, og
Kirsten Friðriksdóttir, f. 8.5. 1942,
kennari og alþjóðafulltrúi við VÍ.
Dætur Björns og Sigrúnar: 1)
Snædís Björnsdóttir, f. 21.6. 1999,
menntaskólanemi; 2) Matthildur
Björnsdóttir, f. 15.5. 2003, grunn-
skólanemi, og 3) Lena Charlotta
Björnsdóttir, f. 13.5. 2009, grunn-
skólanemi.
Systkini Björns eru Vilhjálmur
Þorsteinsson, f. 30.12.1965, hugbún-
aðarhönnuður og fjárfestir í Reykja-
vík, og Þórdís Katrín Þorsteins-
dóttir, f. 24.10. 1971, lektor í
hjúkrunarfræði við HÍ, í Reykjavík.
Hálfbróðir Björns, samfeðra: Við-
ar Þorsteinsson, f. 1.9. 1979, doktor í
samanburðarbókmenntafræði, bú-
settur í Reykjavík.
Stjúpbróðir Björns: Orri Vé-
steinsson, f. 22.12. 1967, prófessor í
fornleifafræði við HÍ, í Reykjavík.
Foreldrar Björns: Þorsteinn Vil-
hjálmsson, f. 27.9.1940, prófessor í
eðlisfræði og vísindasögu í HÍ, og
Ingibjörg Björnsdóttir, f. 10.7. 1940,
fv. fulltrúi í Norræna húsinu í
Reykjavík. Þau skildu.
Maki Þorsteins er Sigrún Júlíus-
dóttir, f. 3.2. 1944, prófessor í félags-
ráðgjöf við HÍ, en maki Ingibjargar
var Ólafur H. Óskarsson, f. 17.3.
1933, d. 24.10. 2011, skólastjóri og
landfræðingur í Reykjavík.
Úr frændgarði Björns Þorsteinssonar
Björn
Þorsteinsson
Dóróthea Kristín Möller
húsfreyja í Stykkishólmi
Jón Júlíus Bjarnarson
verslunarm. í Stykkishólmi
Charlotte Kristjana Jónsdóttir
húsfreyja í Rvík
Björn Magnússon
pr. á Borg á Mýrum og
prófessor í guðfræði, í Rvík
Ingibjörg Björnsdóttir
fyrrv. fulltrúi í Norræna húsinu
Ingibjörg Brynjólfsdóttir
húsfreyja á Prestbakka
Vilhjálmur Þorsteinsson
hugbúnaðarhönnuður
og fjárfestir í Rvík
Þórdís Katrín Þorsteinsdóttir
lektor í hjúkrunarfræði við HÍ
Viðar Þorsteinsson
doktor í samanburðar-
bókmenntafræði í Rvík
Sigríður Vilhjálmsdóttir
kennari í Rvík
Svanlaug Vilhjámsdóttir
kennari í Rvík
Magnús Björnsson
starfsmannastj. Flugfélags Íslands
Dóróthea M. Björnsdóttir
símavörður hjá Flugleiðum hf.
Jón Kristinn Björnsson
vélaverkfr. í Rvík
Ingi Ragnar Brynjólfur Björnsson
deildarstj. við Landsbankann
dr. Björn Björnsson
prófessor í guðfræði við HÍ
Jóhann Emil Björnsson
forstj. Ábyrgðar
Oddur Borgar Björnsson
yfirverkfræðingur hjá Fjarhitun
Björn H.R.O. Björnsson
pr. á Höskuldsstöðum á
Skagaströnd og á Hálsi í
Fnjóskadal, rith. og þýðandi
Sigurður Oddsson
prentsmiðjustj. á Akureyri
Geir Sigurðsson
prentsmiðjustj.
Oddur Sigurðsson
jarðfræðingur
Ragnar Sigurðsson
augnlæknir
Oddur
Björnsson
rith. í Rvík
Hilmar
Oddsson
kvikmynda-
gerðarm. í Rvík
Jón Gíslason
formaðurÆttfræðifélagsins
María Jónsdóttir
húsfr. og kennari á Stóru-Reykjum
Gísli Jónsson
b. og hreppstj. á
Stóru-Reykjum í Flóa,
af ætt Einars
Benediktssonar skálds
Kristín María Gísladóttir
húsfreyja í Rvík
Vilhjálmur Þorsteinsson
verkam. í Rvík
Þorsteinn Vilhjálmsson
prófessor í eðlisfræði og
vísindasögu
Sigríður Vigfúsdóttir
húsfr. á Húsatóftum
Þorsteinn Jónsson
b. á Húsatóftum á Skeiðum
Magnús Bjarnarson
prófastur og oddviti
á Prestbakka á Síðu
Oddur
Björnsson
prentmeistari
og prentsmiðju-
stj. á Akureyri
Kjartan Ragnars fæddist áAkureyri 23.5. 1916 og ólstþar upp og í Bárðardal. For-
eldrar hans voru Ragnar Friðrik
Ólafsson, stórkaupmaður og ræðis-
maður á Akureyri, og k.h., Guðrún
Jónsdóttir húsfreyja.
Meðal systkina Kjartans voru
Ólafur Ragnars, kaupmaður á Siglu-
firði, faðir Gunnars Ragnars, fyrrv.
framkvæmdastjóra Útgerðarfélags
Akureyringa; og Guðrún Ragnars,
móðir Sunnu Borg leikkonu.
Eiginkona Kjartans var Ólöf Þor-
grímsdóttir húsfreyja og eignuðust
þau Áslaugu blaðamann, móður
Andrésar blaðamanns og Kjartans
borgarfulltrúa; Bergljótu listmálara;
Kjartan hrl.; og Rögnu hjúkrunar-
fræðing.
Kjartan lauk stúdentsprófi frá
MA 1936, lögfræðiprófi frá HÍ 1942
og öðlaðist hrl.-réttindi 1958. Hann
stundaði nám á vegum SÞ 1949 og
1955 og á vegum Nató 1958 og 1959.
Kjartan sat ráðstefnur á vegum
Institut International des Sciences
Administratives í Lissabon 1949, í
Belgíu 1952 og í Haag 1954. Hann
hlaut fyrstu verðlaun í alþjóðlegri
ritgerðasamkeppni SÞ 1955 og
dvaldist um skeið í aðalstöðvum SÞ í
boði samtakanna.
Kjartan var aðstoðarmaður í fjár-
málaráðuneytinu 1942-44, fulltrúi
þar 1944-56, fulltrúi í utanríkisráðu-
neytinu 1956-60, fyrsti sendiráðsrit-
ari við sendiráð Íslands í Stokkhólmi
1960-65 og í Ósló 1965-70, var
fulltrúi í utanríkisráðuneytinu 1970-
72, deildarstjóri þar 1972-83 og
sendifulltrúi í utanríkisþjónustunni
1983-85 er hann lét af störfum. Þá
stundaði hann málflutningsstörf í
Reykjavík er hann bjó þar.
Kjartan sat í stjórn Lífeyrissjóðs
starfsmanna ríkisins og Lífeyris-
sjóðs barnakennara 1946-61 og var
áheyrnarfulltrúi hjá Afríkustofnun
Norðurlanda, vegna aðstoðar við
þróunarlönd Afríku.
Kjartan var riddari sænsku Norð-
stjörnuorðunnar, riddari fyrsta stigs
norsku St. Olavsorðunnar og riddari
íslensku fálkaorðunnar.
Kjartan lést 7.1. 2000.
Merkir Íslendingar
Kjartan
Ragnars
85 ára
Anna Hjaltested
Ásmundur Valdemarsson
Jónína Gunnarsdóttir
80 ára
Barði Sigurhelgi
Theódórsson
Inger Ragnarsdóttir
Kristján Ásmundsson
75 ára
Elín Guðrún Hafberg
Ottó B. Jakobsson
Runólfur G. Þórðarson
Sverrir Sigurðsson
Valgarður Jóhannesson
70 ára
Einar Guðberg Jónsson
Gordon Peter Kincla
Grétar Eggert Ágústsson
Guðgeir Ellert Magnússon
Gunnar Halldór Gíslason
Ingibjörg U. Guðnadóttir
Magnús Árnason
Pálrún Hrönn Ingjaldsdóttir
60 ára
Arinbjörn Guðbjörnsson
Arvydas Gudziunas
Banyen Hoisang
Björn Pálsson
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Guðrún Björg Magnúsdóttir
Hermann Karlsson
Jóhann Gunnarsson
Knútur Grétar Hauksson
Kristín Jónsdóttir
Stefán Örn Bjarnason
Vladimir Antonov
Þorsteinn Alexandersson
50 ára
Ásdís Ármannsdóttir
Benedikt H. Franklínsson
Berglind Guðmundsdóttir
Bergrós Guðmundsdóttir
Cristovao M. De Seabra
Einar Ásgeirsson
Guðbjörg Stefánsdóttir
Haraldur Magnússon
Harpa Hjaltested
Herdís Erlendsdóttir
Óskar Heimir
Kristjánsson
Rolandas Minkauskas
Sigríður A. Þórðardóttir
Sigríður H. Ingólfsdóttir
Svafar Ragnarsson
Tómas Jóhannesson
40 ára
Aldís Magnúsdóttir
Arnar Hafliðason
Ásdís Bjarnadóttir
Birgir Brynjarsson
Dagný Ósk Halldórsdóttir
Fouzia Aana
Hanna Dóra H. Másdóttir
Helga Sigurðardóttir
Hrönn Harðardóttir
Kanokwan Wijitjan
Karen Ósk
Guðmundsdóttir
Magnús Þór Þorvaldsson
Merseda Begic
Oddlaug S.A. Árnadóttir
Pawel Janusz Buczak
Roald Viðar Eyvindsson
Vilborg Magnúsdóttir
30 ára
Andris Apinis
Ari Birgir Ágústsson
Ármann Ó. Kristjánsson
Benedikt Friðriksson
Bjarki Þór Guðjónsson
Bylgja G. Guðnýjardóttir
Ebba Sif Möller
Guðríður H. Sigurðardóttir
Helgi Þór Magnússon
Laura M. Sylvia Heininen
Linda Karen Hafnadóttir
Sidonie S. S. Schmitt
Til hamingju með daginn
30 ára Sölvi lauk MA-
prófi í myndlist frá Kon-
unglegu listaakadem-
ínunni í Kaupmannahöfn
og er myndlistarmaður og
húðflúrnemi.
Maki: Ingibjörg Þor-
steinsdóttir, f. 1988, sál-
fræðingur.
Foreldrar: Guðrún Ósk
Ólafsdóttir, f. 1959, hjúkr-
unarfræðingur í Reykja-
vík, og Snæbjörn Arn-
grímsson, f. 1961,
útgefandi í Danmörku.
Sölvi Dúnn
Snæbjörnsson
30 ára Ólafur ólst upp í
Garðabæ, býr þar, lauk
verkfræðiprófi frá
Chalmerf í Gautaborg og er
verkfræðingur hjá Eflu.
Maki: Sara Jóhannesdóttir,
f. 1987, starfar að mark-
aðsmálum hjá Eskimos.
Dætur: Katla Lena, f. 2010,
og Hekla, f. 2014.
Foreldrar: Ingi Stefán
Ólafsson, f. 1959, rekstrar-
stjóri, og Birna Ágústs-
dóttir, f. 1963, bæjar-
starfsmaður.
Ólafur Ágúst
Ingason
30 ára Kári ólst upp í
Vestmannaeyjum, býr í
Kópavogi, lauk BSc-prófi í
tölvunarfræði frá HÍ og er
forritari hjá Hugsmiðj-
unni.
Maki: Guðlaug Jökuls-
dóttir, f. 1987, verkfræð-
ingur hjá Icelandair.
Foreldrar: Yngvi Sigur-
geirsson, f. 1955, skip-
stjóri og smiður, og
Oddný Garðarsdóttir, f.
1956, fyrrv. meðhjálpari í
Landakirkju og húsfreyja.
Kári
Yngvason
SKOÐAÐU ÚRVALIÐ Á VEFSÍÐUNNI OKKAR
www.skornirthinir.is
ÖRUGG SKREF
ÚT Í LÍFIÐ
í fyrstu skónum frá Biomecanics
Biomecanics-skórnir auðvelda börnum að taka fyrstu skrefin.
Aukinn stuðningur frá hliðunum bætir jafnvægi og eykur
stöðugleika. Börnin komast auðveldar áfram og af meira
öryggi þökk sé sveigjanlegum sóla og sérstyrktri tá.
Sandalar
Verð 6.995
Stærðir 18-24