Morgunblaðið - 23.05.2017, Síða 36
ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 143. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR.
1. Svona er verðlagið í Costco
2. Hjólreiðamaður fannst …
3. Breytti hraðbankanum í …
4. Skeljungur mun ekki keppa …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Ibsen-kvartettinn kemur fram á
djasskvöldi Kex hostels í kvöld kl.
20.30, en hann skipa Kári Árnason
Ibsen á trommur, Snorri Sigurðarson
á trompet, Andrés Þór Gunnlaugsson
á gítar og Þorgrímur Jónsson á
kontrabassa. Hljómsveitin mun leika
djassstandarda og frumsamið efni
eftir Kára og er aðgangur ókeypis.
Kvartettinn Ibsen
leikur á djasskvöldi
Bandaríska raf-
tónlistarkonan og
slagverksleikar-
inn Amy Knoles
heldur raftónleika
í Seyðisfjarðar-
kirkju annað kvöld
kl. 21. Á tónleik-
unum flytur Amy
tvö verk, „Crazy
N*****“ og verkið 9:8:7:5:4:3:1 sem
er andsvar Amy við fyrra verkinu.
Tvö raftónverk flutt í
Seyðisfjarðarkirkju
Sýning um Sigvalda Kaldalóns
verður opnuð í Þjóðarbókhlöðu á
morgun en upphafleg gerð hennar
var sett upp á vegum Snjáfjallaseturs
í Dalbæ á Snæfjallaströnd 2004 og
síðar á Ísafirði og
Hólmavík.
Á sýningunni
má m.a. hlýða á
hljóðritanir á tón-
list Sigvalda sem
varðveittar eru í
Hljóðsafni Lands-
bókasafns Íslands –
Háskólabókasafns.
Sýning um Sigvalda
Á miðvikudag Norðaustan 8-13 m/s norðvestantil, en annars
norðlæg eða breytileg átt, 3-8. Sums staðar þokuloft við norður-
ströndina, en annars skýjað með köflum og úrkomulítið.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hægari vindur og rigning með köflum, eink-
um suðaustanlands, en þurrt og bjart að mestu um landið norð-
anvert. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast inn til landsins.
VEÐUR
Fjölnismenn komu mörg-
um á óvart í gærkvöldi og
lögðu Íslandsmeistara síð-
ustu tveggja ára í FH að
velli í Kaplakrika í Hafn-
arfirði. Lauk þá 4. umferð
Pepsí-deildar karla og
hafði Valur betur gegn
erkifjendum sínum í KR á
Hlíðarenda 2:1. Þá skoraði
Bolvíkingurinn Andri Rún-
ar Bjarnason þrennu fyrir
Grindavík gegn ÍA á Skag-
anum. »2, 3
Fjölnismenn
komu á óvart
Milos Milojevic var í gær ráðinn þjálf-
ari karlaliðs Breiðabliks í knatt-
spyrnu, aðeins þremur dögum eftir
að hann hætti störfum hjá Víkingi í
Reykjavík. Hann tekur við af Arnari
Grétarssyni, sem var rekinn úr starfi
fyrr í þessum mánuði. Frumraun
Milosar með Breiðablik verður leikur
gegn Víkingum frá Ólafsvík í Pepsi-
deild karla á sunnu-
daginn kemur. »1
Milos var aðeins at-
vinnulaus í þrjá daga
Selfyssingurinn Viðar Örn Kjart-
ansson stóð uppi sem markakóngur
ísraelsku A-deildarinnar í knatt-
spyrnu á fyrsta tímabili sínu með
Maccabi Tel-Aviv en deildakeppninni
lauk á sunnudaginn. Viðar hefur þá
orðið markakóngur í þremur löndum
en hann afrekaði það einnig hér á Ís-
landi með Fylki og síðar þegar hann
lék í Noregi. »1
Viðar varð markakóngur
í ísraelsku deildinni
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Katrín Lilja Kolbeinsdóttir
katrinlilja@mbl.is
Hollvinafélag Austurbæjarskóla í
Reykjavík stendur á laugardaginn
fyrir sýningu á munum skólans allt
frá stofnun hans. Verður gestum
boðið að líta inn milli klukkan 10
og 15 og gefst fólki þá tækifæri til
að kynna sér sögu skólans í gegn-
um þá muni sem Hollvinafélagið
hefur varðveitt.
Sumarið 1995 hófst vinna við
breytingar á skólanum, sem hefur
starfað frá árinu 1930, og við þær
breytingar endaði mikið af munum
í ruslinu. Guðmundur Sighvatsson,
þáverandi skólastjóri Austurbæj-
arskóla og núverandi formaður
Hollvinafélagsins, bjargaði, ásamt
nokkrum starfsmönnum skólans,
bókum og öðrum hlutum sem þóttu
ómetanlegir. „Við tókum bara úr
gámunum það sem verktakar voru
búnir að henda,“ segir Guðmundur.
Fljótlega hófst vinna við að
flokka bækurnar og tókst Arnfinni
U. Jónssyni, þáverandi formanni
félagsins, að fá 500 þúsund króna
styrk til þess að ljúka við flokkun
bókanna, ásamt því að ræða við
ýmsa aðila tengda skólanum í
gegnum tíðina, til þess að fá fleiri
muni í safnið.
Mikill áhugi á að
gefa gamla muni
Markmið sýningarinnar nú er að
Hollvinafélagið geti sótt um fleiri
styrki svo hægt sé að koma upp
skólamunastofu, auk þess sem til
stendur að skrifa sögu skólans.
Þetta er þó ekki fyrsta sýningin
sem félagið heldur. Á 80 ára af-
mæli skólans árið 2010 var haldin
sýning og komust þá færri að en
vildu.
„Margir voru sárir yfir að kom-
ast ekki á þá sýningu og þess
vegna ákváðum við að setja hana
upp aftur núna,“ sagði Sigrún Lilja
Jónasdóttir, gjaldkeri félagsins.
Fyrir tveimur árum var háaloftið í
Austurbæjarskóla tekið í notkun og
síðan þá hefur fólk sem vill leggja
verkefninu lið sent Hollvinafélaginu
gjafir.
Öllum frjálst að ganga
í félagið
Öll vinna sem lögð er í verkefnið
er unnin í sjálfboðavinnu, en í fé-
laginu eru rúmlega 100 manns. Í
fyrstu var ekki vitað hvernig ætti
að koma þessu öllu upp og voru
margar hugmyndir lagðar fram. Á
endanum tókst þó sátt um hvernig
standa ætti að þessu, og afrakst-
urinn verður til sýnis næstkomandi
laugardag.
Saga skólans á sýningu
Ómetanlegum
munum var bjarg-
að úr ruslinu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hollvinir Stjórn Hollvinasamtaka Austurbæjarskóla. Frá vinstri eru Guðmundur Sighvatsson formaður, Pétur Haf-
þór Jónsson, Dagný Marinósdóttir, Sigrún Lilja Jónasdóttir gjaldkeri og Nína M. Magnúsdóttir ritari.
Hollvinafélag Austurbæjarskóla
var stofnað 6. febrúar árið 2010 og
hafa umsvif þess, allt frá stofnun,
beinst að sögu skólans og varð-
veislu muna í eigu hans. Félagið
starfrækir skólamunastofu í skól-
anum, þá einu sinnar tegundar á
landinu. Hvatinn að stofnun fé-
lagsins er sú langa og merka saga
sem Austurbæjarskóli býr yfir, en
skólinn var stofnaður árið 1930.
Öllum er frjálst að ganga í félagið
gegn 2.000
króna árgjaldi
og vonast fé-
lagsfólk til
þess að sem
flestir gangi til
liðs við það svo
hægt verði að
styðja við hið mikla og mikilvæga
starf sem félagið innir af hendi,
því þótt mikið hafi verið gert er
enn mikið verk fyrir höndum.
Gamlir hlutir öðlast nýtt líf
MIKILVÆG VARÐVEISLA MUNA