Morgunblaðið - 27.05.2017, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 27.05.2017, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2017 VEISLUÞJÓNUSTA MARENTZU www.marentza.is - 553 8872 - info@marentza.is Allar gerðir af veislum sérsniðnar að þínum þörfum • Fermingarveislur • Brúðkaup • Erfidrykkjur • Veitingar fyrir fundi • Móttökur • Útskriftir BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Hugsanlegur flugvöllur í Hvassa- hrauni yrði á helsta vatnsverndar- svæði Suðurnesja. Því þyrfti að rann- saka umhverfisáhrif mjög vel áður en teknar væru ákvarðanir um mögu- legar framkvæmdir á svæðinu. Þetta segir Ólafur Þór Ólafsson, forseti bæjarstjórnar í Sandgerði og formaður Svæðisskipulags Suður- nesja. Hann segir svæðisskipulagið sjálfstætt samstarfsverkefni sveitar- félaga á Suðurnesjum, með aðkomu Skipulagsnefndar Keflavíkur- flugvallar og Landhelgisgæslunnar. „Það eru skilgreind vatnsverndar- svæði í Svæðisskipulagi Suðurnesja. Hvassahraunið liggur á vatns- verndarsvæði á svokölluðu fjarsvæði vatnsverndar. Það eru takmarkanir á því hvers konar starfsemi má fara fram á vatnsverndarsvæði. Vænt- anlega þyrfti skipulagsbreytingar ef eitthvað ætti að hreyfa það svæði,“ segir Ólafur Þór. Takmarkanir á grannsvæðum „Það skiptir máli hvort um er að ræða grannsvæði eða fjarsvæði vatnsverndar. Það eru frekari tak- markanir á grannsvæði en fjar- svæði,“ segir Ólafur Þór. Hann bendir svo á að allt svæðið austan Reykjanesbrautar á svæði Suðurnesja sé vatnsverndarsvæði; hraunið sem er á vinstri hönd þegar Reykjanesbraut er ekin frá álverinu í Straumsvík og í suðurátt. Þá segir hann það koma fram í ábendingu frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja að fjarsvæði á vatns- verndarsvæðinu í sveitarfélaginu Vogum hafi „mikið verndargildi sem mögulegt framtíðarvatnsból“. „Fyrir utan að grunnvatns- straumar sem liggja undan Reykja- nesinu og til vesturs renna allir eftir þessum leiðum. Heilbrigðiseftirlitið segir að á fjarsvæðum skuli gæta fyllstu varúðar í meðferð efna. Stærri geymsluhylki eru til dæmis bönnuð á slíku svæði. Síðan getur Heilbrigðisnefnd Suðurnesja gefið frekari fyrirmæli um takmarkanir á umferð og byggingu mannvirkja á slíku svæði. Hvað varðar vangaveltur um flug- völl í Hvassahrauni er það væntan- lega verkefni sem þarf að setjast sér- staklega yfir, þá hvað felst í flugvelli og hvernig hann passar á slíkt svæði. Tilfinning okkar hér suður frá er sú að eitt og annað muni koma upp í slíkri skoðun og að erfitt sé að vera með flugvöll á vatnsverndarsvæði,“ segir Ólafur Þór. Skipulagið þarf að meta stöðuna Hann segist aðspurður ekki ætla að útiloka að flugvöllur komi til greina í Hvassahrauni vegna þessa. Hann „sjái þó ýmsa erfiðleika sem kæmu upp í slíku verkefni“. „Allt neysluvatn á Suðurnesjum rennur þarna undir og við hér suður- frá hljótum að fara vandlega yfir það hvaða mannvirki geta risið á slíku svæði. Þá hvort sem það er sveitarfé- lagið Vogar sem hefur skipulags- valdið eða við hjá Samtökum sveitar- félaga á Suðurnesjum í gegnum svæðisskipulagið,“ segir hann. Svonefnd Rögnunefnd, stýrihópur ríkis, Reykjavíkurborgar og Ice- landair, skilaði því áliti 2015 að Hvassahraun væri besti kosturinn fyrir nýjan innanlandsflugvöll. Er nú jafnvel rætt um alþjóðaflugvöll. Icelandair vinnur að skýrslu um flugskilyrði í Hvassahrauni. Þær upplýsingar fengust að skýrslan væri í vinnslu. Félagið væri að gera veður- farsrannsóknir. „Við gerum ráð fyrir að þessar athuganir og úrvinnslan taki einhverja mánuði í viðbót,“ sagði Pétur Þ. Óskarsson, frkv.stj. sam- skiptasviðs hjá Icelandair. Flugvöllur gæti ógnað vatnsbóli í Hvassahrauni  Hugsanlegt flugvallarstæði yrði á vatnsverndarsvæði sem krefst varúðar Hugsanlegt flugvallarstæði Hvassahraun Reykjavík Hafnarfjörður Grunnkort/Loftmyndir ehf. Stjórnarliðar og stjórnarandstæð- ingar á Alþingi virðast flestir vera þeirrar skoðunar að Alþingi eigi að geta lokið þingstörfum, samkvæmt starfsáætlun, en áætlunin miðar við að síðasti dagur þinghalds fyrir þinghlé verði miðvikudagurinn 31. maí. Samkvæmt samtölum við stjórnar- liða og stjórnarandstæðinga í gær var meginniðurstaðan sú að hægt væri að standa við starfsáætlunina, en jafnframt voru alvarlegar efa- semdir í röðum beggja, að sú yrði nið- urstaðan. „Það eru tvö mál, sem geta komið í veg fyrir að við klárum þingið í næstu viku,“ sagði þingmaður Framsóknar- flokksins. „Annars vegar er það bull- ið í kringum áfengisfrumvarpið, sem þingflokkur Framsóknarflokksins mun aldrei samþykkja, og hins vegar er það frumvarp félagsmálaráðherra um lögfestingu jafnlaunavottunar.“ Með óbragð í munni Þingmenn sem rætt var við telja margir að fjöldi þingmanna á mæl- endaskrá um fjármálaáætlunina dag eftir dag sé ekki endilega vísbending um að málþóf um hana eigi að standa langt fram á sumar. Stjórnarand- stöðuþingmenn segjast vilja að það verði afar skýrt, þegar áætlunin kem- ur til atkvæðagreiðslu, að ýmsir stjórnarþingmenn muni á endanum samþykkja áætlunina í atkvæða- greiðslunni, með óbragð í munninum. Það megi glöggt lesa út úr áliti meiri- hluta fjárlaganefndar. Hvað varðar jafnlaunavottunina voru viðmælendur, bæði úr röðum stjórnarliða og stjórnarandstæðinga, þeirrar skoðunar að hugsanlega verði hægt að ná samstöðu, ef sú leið verð- ur farin að seinka gildistöku jafn- launavottunar, m.a. þannig að fyrsta árið sem lögin verði í gildi, taki hún aðeins til starfsfólks stjórnarráðsins og fyrirtækja með 250 starfs- menn eða fleiri. Annað árið sem lögin verði í gildi nái þau til allra ríkisstofnana og fyr- irtækja með 150 til 250 starfsmenn. Og þriðja árið sem lögin verði í gildi komist vottunin að fullu í framkvæmd. Ekki er þó talið víst að sam- staða náist um þetta. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Alþingi Birgir Ármannsson, Smári McCarthy, Steingrímur J. Sigfússon og Logi Einarsson á Alþingi í gær. Geta lokið störfum samkvæmt áætlun  Stefnt er að þinglokum á miðvikudag eða fimmtudag Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins eru engar líkur á að áfengisfrumvarpið, sem tók miklum breytingum í afgreiðslu meirihluta allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis, komi til afgreiðslu á þinginu, sem til stendur að geri hlé á störfum sínum um mán- aðamótin. Þetta hefur Morgunblaðið úr röðum stjórnarand- stöðuþingmanna, sem sögðu sumir í gær, að þeir væru reiðubúnir að sitja á Alþingi langt fram á sumar, ef það þyrfti til þess að koma í veg fyrir að málið fengi afgreiðslu. A.m.k. einhverjir stjórnarliðar átta sig á þessari stöðu. Engar líkur á afgreiðslu ÁFENGISFRUMVARPIÐ Teitur Björn Einarsson. Dóra Guðjónsdóttir Nordal, píanóleikari og húsfreyja, lést í gær á nítugasta ald- ursári. Dóra fæddist í Reykjavík 28. mars 1928, dóttir hjónanna Mörtu Magnúsdóttur húsfreyju og Guðjóns Ó. Guðjónssonar, prentara og bókaút- gefanda. Hún stundaði nám í píanóleik við Tónlist- arskólann í Reykjavík og var aðalkennari hennar Árni Kristjánsson. Að loknu burtfar- arprófi árið 1948 hélt hún til London til framhaldsnáms hjá Kathleen Long á árunum 1949 til 1953. Í London kynntist Dóra Jóhann- esi Nordal, síðar seðlabankastjóra, sem þar var við hag- fræðinám. Þau giftu sig í Kaupmannahöfn 19. desember 1953. Þau eignuðust sex börn. Þau eru Bera listfræðingur, f. 1954, Sigurður viðskipta- fræðingur, f. 1956, Guðrún prófessor, f. 1960, Salvör heim- spekingur, f. 1962, Ólöf lögfræðingur, f. 1966, d. 2017, og Marta leikari, f. 1970. Dóra var mikil laxveiðikona. Hún var ein af fyrstu konunum til að leggja fyrir sig stangveiði á flugu. Stundaði hún veiðar um ára- tuga skeið, einkum við Svarthöfða í Borgarfirði og Laxá í Aðaldal. Andlát Dóra Guðjónsdóttir Nordal Lið Fjarðabyggðar sigraði í gær-kvöld í Útsvari en liðið lagði Akra- nes nokkuð örugglega. Lokatölur reyndust 65-38. Liðin höfðu verið nokkuð jöfn framan af en í orða- ruglinu tók lið Fjarðabyggðar for- ystuna og landaði að lokum sigr- inum. Kom það í hlut sjónvarps- mannsins góðkunna Ómars Ragnarssonar að afhenda verðlaun- in, Ómarsbjölluna, sem kennd er við hann. Fjarðabyggð hafði komist í úrslit eftir að hafa sigrað lið Grindavíkur, og Akranes hafði lagt lið Hafnarfjarðar að velli í fjögurra liða úrslitum. Í lok þáttarins til- kynntu þáttastjórnendurnir Þóra Arnórsdóttir og Sigmar Guðmunds- son að þau hygðust láta af störfum eftir að hafa stýrt þættinum í tíu ár. Við það tilefni afhenti Ómar þeim mynd sem listamaðurinn Halldór Baldursson hafði teiknað af þeim, sem eins konar kveðjugjöf. Útsvar verður þó áfram á dagskrá en mögulega í breyttri mynd. Fjarðabyggð sigraði Akranes í Útsvari

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.