Morgunblaðið - 27.05.2017, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2017
Dýrahirðir
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn í Laugardal
leitar eftir dýrahirði í fullt starf.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Ber ábyrgð á velferð dýra innan garðsins og framfylgir lögum og reglum er
varða starfsemina.
• Annast fóðrun, hirðingu og fylgist með heilsufari dýra.
• Hefur eftirlit með aðbúnaði dýra og heldur aðstöðu þeirra hreinni og
þrifalegri.
• Sinnir daglegri dagskrá tengdri dýrunum og talar til gesta.
• Tekur á móti nemum, sjálfboðaliðum o.fl. og verkstýrir þeim sem koma til
að vinna við dýrin.
• Sér til þess að aðstaða gesta sé þrifaleg og tryggir öryggi þeirra í umgengni
við dýr garðsins.
• Tekur þátt í hugmyndavinnu og stefnumótun garðsins ásamt öðru
starfsfólki.
Hæfniskröfur
• Menntun í búfræði/búvísindum eða sambærilegt nám sem nýtist í starfi.
• Reynsla af vinnu með dýrum.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
• Öguð og skipulögð vinnubrögð.
• Líkamleg færni er nauðsynleg.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar við viðkomandi
stéttarfélag.
Áhugasömum er bent á að sækja um á heimasíðu Reykjavíkurborgar
reykjavik.is/laus-storf, en umsóknafrestur er til og með 11. júní 2017.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þorkell Heiðarsson í síma 411 5908
eða í netfanginu thorkell.heidarsson@reykjavik.is
Sölumaður
á fasteignamiðlun
Við leitum að öflugum sölumanni sem er
tilbúinn að takast á við spennandi sölu-
mannsstarf og getur hafið störf strax.
Ef þú ert vel skiplagður, hefur góða fram-
komu og ert lausnasinnaður, þá er þetta
rétta starfið fyrir þig. Árangurstengd laun.
Áhugasamir vinsamlega sendið inn
umsóknir á box@mbl.is merktar: ,,S-26167”
Við leikskólann Ásgarð eru lausar stöður
leikskólakennara / leiðbeinanda í 100% störf.
Tvær stöður til frambúðar og ein staða tímabundið.
Við Grunnskóla Húnaþings vestra
er laus 100% staða umsjónarkennara á yngsta stigi.
Við leitum að einstaklingum með:
• Tilskilda menntun, leyfisbréf
• Áhuga á að starfa með börnum
• Lipurð í mannlegum samskiptum
• Skipulagshæfileika
• Hæfni til að sýna frumkvæði í starfi
Kaup og kjör samkvæmt kjarasamningi viðkomandi
stéttarfélags. Í samræmi við jafnréttisstefnu Húnaþings
vestra eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um
störfin. Upplýsingar um skólastarfið má finna á www.
asgardur.leikskolinn.is og www.grunnskoli.hunathing.is
Hugmyndafræði leikskólans byggir á kenningum Mihaly
Csikszentmihalyi, flæði.
Þekking og reynsla grunnskólakennara á byrjendalæsi
er kostur.
Umsóknafrestur er til 15. júlí næstkomandi og þurfa
viðkomandi að hefja störf frá 15. ágúst. Umsókn ásamt
ferilskrá og meðmælendum skulu berast skrifstofu
Húnaþings vestra, Ráðhúsinu, Hvammstangabraut 5,
530 Hvammstanga eða rafrænt á leikskoli@hunathing.is
/ grunnskoli@hunathing.is
Frekari upplýsingar veitir Guðrún Lára Magnúsdóttir
skólastjóri leikskóla í síma 451-2343 / 891-8264 og
Sigurður Þór Ágústsson skólastjóri grunnskóla í síma
455-2900 / 862-5466.
Lausar stöður á Hvammstanga
Leikskólakennarar - grunnskólakennari
Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir að ráða drífandi einstakling í fjölbreytt
starf, með áherslu á gerð mæliblaða og viðhalds teiknigrunna, auk annarra verkefna.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Verkefnastjóri teiknistofu
Helstu verkefni eru:
• Gerð og viðhald mæliblaða.
• Umferðaröryggismál og slysaskráning.
• Umsjón og viðhald teiknigrunna og korta
(Akureyrargrunnur).
• Tilfallandi verkefni á Umhverfis- og mannvirkjasviði.
Menntunar- og/eða hæfniskröfur:
• Gerð krafa um háskólamenntun í byggingartækni-,
byggingariðn- eða byggingarverkfræði, eða sambærilega
menntun sem nýtist í starfi.
• Góð almenn tölvukunnátta þekking og reynsla af
teikniforritum s.s. Microstation, Excel.
• Þekking á One system er kostur.
• Þekking og reynsla af mælingartækjum eins og GPS og
alstöð og þeim hugbúnaði er þeim fylgir er kostur.
• Hæfni til skipulagningar, nýsköpunar og innleiðingar nýrra
hugmynda og vinnubragða.
• Góð íslensku- og enskukunnátta ásamt einu
Norðurlandamáli.
• Færni í mannlegum samskiptum og samstarfsvilji.
• Sveigjanleiki, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Stundvísi og samviskusemi.
• Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott
orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan
hans samrýmist starfinu.
Nánari upplýsingar um starfið er að finna á heimasíðu Akureyrarbæjar,
www.akureyri.is þar sem sótt er um rafrænt.
Umsóknarfrestur er til og með 12. júní 2017.
www.hagvangur.is
Sterk tengsl
í íslensku atvinnulífi
Atvinnublað
alla laugardaga
Sendu pöntun á augl@mbl.is
eða hafðu samband í síma 569-1100
Allar auglýsingar birtast bæði í Mogganum og ámbl.is
ER ATVINNUAUGLÝSINGIN
ÞÍN Á BESTA STAÐ?