Morgunblaðið - 27.05.2017, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 27.05.2017, Blaðsíða 35
þegar við sátum og spjölluðum. Það skipti aldrei máli hvort það væri eldhúsborð eða Atlantshaf á milli okkar. Eftir vetur kom sum- ar og þú gafst mér afskorna bóndarós og við settumst út á svalir til að fá smá sól á nebbann. Og þú varst sól, amma. Amma á Sunnuvegi. Amma á Sólarvegi. Húsið sem afi hannaði þannig að allir gluggar sneru í suður. Og sól- in sem þú varst hlýjaði manni á höndunum og stakk svo upp í mann einu hálf-rauðu, hálf-grænu jarðarberi úr garðinum. Af því að allt sem þú komst nálægt óx svo fallega, við afleggjararnir í fjöl- skyldunni og afleggjararnir í moldinni. Svo loka ég augunum og sé þig fyrir mér fyrir nokkrum vikum. Þegar ég kíkti í heimsókn eins og svo oft og sagði þér í framhjá- hlaupi að ég væri í vandræðum með að finna mér hvít föt til að syngja í á popptónleikum. Þér fannst það náttúrulega ekki ganga svo þú, níutíu og fimm ára, lánaðir mér hvíta skyrtu af þér. Þannig varstu, amma. Sextíu og sex ára aldursmunur skipti ekki máli hjá okkur vinkonunum. Og þú varst líka besta vinkona mín. Alltaf. Þó að sólin sé sest skilur hún eftir sig minningar sem lifa, hlýjuna sem gleymist aldrei og of- urfallegt ljós til að lýsa manni veginn. Þangað til næst, bæjó spæjó, elsku amma. Melkorka Sigríður. Því meir sem amma gaf af tíma sínum, því meir virtist hún eiga af- lögu. Það er mikilvægt unglingi sem vantar einhvern til að hlusta á heimatilbúnar hugleiðingar sín- ar um tilveruna. Þá var það alltaf amma sem hjálpaði manni að greiða úr flækjunni og sjá sólskin- ið á ný. Í samtölum við ömmu kom glöggt fram hversu næm hún var á mannskepnuna þótt fjölmargar kynslóðir skildu okkur að. Tvítug kynntist hún manninum í lífi sínu og saman byggðu þau sér hús í jaðri stærsta skrúðgarðs borgar- innar; í Laugardalnum, sem var svo sem viðeigandi þar sem allt blómstraði í höndunum á ömmu. Þegar við skondruðumst á ferðum okkar um Grasagarðinn gat hún nefnt hverja einustu jurt með nafni eins og hún væri gamall kunningi. Þegar afi teiknaði húsið þeirra hugsaði hann borðstofugluggann þannig að vetrarsólin næði inn um gluggann á afmælisdegi ömmu, 21. janúar. Þá kom vorið á Sunnu- vegi 25. Það hlaut að vera þess vegna sem alltaf var svo bjart yfir henni, töldum við, svo mikil feg- urð. Amma var vön að mála þá veggi sem þurfti að mála og þegar hún var á níræðisaldri kom ég að henni þar sem hún var búin að draga fram stól til að lappa upp á sólgulan vegg. Því til hvers væri lífið ef ekki er nægilega mikið af birtu í því? Arndís Lóa. Okkur systkinin langar til að minnast og kveðja elsku ömmu okkar með nokkrum orðum. Amma á Sunnó eins og við köll- uðum hana var falleg bæði í útliti og innræti. Hún hafði einlægan áhuga á öllu sem við gerðum og fylgdist vel með fólkinu sínu og var stolt af því. Áður fyrr voru all- ir saman komnir á aðfangadags- kvöld hjá henni og afa. Þvílíkt fjör og góður matur og stóra stofan þeirra full af pökkum. Við höldum í hefðina og borðum sama mat um jólin og rifjum upp góðar minn- ingar. Hún bakaði heimsins bestu rjómapönnsur og oftast átti hún súkkulaðirúsínur og ávaxtahlaup falið í skáp, sem hún hélt að okkur þætti gott. Það var alltaf notalegt og gaman að vita af ömmu og afa í Suðurkotinu sínu þegar við vorum fyrir austan. Hún var yndisleg amma og við kveðjum hana með söknuði og djúpu þakklæti fyrir allt. Bjarni Óskar, Guðný Vala, Ey- rún Anna og Elín Lára. MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2017 ✝ Guðni ÓskarGestsson fædd- ist í Vest- mannaeyjum 28. janúar 1929. Hann lést á Landspít- alanum við Hring- braut í Reykjavík 4. maí 2017. Foreldrar hans voru Gestur Gísla- son, f. 26. júlí 1906, d. 4. ágúst 1994, og Guðrún Ragnhildur Guðmunds- dóttir, f. 17. janúar 1906, d. 12. október 1984. Systkini Guðna sammæðra: Sigurgeir, f. 1931, d. 1940, Haraldur Sigurgeir, f. 1942, d. 1942, Karítas, f. 8. jan- úar 1944, og Sigurrós, f. 1947, d. 1947. Systkini samfeðra: Sól- rún, f. 14. desember 1930, Gísli, f. 25. maí 1941, og Sigrún Edda, f. 15. desember 1947, d. 24. júlí 2003. Guðni kvæntist 28. janúar 1953 Guðbjörgu Stellu Ög- mundsdóttur, f. 11. október afabörn. c) Ögmundur Jón, f. 28. maí 1966, maki Elísabet G. Þorsteinsdóttir, f. 3. ágúst 1967, börn þeirra eru: 1) Guðbjörg Stella, f. 5. ágúst 1991. 2) Fjóla Ósk, f. 3. ágúst 1994. 3) Krist- ófer Örvar, f. 1. apríl 1996. Guðni Óskar ólst upp í Vík í Mýrdal. Hann stundað hefð- bundið nám við Víkurskóla og á unglingsárum flutti hann til Reykjavíkur, þar gekk hann í Austurbæjaskólann og fermdist í Dómkirkjunni. Guðni starfaði lengi sem bifvélavirki á bíla- verkstæði Verslunarfélags Vestur-Skaftfellinga og árið 1972 hóf hann að keyra vöru- bíla hjá Kaupfélagi Vestur- Skaftfellinga og lauk þar starfs- ferli sínum. Guðni og Stella keyptu árið 1958 húsið Fögru- brekku í Vík í Mýrdal og bjuggu þau þar til ársins 2009 en þá fluttu þau til Reykjavík- ur. Guðni var mikill útivist- armaður og hafði gaman af veiðiskap. Einnig hafði hann yndi af ferðalögum með eig- inkonu og fjölskyldu bæði inn- anlands og utan. Útför Guðna fór fram í kyrr- þey frá Lindakirkju í Kópavogi 11. maí 2017. 1933. Foreldrar hennar voru Ög- mundur Ólafsson f. 6. júní 1894, d. 29. september 1995, og Guðrún Jónsdóttir, f. 17. maí 1899, d. 16. mars 1992. Börn Guðna og Stellu eru: a) Guð- rún Dröfn, f. 18. mars 1954, maki Sigþór Ingvarsson sonur þeirra er Guðni Hans, f. 9. ágúst 1995. b) Sigrún Harpa, f. 12. mars 1958, sambýlis- maður Guðmundur Þ. Ragn- arsson, f. 19. október 1957. Dóttir Sigrúnar Hörpu og Bjartmars Guðlaugssonar er Elma Björk, f. 12. desember 1978, maki Orri Pétursson, f. 7. júní 1973, börn þeirra eru: 1) Tristan Máni, f. 20. júní 2007. 2) Sara Mist, f. 29. júní 2011. 3) Styrmir Orri, f. 31. október 2013. Guðmundur á 3 börn og 5 Af þér er ég kominn undursamlega jörð: eins og ljós skína augu mín á blóm þín eins og snjór lykja hendur mínar um grjót þitt eins og blær leikur andardráttur minn um gras þitt eins og fiskur syndi ég í vatni þínu eins og fugl syng ég í skógi þínum eins og lamb sef ég í þínum mó. Að þér mun ég verða undursamlega jörð: eins og sveipur mun ég hverfast í stormi þínum eins og dropi mun ég falla í regni þínu eins og næfur mun ég loga í eldi þínum eins og duft mun ég sáldrast í þína mold. Og við munum upp rísa undursamlega jörð. (Jóhannes úr Kötlum) Kærar þakkir, stóri bróðir, fyrir hlýjuna og húmorinn. Þinn Gísli Gestsson. Elsku pabbi minn, það er tóm- legt að hitta þig ekki eða tala við þig daglega eins og ég hef gert undanfarin ár. Ég sakna þín, nú eru kaflaskipti í lífinu en hjarta mitt er fullt af þakklæti, ég er svo þakklát fyrir að hafa átt svona góðan og yndislegan pabba. Sam- skipti okkar einkenndust af hreinskilni og miklum kærleika. Svei mér þá ef þér tókst ekki að láta okkur þrjú systkinin halda að þú elskaðir hvert og eitt okkar mest, sem er ótvíræður hæfileiki. Þegar ég hugsa til baka til barnæskunnar eru sunnudagarn- ir þegar við vorum heima í Vík- inni eftirminnilegir, þá tókstu þér alltaf frí og gerði eitthvað skemmtilegt með okkur, við fór- um í bíltúra og stundum var farið að veiða í Heiðarvatni eða Dyr- hólaósnum. Alltaf fengum við systkinin að taka þátt í öllu sem þið mamma voruð að gera, enda hefur það komið sér vel. Lært hjálparleysi var ekki í boði og þú sagði alltaf að stelpur gætu gert það sama og strákar. Þegar ég var unglingur gafstu mér tvö heilræði „ef þú ferð eftir hjartalaginu þá vegnar þér vel, því sök bítur sekan“ og svo réttir þú fram höndina og sagðir „þú átt eitt fjöregg, ef þú missir það þá brotnar það, passaðu það“. Það var alltaf gaman að ræða við þig um lífið og tilveruna, þú varst fljótur að greina kjarnann frá hisminu. Fyrir stuttu þegar þú varst heima vorum við að ræða málin, þá spurði ég þig að því hvort ég hefði átt að vera strákur, þá snérir þú þér snöggt að mér og sagðir „já en það eru bestu mistökin sem ég gerði í lífinu“. Er hægt að fá meira hrós? Mikið er ég þakklát þér og mömmu hvað þið voruð dugleg að aðstoða mig með Elmu Björk þegar ég var að klára að mennta mig og koma okkur upp heimili. Eftir að þið fluttuð til Reykjavík- ur tókuð þið líka þátt í að aðstoða með hennar börn þegar á þurfti að halda, þetta er ómetanlegt í öllum skilningi. Ég get ekki sleppt að minnast á samband ykkar Guðmundar, þar ríkti vinátta og gagnkvæm virðing, þú þakkaðir honum mik- ið og oft fyrir það hvað hann var ykkur mömmu hjálplegur og sér- staklega góður afi langafabörn- unum sem er aðdáunarvert. Þú varst alltaf þakklátur fyrir allt sem fyrir þig var gert. Fyrir fjórum árum fórum við og Guðmundur í síðustu veiði- ferðina okkar saman upp á Ferjukotseyrar, þessi dagur er ógleymanlegur. Þú hafðir varla sofið í tvær nætur af spenningi og dagana fyrir dundað við að fara í gegnum veiðidótið. Það var svo gaman, myndin sem var tekin af okkur í veiðigallanum segir meira en mörg orð. Ég vil trúa því að við hittumst síðar, ég ætla að nota sömu kveðjuna sem þú notaðir svo oft „ég bið að heilsa yfir hópinn“. Guð geymi þig, elsku pabbi minn, og takk fyrir allt og allt. Þín dóttir, Sigrún Harpa. Elsku besti afi minn. Ég var ekki nema 4 ára gömul þegar ég stóð við hliðina á þér inni á Múlakaffi og sagði öllum að ég ætti besta afa í heimi. Ég sagði það þá og er enn í dag sannfærð um að ég átti besta afa í heimi. Þetta eru skrýtnir dagar, ég veit ekki hvað ég á að mér að gera í hádeginu því ég sakna þess að koma ekki og hitta þig. Þessar stundir okkar í hádeginu á spít- alanum voru mér svo kærar. Mik- ið langar mig að heyra þig segja einu sinni enn: „Guð blessi þig, elskan mín.“ Þrátt fyrir sorgina er ég þakk- lát fyrir að hafa verið svo heppin að eiga afa eins og þig. Ég naut forréttinda og var eina barna- barnið ykkar ömmu til 13 ára ald- urs, hjá ykkur eyddi ég stórum hluta æskunnar. Þig munaði ekki um að koma á vörubílnum og sækja mig eftir skóla á föstudög- um og leggja af stað aftur með mig í bæinn frá Vík kl. 5 á mánu- dagsmorgnum svo ég næði á rétt- um tíma í skólann. Allt til þess að við gætum átt helgina saman. Þú varst stóri kletturinn í lífi mínu, gladdist með mér yfir sigr- um stórum sem smáum, veittir mér styrk þegar á móti blés og elskaðir mig svo heitt. Þú varst svo hlýr. Þú taldir mér trú um að ég gæti allt, það væri bannað að gefast upp og til þess að ná ár- angri þyrfti maður að leggja á sig. Þú hikaðir ekki við að leggja á þig fyrir mig og fannst ekki mikið mál að koma keyrandi úr Vík til að gera við Skodann minn úti á bílaplani í Teigaselinu í frosti. Þú lofaðir mér að halda bílnum gangandi og auðvitað stóðstu við það, því þú lofaðir engu sem þú gast ekki staðið við. Við áttum margar skemmti- legar stundir saman, þú hafðir alltaf gaman af því þegar ég var að grínast í þér og ég gat alltaf látið þig hlæja. Mesta fjörið var oft í vörubílnum, þá söng ég fyrir þig og mér var alveg sama hversu langt við þurftum að fara með vörur því það var alltaf svo gam- an. Þegar ég komst á unglings- árin var minna um söng en meira spjallað um tískuna og tíðarand- ann og ég þurfti að eignast hitt og þetta. Þegar við komum svo í Teigaselið kysstir þú mig bless og oftar en ekki laumaðir þú að mér peningum sem þú varst hættur að getað notað. Hún stóra þín kunni lagið á þér. Ég veit að þú gerðir allt fyrir mig og ég vona að ég hafi getað launað þér það þegar þú þurftir á mér að halda. Síðustu stundina okkar geymi ég í hjarta mér, þú horfðir í augun á mér með fallegu bláu augunum þínum og ég söng fyrir þig lagið okkar í síðasta skipti. Alveg eins og afi sinn bísperrtur montrassinn það er nú ekki sem verst. Hann skopast að sjálfum sér lætur allt eftir þér sem þér þykir best. (Höf. Bjartmar.) Takk fyrir að vera alltaf til staðar fyrir mig, fyrir alla aðstoð- ina með börnin og fyrir að vera börnunum mínum ómetanlegur langafi. Þú varst stoltur af þeim og sagðir oft að jafnvel þó að við hefðum getað lagt inn pöntun, þá hefðum við aldrei náð að panta svona eintök. Sara gerði ferðalagið þitt svo fallegt. „Mamma, nú fer afi í Fjarskaland þar sem allt er svo fallegt, þá getur hann valið sér ævintýrið sem hann vill vera í.“ Við minnumst þín á hverjum degi með þakklæti fyrir að hafa fengið að vera samferða þér í gegnum lífið. Við vitum að þú vakir yfir okkur og við pössum ömmu fyrir þig. Góða ferð í Fjarskaland, elsku hjartans afi minn, í Fjarskalandi er fallegt. Veldu þér ævintýri við hæfi og þegar við hittumst aftur treysti ég að þú hafir hlutverk fyrir mig. Þín Elma. Guðni Óskar Gestsson Við þökkum öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna fráfalls eiginmanns, föður, afa og langafa, GEIRHARÐS JAKOBS ÞORSTEINSSONAR arkitekts. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á V4 hjúkrunarheimilinu Grund fyrir einstaka alúð og umönnun síðastliðin 3 ár. Guðný Helgadóttir Þorsteinn, Helgi, Kormákur og Halldóra Geirharðsbörn tengdabörn, afa- og langafabörn Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, ÞÓRARINS BJARNASONAR, Stekkjarhvammi 46, Hafnarfirði. Kristín Karólína Stefánsdóttir Bjarni Þórarinsson Ragnhildur Þórarinsdóttir Sigurður Þorsteinn Guðjónss. Guðbjörg Þórarinsdóttir Bjarni Antonsson og barnabörn ✝ Kjartan LárusPétursson fædd- ist í Eskifjarðarseli 1. nóvember árið 1930. Hann lést 2. apríl 2017. Hann var sonur Lovísu Jóhanns- dóttur, frá Áreyjum, og Péturs Kjart- anssonar. Lovísa var áður gift Friðriki Eyjólfs- syni og áttu þau tvö börn; Jó- hönnu og Karl og eru þau bæði látin. Var Kjartani komið, á öðru ári, í fóstur til þeirra hjóna Auð- bergs Benediktssonar og Guð- rúnar Sigríðar Sveinsdóttur í Bröttuhlíð og þar eignaðist hann fóstursystkinin Svein, Línu og Gunnar. Þau eru nú öll látin. Kjartan stundaði sjóinn frá unglingsaldri. Hann varð bóndi að Eyri í Reyðarfirði og síðar Áreyjum Reyðarfirði. Gerði hann oftast út trillu ásamt búskapnum. Dótturina Hafdísi eignaðist Kjartan með Guðrúnu Sveins- dóttur. Hafdís er búsett í Reykja- vík, gift Gunnari Þórðarsyni og eiga þau þrjú börn og fjögur barnabörn. Guðrún lést árið 1991. Um 1950 kynnt- ist Kjartan danskri stúlku, Sigríði Maríu Níelsdóttur. Sig- ríður og Kjartan giftu sig 9. júlí árið 1953. Fæddust þeim fjórar dætur. Kjartan og Sigríð- ur skildu. 1) María Lovísa, sem búsett er í Reykjavík, í sambúð með Leó Óskarssyni og á María einn son og eitt barnabarn. 2) Guðrún Jóhanna, búsett á Eg- ilsstöðum. Á hún fjögur börn með Svavari Valtýssyni, sem hún áður var gift og barnabörnin eru fjögur. 3) Karen Auðbjörg, bú- sett á Reyðarfirði, gift Þórði Sveinssyni, eiga þau þrjú börn og fimm barnabörn. 4) Anna Jörg- ína, búsett í Reykjavík. Var gift Óskari Guðmundssyni, er lést af slysförum. Áttu þau saman tvo syni. Anna á tvö barnabörn. Síð- ar giftist Anna, Osi Carvalho og eiga þau tvö börn. Sambýliskona Kjartans seinni árin var Guðríður Valdimars- dóttir og bjuggu þau á Eskifirði lengst af. Útför Kjartans fór fram frá Eskifjarðarkirkju 9. apríl 2017. Dugandi eljumaður og indæll drengur hefur kvatt okkur og það er sannur söknuður í huga okkar Hönnu. Alveg sérstaklega minn- ist Hanna þeirra ljómandi sam- skipta við síldarsöltun heima, þar sem Kjartan var hinn vaski og verkfúsi maður eins og alls stað- ar, lipur mjög og elskulegur í annríki daganna. Við síðustu samfundi þeirra talaði hann ein- mitt um það hvað hann hlakkaði til að fara að róa frá Mjóafirði á trillunni sinni í sumar. Alltaf sama iðjusemin, alltaf jafn tilbú- inn til vænna verka. Kjartan var af kjarnafólki kominn úr Kálkin- um svokallaða í Reyðarfirði og eignaðist beztu eðliskosti fólksins síns. Hann var gjarnan glaðbeitt- ur í framkomu, og einkar vel lát- inn, átti góða frásagnargáfu og var ákveðinn í skoðunum, harður sjálfstæðismaður lengst af, gagn- rýninn á það sem honum þótti mega fara betur, enda fjarri því að vera nokkur jábróðir. Kjartan var afar verkhagur maður, hvert sem litið var: Til verka í landi, til bústarfa og ekki sízt til sjó- mennskunnar sem ég held að hann hafi haft á mestar mætur. Hann var farsæll bóndi á kostajörð á svo margan hátt en erfiðri einnig, alveg sér í lagi til smalamennsku og þar átti hann Kjartan ófá sporin í gegnum árin. Hann var mikill fjölskyldu- maður, dætur hans sem ég kenndi voru elskar að föður sín- um og gagnkvæm var væntum- þykjan svo sannarlega. Kjartan kveðjum við Hanna í þökk fyrir gjöful samskipti, hann var mætur og góður granni, raungóður og hreinskiptinn og bar alltaf með sér hressandi blæ, þó oft væri erfiði hans mikið, þeg- ar í raun var verið í mörgum hlut- verkum, en örugglega hefur sær- inn alltaf seitt hann, þennan verkfúsa sómadreng. Öllu hans fólki eru einlægar samúðarkveðjur sendar. Þar fór góður drengur og gegn á langri, farsælli göngu um lifið. Blessuð sé kær minning Kjartans. Hanna og Helgi Seljan. Kjartan Lárus Pétursson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.