Morgunblaðið - 27.05.2017, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 27.05.2017, Blaðsíða 7
FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2017 Alexander Gunnar Kristjánsson agunnar@mbl.is Vinna er hafin í utanríkisráðuneyt- inu við umsókn Íslands að Geimvís- indastofnun Evr- ópu. Þetta staðfestir Jóna Sólveig El- ínardóttir, for- maður utanrík- ismálanefndar, í samtali við Morg- unblaðið. Jóna Sólveig á von á að ferlið taki nokkur ár en viðbúið er að Ís- land fái fyrst áheyrnaraðild að stofnuninni áður en til fullrar að- ildar kemur. Aðspurð segist hún telja að þverpólitísk samstaða sé á Alþingi um aðildina og enginn hafi enn sett sig upp á móti henni. Umfangsmikið samstarf á öllum sviðum vísinda Um hálft ár er síðan Alþingi sam- þykkti þingsályktunartillögu um umsókn en fyrsti flutningsmaður hennar var Helgi Hrafn Gunn- arsson, þáverandi þingmaður Pí- rata. Hann bindur miklar vonir við aðildina. „Margir fá það á tilfinn- inguna að við ætlum að taka fullt af erlendum gjaldeyri, setja hann í geimflaug og skjóta honum út í geim,“ segir Helgi. Slíkt sé þó ekki raunin heldur sé um að ræða sam- starf á nær öllum sviðum vísinda. Aðildarríkjum stofnunarinnar er að miklu leyti í sjálfvald sett hvaða verkefnum þau taka þátt í og fjár- magna og segir Helgi að Íslend- ingar gætu lagt sérstaka áherslu á málaflokka sem standa okkur nærri. Nefnir Helgi sem dæmi rannsóknir á jarðskjálftum, bráðnun jökla og önnur jarðvísindi. Þá segir Helgi mikil tækifæri felast í úrvinnslu gagna enda krefst hún mikils reikniafls og þar er Ísland í sér- stöðu með gott aðgengi að ódýru rafmagni. Mikilvægt að skapa hátæknistörf Framlag Íslands til stofnunar- innar kemur til með að ráðast af því hve virkan þátt Íslendingar taka í valfrjálsum verkefnum hennar en í greinargerð með frumvarpinu segir að gera megi ráð fyrir um 275 millj- ónum króna á ári sé miðað við að þátttaka Íslands verði í meðallagi. Í greinargerðinni er minnt á mik- ilvægi þess að skapa á Íslandi há- launastörf sem krefjast sérfræði- menntunar. Undanfarin ár hafi flest ný störf á Íslandi verið láglauna- störf innan ferðaþjónustunnar eða byggingariðnaðarins en á sama tíma og fjöldi fólks sæki í þau störf frá öðrum löndum flytjist hámenntað fólk úr landi vegna skorts á atvinnu- tækifærum. „Fólk sem fer út í veru- lega hátækni leitar út fyrir land- steinana. Það fer til Bandaríkjanna eða Evrópu þar sem spennandi at- vinnutækifæri eru til staðar,“ segir Helgi en það er von hans að aðild Íslands að stofnuninni geti spornað við þessari þróun. Aðild að geimvísindastofnun undirbúin  Snýst um miklu meira en geimflaugar  Mikilvægt að skapa vel launuð hátæknistörf hér á landi Mynd/European Space Agency Framtíðarsýn Þetta útsýni gæti blasað við íslenskum geimförum innan nokkurra ára. Helgi Hrafn Gunnarsson Alexander Gunnar Kristjánsson agunnar@mbl.is Ian Riseley, verðandi forseti Alþjóða- samtaka Rótarý, er staddur hér á landi til að kynna sér Rótarý-starfið hérlendis. Hann heimsótti Guðna Th. Jóhannesson, forseta Íslands í gær og lét vel af. Hann þakkaði Guðna fyrir velvild í garð samtakanna, en forsetanum var nýlega veitt viður- kenning samtakanna. Riseley tekur formlega við embætti forseta sam- takanna 1. júlí næstkomandi. Að- spurður segist hann hafa ákveðið að kynna sér þau svæði sem fólk í hans stöðu hefði minni kynni af og því hefði stefnan verið sett á Ísland. Fyrr í vikunni heimsótti Riseley Björgvin í Noregi, Árósa og Hels- inki. Rótarý-samtökin eiga uppruna sinn í Bandaríkjunum. Þau voru stofnuð árið 1905 en hafa síðan dreifst um allan heim. Markmið sam- takanna er að leiða saman leiðtoga úr viðskiptalífinu og annars staðar frá til að stuðla að friði og bæta heiminn. Þá hefur félagið frá því á áttunda ára- tugnum lagt áherslu á að uppræta mænusótt, með góðum árangri, en búist er við að sjúkdómnum verði al- gjörlega útrýmt innan örfárra ára. Meðlimir félagsins eru um 1,2 millj- ónir, þar af 1.240 hér á landi. Auk al- þjóðlegrar hjálparstarfsemi einbeita samtökin sér einnig að starfi í heima- byggð. Íslensku samtökin styrkja til dæmis árlega nemendur í framhalds- skólum til skiptináms auk þess að styrkja unga tónlistarmenn og af- reksnemendur í framhaldsskólum. Ljósmynd/Markús Örn Antonsson Á Bessastöðum Juliet og Ian Riseley, Guðni Th. Jóhannesson, Guðmundur Þorvarðarson og Svava Halldórsdóttir. Forseti Rótarý-hreyfingarinnar á Íslandi  Heimsótti Guðna Th. Jóhannesson á Bessastaði í gær  Segir markmiðið alltaf að stuðla að friði og bæta heiminn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.