Morgunblaðið - 27.05.2017, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2017
Sama hvar þig ber niður er alltaf eitthvað að sjá. Fljúgum saman á ævintýralegar slóðir.
airicelandconnect.is
Gömul íslensk frímerki hafa átt
óvenju góðu gengi að fagna á upp-
boðum erlendis að undanförnu.
„Við höfum selt frímerkjaefni frá
Íslandi fyrir um 157 milljónir króna
á síðustu mánuðum,“ segir Steinar
Eyþórsson hjá sænska uppboðshús-
inu Postiljonen AB í Malmö í Sví-
þjóð. Hann kemur hingað til lands
eftir nokkra daga til að kanna
hvort enn séu hér verðmæt söfn
sem áhugi er á að selja. Næsta
uppboð er í september. Steinar
hvetur áhugasama til að nýta sér
milligöngu Postiljonen sem er leið-
andi á heimsvísu í sölu á íslensku
frímerkjaefni.
Skildingabréf á 18 milljónir
Íslensku frímerkin á uppboðum
fyrirtækisins koma ýmist héðan að
heiman eða frá norrænum söfn-
urum. Mörg íslensku frímerkjanna
sem seld hafa verið á síðustu upp-
boðum Postiljonen hafa verið keypt
af íslenskum söfnurum og þar með
snúið aftur heim.
Meðal þess sem selst hefur á
uppboðum Postiljonen eru fjögur
svonefnd skildingabréf, með fyrstu
frímerkjum sem gefin voru út á
Íslandi og aðeins voru notuð um
skamma hríð. Fengust yfir 12
milljónir króna fyrir hvert þeirra,
og eitt seldist fyrir tæpar 18 millj-
ónir.
„Verð hefur aldrei verið jafn hátt
á íslenskum frímerkjum,“ segir
Steinar, en þess beri að geta að um
mjög sérstaka safngripi hefur verið
að ræða, bæði sjaldgæfa og vel
með farna. Ber þar hæst frímerkja-
safn Indriða heitins Pálssonar,
fyrrum forstjóra Skeljungs.
Frímerkjasöfnun var almenn
fyrr á tíð, en er nú orðið bundin við
þrönga hópa. „Meðalaldur safnara
er ansi hár á Norðurlöndum,“ segir
Steinar. Yfirleitt séu safnararnir
karlmenn yfir sextugu. Oft sé um
að ræða menn sem safnað hafi frí-
merkjum sem börn eða ungir menn
og taki upp þráðinn þegar þeir eigi
meiri frítíma en áður og aukapen-
inga til að leggja í söfnunina.
gudmundur@mbl.is
Hafa selt frímerki fyrir 157 milljónir
Ljósmynd/Postiljonen
Frímerki 3 aura par, stimplað með
hinum afar sjaldgæfa kórónustimpli
Staður, seldist fyrir 756 þús. kr., 11
sinnum hærra en ásett byrjunarverð.
Mikill áhugi á gömlum íslenskum frímerkjum á uppboðum hjá Postiljonen AB í Malmö í Svíþjóð
„Fólk er sífellt stoppandi og takandi
af stað og það er þegar ökutæki gefa
frá sér mest af mengandi efnum,“
segir Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri FÍB, um mengun á
framkvæmdasvæðinu við Miklu-
braut. Hann gagnrýnir
Reykjavíkurborg og segir að hefði
vilji verið fyrir hendi hefði verið
mjög einfalt að halda umferð í eðli-
legu horfi. „Mér finnst þetta vera
hálfgerð leti og uppgjöf af hálfu
Reykjavíkurborgar,“ segir Run-
ólfur. Hann segir mjög brýnt að
tímaáætlun Reykjavíkurborgar
vegna framkvæmdanna standist.
„Við höfum nú ekki góða reynslu af
tímaáætlunum borgarinnar en það
er mjög mikilvægt að hún standi í
þetta sinn,“ segir Runólfur. Hann
telur að með framkvæmdunum sé
verið að senda mikið magn af út-
blæstri á Hlíðasvæðið sem skerði
lífsgæði íbúa á svæðinu svo um mun-
ar.
Framkvæmdir á svæðinu eiga að
standa fram eftir ágústmánuði en að
þeim loknum stendur til að gera
framkvæmdir á akstursleiðinni í
austur. Runólfur segir að Reykja-
víkurborg verði að leggja höfuðið í
bleyti fram að framkvæmdum í
haust. „Ég vona að menn hlusti á
rýnihópinn sem var búinn að vara
við þessu og átti sig á að þetta er fá-
ránlegur frágangur sem stendur,“
sagði Runólfur.
aronthordur@mbl.is
Mengun við Miklubrautina
Morgunblaðið/Golli
Vegaframkvæmdir Við Klambratún á Miklubraut.
FÍB gagnrýnir Reykjavíkurborg
„Hér er bara verið að framlengja úr-
ræðið um ráðstöfun séreignarsparn-
aðar, sem fólk hefur getað nýtt sér,
um tvö ár eða til júníloka árið 2019,“
segir Jarþrúður Hanna Jóhanns-
dóttir, sérfræðingur hjá Ríkisskatt-
stjóra, spurð um breytingar lögum
um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð.
„Úrræðið mun áfram nýtast öll-
um, ekki bara þeim sem eru að
kaupa sér sína fystu fasteign. Þá er
það einnig opið þeim sem ekki hafa
nýtt sér úrræðið enn.“
Þeir sem nú þegar nýta sér úr-
ræðið verða þó að taka afstöðu til
þess hvort þeir hafi í hyggju að nýta
úrræðið áfram fyrir júnílok ellegar
mun ráðstöfun þeirra ljúka þá.
Framlengt
til júní-
loka 2019