Morgunblaðið - 27.05.2017, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2017
Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum
afhendir Gullbergið VE um miðjan
júlí, en skipið var í vetur selt til
Noregs. Hugsanlegt er að fyrir-
tækið kaupi gamla Pál Pálsson ÍS
af Hraðfrystihúsinu - Gunnvöru hf.
og noti það skip þar til fyrirtækið
fær nýtt skip frá Kína, samkvæmt
heimildum blaðsins.
Í Kína er verið að smíða tvo nýja
ísfisktogara fyrir Vinnslustöðina
og HG, systurskipin Breka og nýj-
an Pál Pálsson.
Einn af Japanstogurunum
Afhending skipanna hefur dreg-
ist, en nú er von á þeim til landsins
síðsumars eða í haust. Gamli Páll
Pálsson er 45 ára gamalt skip,
smíðað í Japan 1972. Verði af því
að Vinnslustöðin kaupi skipið yrði
það aðeins til að brúa bilið í
nokkra mánuði þar til Breki verð-
ur kominn í fulla virkni. Sam-
kvæmt upplýsingum blaðsins þykir
gamli Páll Pálsson hentugur í það
verkefni, en málið er ekki frágeng-
ið.
Greint var frá málinu á frétta-
miðlinum Bæjarins besta á Ísafirði
í gær og kemur þar fram að innan
skamms ljúki 45 ára sögu togarans
Páls Pálssonar ÍS í útgerðarsögu
Hnífsdals og Ísafjarðar.
„Skipið hefur verið til sölu í tvö
ár. Við erum ekki alveg búnir að
ganga frá sölu en við vonumst til
að það skýrist mjög fljótlega,“ seg-
ir Einar Valur Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystihússins –
Gunnvarar hf., í samtali við BB.
Fyrirtækið hefur fundað með
áhöfn Páls og kynnt henni áformin.
Einar Valur segir að gangi salan
eftir fari Páll til nýs eiganda um
mánaðamótin júní júlí. aij@mbl.is
Brúar „gamli“
Páll bilið í Eyjum?
Gullbergið til Noregs, seinkun á Breka
Moergunblaðið/Sigurður Bogi Sævarsson
Páll Pálsson ÍS Alls voru Japanstogararnir tíu talsins og voru smíðaðir fyr-
ir útgerðir víða um land á áttunda áratug síðustu aldar.
kr. 4.900
Str. S-XXL
3 litir
Opið 11-16 í dag
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Túnikur
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
VERÐ 27.980
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Frímerki óskast!
Fulltrúi leiðandi uppboðshúss Norðurlanda
í frímerkjum, Postiljonen, mun verða á
landinu dagana 3.-8. júní n.k.
Tökum á móti efni til sölu á
haustuppboði okkar; frímerkjasöfn,
stök dýrari frímerki og umslög,
póstkortasöfn o.s.fr. Kaupum einnig
gegn staðgreiðslu sé þess óskað.
Box 537
SE-201 25 Malmö - SWEDEN
stampauctions@postiljonen.se
www.postiljonen.com
Vinsamlegast hafið samband í síma
834-7209 eða +46-70795-7436
eða sendið okkur skilaboð á
steinar.fridthorsson@postiljonen.se
MENNTUNARSJÓÐUR
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur
Auglýst er eftir umsóknum um styrk úr Menntunarsjóði Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur.
Sjóðnum er ætlað að styrkja tekjulitlar konur til náms.
Styrkurinn er ætlaður þeim sem hyggja á nám á skólaárinu 2017-2018.
Gengið verður frá styrkbeiðni þegar öll umbeðin gögn hafa borist og staðfesting hefur fengist á skólavist.
Um er að ræða styrk til greiðslu skólagjalda (að ákveðnu hámarki), bókakaupa eða annars sem gerir
umsækjanda kleift að stunda og ljúka námi.
Umsóknarfrestur rennur út 20. júní 2017.
Umsókn skal fylgja
f Skattskýrsla síðustu 2ja ára
f Tekjuáætlun 2017
f Staðfesting á námsvist
Umsóknareyðublað, úthlutunarreglur og allar nánari upplýsingar eru á heimasíðu Menntunarsjóðsins á vef
Mæðrastyrksnefndar - www.maedur.is - og Facebook síðu Menntunarsjóðsins.
AIRBNB
OG ÓHEILBRIGÐ SAMKEPPNI
Gestur fundarins verður dr. Jeroen A. Oskam.
Dr. Oskam hefur greint stöðu Airbnb á Íslandi og mun kynna
sviðsmyndagreiningu á stöðunni í samanburði við aðrar
stórborgir í Evrópu. Þar á meðal hvernig óskráð gististarfsemi
hefur áhrif á byggðarþróun, íbúðarverð og heilbrigðan
samkeppnisrekstur í gistiþjónustu.
Athugið að skráningafrestur er til kl. 20.00 mánudaginn 29. maí og er fundurinn þátttakendum að kostnaðarlausu.
Dr. Jeroen Oskam „Sharing Is Finally Becoming Transparent:
Detailed Analysis of Airbnb In Europe's Metropolises“.
Umræður
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
Skráning:www.saf.is
DAGSKRÁ:
FUNDARSTJÓRI:
Hádegisfundur um samfélagsleg áhrif Airbnb verður
haldinn á Grand Hótel, þriðjudaginn 30. maí kl. 12.00.
Útsölu-
markaðurinn
aðeins á
Laugavegi
Skoðið Facebook.laxdal.is
VORFRAKKAR
Í ÚRVALI
Verð frá 16.900,-
Laugavegi 63 • Skipholt 29b
S: 551 4422
Jón B. Stefáns-
son, skólameist-
ari Tækniskól-
ans, hefur gert
athugasemdir
við yfirlýsingu
framkvæmda-
stjórnar Sam-
bands íslenskra
framhalds-
skólanema um
að nám nem-
enda FÁ sé í uppnámi, komi til
sameiningar við Tækniskólann.
Hann segir að þvert á móti verði
það tryggt að nám nemenda FÁ
muni standa óbreytt frá því sem
var. Sömuleiðis vísar Jón öðrum
áhyggjum framkvæmdastjórn-
arinnar á bug, en þær snúa meðal
annars að nemendum sem muni
innritast í haust. Segir Jón að
sameiningin muni ekki raska
námi þessara nemenda og því síð-
ur hafa áhrif á hvar nemendur
stundi námið. Nemendur FÁ komi
alls staðar af höfuðborgarsvæð-
inu og hafi eftir sem áður rétt til
að velja sér þann skóla sem þeim
henti.
Gefur lítið fyrir
áhyggjur SÍF
Jón B. Stefánsson.
fasteignir