Morgunblaðið - 27.05.2017, Síða 21

Morgunblaðið - 27.05.2017, Síða 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2017 Mest seldu ofnar á Norðurlöndum Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Breska lögreglan sagði í gær að hún hefði handtekið „stóran hluta“ af sell- unni sem skipulagði sjálfsvígsárásina í Manchester síðastliðið mánudags- kvöld. Átta manns eru nú í haldi lög- reglunnar, en þeir eru sagðir á aldr- inum 18 til 38 ára. Lögreglan í Líbíu hafði fyrr í vikunni handtekið föður og bróður árásarmannsins. Breskir fjölmiðlar greindu jafn- framt frá því í gær að „sprengjuverk- smiðja“ hefði fundist heima hjá árás- armanninum Salman Abedi, og hermdu heimildir þeirra að þar hefði verið að finna næg efni til þess að framleiða nokkrar sprengjur til við- bótar við þá sem notuð var á mánu- dagskvöldið. Óttaðist lögreglan að einhverjar þeirra kynnu að hafa lent í höndum samverkamanna Abedis. Var öryggisgæsla jafnframt hert í Bretlandi, þar sem gert er ráð fyrir því að fleiri árásir verði reyndar á meðan Ramadan, hinn helgi mánuður múslima, stendur yfir, þar sem Ríki íslams hefur kvatt öfgamenn á sínum snærum til þess að láta til skarar skríða. Kosningabaráttan í Bretlandi hófst af fullum krafti á ný í gær. Jeremy Corbyn, formaður Verkamanna- flokksins, sagði í ræðu að undir sinni stjórn yrði hætt við niðurskurð á sjúkraþjónustu og löggæslu, og gagnrýndi þannig stefnu Theresu May forsætisráðherra þegar hún var ráðherra innanríkismála. Sagði hann jafnframt að Bretar þyrftu að hug- leiða hvaða þátt utanríkisstefna landsins hefði átt í að gera landið að skotmarki hryðjuverkamanna. Gagn- rýndu íhaldsmenn Corbyn harðlega fyrir þau orð. Baðst afsökunar á leka Rex Tillerson, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, heimsótti Bretland óvænt í gær, en tilgangur fararinnar var sá að sýna samstöðu Bandaríkja- manna með Bretum og að biðjast af- sökunar á því að upplýsingum um framgang rannsóknarinnar var lekið í bandaríska fjölmiðla. Sagði Tiller- son að Bandaríkjastjórn tæki á sig alla ábyrgð en hann var vongóður um að hið „sérstaka samband“ Bretlands og Bandaríkjanna myndi standa af sér þennan óheppilega atburð. Óttast fleiri sprengjur  Breska lögreglan segist hafa fundið efni til sprengjugerðar á heimili Salmans Abedi  Búið að handtaka átta manns á aldrinum 18 til 38  Lekar valda óróa Árás í Manchester » Átta manns hafa verið handteknir vegna ódæðisins á mánudagskvöld. » Mennirnir eru á aldrinum 18-38 ára. Lögreglan telur sig hafa handtekið stóran hluta sellunnar sem ber ábyrgðina á árásinni. » Rex Tillerson, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, fór í gær til Bretlands og baðst afsökunar á upplýs- ingalekum. AFP Minningarathöfn Blöðrum var sleppt í bænum Royton til þess að minnast fórnarlambanna, en minningarathafnir fóru fram víða um Bretland í gær. Leiðtogar sjö helstu iðnríkja heims hittust í gær í Taormina á Ítalíu. Vel virtist fara á með þeim þegar þessi mynd var tekin á milli fundahalda, en þar var meðal annars rætt um samskipti ríkjanna við Rússland, sem og afstöðu ríkjanna sjö til viðskipta og umhverf- ismála, en Donald Trump Bandaríkjaforseti, sem hér sést fyrir miðju, er sagður hafa aðrar skoðanir á þeim málum en félagar hans á fundinum. AFP Stund milli stríða á leiðtogafundinum Jared Kushner, tengdasonur og ráðgjafi Donalds Trump Banda- ríkjaforseta, sætir nú rann- sókn bandarísku alríkislögregl- unnar FBI vegna meintra tengsla framboðs Trumps við yfirvöld í Rússlandi. Talsmaður Kushners sagði í gær að hann myndi veita lögreglunni allar þær upplýsingar sem hún vildi fá. Þá væri hann einnig tilbúinn að bera vitni fyrir þingnefnd Banda- ríkjaþings sem nú kannar „Rússa- málið“ svonefnda. James Comey, fyrrverandi yfir- maður FBI, lýsti gær einnig yfir vilja sínum til þess að hitta nefnd- ina á fundi. Tengdasonurinn til rannsóknar hjá FBI Jared Kushner BANDARÍKIN Gríska lög- reglan rannsak- aði í gær bréfa- sprengju, sem send var á Lu- cas Papademos, fyrrverandi for- sætisráðherra Grikklands. Særðist Papade- mos auk tveggja lífvarða þegar bréfið var opnað um borð í bryn- vörðum bíl hans. Var það Papade- mos til happs að hann hélt hönd- um sínum fjarri andliti sínu meðan hann opnaði bréfið. Var meðal annars til rann- sóknar hvort nýjum öryggis- reglum hefði verið fylgt, en þær voru settar eftir hliðstæðar árásir í mars. Bréfasprengja særir Papademos Lucas Papademos GRIKKLAND Að minnsta kosti 92 létust og um 110 manns eru týndir í Sri Lanka eftir að flóð og aurskriður skullu á eyjunni. Þá hafa um 60.000 manns neyðst til þess að yfirgefa heimili sín vegna flóðanna. Samkvæmt yfirvöldum hefur monsúntíminn verið óvenjuslæmur í ár, en met var slegið í ofankomu í vikunni. Mun hjálparstarf vera haf- ið, en erfitt er að komast að mörg- um stöðum á eyjunni vegna flóð- anna. Sri Lanka hefur beðið alþjóða- samfélagið um aðstoð vegna flóð- anna og voru Indverjar fyrstir til þess að svara kallinu. Sendu þeir tvö skip með hjálpargögn og lækna- teymi innanborðs. Margir látnir í flóð- um og aurskriðum SRI LANKA Utanríkisráðuneyti Eistlands til- kynnti í gær að tveimur starfs- mönnum rússneska sendiráðsins hefði verið vísað úr landi vegna gruns um njósnir. Atvikið er talið geta varpað enn frekari skugga á samskipti Rússlands við ríki Atl- antshafsbandalagsins. Fjöldi njósnamála í Eistlandi hef- ur aukist á síðustu mánuðum og var rússneskur ríkisborgari nýlega dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að hafa njósnað fyrir GRU, njósna- stofnun rússneska hersins. Utanríkisráðuneyti Rússlands sagði í tilkynningu sinni að þetta skref væri „ögrandi og ástæðu- laust“. Lofaði ráðuneytið því að brottvísuninni yrði svarað með við- eigandi hætti. Samskipti Rússa og Eista hafa verið spennuþrungin síðustu mánuði og hafa Eistar kvartað undan tíðum heræfingum Rússa við landamæri sín síðan Úkraínudeilan hófst fyrir þremur árum. Rússum vísað úr Eistlandi  Tveir sendistarfs- menn sendir heim

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.