Morgunblaðið - 27.05.2017, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 27.05.2017, Blaðsíða 45
DÆGRADVÖL 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2017 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Óvænt daður kann að gleðja og jafn- framt rugla þig í ríminu í dag. Tví- og þrítékk- aðu viðfangsefnin til þess að vera viss um að eyða tíma í það sem þú hefur áhuga á. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú vildir alveg hafa fleira fólk þér við hlið. Reyndu að ná jafnvægi milli þess sem þú vonar og hvað getur í raun gerst. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Leitaðu á vit góðrar bókar eða skemmtilegrar bíómyndar ef þú ert eitthvað dapur. Slíkt myndi hafa hressandi áhrif og hjálpa þér til þess að ná takmarki þínu. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það er gott og blessað að hafa áhrif á fólk með framkomu sinni. Umburðarlyndi þitt hefur aukist og þú finnur til velvildar í garð samferðamanna þinna. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Sumar skoðanir eru eins og gamlir sokkar með gati sem maður geymir af göml- um vana þótt tærnar standi út úr þeim. Ekki vera hrædd/ur við breytingar, þær eru oft af hinu góða. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú hefur lagt hart að þér og ert nú að undirbúa að kynna eigin hugmyndir um lausn mála. Biddu vini um hjálp, og leyfðu þeim í al- vöru að hjálpa þér. 23. sept. - 22. okt.  Vog Lokaðu þig ekki af frá umheiminum þótt þú sért ekki upp á þitt besta. Lagaðu þetta á stundinni svo enginn misskilningur eyðileggi samstarf þitt við aðra. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú hefur þurft að sleppa hend- inni af ýmsu á liðnum árum og orðið hafa kaflaskipti í lífi þínu. Slappaðu bara af og haltu þínu striki. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Næstu mánuðir henta vel til að ganga frá málum sem tengjast erfðum, tryggingum, skuldum og sköttum. Vertu vina- leg/ur við einhvern í dag. 22. des. - 19. janúar Steingeit Lífið gæti verið auðveldara ef álit vissrar manneskju myndi ekki skipta þig máli. Ruglingurinn kemur líklega til af misskilningi í samskiptum og er, þegar upp er staðið, eng- um að kenna. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Mörg stórmál bíða afgreiðslu þinnar svo þú skalt bretta upp ermarnar og ganga hiklaust til verks. Annars kann tæki- færið að glatast. 19. feb. - 20. mars Fiskar Ástin getur komið til manns á ólíkleg- ustu stöðum – í kjörbúðinni eða bankanum. Taktu á móti hlutum með opnum huga og gæfan gæti snúist þér í hag. Frétt vikunnar er sannarlegaopnun verslunarinnar Costco á Íslandi. Maki Víkverja er búinn að sækja um kort á netinu fyrir tvo og verður Víkverji því líka aðili. Við erum ekki enn búin að heimsækja verslunina en Víkverji hefur geng- ið í Facebook-hópinn „Keypt í Costco Ísl.- Myndir og verð“ til að hita upp fyrir fyrstu búðarferðina. x x x Óhætt er að segja að mikill áhugisé á Costco en þegar þetta er ritað síðdegis á föstudegi eru 41.645 í hópnum. Þetta hlýtur að vera með stærri íslensku Facebo- ok-hópum sem til eru. Í hópnum hjálpast fólk að og skiptist á upp- lýsingum. Margir eru búnir að fara eina ferð eða fleiri og geta svarað spurningum þeirra sem enn eiga eftir að heimsækja Kostakjör eins og Víkverji leyfir sér að kalla verslunina á íslensku. x x x Fólk er hissa yfir því hvað verðiðsé lágt í búðinni og þarna hefur einnig myndast ákveðin samstaða milli fólks, fólks sem er í senn þreytt og hneykslað á því að það skuli hafa verið okrað á því árum saman. Margar búðir eru strax búnar að lækka verðið hjá sér á öllu frá þekktum eldhúsvörum yfir í jarðarber. Costco-áhrifin eru byrjuð að koma fram og megi þau verða sem mest og vara sem lengst. x x x Nú er bara að taka til í búrinu,tæma skottið og keyra í Garðabæinn. Það er nóg komið af því að láta svindla á sér. Víkverji getur hreinlega ekki beðið eftir því að berja dýrðina augum. Hvernig er það, er Costco-tryggingafélagið ekki til? Eða Costco-bankinn? Vík- verji væri í það minnsta til í að eiga viðskipti við þau fyrirtæki. x x x Eitt að lokum. Á meðan þessipistill var skrifaður fjölgaði fé- lögum í Costco-hópnum á Facebo- ok um hvorki fleiri né færri en 366 manns og eru þeir nú 42.011. Hvað skyldu þeir vera orðnir margir á morgun? vikverji@mbl.is Víkverji Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum (Sálm. 119:105) LANGVIRK SÓLARVÖRN ÞOLIR SJÓ, SUNDOG LEIK www.evy.is Grunnformúlan er læknisfræðilega skráð. Engin paraben, engar nanóeindir, ilm- eða litarefni. NÝTT NAFN UVA Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Um bæjarhlað er brautin sú. Bikar henni stendur á. Í tóbakshorni er tappi sá. Tilheyrum slíkum ég og þú. Árni Blöndal svarar: Svarið verður slétt og rétt (slunginn er nú drengur !) Ávallt var mér lausnin létt: Loka svarið er því STÉTT. Helgi R. Einarsson svarar: Finnst mér þessi frekar létt og fullyrði að lausn sé rétt. Þetta er ósköp fánýt frétt, en fyrirbærið tel ég stétt, Sjálfur skýrir Guðmundur gátuna þannig: Bæjarstéttin er bein og slétt. Bikar undir stétt er sú. Í tóbakshorni er tappi stétt. Tilheyrum stéttum ég og þú. Því næst er limra: Hann Falur gaf Freymóði á hann, svo flatur á stéttinni lá hann öngviti í og upp frá því var ekki sjón að sjá hann. Og að síðustu leggur Guðmundur fyrir nýja gátu og verða svör að berast eigi siðar en á miðvikudag: Brosti sól á himni hlý, hafði ég mig spjarir í, greindi hvergi skúraský, í skyndi varð til gáta ný: Gripur harla góður er. Gengu menn til dóma þar. Með þeim fjölgar maður sér. Munúð þarna stunduð var. Helgi R. Jónsson skrapp austur að Bustarfelli í Vopnafirði um sauð- burðinn og orti „Krummavísur“ en hvolpur var nýkominn á bæinn: Lítill hvolpur er kátur, Krummi heitir sá. Engra er eftirbátur, allt hann getur og má. Flugur og fugla eltir, furðuleg veröldin er. Óvart að einhverju geltir alsæll og leikur sér. Þessa stöku kallar Helgi „Sælu“: Þegar lítil leika sér lömbin út í haga, sæla ríkir, sýnist mér. Sólskin alla daga. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Hver dregur dám af sinni stétt Í klípu „ÉG HELD AÐ HONUM SÉ ALVARA Í ÞETTA SINN.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG HELD AÐ ÞÚ MUNIR KOMAST AÐ ÞVÍ, HERRA, AÐ BÆKLINGURINN OKKAR SEGIR AÐ „STRÖNDIN ER ÖRUGG“. ÞÚ HLÝTUR AÐ HAFA HÆTT ÞÉR ÚT Í VATNIÐ.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að horfa á hann fara í fyrsta einkaflugið. HVAÐ ER ÞETTA? ÉG HEF BARIST VIÐ… …HERI, ÓFÉTI, DJÖFLA, RISA, TRÖLL OG KÝKLÓPA! EN AÐEINS EINN ANDSTÆÐINGUR HEFUR MÍNA EILÍFU VIRÐINGU… SKÁLUM FYRIR TENGDAMÖMMU MINNI! ER ÞETTA… BLUNDUR? JÁ, ÞAÐ ER ÞAÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.