Fréttablaðið - 23.12.2017, Side 22
Íþróttamaður ársins Að venju
eru þeir tíu íþróttamenn sem flest
atkvæði fengu í kjöri Samtaka
íþróttafréttamanna kynntir til sög-
unnar í dag, sem og þeir þrír sem
flest atkvæði fengu í kjöri á þjálfara
ársins og liði ársins.
Aðeins tveir nýliðar komast á
listann í ár en það eru knattspyrnu-
maðurinn Jóhann Berg Guðmunds-
son, leikmaður Burnley í ensku
úrvalsdeildinni, og Valdís Þóra
Jónsdóttir, kylfingur úr Leyni, sem
keppir á Evrópumótaröðinni í golfi,
og varð fyrst Íslendinga til að keppa
á Opna bandaríska risamótinu.
Engin kona oftar
Árið sem er að líða var einstaklega
gott íþróttaár enda náðist fram-
úrskarandi árangur á heimsvísu
í fjölda íþróttagreina. Það má
því færa rök fyrir því að sjald-
an hafi það verið erfiðara að
komast í hóp tíu efstu en nú.
Knattspyrna á flesta full-
trúa á listanum að þessu sinni
eða alls fjóra – þrjá lykilmenn úr
íslenska landsliðinu sem tryggði
sér þátttökurétt í úrslitakeppni
HM í fyrsta sinn í sögunni og Söru
Björk Gunnarsdóttur, fyrirliða
kvennalandsliðsins. Sara Björk
vann tvöfalt í Þýskalandi og var
í lykilhlutverki með landsliðinu
sem keppti á EM í árinu og skellti
svo ógnarsterku liði Þýskalands á
útivelli í haust.
Sara Björk skráir nafn sitt í sögu-
bækurnar á þessu ári því að engin
kona hefur verið oftar á lista yfir
tíu efstu í kjörinu. Sara Björk er á
listanum í sjötta sinn en Hrafn-
hildur Lúthersdóttir, Kristín Rós
Hákonardóttir og Vala Flosadóttir
koma næstar með fimm skipti.
Gylfi í sjöunda sinn
Þetta er fjórða árið í röð sem að
fimm karlar og fimm konur eru á
listanum. Þá er þetta þriðja árið
í röð að jöfn skipti eru á milli
íþróttamanna úr hópíþróttum
og einstaklingsíþróttum. Fimmti
hópíþróttamaðurinn er Guðjón
Valur Sigurðsson sem er í níunda
skipti á meðal tíu efstu en aðeins
Ólafur Stefánsson (12 skipti), Geir
Hallsteinsson og Kristján Arason
(10 skipti hvor) hafa verið oftar í
þessum hópi.
Listinn er að stórum hluta settur
saman af íþróttafólki sem er í sömu
sporum og Guðjón Valur – að vera
í hópi þeirra sem hafa verið oftar
í hópi tíu efstu í kjörinu úr sinni
íþróttagrein. Gylfi Þór Sigurðsson
er í sjöunda sinn en aðeins Ásgeir
Sigurvinsson og Eiður Smári Guð-
johnsen hafa verið oftar (10 skipti
hvor).
Hrafnhildur Lúthersdóttir, Aníta
Hinriksdóttir og Helgi Sveinsson eru
í sömuleiðis í þessum hópi í sínum
greinum.
Hár meðalaldur
Þetta endurspeglast einnig í því að
aðeins fjórum sinnum hefur meðal-
aldur íþróttamannanna sem kom-
ast á tíu efstu í kjörinu verið hærri.
Hann er 28,6 ár og var síðast hærri
árið 2008. Þá er þetta í fyrsta sinn í
sögunni sem tveir íþróttamenn sem
eru 38 ára eða eldri komast á listann
en Guðjón Valur og Helgi Sveinsson
eru báðir 38 ára.
Samtök íþróttafréttamanna kjósa
nú íþróttamann ársins í 62. sinn og
þjálfara og lið ársins í fimmta sinn.
Kjörinu verður lýst í Hörpu þann
28. desember í beinni útsendingu á
RÚV. eirikur@frettabladid.is
Handbolti
Guðjón Valur
sigurðsson 38 ára
tilnefning 9
n Þýskur meistari með Rhein-
Neckar Löwen og í hópi marka-
hæstu leikmanna þýsku úrvals-
deildarinnar.
Íþróttir fatlaðra
Helgi
sveinsson 38 ára
tilnefning 3
n Bætti heimsmetið í sínum
fötlunarflokki og vann silfur á HM
fatlaðra í London.
Knattspyrna
Gylfi þór
sigurðsson 28 ára
tilnefning 7
n Lykilmaður íslenska lands-
liðsins. Lék með Swansea á fyrri
hluta árs og var svo seldur til
Everton fyrir metfé.
Knattspyrna
aron Einar
Gunnarsson 28 ára
tilnefning 3
n Fyrirliði íslenska landsliðsins
sem komst á HM í Rússlandi og
leikmaður Cardiff í ensku
B-deildinni.
Golf
Valdís þóra
Jónsdóttir 28 ára
tilnefning 1
n Keppti á Evrópumótaröðinni í
golfi og endurnýjaði þátttökurétt
sinn á mótinu. Lék fyrst Íslend-
inga á Opna bandaríska meistara-
mótinu.
Knattspyrna
sara Björk
Gunnarsdóttir 27 ára
tilnefning 6
n Fyrirliði íslenska landsliðsins
á EM í sumar. Varð tvöfaldur
meistari með Wolfsburg.
Knattspyrna
Jóhann Berg
Guðmundsson 27 ára
tilnefning 1
n Lykilmaður íslenska lands-
liðsins og leikmaður Burnley.
Hefur gefið fimm stoðsendingar
á núverandi tímabili.
sund
Hrafnhildur
Lúthersdóttir 26 ára
tilnefning 5
n Varð í tíunda sæti á HM í 50 m
laug og í fimmta sæti á EM í 25 m
laug, bæði í 50 m bringusundi.
Golf
ólafía þórunn
Kristinsdóttir 25 ára
tilnefning 2
n Keppti á LPGA-mótaröðinni í
golfi og endurnýjaði þátttökurétt
sinn fyrir næstu leiktíð. Lék á risa-
móti í golfi fyrst Íslendinga.
Frjálsíþróttir
aníta
Hinriksdóttir 21 árs
tilnefning 4
n Vann brons á EM innanhúss og
bætti ársgamalt met sitt í 800 m
hlaupi.
a-landslið karla
n Tryggði sér þátt-
tökurétt í lokakeppni
heimsmeistaramótsins
í knattspyrnu í fyrsta sinn.
Valur
n Tvöfaldur meistari
í handbolta karla
2016/17. Komst í und-
anúrslit Áskorendakeppni Evrópu.
þór/Ka
n Íslandsmeistarí í
fótbolta kvenna eftir
að óvíst var um áfram-
haldandi tilvist liðsins í vetur.
2 3 . d E s E m B E r 2 0 1 7 L a u G a r d a G u r22 s p o r t ∙ F r É t t a B L a ð i ð
sport
Reynslumikill
hópur á sterku ári
Árið 2017 var öflugt íþróttaár sem sést á lista tíu atkvæðamestu íþróttamann-
anna í kjörinu á Íþróttamanni ársins, sem kynntur er í dag. Skiptin eru jöfn á
milli kynja sem og á milli hóp- og einstaklingsíþróttamanna.
Elísabet Gunnarsdóttir
Kristianstad
n Elísabet hefur starfað sem
þjálfari sænska úrvalsdeildarfélags-
ins Kristianstad undanfarin níu ár.
Undir stjórn hennar hafnaði liðið í
fimmta sæti deildarinnar. Elísabet
var kjörin þjálfari
ársins í deildinni
á verðlauna-
hátíð sænska
knattspyrnu-
sambandsins í
haust.
Heimir Hallgrímsson
landsliðsþjálfari karla
n Undir stjórn Heimis afrekaði
íslenska landsliðið í knattspyrnu að
vinna sinn riðil í undankeppni HM
2018 og tryggja sér um leið þátt-
tökurétt í lokakeppni heimsmeist-
arakeppni í fyrsta
sinn í sögunni.
Ísland varð um
leið fámennasta
þjóð heims sem
kemst á HM í
knattspyrnu.
þórir Hergeirsson
landsliðsþjálfari noregs
n Norska kvennalandsliðið í hand-
bolta vann silfurverðlaun á HM í
Þýskalandi, eftir naumt tap gegn
Frakklandi í úrslitaleiknum. Þetta
voru tíundu verðlaun Þóris á stór-
mótum í handbolta
en undir hans
stjórn hafa Norð-
menn aðeins
einu sinni misst
af verðlaunum á
stórmóti.
Þjálfari ársins
Lið ársins
2
3
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
9
8
-8
C
5
4
1
E
9
8
-8
B
1
8
1
E
9
8
-8
9
D
C
1
E
9
8
-8
8
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
9
6
s
_
2
2
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K