Morgunblaðið - 06.06.2017, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 06.06.2017, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2017 Garðs Apótek Sogavegi við Réttarholtsveg Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | www.gardsapotek.is Appótek: www.appotek.is Einkarekið apótek í 60 ár Lágt lyfjaverð - góð þjónusta Alveg einstök gæði 90 ÁR HJÁ 1927-2017 DAGA Um 1000 AE þvottahús Íslend LágmúLa 8 · sími 530 2800 allt land FYRiR R - 20-50% afslátt G tæki tilbúi i . EimiLiN í LaNDiNU n nn okkar u u samninFra len gjum í tvo dag a Þriðjudagur 6. júní og Miðvikudagur 7. júní Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Farþegar Primera Air sitja ekki við sama borð og farþegar íslenskra flugfélaga þegar kemur að bótakröf- um vegna mikillar seinkunar eða nið- urfellingar flugs. Farþegum Ice- landair og WOW air dugar að skila bókunarnúmeri flugs í kröfum sínum en Primera Air gerir kröfu um að farþegar skili bókunarnúmeri auk brottfararspjalds eða farangurs- merkinga. Í svari til flugfarþega Primera Air sem hugðist sækja bætur kemur fram að geti farþegi ekki sannað að hann hafi innritað sig í flug, þ.e.a.s. ekki sýnt brottfararspjald, eigi hann ekki rétt á bótum. Þessar upplýsing- ar koma einnig fram á heimasíðu fé- lagsins. Ekki kvartað fyrr Hrafn Þorgeirsson, framkvæmda- stjóri Primera Air, segir að ekki hafi verið kvartað undan þessum skilyrð- um fyrr. „Þetta er algengt að ég held hjá mörgum flugrekendum enda segir í reglugerðinni 261/2004 að ákvæði 1. mgr. gildi með því skilyrði að farþegi: a) hafi staðfesta far- skráningu með því flugi sem um ræðir, nema þegar flugi er aflýst skv. 5. gr., og hafi komið til innritunar – eins og flugrekandi, ferðasali eða viðurkenndur umboðsmaður mælir fyrir um og á tilteknum tíma sem er tilgreindur fyrir fram skriflega (þ.m.t. með rafrænum hætti). Þetta er einungis skv. reglugerð.“ Hrafn bætir við: „Við erum ekki íslenskt flugfélag og höfum ekki verið frá 2009. Að sjálfsögðu skoðum við mál- in ævinlega og færum til annars horfs ef þurfa þykir og þökkum allar góðar ábendingar. En við munum skoða allar breytingar út frá venjum í Evrópu.“ Bætur án brottfararspjalda Samkvæmt heimasíðu Icelandair þurfa farþegar að skila skýrslu auk þess að leggja fram flugnúmer, bók- unarnúmer og flugmiðanúmer. Svanhvít Friðriksdóttir, upplýs- ingafulltrúi WOW air, segir félagið gera þá kröfu að farþegar fylli út þar til gerða skýrslu á heimasíðu félags- ins þar sem flugnúmer og bókunar- númer þurfi að koma fram. Ekki er gerð krafa um brottfararspjald. Ómar Sveinsson, fagstjóri neyt- endamála hjá Samgöngustofu, segir stofnunina bera ábyrgð á fram- kvæmd reglugerðar EB nr. 261/2004 sem innleidd var hér á landi með reglugerð nr. 1048/2012. Reglugerð- in fjallar um réttindi farþega vegna seinkunar á flugi, aflýsingar eða neitunar á fari. Hún fjallar um sameiginlegar reglur um skaðabæt- ur og aðstoð til handa farþegum sem neitað er um far, flugi er aflýst eða mikil seinkun verður. ,,Krafa Pri- mera um brottfararspjald byggir ekki á neinum þekktum reglum, það á að vera nægilegt í öllum tilfellum að tiltaka nöfn og bókunarnúmer þegar farið er fram á bætur,“ segir Ómar og bendir á að fallist flugrek- andinn ekki á að greiða bætur eigi farþegi kost á því að senda formlega kvörtun til Samgöngustofu. Farþegum mismunað  Framvísun brottfararspjalda skilyrði bóta að mati Primera  Strangari kröfur gerðar en hjá Icelandair og WOW air Morgunblaðið/ÞÖK Sönnunarbyrði Farþegar verða að sýna fram á þeir hafi innritað sig í flug. Ungir menn eru oftar einmana en konur í sama aldurs- hópi, 18-24 ára, en þeir finna oft eða mjög oft fyrir ein- manaleika í meiri mæli en konurnar. „Almennt í könn- unum er einmanaleiki mestur hjá ungu fólki og eldri fullorðnum, en þessi könnun sýnir bara unga fólkið,“ segir Sigrún Daníelsdóttir, verkefnastjóri geðræktar hjá embætti Landlæknis, en bætir við að um netkönnun hafi verið að ræða og alltaf sé sá möguleiki að ákveðnir hópar séu síður með. Eins geti þessar tölur endur- speglað mismunandi félagsþörf eftir aldri. Einmana- leiki og einsemd sé ekki endilega sami hluturinn. Heilt yfir er yngsta fullorðna fólkið oftar einmana en þeir sem eldri eru skv. niðurstöðu könnunarinnar, en 18% yngsta fullorðna fólksins finna oft eða mjög oft fyrir einmanaleika á móti 6% í eldri aldurshópum. Þetta og fleira kemur fram í nýjasta tölublaði Talnabrunns, sem er fréttabréf landlæknis um heilbrigðisupplýsingar. Innan skamms stendur til að senda út póstkönnun til að kanna heilsu og líðan Íslendinga, en að sögn Sigrúnar verður áhugavert að bera niðurstöðurnar saman við niðurstöðu netkönnunarinnar. Póstkönnun var síðast gerð árið 2012. Nánari upplýsingar er að finna í frétta- bréfinu á vef Landlæknisembættisins, www.landlaekn- ir.is. ernayr@mbl.is Einmana ungir menn  Landlæknisembættið birtir upplýsingar um líðan fólks Getty Images Könnun Ungir menn eru oftar einmana en ungar konur. „Við reynum að fylgjast með og fara eftir ábendingum, það er partur af okkar starfsemi,“ segir Tryggvi Ax- elsson, forstjóri Neytendastofu, varðandi duldar auglýsingar en þeim hefur farið fjölgandi að hans sögn. Neytendastofa greindi frá því fyrr í þessum mánuði að Krónan og 17 sortir hefðu notað duldar auglýs- ingar í markaðssetningu í gegnum áhrifavalda á samfélagsmiðlum. „Við erum að vinna að því að skýra þetta betur enda er þetta frekar nýtt svæði sem við þurfum að leggja meiri áherslu á.“ Neytenda- stofa vinnur meðal annars með öðr- um eftirlitsstofnunum á Norður- löndunum við að gera betur grein fyrir duldum auglýsingum á sam- félagsmiðlum. Að sögn Tryggva er Neytenda- stofa að vinna að því að fræða og kynna fyrir markaðinum að duldar auglýsingar séu ólöglegar enda geta þær verið villandi fyrir neytendur. „Að skýra reglurnar er okkar helsta áhersluatriði,“ segir Tryggvi. Morgunblaðið ræddi einnig við Línu Birgittu Camillu Sigurðar- dóttur lífstílsbloggara, en hún er með um 13 þúsund fylgjendur á samfélagsmiðlinum Instagram. „Ég fæ alveg endalaust af fyrir- spurnum og fara þær allar í gegnum umboðsmannaskrifstofuna sem ég er hjá. Ég get síðan valið og hafnað,“ segir Lína Birgitta. Lína segir að það sé mjög mis- munandi hvað tilboðin hljóði upp á, allt frá 20 þúsund upp í 100 þúsund krónur. „Ef þú átt góðan fylgjenda- hóp er vel hægt að lifa af þessu,“ segir Lína Birgitta. Hún segist hafa bætt sig mikið í því að dylja ekki auglýsingar og not- ist hún þá annaðhvort við myllu- merkið ad eða greini frá því að hún sé í samstarfi við fyrirtækið. Að sögn Línu Birgittu hefur aukin umræða gert lífstílsbloggurum grein fyrir því að merkja auglýsingar sínar. urdur@mbl.is Duldum auglýsing- um fer fjölgandi Lína Birgitta C. Sigurðardóttir Tryggvi Axelsson  Neytendastofa bregst við stöðunni Getty Images/iStockphoto Óljóst Duldar auglýsingar geta verið ruglandi fyrir neytendur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.