Morgunblaðið - 06.06.2017, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2017
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is
amlegt ka
nýmalað,
en in h
Kynntu þ r ura a v ar rv . um ér í kaffi.
s
ylki.
ík V ðJ k él í Ei
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Margt óvænt gerðist í þessari för,og undantekningarlaust mér tilhinnar mestu ánægju. Sam-starfsmenn mínir, fararstjórar
og leiðbeinendur reyndust svo skemmtilegir
menn að mig hafði varla órað fyrir, að þeir
ættu slíkt til, gagnfræðingarnir ungu með
þeim beztu kostum, sem ungt fólk má prýða;
gæddir fróðleiksfýsn, gamansemi og sam-
vinnuþýðleika, og bílstjórar leiðangursins
með þeim ágætum að betra varð ekki kosið.“
Þannig skrifaði Þóroddur Guðmundsson,
kennari í Flensborgarskóla, í dagblaðið Tím-
ann árið 1967 um ferð sem hann og fjórir
kennarar fóru sama ár til Írlands með 63
gagnfræðinga og var það fyrsta untanlands-
ferð á vegum skólans með nemendur. Ferða-
sagan með fyrirsögninni „Hafnfirðingar á
ferð um Írland“ birtist í tveimur hlutum og
spannaði alls tólf blaðsíður í tveimur tölu-
blöðum. Margt bar enda til tíðinda auk þess
sem greinarhöfundur lýsti bæði landi og lýð
og ýmsu því sem fyrir augu bar af mikilli ná-
kvæmni, sögulegri þekkingu og frásagnar-
gleði.
Langlíf skemmtinefnd
Þessi dyggðum prýddu ungmenni uxu úr
grasi í Hafnarfirði, þar sem flest búa enn. Í
lok síðasta mánaðar, hálfri öld síðar, fór stór
hluti hópsins ásamt mökum, samtals 68
manns, til Írlands. Samvinnuþýðleikinn var
samur við sig. „Og gamansemin og fróðleiks-
fýsnin,“ segir Elías Jónasson, varaformaður
skemmtinefndarnnar, brosandi.
Nefndin hefur verið starfandi allar göt-
ur frá því hópurinn sat saman á skólabekk í
Flensborg og staðið fyrir ýmsum skemmt-
unum og styttri ferðalögum innanlands í ár-
anna rás. „Við vorum fimm strákar kosnir í
skemmtinefndina á sínum tíma. Ég man að
mömmu, sem var mikill verkalýðsforingi,
þótti alveg ótækt að engin stelpa væri í
hópnum,“ segir Elías.
„Við héldum annnálaðar árshátíðir með
flottum hljómsveitum, til dæmis Flowers
sama ár og við útskrifuðumst, og unglingar
hvaðanæva komu til að sækja skemmtanir
okkar í Flensborg. Einnig voru í árgangnum
liðtækir tónlistarmenn og söngelskt fólk, til
dæmis stofnuðum við hljómsveitina Hamars-
menn, sem kom fram á einni árshátíðinni.
Svo rákum við sjoppu í skólanum og vorum
nokkuð útsjónarsöm í fjáröflun fyrir ferð-
ina.“
Ekki aðeins þótti ferðasagan forðum í
frásögur færandi því nokkrum mánuðum eft-
ir að bálkar Þórodds birtust í Tímanum,
fjallaði Alþýðublaðið um komu tveggja írskra
bílstjóra leiðangursins, Jims og Johns, hing-
að til lands í boði nemendanna.
Jim og John
„Forsagan er sú að eftir að við í
skemmtinefndinni höfðum gengið á milli
ferðaskrifstofa í leit að ódýrustu ferðinni til
útlanda, römbuðum við inn á eina þar sem
tók á móti okkur afskaplega þjónustulunduð
kona. Hún lofaði öllu fögru; ódýrri vikuferð
til Írlands með morgunmat. Við tókum til-
boðinu fagnandi og borguðum fyrir fram.
Síðan kom á daginn að við vorum svikin um
bæði morgunmat og hádegismat, ferðaskrif-
stofan klikkaði á mörgu sem okkur hafði ver-
ið lofað og við lentum í alls konar veseni.
Strax á flugvellinum í Dublin kom í ljós að
engir bílstjórar voru til í að keyra rúturnar
sem áttu að fara með okkur í ferð okkar um
landið. Þótt Jim og John ættu að vera í fríi,
buðust þeir til að taka verkið að sér. Þeir
reyndust okkur ómetanlegir og urðu miklir
félagar okkar. Eftir heimkomuna fengum við
endurgreitt frá ferðaskrifstofunni og
ákváðum að nota peningana og bjóða þeim
félögum hingað til lands,“ segir Elías.
Blaðamenn Alþýðublaðsins komust á
Sameinuð á Írlandi 50 árum síðar
Frelsinu fagnandi fóru gagn-
fræðingar frá Flensborgarskól-
anum árið 1967 í vikulangt
skólaferðalag til Írlands. Þeir
komu víða við og þótt ferðaskrif-
stofan þeirra stæði ekki sína
plikt með tilheyrandi veseni,
varð ferðin þeim ógleymanleg.
Margt hafði breyst þegar þessi
samheldnu skólasystkini lögðu
land undir fót á eyjunni grænu
hálfri öld síðar. Ferðin sú var
ekki síðri en sú fyrri.
Írlandsferðin hin síðari Ekki
væsti um gömlu skólasystkinin
úr Flensborgarskólanum í
glæsilegum kastala í Dalkey
þar sem þau gistu í Írlands-
ferðinni hinni síðari.
Dagskrá umhverfismatsdagsins árið
2017 er að þessu sinni helguð nýjum
áskorunum og aðferðum á sviði um-
hverfismats. Kl. 13-16.30 á morgun,
miðvikudaginn 7. júní, verður haldið
málþing í tilefni dagsins.
Í fyrri hluta málþingsins verður
fjallað um ýmsar nýjar áskoranir sem
tengjast mati á umhverfisáhrifum,
svo sem út frá nýlegum dómum og
úrskurðum, alþjóðlegum markmiðum
í loftslagsmálum, nýrri vistgerðar-
flokkun íslenskrar náttúru og laga-
umgjörð mats á umhverfisáhrifum.
Í seinni hluta málþingsins munu
síðan sérfræðingar sem koma að um-
hverfismati úr ólíkum áttum deila
hugleiðingum um hvernig nýjar
áskoranir og aðferðir birtast í þeirra
störfum tengt náttúruvernd, sam-
ráði, línulögnum, vegagerð og fleira.
Allir eru velkomnir, aðgangur
ókeypis og hægt að skrá þátttöku á
vefsíðu Norræna hússins, norraena-
husid.is.
Vefsíðan www.norraenahusid.is
Málþing um nýjar áskoranir og
aðferðir á sviði umhverfismats
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Landið er fagurt og frítt Lítil stúlka sullar í læk undir fagurri hvönn.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.