Morgunblaðið - 06.06.2017, Síða 13
snoðir um fram-
takið, smeygðu
sér inn á
skuggamynda-
kvöld gagn-
fræðinganna
um haustið og
tóku írsku bíl-
stjórana tali.
Heilsíða þar.
Segir ekki
meira af þeim félögum John og James, báð-
ir voru látnir fyrir allmörgum árum þegar
hópurinn fór í Írlandsferð sína númer tvö. Sú
var að sögn Elíasar öllu betur skipulögð af
hálfu ferðaskrifstofunnar en sú fyrri. „Enda
er Kristín Einarsdóttir hjá Ireland Iceland
Travel Hafnfirðingur,“ útskýrir hann.
Músagangur og þriggja hæða kojur
Fáu var saman að jafna í ferðunum
tveimur. „Í útskriftarferðinni gistum við yf-
irleitt á farfuglaheimilum, þar sem stundum
var músagangur, og borðuðum eins ódýrt og
hægt var. Einhverjir voru að rifja upp að-
einu sinni gistum við strákarnir í þriggja
hæða kojum á annarri hæð og stelpurnar á
neðri hæðinni. Gat var á gólfinu og því var
ekki að sökum að spyrja við lágum á gólfinu
og kíktum á stelpurnar,“ segir Elías hlæj-
andi.
Spurður hvort þau skólasystkin hafi haft
áfengi um hönd í ferðalaginu svarar hann:
„Nei, það var stranglega bannað.“ En urðu
einhver kærustupör til í ferðinni? „Ann-
aðhvort í ferðinni eða að fólkið var farið að
draga sig eitthvað saman áður. Innan út-
skriftarárgangsins eru þrenn hjón og þau
voru öll með í ferðinni núna.“
Elíasi er fátæktin sem víða blasti við
bæði í Dublin og upp til sveita minnisstæð. Á
einum sveitabænum, aðeins 40 km frá Dubl-
in, undraðist hópurinn mjög að hjónin á bæn-
um höfðu aldrei brugðið sér til höfuðborg-
arinnar. „Unglingarnir í sveitinni sem við
buðum á kvöldvöku til að hlusta með okkur á
Bítlana og Stones af plötuspilara, báru líka
með sér að vera fátækir,“ rifjar hann upp.
Hann segir annað hafa verið uppi á ten-
ingunum í ferðinni sem hópurinn er nýkom-
inn úr. Ekki hafi verið annað að sjá en vel-
megunin drypi af hverju strái í borgum sem
og bæjum og sveitum. „Hótelið okkar var í
glæsilegum kastala í Dalkey, smábæ rétt
sunnan við Dublin. Allir voru afskaplega
sáttir og sælir, enda var allt til alls og ferðin
í heild algjör lúxus í þrjá daga. Við ferð-
uðumst reyndar minna en í fyrri ferðinni, ut-
an þess að við keyrðum, eins og þá, suð-
urleiðina frá Dublin til Wicklow-sýslu þar
sem við skoðuðum myllu frá 1725 í Avoca,
síðan lá leiðin til Glendalough, en þar heim-
sóttum við munkaklaustur frá 6. öld. Annars
vorum við mest í Dublin og nágrenni.“
Partýið er ekki búið
Hópurinn gerði sér far um að skoða allt
það helsta sem borgin státar af. Ekkert hafði
dregið úr fróðleiksfýsninni sem fyrrnefndur
Þóroddur hafði rómað hópinn fyrir í skrifum
sínum fyrir fimmtíu árum. „Við skoðuðum
Guinness-safnið og fórum vitaskuld á eina
þekktustu og þjóðlegustu krá borgarinnar,
The Merry Ploughboys, þar sem írsk þjóð-
lagatónlist og riverdans eru í hávegum höfð.
Einhverjir gerðu sér ferð á merkjavöru-
lagersölu í Kildere á laugardeginum áður en
þeir dubbuðu sig upp fyrir árshátíðina á hót-
elinu um kvöldið.“
Þótt ekki hafi verið boðið upp á sér-
hönnuð skemmtiatriði segir Elías það hafa
verið mál manna að hún hafi ekki verið síður
skemmtileg en þær sem haldnar voru í
Flensborgarskólanum í gamla daga. Maður
er manns gaman eins og þar stendur.
„Við erum öll miklir vinir, höfum haldið
vel saman í öll þessi ár og þykir alltaf jafn-
gaman að hittast. Þá er mikið faðmast og
kysst.“
Gömlu skólafélagarnir, sem útskrifuðust
úr Flensborgarskólanum fyrir hálfri öld, eru
þegar búnir að skipuleggja næsta partý.
Árið 1967 Gagnfræðingar Flensborgarskólans 1967 ásamt kennurum – og þeim Jim og John (5. og 6. í fremstu röð).
Fjör Oft var glatt á hjalla í rútuferðunum
og mikið sungið og trallað.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2017
Hringbraut-Fjölmiðlar ehf. | Eiðistorgi 17 | 170 Seltjarnarnesi | www.hringbraut.is | Sími +354 561 3100
Missið ekki af áhugaverðum þætti um starfsemi GO
ásamt viðtölum við formann, framkvæmdastjóra,
PGA kennara auk nokkurra kylfinga.
Hringbraut næst á rásum
7 (Síminn) og 25 (Vodafone)
ATVINNULÍFIÐ ÁdagskráHringbrautar
í kvöld kl. 20.00
í þættinum Atvinnulífið sem er á dagskrá
Hringbrautar kl. 20.00 í kvöld
• Einn glæsilegasti golfvöllur
landsins heimsóttur
• 1200 félagsmenn ogmikil
gróska í starfi klúbbsins
• Glæsileg æfingaaðstaða,
hjónagolf og kvennstarf hjá GO
• Hvernig er að byrja í golfi
á seinni hluta ævinnar?
Heimsókn til Golfklúbbsins Odds