Morgunblaðið - 06.06.2017, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 06.06.2017, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2017 ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS Um 3000 þjónustufyrirtæki eru á skrá hjá finna.is HVAR ER NÆSTA VERKSTÆÐI? BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ný 127 herbergja viðbygging hefur verið tekin í notkun á CenterHotel Miðgarði við Hlemm. Með þessari viðbót er hótelið orðið eitt af stærstu hótelum miðborgarinnar, með alls 170 herbergjum. Þetta er sjötta CenterHotel í miðborginni. Á Miðgarði verða tvær gerðir her- bergja, sem heita enskum nöfnum, standard og deluxe. Líkamsrækt og spa verður í kjallara viðbygging- arinnar, með heitum pottum og gufu. Þar verður líka fundaraðstaða. Hótelið var opnað sumarið 2015 á Laugavegi 120. Nokkrum mánuðum síðar hófust framkvæmdir við stækkun hótelsins og er því verki nú að ljúka. Á jarðhæð er veitinga- staður, Jörgensen Kitchen & Bar, sem var opnaður í febrúar í fyrra. Sæti eru fyrir um 180 manns á veitingastaðnum og er reiknað með allt að 340 gestum í morgunmat. Með nýbyggingunni tvöfaldast starfsmannafjöldinn í 50 manns. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins má áætla að kostnaður við stækkun hótelsins sé ekki undir milljarði króna. Um hundrað manns á vegum Mannverks unnu að fram- kvæmdinni þegar mest var. Gláma/Kím sá um hönnun en Ís- landsbanki um fjármögnun. Gamla húsið byggt fyrir 1967 Laugavegur 120 er áberandi hús í miðborginni, skáhallt á móti Hlemmi. Húsið var byggt árin 1967- 68 eftir teikningum Gunnars Hans- sonar og Magnúsar Guðmunds- sonar. Búnaðarbankinn var þar með starfsemi og síðar Arion banki. Ytra byrði hússins er óbreytt en innrétt- ingar hafa breyst mikið. Sumt hefur þó fengið að halda sér en í nýju hlut- verki. Til dæmis er eðalvín geymt í peningageymslum bankans. Viðbyggingin er suður af gamla húsinu og liggur meðfram Rauðar- árstíg, Stórholti og Þverholti. Milli gömlu byggingarinnar og viðbyggingar er opið rými, eða port, svonefndur Miðgarður, og dregur hótelið nafn sitt af því. Ný móttaka hefur verið opnuð á Rauðarárstíg. Opið rými er milli móttöku og veit- ingastaðar og bars á hótelinu. Eva Silvernail, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs hjá CenterHotels, seg- ir Glámu-Kím arkitekta hafa lagt mikið upp úr því að viðbyggingin félli vel inn í umhverfið. „Við erum mjög sátt við útkomuna,“ segir Eva. Gott aðgengi fyrir umferð Hún segir aðgengi að hótelinu mjög gott. Það séu engar þröngar götur að fara um. Umferð gangi greiðlega eftir nálægum götum. Hún segir það hafa gengið furðu- vel að byggja við hótel í rekstri. „Það var samkomulag við verk- taka um að vera ekki með hávaða- framkvæmdir fyrr en eftir klukkan 10 á morgnana. Það er ákveðinn lúx- us að vera með ferðamenn sem koma til Íslands. Þeir eru mikið úti að skoða náttúruna allan daginn. Þeir eru sáttir svo lengi sem þeir fá frið eftir að þeir koma heim á hótelið.“ CenterHotel Miðgarður stækkar  Ný 127 herbergja viðbygging hefur verið tekin í notkun á CenterHotel Miðgarði við Hlemm  Herbergin eru nú 170  Líkamsrækt og spa er meðal nýrrar þjónustu fyrir gesti í viðbyggingunni Við Hlemm Nýr inngangur snýr að Rauðarárstíg. Stílhreint Tvær gerðir herbergja eru á hótelinu, standard og deluxe. Gæði Stefnt er að því að hótelið fái fjórar stjörnur. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hönnun Lagt er upp úr því að hótelið hafi mörg upplifunarrými fyrir gesti. Melissa Munguia er hótelstjóri á CenterHotel Miðgarði. Hún segir gesti mjög ánægða með staðsetn- ingu hótelsins. „Þetta er að verða heitur staður í miðbænum, nálægt öllu sem gestir vilja skoða. Hér verða þeir ekki fyrir ónæði vegna hávaða frá skemmtistöðum og þess háttar. Það er lítið sem ekkert næturlíf hér í kring. Við bíðum líka spennt eftir því að matarmarkaðurinn verði opnaður á Hlemmi. Það á örugg- lega eftir að skapa skemmtilega stemningu á svæðinu,“ segir Munguia og svarar því aðspurð að stefnt sé að því að Miðgarður fái úttekt sem fjögurra stjarna hótel. „Það er mikið lagt upp úr þjón- ustu við gesti. Við verðum með spa, veitingastað, fundarsali, rúmgóða móttöku og mörg upplifunarrými. Ætlunin er að þetta hótel hafi allt í boði og að gestir geti fengið hér alla þjónustu sem þeir þurfa. Héðan er einnig stutt að sækja í aðra þjón- ustu og menningu,“ segir Munguia um áherslur í þjónustunni. Stutt fyrir gesti að sækja menninguna Morgunblaðið/RAX Í rekstri Melissa Munguia og Eva Silvernail stýrðu uppbyggingunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.