Morgunblaðið - 06.06.2017, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 06.06.2017, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2017 Guðrún Antonsdóttir lögg. fasteignasali Vantar allar stærðir og gerðir fasteigna á sölu. Mjög mikil eftirspurn og lítið framboð. Núna er tækifærið ef þú vilt selja. Hringdu núna í 697 3629 og fáðu aðstoð við að selja þína eign, hratt og vel. Ertu í söluhugleiðingum? Lágmúli 5, 108 Reykjavík | Sími 571 5800 | gudrun@garun.is | garun.is SVIÐSLJÓS Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Sjö manns létu lífið í hryðjuverkunum í Lund- únum á laugardagskvöld. Bíl var ekið á óbreytta borgara á Lundúnarbrú áður en þrír árásarmenn stukku úr bílnum og réðust að fólki með hnífum. Árásarmennirnir voru íklæddir gervi-sprengjuvestum og voru skotn- ir til bana af lögreglu um átta mínútum eftir að lögreglu barst fyrsta tilkynning vegna árásar- innar. Óbreyttur borgari varð fyrir byssukúlu lögreglusveita en er ekki í lífshættu. Ríki íslams lýsti yfir ábyrgð á árásinni sem er þriðja árásin í Bretlandi á skömmum tíma. Í dag eru aðeins tvær vikur frá hryðjuverkunum í Manchester. Tólf voru handteknir í kjölfar árásarinnar en þeim hafði öllum verið sleppt í gærkvöldi. 48 særðust í árásinni, þar af liggja 18 enn mjög þungt haldnir. Birtist í heimildarmynd um öfgamenn Tveir árásarmannanna voru nafngreindir í breskum miðlum í gær. Annar þeirra var breskur ríkisborgari, fæddur í Pakistan og kunnugur lögreglu. „Khuran Shaz ad Butt var kunnugur lögreglu og MI5 [leyniþjónustu Bretlands, innsk. blaðamanns]. Hins vegar er ekkert í upplýsingum okkar sem bendir til þess að árás hafi verið í undirbúningi og hafði rann- sókn verið háttað í samræmi við það,“ hefur AFP eftir bresku lögreglunni. Butt kom fyrir sjónir í heimildarmyndinni „The Jihadis Next Door“, sem myndi útleggjast sem „Jíhadarnir í næsta húsi“ og var sýnd á Channel 4-sjón- varpsstöðinni á síðasta ári. Í myndinni er fjallað um breska öfgamenn. Hinn var af mar- okkóskum og líbískum uppruna. „Ég bið alla sem hafa upplýsingar um menn- ina, ferðir þeirra dagana og klukkutímana fyrir árásina, og staði sem þeir hafa reglulega heim- sótt, að stíga fram,“ sagði Mark Rowley, yfir- maður bresku hryðjuverkalögreglunnar, í yfir- lýsingu. Eftir hrinu hryðjuverka í Bretlandi hefur hryðjuverkalögregla landsins þurft að svara fyrir það hvers vegna einstaklingum sem séu á öfgalista lögreglu takist að fremja hryðjuverk. Segir Rowley að á hverjum tíma séu um 500 virkar rannsóknir í gangi, þar sem um þrjúþúsund menn séu til rannsóknar. Alls hafa um 20 þúsund manns verið til rannsóknar á undanförnum árum hjá lögreglunni, sem hef- ur komið í veg fyrir 18 árásir síðan 2013, þar af fimm síðan árásin var gerð við Westminster- brúna fyrir tveimur mánuðum. Kosið til breska þingsins á fimmtudag Kosið verður til breska þingsins á fimmtu- dag og setja árásir undanfarinna daga og mán- aða svip sinn á kosningabaráttuna. Verka- mannaflokkurinn, með Jeremy Corbyn fremstan í flokki, hefur gagnrýnt Theresu May, forsætisráðherra landsins, harðlega vegna niðurskurðar til löggæslu í ráðherratíð hennar sem innanríkisráðherra. May hefur hins vegar bent á að undir forystu hennar hafi vopnuðum lögregluþjónum fjölgað, Lundúna- lögregla kvarti ekki undan fjárlögum og fram- lög til hryðjuverkalögreglu hafi verið aukin. May fór mjög hörðum orðum um hryðjuverka- menn eftir árásina. „Við getum ekki látið eins og þetta geti haldið áfram,“ sagði May og bætti við að „allt of mikið umburðarlyndi fyrir of- stæki“ væri í Bretlandi. Sadiq Khan, borgarstjóri Lundúna, lenti í orðaskiptum við Donald Trump Bandaríkja- forseta í kjölfar árásarinnar, þar sem Trump sagði viðbrögð Khans of mjúk. „Að minnsta kosti sjö látnir og 48 særðir eftir hryðjuverk, og borgarstjóri Lundúna segir enga ástæðu til að óttast,“ sagði Trump á Twitter. Khan sagði sumt fólk hreinlega nærast á sundrungu, en slík sundrung fengi ekki að verða í borginni. Innlendir og erlendir stjórnmálamenn tóku upp hanskann fyrir Khan, þar á meðal Theresa May og Bill de Blasio, borgarstjóri New York, sem sagði að ummæli Trump hefðu verið „óvið- unandi“. Einn var þekktur öfgamaður 48 Bíla- og hnífaárás LUNDÚNIR Ekið yfir óbreytta borgara á Lundúna- brúnni og fólk stungið 3. júní 2017 Hið minnsta 7 látnir Þrír árásarmenn skotnir til bana af lögreglu Gæti farið hækkandi Stórar árásir í Bretlandi 7. júlí 2005 Sjálfsmorðssprengjur Samhæfðar árásir í miðborg Lundúna - Þrjár sprengjur í neðan- jarðarlestakerfi borgarinnar - Ein sprengja í rútu Bíla- og hnífaárás Ekið yfir Lee Rigby, 25 ára breskan hermann, og síðan ráðist á hannmeð hnífum og kjöthníf. Reynt að hálshöggva fórnarlambið. Sjálfsmorðssprengja MANCHESTERLUNDÚNIRLUNDÚNIRLUNDÚNIR Árás í troðfullri tónleikahöll. Hátt hlutfall ungs fólks á meðal tónleikagesta á tónleikum Ariönu Grande. Fjöldi látinna: 52 Fjöldi særðra: 700 Mohammad Sidique Khan Shehzad Tanweer Germaine Lindsay Hasib Hussain Létust allir í árásunum 22. maí 2013 1 Michael Adebolajo Michael Adebowale 22. maí 2017 22 Salman Abedi, sagður hafa látist á staðnum af lögreglu Ríki íslams hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni 22. mars 2017 Bílaárás Bifreið ekið á fólk á Westminster-brúnni nærri breska þinginu. Lögreglu- þjónn stunginn til bana. 5 50 116 Khalid Masood Skotinn til bana af lögreglu á vettvangi Dæmdur í lífstíðarfangelsi Dæmdur í að minnsta kosti 45 ára fangelsi Ríki íslams hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni  Sjö létust og hátt í 50 særðust í hryðjuverkunum í Lundúnum  Þrír árásarmenn skotnir til bana  Trump gagnrýnir viðbrögð borgarstjóra Lundúna  Þingkosningar í Bretlandi næsta fimmtudag Fimm létu lífið í Orlando í Banda- ríkjunum í gær þegar „úrillur“ fyrrverandi starfsmaður fyrir- tækis, líkt og lögregla lýsir hon- um, hóf skothríð í vöruhúsi. Lögregla mætti á vettvang tveimur mínútum eftir að árásar- maðurinn, sem er á fimmtugsaldri, hóf skothríðina, Lágu þá þrír menn og ein kona í valnum. Fimmta fórnarlambið var úrskurð- að látið á sjúkrahúsi. Sjö manns lifðu skotárásina af. Árásarmaðurinn, John Robert Neuman Jr., svipti sig að lokum lífi. Hann er fyrrverandi hermað- ur sem starfaði hjá fyrirtækinu en var rekinn þaðan í apríl. Hann átti að baki smáglæpi á borð við vörslu fíkniefna og akstur undir áhrifum. Þetta er haft eftir lög- reglustjóra Orange-sýslu, Jerry Demings. Hann segir að kallað hafi verið eftir lögregluaðstoð sumarið 2014 vegna vinnustað- arofbeldis þar sem Neuman slóst við samstarfsmann sinn. ash@mbl.is AFP Skotárás Árásarmaðurinn var rekinn frá fyrirtækinu fyrr á þessu ári. Myrti fimm á gamla vinnustaðnum sínum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.