Morgunblaðið - 06.06.2017, Side 20

Morgunblaðið - 06.06.2017, Side 20
FRÉTTASKÝRING Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Ný skýrsla á vegumgreiningardeildarSjúkratrygginga Ís-lands er varðar umfang þjónustu og greiðslur til veitenda þjónustu í dagdvalarrýmum var birt í síðustu viku. Fram kemur í skýrslunni að í rammasamningi sem Sjúkratryggingar Íslands gerðu í fyrra um þjónustu á hjúkr- unarheimilum var þjónusta á dagdvöl undanskilin, það er því enginn samningur í gildi um þá þjónustu sem veitt er á dagdvöl. Í skýrslunni kemur fram að mikil- vægt sé að fara í ítarlega grein- ingu á framboði og eftirspurn eftir þjónustunni, ólíkum þörfum og þjónustuþyngd notenda. Helga Garðarsdóttir hjá greiningardeild Sjúkratrygginga Íslands segir að erfitt sé að semja um þjónustu á dagdvalarstofn- unum þegar ekki sé vitað hvaða þjónustu eigi að veita. „Þegar við gerðum samninginn við hjúkr- unarheimilin á síðasta ári að und- anskilinni dagdvölinni var í raun ekki hægt að semja um þjónustuna því við vitum ekki um hvað hún snýst. Þetta hefur aldrei verið greint, hvort fólk þurfi mikla eða litla þjónustu, við bara vitum það ekki,“ segir Helga og bætir við að þetta sé bæði notendum og veit- endum þjónustunnar til trafala. Hún tekur fram að það sé af sem áður var þegar erfitt var að ná samningum við dagdvalarstofnanir. „Áður var alltaf erfitt að ná samn- ingum við dagdvalarstofnanir en í dag eru þær tilbúnar að setjast að samningaborðinu,“ segir Helga. Þórunn Sveinbjörnsdóttir, for- maður Félags eldri borgara, segist ekki vera sammála Helgu. „Fólk er alveg upplýst um hvað það fær og starfsmenn vita til hvers er ætlast af þeim,“ segir Þórunn. Hún segir dagdvalarheimilin vinna kraftaverk, þar fái fólk bæði til- breytingu og hvíld auk þess sem heimilin taki við fólki frá spít- alanum. „Þar sem ég þekki til er verið að vinna kraftaverk, þetta fær algjöra toppeinkunn frá mér. Ég tel að þjónustulýsingin sé al- veg nægilega skýr. Oft á tíðum tel ég að þessi heimili séu að bjarga fólki. Þau veita til að mynda fólki hvíld sem þarf að sjá um veikan maka, kannski 2-3 daga í viku,“ segir Þórunn. Tóku nýlega við keflinu Sjúkratryggingar Íslands tóku nýlega við framkvæmd greiðslna af Tryggingastofnun ríkisins og segir Helga að þjónustan hafi aldr- ei verið skoðuð áður. „Þegar við tókum yfir greiðslurnar árið 2016 innleiddum við rafræn skil á gögn- um sem dagdvalarstofnanirnar höfðu áður alltaf sent í excel- skjölum. Ég veit ekki hversu mikið var skráð hjá Tryggingastofnun þannig að þjónustan í dagdval- arþjónustunni hefur ekki verið skoðuð áður,“ segir Helga, sem telur brýnt að gera samning um þjónustuna. Í dag er í gildi gömul kröfu- lýsing en Velferðarráðuneytið er að endurskoða kröfulýsinguna. Helga telur að ráðast verði í ítar- lega greiningu á þjónustunni. „Það hefur aldrei verið neinn samningur um þessa þjónustu, hún hefur bara verið veitt af gjaldskrá. Það er mjög óskýrt hvaða þjónustu á að veita og hvaða búnaður á að vera til staðar,“ segir Helga. Hún bætir við að í skýrslunni sé verið að skoða ýmis fleiri atriði, svo sem endurskoðun á rýmaheimild og lausn á löngum biðlistum eftir rými á dagdvalarheimilum. Engin þjónustulýsing í dagdvalarrýmum Morgunblaðið/Ómar Dægradvöl Oft á tíðum veita dagdvalarheimili eldra fólki nauðsynlega tilbreytingu eða hvíld frá skyldum og amstri daglegra athafna. 20 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2017 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Sveitarfélöglandsinseru fyrst og síðast hugsuð til að sjá um sam- eiginlega þjón- ustu fyrir íbúana. Sitji íbúar sveit- arfélags uppi með fyrir- svarsmenn sem telja að verk- efni þess snúist um eitthvað allt annað, og þá einkum það að upphefja þá sjálfa, þá hafa íbúarnir keypt köttinn í sekknum. Reykvíkingar sitja nú uppi með slík kaup, því miður. Undanfarin misseri hafa upp- lýsingar sem borgarbúar hafa fengið frá yfirstjórn borgar- innar um fjárhag hennar ver- ið algjörlega óboðlegar. Þær koma jafnan seint og illa og eru settar fram með þeim hætti að erfitt er fyrir þraut- þjálfaða menn að skilja. Þetta er ekki hægt að skýra með aumingjadómnum einum. Þetta hlýtur að vera gert til að venjulegir borgarar geti ekki fengið rétta mynd af því sem hefur verið að gerast. Fullyrðingar sveiflast til og frá, stundum eru rekstrar- þættir borgarsjóðs settir sem bland í poka með stofnunum hennar og jafnvel samstarfs- stofnunum í öðrum sveitar- félögum og gumsið borið saman við allt annað. Eina ályktunin sem borgarbúar geta dregið af slíkri framgöngu er að æðstu menn borgarinnar séu glóru- litlir um raunverulegan rekstur hennar. Rétt eins og þeir gera sér ekki grein fyrir markmiðunum með þeim rekstri. Það skín í gegn að þeir hafa ekki skilning á frumþáttum rekstursins og virðist raunar sama um hann. Þetta er bölv- að. Við þetta bætist svo að skattar sem sömu yfirvöld leggja á borgarbúa eru hvar- vetna í toppi. Þegar fast- eignamat hækkar vegna þró- unar á húsnæðismarkaði, sem ekki má síst rekja til slóða- háttar borgarinnar í lóða- málum, lækka yfirvöldin ekki álagningarstuðla á móti eins og öll sanngirnissjónarmið gera kröfu til. Kostnaðurinn við þjónustu sveitarfélagsins sveiflast ekki upp með fast- eignamatinu. Meðvitað er þrengt að svig- rúmi borgarbúa og beinlínis montað sig yfir því opin- berlega að þeim sé gert sífellt erfiðar að nota bifreiðina sína, því að nauðsynlegt sé að neyða þá í að nýta opinberar samgöngur eða hjól til þess að mörkuð stefna meirihluta borgarstjórnar gangi upp. Eng- inn leiðtoga borg- arinnar gengst hins vegar upp í að tryggja að sú grundvallarþjónusta sem borginni er gert að sinna sé innt af hendi með myndar- legum hætti. Borgarstjórinn virðist horfa á sjálfan sig í spegli sem stjörnu á sviði al- heimsstjórnmála sem um- heiminum hafi láðst að upp- götva. Þegar honum líkar ekki ákvörðun forsetans í Hvíta húsinu um bandarískar skuldbindingar tilkynnir hann rogginn að hann ætli að láta lýsa tónlistarhúsið Hörpu upp í grænu í tilefni dagsins! Og hvað með það? Það vakti hneykslun þegar borgarfulltrúar í Reykjavík og embættismenn undir leið- sögn borgarstjórans fóru hvorki meira né minna en 12(!) saman til Parísar til að taka þátt í gleðskap þar. Þeir vestra, sem ráðhúsmenn eru svona uppteknir af, hefðu þurft að senda 12.000 manns til að dansa með. Borgar- fulltrúar og fylgdarlið áttu ekkert minnsta erindi til Par- ísar annað en það að gera sér dagamun á kostnað Reykvík- inga. Borgarbúar taka hins vegar eftir því að svæði eins og Fjölskyldu- og húsdýra- garðurinn í Laugardal, sem stofnað var til af framsýni, og borgarbúar hafa notið, eru látin drabbast niður, eins og svo grátlega margt í borg- inni. Í fréttum gærdagsins var sagt að leiktæki á leik- völlum væru svo úr sér geng- in að þau sköpuðu slysahættu fyrir lítil börn. Er rétt að lýsa leikvellina upp með rauðu í tilefni fréttanna? Götur eru holóttar og aðþrengdar, og akreinar ekki lagðar sem lengi hefur verið beðið eftir af því að borgaryfirvöld eru í herferð gegn bílnum! En hvers vegna í ósköpunum að láta fjölskyldugarðinn í Laugardal og leiktæki barnanna grotna niður og eyða tíma sínum frá skyldu- störfunum í að reyna að ná sér niðri á Trump, með því að beina grænum ljóskösturum á Hörpuna? Með því eru græningjarnir í borgarstjórn að bregða ljós- inu á sjálfa sig og ítreka að þeir virðast ekki vita, hafa ekki grænan grun um, af hverju peningar eru sviðnir út úr hartkeyrðum borgar- búum til að greiða þessum köppum sín ríflegu laun. Fyrst þarf að ljúka skyldustörfunum og þá geta menn farið í pólitískan ljóskastaraleik} Ekki grænan grun E rtu búin(n) að fara í Costco?“ Það er sennilega sú spurning sem heyrst hefur oftast síðustu tvær vikurnar á Íslandi. Þetta ferlíki sem lenti eins og geimskip í Garðabænum dregur að sér forvitna og kaup- þyrsta Íslendinga sem flykkjast þangað dag- lega að berja augun dýrðina. Ég veit eiginlega ekki hvað við töluðum um fyrir Costco, man það einhver? Nú miðast tímatal Íslendinga við fyrir og eftir Costco og fólk mun spyrja eftir tíu ár, hvar varst þú þegar Costco opnaði? Þetta nýja ameríska sameiningartákn okk- ar hefur aldeilis hleypt samkennd og hlýju í mannskapinn. Aldrei er nú nóg af því. Vin- kona mín ein fór þangað strax á fyrsta degi og sagðist hafa upplifað þjóðhátíðarstemningu og fann samkenndartilfinningu sem hún hafði aldrei fundið fyrr. Fólk gekk um í hamingjukasti og tal- aði við ókunnuga: „Sjáið, sjáið, einn lítri af sjampói á fimm hundruð! Hundrað snúðar á þúsund!“ Það fyllti kerrurnar og allir elskuðu alla þennan dag. Þessi sama vinkona fór aftur næstu sjö dagana og kom með nýjar og ferskar sögur úr Costco daglega. Svona fyrir okkur sem ekki enn hafa gengið til liðs við Facebook-hópinn fræga. Sjö daga í röð sparaði hún svakalega, eiginlega kom hún út í plús. Ég spurði hana hvað hún væri eiginlega að kaupa þarna svona mikið? „Bara alls konar!“, sagði hún með blik í auga. „Eins og hvað?“, spurði ég, sem hafði þá aldrei farið. „Til dæmis snorklgræjur!“ svaraði hún alsæl. Já, hver þarf ekki snorklgræjur, það vantar alveg á mitt heimili. Ég sé það núna! Ég dreif mig loksins á laugardagsmorgun í Gósenlandið. Ákvað að vera fyrst og mætti korteri fyrir opnun. Ég hélt að allir hinir væru að sofa út. En nei, ekki aldeilis. Það biðu nokkur hundruð manns í biðröð með risavöxnu kerrurnar sínar. Og ég fór aftast í röðina og beið, dálítið spennt verð ég að viðurkenna, eftir að komast inn. Fá að vera með í samkenndinni, geta sagst hafa farið í Costco. Mér var nefnilega farið að finnast ég utanveltu í samfélagi mannanna. Ég kom út með körfuna fulla af mat, fal- legum og ferskum, en borgaði svona helm- ingi meira en venjulega þegar ég versla inn. Það var auðvitað af því að allar pakkningar voru svo stórar, ég þurfti að kaupa 30 kjúk- lingaleggi í stað sex, 3 kíló af nautahakki, hálft kíló af engifer og hálft kíló af hvítlauk. Það munu allir á mínu heimili anga af hvítlauk næstu vikurnar. Ég neyddist svo til að halda matarboð þrjú kvöld í röð, það komu til dæmis tólf manns í gær og sjö í fyrra- dag. Því nóg er jú til eftir eina Costco-ferð. Þvílík snilld. Þið sjáið þarna hvað Costco-áhrifin ná að gera, þau sameina fjölskyldur og vini líka, þegar heim er komið. Svo hefur verið í fréttum að gíraffinn er seldur. Já, ég verð að viðurkenna að ég keypti hann. Missti mig aðeins. Hann bíður í smá stund í búðinni á meðan smið- urinn sagar gat í þakið hjá mér. asdis@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir Pistill Gíraffinn fær loks heimili STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Gísli Jafets- son, fram- kvæmdastjóri Félags eldri borgara, segist hafa orðið var við jákvæða breytingu eftir að Sjúkra- tryggingar Ís- lands tóku við af Trygginga- stofnun ríkisins. Hann telur að þrátt fyrir að breyting hafi átt sér stað sé enn langt í land hvað varðar þjónustu við eldri borgara hér á landi. „Við erum ekki alltaf að gagnrýna, við reynum að gagnrýna til góðs. Við þurfum alltaf að sækja allt í staðinn fyrir að stofnanirnar hafi samband við okkur og við bendum þeim á, þannig er þetta gert erlendis, til að mynda í Svíþjóð. Við þyrftum þá ekki alltaf að standa í ein- hverjum blaðaslag. Þetta á bæði við um Félag eldri borgara sem og einstaklinga,“ sagði Gísli. Breyting til betri vegar FRAMKVÆMDASTJÓRI FÉLAGS ELDRI BORGARA Gísli Jafetsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.