Morgunblaðið - 06.06.2017, Page 26

Morgunblaðið - 06.06.2017, Page 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2017 ✝ Jóna MargrétJúlíusdóttir fæddist í Vest- mannaeyjum 2. febrúar 1927. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Hraunbúðum 30. maí 2017. Jóna Margrét var dóttir Júlíusar Jónssonar múr- arameistara, f. 31. júlí 1895, d. 4. september 1978, og Sigurveigar Björnsdóttur saumakonu, f. 22. september 1891, d. 27. september 1934. Bæði voru þau ættuð undan Eyjafjöllum. Jóna Margrét ólst upp í stórum systkinahópi í Stafholti í Vestmannaeyjum. Systkini hennar eru Björn Júlíusson barnalæknir, f. 1. október 1921, d. 7. mars 1995, Helga S. Júl- íusdóttir sjúkraliði, f. 26. júní 1923, Sigríður Ragna Júlíus- dóttir saumakona, f. 28. janúar 1926, d. 25. júní 2008, Haf- steinn Júlíusson múrarameist- ari, f. 8. júní 1928, d. 15. febr- úar 1990, Garðar Júlíusson Gunnari Steini Ásgeirssyni, Kristín Erna, f. 19. ágúst 1991, og Þorleifur, f. 28. október 1992. Fyrir á Sigurlás dótturina Kolbrúnu. Tryggvi átti fyrir dótturina Ásgerði, börn hennar eru Gunnar Þór Sveinsson, f. 15. maí 1967, og Áslaug Tóka Gunnlaugsdóttir, f. 22. desem- ber 1974. Synir hennar eru Leiknir Logi, Víkingur Viðar og Ásbjörn Úlfur. Að loknu barnaskólaprófi í Vestmannaeyjum hélt Jóna Margrét til Reykjavíkur, þar sem hún hóf störf í versluninni Kron. Þaðan hélt hún vestur á Ísafjörð, þar sem hún stundaði nám við Húsmæðraskólann Ósk. Þar kynntist hún Tryggva. Að námi loknu lá leiðin aftur til heimahaga hennar og hófu þau búskap í Eyjum að Steinum við Urðaveg 8. Hún vann við ýmis verslunarstörf ásamt fisk- vinnslustörfum. Starfsævina endaði hún á Pósthúsinu, þar sem hún starfaði um árabil. Jóna starfaði meðal annars í Galleríi Heimalist og seldi vörur sínar þar. Þá var hún fé- lagi í Sinawik, Kvenfélaginu Líkn og Félagi eldri borgara í Vestmannaeyjum. Útför Jónu Margrétar fer fram frá Landakirkju í Vest- mannaeyjum í dag, 6. júní 2017, og hefst athöfnin klukkan 11. rafvirki, f. 10. nóv- ember 1932, d. 26. ágúst 1988, og Sig- urveig Júlíusdóttir húsmóðir, f. 27. desember 1940. Jóna Margrét giftist 12. maí 1951 Tryggva Jónassyni, f. 4. október 1929, d. 17. október 2009. Dætur þeirra eru 1) Sigurveig Júlía, f. 29. október 1951, gift Ólafi Tryggvasyni. Sonur Júlíu og Sæmundar Hafsteinssonar er Tryggvi Már, f. 26. apríl 1976, í sambúð með Arnbjörgu Harðardóttur, saman eiga þau Hrafntinnu. Fyrir á Arnbjörg Birtu Lóu Styrmisdóttur. Dóttir Júlíu og Ólafs er Þórhildur, f. 9. september 1990, í sambúð með Jonathan R. Glenn. Fyrir á Ólafur Tryggva Þór, Sigurð Ómar og Lindu Björk. 2) Guðrún Karen, f. 19. júní 1958, gift Sigurlási Þorleifs- syni. Börn þeirra eru Jóna Heiða, f. 15. júní 1981, og á hún soninn Ívan Tryggva, Sara, f. 19. ágúst 1985, í sambúð með Elsku amma Jóna. Það er erf- itt að festa minningarorð á blað þrátt fyrir að við systkinin eigum ógrynnin öll af góðum minning- um um þig. Við eyddum mörgum stundum á Hásteinsveginum hjá þér og afa og sú tilfinning sem bærist í brjósti okkar við tilhugs- unina er hlý og góð. Alveg eins og þú varst. Það var hins vegar ekki nóg heldur vildir þú alltaf að okkur væri líka hlýtt og liði vel. Og heldur betur leið okkur vel í fallegu peysunum sem þú hafðir prjónað á okkur. Þú varst okkur mikil fyrirmynd; hörkudugleg, umburðarlynd, umhyggjusöm, mikill húmoristi og áttir góð samskipti við fólk án þess þó að liggja á skoðun þinni. Það er erfitt að sætta sig við að það sé komið að kveðjustund en við hugsum til allra góðu minninganna með þakklæti. Við huggum okkur við það að afi Tryggvi hefur tekið á móti þér nú þegar þú ert komin á betri stað. Hvíldu í friði, elsku amma. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Jóna Heiða, Sara, Krist- ín Erna og Þorleifur. Nú skilja leiðir, elsku amma. Eftir 41 gott ár saman á þessari jörðu er það með trega en líka þökkum sem ég kveð þig. Ég er svo þakklátur fyrir að þú náðir að halda upp á níutíu ára afmælið þitt í febrúar. Þú hefur alla tíð verið til staðar fyrir mig ef eitt- hvað kom upp. Alltaf mátti leita til þín og oftar en ekki bentir þú mér á hvað betur mætti fara. Það var því ánægjulegt að ná að endurgjalda aðstoð þína að einhverju leyti, nú í seinni tíð með tíðum heimsóknum sem ég hafði ekki síður gaman af en þú. Fyrst á Hásteinsveginn, síðan í Eyjahraunið og loks á Hraun- búðir. Á Hásteinsveginum minn- ist ég þeirrar tilhlökkunar að koma úr skólanum í nýbakaðar kleinur og ískalda mjólk. Mér fannst líka sérlega gaman að því að mér var trúað fyrir ýmsum hlutum bæði af þér og afa. Ég var náttúrlega eins og heimalningur á Hásteinsvegin- um. Mér er það ávallt minnisstætt þegar þið ákváðuð að nú skyldi drepið í sígarettunni fyrir fullt og allt. Ég var ekki síður ánægður fyrir ykkar hönd og var ég settur sem trúnaðarmaður ykkar í landsátaki gegn tóbaksnotkun. Nokkrum dögum síðar fékk ég far með afa sem var að klára vinnudaginn. Þá kveikti hann sér í og lagði í leiðinni þunga áherslu á það við mig – 10 ára drenginn – að amma mætti alls ekki vita af þessu uppátæki hans. Henni kæmi þetta bara alls ekki við. Ég lofaði. Síðdegis daginn eftir var ég einu sinni sem oftar á Hásteins- veginum. Þá dregur amma fram Viceroy-pakkann og kveikir sér í og segir við mig í leiðinni að – hann afi þinn megi alls ekki frétta af þessu. Þetta ætti bara að vera okkar á milli. Að sjálf- sögðu hélt ég þann trúnað einnig, en hafði mikið gaman af. Í dag er ég þakklátur fyrir að hafa náð að endurgjalda ömmu að einhverju leyti allt sem hún gerði fyrir mig. Það gerði ég á síðustu árum með því einu að heimsækja hana mjög reglulega og aðstoða hana með lítilræði eins og að versla inn og að út- rétta. Fyrir það var amma óskaplega þakklát. Ég missti ekki einungis ömmu mína, heldur líka góðan vin. Elsku amma, nú ertu komin til afa og ég veit að þér líður vel. Takk fyrir allt og allt, elsku amma. Tryggvi Már. Í dag kveðjum við þig, elsku- lega Jóna okkar. Það er okkur svo sárt. Það er erfitt fyrir okkur að lýsa þeim tilfinningum sem fara í gegnum hugann á þessum tímamótum. Þú hefur reynst okkur svo vel í lífinu. Kennt okk- ur svo margt, gefið mörg ráð og erum við mæðgur þér svo óend- anlega þakklátar fyrir allt. Jóna, þú varst yndisleg amma og langamma. Við mæðgur er heppnar að hafa fengið að kynn- ast þér. Minningarnar eru marg- ar og dýrmætar, elsku Jóna mín. Þær munu lifa með okkur um ókomna tíð. Minning þín er sem ljós á vegi okkar. Tárin fylla augu okkar er við minnumst þín með þakklæti og virðingu. Við kveðjum þig, elsku Jóna mín, með kærleika og þakk- læti fyrir allt. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur) Þínar, Arnbjörg, Birta Lóa og Hrafntinna. Elsku amma mín. Nú þegar þú hefur kvatt þennan heim langar mig að þakka þér fyrir allar þær yndislegu stundir sem við höfum átt saman í gegnum tíðina. Ég gleymi seint öllum þeim stundum sem við krakkarnir eyddum á Hásteinsveginum hjá ykkur afa. Þið voruð alltaf til staðar fyrir okkur og leituðum við mikið til ykkar. Þá rifjast upp fjöldinn all- ur af minningum frá öllum þeim skiptum sem við krakkarnir fengum að gista í ömmu- og afa- koti og sást þú, elsku amma mín, alltaf til þess að það færi vel um ömmubörnin þín og að enginn færi svangur í háttinn. Þau voru ófá matarboðin og veislurnar sem haldin voru á Hásteinsveg- inum þar sem stórfjölskyldan kom saman og má segja að þú og afi hafið verið límið í hópnum. Þú varst alltaf svo ljúf og góð, amma mín. Takk fyrir þá hlýju og ást sem þú hefur sýndir mér. Minn- ing þín lifi. Þórhildur Ólafsdóttir. Jóna Margrét Júlíusdóttir Eiginmaður minn, PÉTUR LÁRUSSON bóndi, Káranesi, Kjós, lést 30. maí. Útförin verður frá Reynivallakirkju miðvikudaginn 7. júní klukkan 14. Marta Finnsdóttir Gula húsið að Ár- túni 8 á Selfossi geymir margar góð- ar minningar og þangað var alltaf gott að koma. Eldhúsið var hjarta hússins enda var það húsmóðirin, Steinunn Ást- geirsdóttir, amma okkar, sem stóð þar vaktina fram á seinasta dag. Kaffitímarnir voru fjölmennir þar sem stórfjölskyldan hittist í morg- unkaffi hjá ömmu og var hring- borðið í litla eldhúsinu iðulega þétt setið. Allir voru ávallt velkomnir og leið henni best með fólkið sitt í kringum sig. Amma hafði óbilandi þolinmæði gagnvart okkur barnabörnunum sem voru aldrei nokkurn tíma óþæg að hennar mati og við fund- um aldrei fyrir því að við trufluðum hana. Hún hafði mjúkar hendur og hlý faðmlög en skemmtilegast fannst henni að gefa okkur að borða. Hún hló mikið og tók sjálfa sig ekki of hátíðlega. Við systurnar vorum allar þrjár svo heppnar að fá að búa í kjallaranum á Ártúni 8 á framhaldsskólaárum okkar sem var góður tími. Amma var af þeirri kynslóð sem þurfti að hafa fyrir hlutunum. Eftir að börnin voru uppkomin og það fór að róast heima fór hún að skúra í bankanum og selja heimaprjón- aðar lopapeysur í Eden í Hvera- gerði. Aldrei var kvartað yfir mik- illi vinnu eða líkamlegum kvillum. Hún safnaði sér fyrir bíl og keypti sér loksins Lödu 1200 sem oft var Steinunn Ástgeirsdóttir ✝ Steinunn Ást-geirsdóttir fæddist 16. apríl 1925. Hún lést 21. maí 2017. Útför Stein- unnar fór fram 30. maí 2017. notaður til að skutla okkur í skólann eða fenginn að láni til að rúnta um bæinn. Amma hugsaði vel um heilsuna og var mjög hraust bæði andlega og líkam- lega. Hún var sterk félagslega og var í góðu sambandi við afkomendur sína, ná- granna, vini og systk- ini sín. Hún var mikil reglumann- eskja, drakk ekki eða reykti og fór í sund á morgnana. Sund var að hennar mati lækning allra meina, sama hvort var um að ræða bak- verki eða blöðrubólgu. Hún hugs- aði vel um útlitið og hafði afskap- lega gaman af því að kaupa sér föt og punta sig. Hún hafði þó lítinn skilning á sumum af nýrri tísku- bylgjunum, til dæmis þessum skjóllitlu nærfötum hjá yngri kon- um eða af hverju sumir ungir drengir notuðu ekki belti í stað þess að missa buxurnar niður fyrir rass. Nema ef það voru einhverjir úr fjölskyldunni því hennar fólk hafði fáa galla. Það má segja að amma var lím- ið sem hélt fjölskyldunni saman, en hún fylgdist alltaf vel með öllu sem gerðist innan hennar enda hafði hún mikinn áhuga á öllum þáttum í lífi afkomenda sinna. Í hennar tilfelli var hægt að segja að hún uppskar það sem hún sáði og átti 92 góð ár þar sem hún lifði við góða heilsu, ást og umhyggju. Hennar er sárt saknað. Steinunn, Kolbrún og Brynja Hrafnkelsdætur. Allt hefur sín takmörk, þannig er það með lífið líka. Oft göntuð- umst við með það, ég og tengda- mamma, að öruggt væri að við lifðum það ekki af. Mig langar í ör- fáum orðum að þakka tengdamóð- ur minni, Steinunni Ástgeirsdótt- ur, samfylgdina sl. 48 ár. Það byrjaði þegar ég fór að venja kom- ur mínar í Ártún 8. Ekki man ég eftir að nokkurn skugga hafi borið á okkar kynni, enda hafði Stein- unn ótrúlegt jafnaðargeð. Hún fylgdist jafnan vel með afkomend- um sínum, elskaði þá og dáði. Ólöt var hún að heimsækja börn og barnabörn, innanlands og utan, vera viðstödd helst alla viðburði sem þau tóku þátt í. Margs er að minnast sem ekki verður komið fyrir hér í fátæklegum þakkarorð- um. Eitt er það sem mér fannst alltaf svolítið merkilegt, það var hversu heilsuhraust hún hafði alla tíð verið, aldrei orðið misdægurt. Hún sagðist t.d. aldrei hafa fundið til þreytu, sem verður að teljast gott hjá manneskju sem var með stórt heimili og um tíma með slatta af kindum og hænum, sem kallast í dag frístundabúskapur. Við ræstingar starfaði hún um langt árabil. Síðastliðin 30 ár stundaði hún sundlaugina á hverj- um morgni, sér til heilsubótar, og síðustu ferðina þangað fór hún nokkrum dögum fyrir andlát sitt. Bíl átti Steinunn og naut þess að skreppa austur að Syðri-Hömr- um, með Heiðu systur sinni og líta á æskuslóðirnar. Keyrði hún allt þar til fyrir einu ári að hún ákvað að nú væri nóg komið. Hennar heitasta ósk var sú að þegar henn- ar tími væri kominn þá vaknaði hún ekki eftir nætursvefninn, og þó henni yrði ekki alveg að ósk sinn, þá má segja að nærri því fór hún, því að eftir fimm daga sjúkra- húslegu hafði hún fengið hvíldina. Með þessum fátæklegu orðum vil ég þakka öll þægilegheitin og samveru á liðnum árum. Betri tengdamömmu held ég að ekki sé hægt að óska sér. Far þú í friði. Þorsteinn Árnason. Þá er hún fallin frá, elsku móð- ursystir mín, hún Steinunn á Sel- fossi eins og okkur var tamt að nefna hana. Steinunn ólst upp með foreldrum sínum og sex systkin- um að Syðri-Hömrum í Ásahreppi í Rangárvallasýslu. Hún var fjórða í systkinaröðinni og er Heiða sú eina eftirlifandi. Stein- unn var einstaklega umhyggju- söm, skemmtileg og dugleg kona. Hún var gift Gesti og eignuðust þau sex börn. Fjölskyldan bjó í kjallaraíbúð að Ártúni 8 til fjölda ára. Þætti mörgum það þröngt í dag, en þar sem hjartarými er nóg finnur enginn fyrir slíku. Steinunn hafði gott skipulag á hlutunum og með jákvæðu hugarfari og æðru- leysi tókst henni að búa átta manna fjölskyldu gott heimili í þessum húsakynnum. Vel var tek- ið á móti gestum, sem gistu jafnvel yfir lengri tíma, alltaf var nægi- legt pláss. Á þessum árum bjuggu tengdaforeldrar hennar og mágur á efri hæðinni og var Heiða systir hennar ráðskona þar og bjó því líka í húsinu ásamt syni sínum. Í bernsku gisti ég oft í Ártúninu, ýmist á efri eða neðri hæðinni, og var ávallt velkomin til frændfólks- ins. Það var mikið fjör og gaman hjá okkur krökkunum og ómetan- leg reynsla fyrir borgarbarnið að fá að kynnast bústörfum, en Stein- unn og Gestur voru með kindur og hænur. Ég minnist líka góðra stunda í kvöldkaffinu, þar sem mikið var spjallað, hlegið og allir skemmtu sér. Þegar ég hugsa til baka finnst mér Steinunn alltaf hafa verið til staðar í lífi mínu. Hún var einstaklega skilningsrík, hreinskilin, hlý og vönduð mann- eskja sem gott var að leita til. Hún kom í tvígang í heimsókn til okkar til Noregs þegar við bjuggum þar, sem mér þótti mjög vænt um. Ég er þakklát fyrir að hafa átt elsku Steinunni svona lengi að og mun ætíð minnast hennar sem góðrar móðursystur. Ég sendi börnum hennar og afkomendum innilegar samúðarkveðjur. Arndís Þorsteinsdóttir Í dag kveðjum við hann Jón afa minn. Ég var um 5 ára gamall þegar Jón kemur inn í líf mitt. Ég man ekki eftir öðru en hafa kallað hann afa minn. Hann reyndist mér alltaf mjög vel og eyddi ég mörgum stundum í æsku hjá þeim á Boðaslóðinni. Mér leið alltaf vel hjá þeim ömmu og Jóni afa og var alltaf dekrað vel við okkur krakkana sem komum í heimsókn og alltaf var horft á Stellu í orlofi sem ég tel hafa verið eina ofnotuðustu spólu á sínum tíma. Mér þótti alltaf gaman að fara með þeim ísrúnt á Lödunni hans afa og var oftast stoppað bak við Fes hjá Ísfélaginu og horft á lífið í og við höfnina, enda var afi mikil báta- kall. Oftast þegar maður kom við þá var kallinn alltaf að, uppi á þaki að dytta, að mála húsið eða í fallega gróðurhúsinu þeirra sem þeim þótti afar vænt um. Húsið á Boðaslóðinni og garð- Jón S. Þórðarson ✝ Jón SigurðssonÞórðarson fæddist 17. júní ár- ið 1921. Hann and- aðist 7. maí 2017. Útför Jóns fór fram 27. maí 2017. urinn var heill æv- intýraheimur fyrir ungan og öran Eyjapeyja. Vinátta okkar jókst með árunum, sérstaklega síðustu árin hans. Ég reyndi að koma sem oftast í heimsókn til þeirra á Sólhlíðinni og síðar á Hraun- búðir. Alltaf var hann hress og kátur og þótti okkur mjög gaman að spjalla saman um lífið og tilveruna, allt- af var hann að spyrja mig hve- nær ferðu næst út Óli minn, þó svo ég hafi kannski verið nýkom- inn að utan. Þeim þótti voða vænt um að fara utan og vildi kallinn eflaust að ég væri dug- legur að skoða heiminn. Ég mun seint gleyma því þeg- ar ég spurði þig elsku afi, hvað væri lykillinn af því að verða langlífur og með góða heilsu, það stóð ekki á svarinu. Óli minn, það er vera jákvæður og hress. Eftir þessari visku ætla ég að reyna að lifa, ég verð ævinlega þakklátur fyrir vináttu okkar og minning þín mun lifa með mér um ókomna tíð. Góða ferð elsku vinur, þangað til næst. Ólafur Björgvin Jóhannesson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.