Morgunblaðið - 06.06.2017, Síða 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2017
✝ Stefán GeirJónsson fæddist
á Húsavík 12. des-
ember 1965. Hann
lést á Heilbrigðis-
stofnun Norðurlands
á Húsavík 27. maí
2017.
Foreldrar hans
eru hjónin Jón Guð-
laugsson, f. 2.1.
1945, og Hanna
Stefánsdóttir, f.
20.6. 1948.
Bræður Stefáns Geirs eru
Unnar Björn Jónsson, f. 23.11.
1967, d. 9.3. 2015, og Guð-
laugur Rúnar Jónsson, f. 17.2.
1981.
2001. 4) Elsa Dögg Stefáns-
dóttir, f. 6.8. 2002.
Stefán Geir ólst upp á Húsa-
vík og gekk þar í barna- og
gagnfræðaskóla. Hann æfði
bæði fótbolta og skíði með
íþróttafélaginu Völsungi, hann
þótti mjög efnilegur á skíðum
og fór margoft utan í æfinga-
ferðir með landsliði Íslands á
skíðum. Að loknum gagnfræða-
skóla hóf Stefán Geir nám í
bakaraiðn við Iðnskólann í
Reykjavík og var á samning
hjá Bakarameistaranum, þaðan
lauk hann sveinsprófi 1987.
Hann lauk námi frá Stýri-
mannaskólanum á Dalvík 1993
og starfaði sem stýrimaður og
skipstjóri upp frá því allt þar
til illvígur sjúkdómur batt enda
á starfsferil hans fyrir rétt
rúmu ári.
Útför Stefáns Geirs fór fram
frá Húsavíkurkirkju í gær, 5.
júní 2017.
Stefán Geir
kvæntist 2. sept-
ember 1989 Dóru
Fjólu Guðmunds-
dóttur, f. 19.2.
1966, og eignuð-
ust þau fjögur
börn, þau eru: 1)
Hanna Jóna Stef-
ánsdóttir, f. 12.7.
1989, maki Sig-
urður Jóhann
Freygarðsson, f.
26.11. 1973, sonur þeirra er
Stefán Leó, f. 31.3. 2017, dóttir
Sigurðar er Elísabet Sól, f. 3.8.
2002. 2) Guðmundur Árni Stef-
ánsson, f. 18.6. 1995. 3) Dreng-
ur Stefánsson, f. andvana 14.7.
Aldrei óraði mig fyrir því að
ég myndi sitja og skrifa fátæk-
leg minningarorð um elsku
hjartans pabba minn svona
snemma. Sársaukinn sem nístir
í hjarta mínu er ólýsanlegur en
ég veit af hverju hann stafar.
Hann stafar af því að hafa
fengið það dásamlega hlutskipti
í lífinu að fá að vera dóttir hans
og vera nú búin að missa hann.
Pabbi var allt það sem pabbar
eiga að vera, fyrirmynd í einu
og öllu. Bestur.
Pabbi varð afi fyrir rétt rúm-
um tveimur mánuðum, þegar
nafni hans og sólargeisli okkar
fjölskyldunnar, Stefán Leó,
fæddist. Pabbi hlakkaði mikið
til að verða afi enda fyrirfinnst
varla eins barngóður maður og
pabbi var. Það er sárt að hugsa
til þess að þeir nafnar fái ekki
að kynnast betur í þessu lífi.
Það veitir þó gleði í sorginni að
þeir hafi fengið að kynnast og
knúsast aðeins.
Þakklæti er mér ofarlega í
huga, þakklæti fyrir allt það
góða sem við áttum. Mikið vildi
ég samt óska þess að við hefð-
um fengið að njóta lífsins með
pabba um ókomin ár og ég veit
að ég er ekki ein um þá ósk.
Missir margra er mikill með
brotthvarfi pabba.
Elsku hjartans pabbi. Stolt
dóttir þakkar fyrir allt saman.
Þín,
Hanna Jóna.
Ég kynntist Stefáni Geir,
föður unnustu minnar, haustið
2014. Það er óhætt að segja að
það hafi verið mjög góð kynni
sem vörðu þó allt, allt of stutt.
Stefán var nefnilega magnaður
maður. Þéttur og sterkur á
velli, ákaflega duglegur, fylginn
sér og glaðlyndur. Algjör nagli.
Hvernig í ósköpunum getur þá
staðið á því að ég sit hér og
skrifa minningargrein um
þennan rétt fimmtuga harðjaxl?
Glioblastoma er ömurlegt
óféti sem enginn maður hefur
sigrast á enda dugði ekkert
minna til að fella hann heldur
en grimmasta heilaæxli sem til
er. Því miður var það svo að
þegar Stefán greindist með
ófétið fyrir ári varð maður ekk-
ert mjög áhyggjufullur, því ef
einhver myndi sigrast á svona
þá væri það einmitt Stefán, og
lífið hélt áfram sinn vanagang.
Stefán tók hluti alltaf alla
leið. Þegar þurfti að gera eitt-
hvað eða veita aðstoð voru hlut-
irnir keyrðir í gang. Strax. Í
gær helst. Það er ákaflega gott
að hafa svoleiðis mann sér við
hlið. Arsenal-stuðningsmaður
af lífi og sál og þótti ákaflega
gaman að benda mér á að það
að halda með Wolves væri nú
ekki sérlega vænlegt til árang-
urs. Nýbúinn að byggja sér frí-
stundahús í Aðaldal og þeystist
um Víknafjöllin og Kotadal,
sem honum fannst vera paradís
á jörð, á vélsleðanum sínum í
góðra vina hópi, yfirleitt með
Guðmund son sinn sér við hlið.
Hann var mikill fjölskyldu-
maður og mjög mikill barna-
kall, þess vegna er það þyngra
en flest annað að sonur okkar
Hönnu, dóttur hans, var búinn
að missa afa sinn áður en hann
náði tveggja mánaða aldri. Við
erum þó ákaflega þakklát fyrir
að Stefán Geir gat verið við-
staddur skírn Stefáns Leós. En
lengra nær þakklætið til örlag-
anna ekki. Jonni og Hanna, for-
eldrar Stefáns Geirs, vakna nú
við það á morgnana að hafa
misst tvö af þremur börnum
sínum af völdum krabbameins,
á tveimur árum. Dóra Fjóla
hefur misst ástkæran eigin-
mann til tæplega þrjátíu ára.
Elsa Dögg, Guðmundur Árni og
Hanna Jóna föður sinn. Klett-
inn í lífi þeirra. Örlögin eru
grimm og óútskýranleg. Ég er
miður mín fyrir ykkar hönd.
Kæri Stefán Geir. Þú varst
magnaður maður og það var
heiður að fá að kynnast þér.
Sigurður Jóhann,
Hálsi, Fnjóskadal.
Það er laugardagur 27. maí,
karrinn situr á þakbrúninni á
Seli, sumarhúsi Dóru Fjólu og
Stefáns Geirs, horfir yfir og
ropar hátt, er að verja óðal sitt.
Það heyrist í lóu, spóa og há-
vaðasömum hrossagauk. Loftið
ómar af fuglasöng og lífi. Aðal-
dalshraunið orðið algrænt.
Sumarið er á næstu grösum.
En þá ber dimman skugga
yfir. Það er rúmt ár síðan óboð-
inn vágestur réðst inn á heimili
Stefáns Geirs og hefur haldið
honum og fjölskyldu hans í
heljargreipum síðan. Og þrátt
fyrir hetjulega baráttu þessa
duglega drengs, sem háð hefur
marga baráttu við Ægi konung
og alltaf haft betur, varð hann
nú að lúta í lægra haldi. Hvaða
réttlæti er í þessu, hvernig
stendur á því að maður á besta
aldri, sem með réttu ætti ótal
mörg gleðiár fram undan með
fjölskyldu sinni, nýfæddum
dóttursyni og nafna, í Selinu
sem þau Dóra Fjóla hafa komið
sér upp á undanförnum miss-
erum, er kallaður á brott frá
öllu þessu? Er ekki fjölskyldan
búin að færa nægar fórnir á
undanförnum árum í glímunni
við þennan vágest sem oft hef-
ur betur í þeirri grimmu bar-
áttu? Þetta er svo sárt, svo
óréttlátt, svo óskiljanlegt.
Það eru aðeins rúm fjögur ár
síðan leiðir mínar og þessa dug-
mikla frænda míns lágu fyrst
saman. Við höfðum báðir hug á
að reisa sumarhús í Árbót. Það
þróaðist síðan þannig að við
ákváðum að byggja sams konar
hús, töldum það yrði hagkvæmt
fyrir báða. Í júní 2013 var haf-
ist handa við að grafa grunn-
ana. Áhugi Stefáns var mikill
og hann vakinn og sofinn yfir
allri framvindu og hélt mér
upplýstum. Hann var útsjónar-
samur, hugsaði fyrir öllu.
Ræddum við skipulag, trjágróð-
ur, pallaefni, rotþrær, varma-
dælur, allt sem mátti verða til
hagsbóta. Af pallinum á Seli
varð að sjást út á Skjálfanda.
Stefán sá um að setja upp skilti
með nöfnum húsanna, Sel og
Hlaðir, og kom fyrir kari með
sandi til að dreifa í brekkuna
niður að húsunum ef hált yrði.
Góð vinátta þróaðist með okkur
og varð Stefán tíður og vinsæll
gestur, kom oft í kaffisopa og
spjall eftir að hús risu. Fyrir
utan að vera dugmikill skip-
stjóri og stýrimaður á okkar
aflahæstu skipum var hann
mikill náttúruunnandi, útivist-
armaður og veiðimaður og var
gaman að heyra lýsingar og
frásagnir af snjósleða- og veiði-
ferðum eða spjalla við þennan
ljúfa dreng um daginn og veg-
inn. Síðasta heimsókn Stefáns
Geirs í Hlaðir var í febrúar sl.
Þá litu þau Dóra Fjóla hér við í
kaffisopa og rætt var um fram-
tíðina, fullur hugur á að sigra
vágestinn. Er ég leit við hjá
frænda mínum á sjúkrahúsinu
á Húsavík sl. páska hafði hins
vegar hallað undan fæti. Enn
var þó rætt um ferðir í sveitina
og samverustundir í sumar.
En nú hefur Stefán orðið að
lúta í lægra haldi þrátt fyrir
hans sterka vilja til að sigra í
þessari grimmu baráttu. Við
Vigga söknum góðs vinar og
samverustunda sem við töldum
okkur eiga í vændum. Við send-
um Dóru Fjólu, börnum og öllu
frændfólki okkar, ættingjum
hans og vinum innilegar sam-
úðarkveðjur þótt þær séu létt-
vægar og dugi skammt í þeirra
miklu sorg. Þökkum ógleyman-
legar samverustundir, minning
um góðan dreng mun lifa með
okkur öllum.
Guðmundur Bjarnason.
Elsku Stefán Geir.
Yndislegi og góði frændi
minn er fallinn frá í blóma lífs-
ins. Mér finnst ég tóm, sorgin
og eftirsjáin er mikil.
Stefán Geir Jónsson var
toppmaður í alla staði. Mikill
Húsvíkingur og fjölskyldumað-
ur, sjóari, bakari og skíðakóng-
ur Húsavíkur.
Við Stefán Geir erum ná-
skyld, frændsystkini. Þrátt fyr-
ir 16 ára aldursmun er ég mjög
náin Stefáni Geir og hans fjöl-
skyldu. Mín fyrsta minning af
þér er um leið af þinni ynd-
islegu kjarnakonu henni Dóru
Fjólu. Ég man það eins og í
gær þegar ég fékk að labba
með Dóru Fjólu heim til ykkar
í Höfðabrekkuna úr Sólbrekk-
unni heima og ég fékk að keyra
glæsilega Silver Cross-vagninn
með frumburð ykkar, hana
Hönnu Jónu, sofandi.
Á öllum þessum tíma, frá því
að ég átta ára labbandi grobbin
frænka að keyra Silver Cross-
vagninn, þar til nú hefur sam-
bandið alltaf verið mjög gott og
mikill samgangur. Ég hef pass-
að öll ykkar yndislegu börn,
þau Hönnu Jónu, Guðmund
Árna og Elsu Dögg. Alltaf er
kíkt á Hjarðarhólinn í heim-
sóknum til Húsavíkur og Elsa
Dögg einstök er kemur að því
að hitta frænkur sínar og leika
við þær og passa.
Mikið áfall var þegar grein-
ing um heilaæxli kom fyrir rétt
rúmu ári. Fréttirnar voru mikið
áfall fyrir alla fjölskylduna,
ekki síst vegna þess að fyrir
rétt rúmum tveimur árum féll
bróðir hans Unnar Björn frá
eftir áralangra baráttu við
krabbamein. Óréttlætið finnst
mér mikið og mikið lagt á sömu
fjölskylduna.
Lífið lék við ykkur, þið Dóra
nýbúin að byggja ykkur falleg-
an sumarbústað og þið orðin afi
og amma, en þann 31. mars sl.
kom gleðigjafinn Dalaprinsinn í
heiminn sem fékk fallega nafnið
Stefán Leó.
Stelpurnar mínar tvær minn-
ast þín með mikilli hlýju –
„hvað segja frænkurnar mínar
gott?“ heyrðist alltaf þegar þú
hittir þær og alltaf varstu bros-
andi. Glottandi sagðirðu við
þær að krafla nú vel á rúðunum
heima í Sólbrekkunni og í afa-
bíl. Þegar þær fréttu af andláti
þínu komu tár í augu og sú
eldri sagði „en mamma, hann
var svo góður við okkur alltaf,“
og „fær þá Stefán Leó aldrei að
leika við afa sinn?“ Það er erfitt
að svara svona spurningum frá
átta og fimma ára stelpum.
Erfitt verður að koma norð-
ur á Húsavík, þar sem þér leið
best, og fylgja þér þín hinstu
spor, elsku frændi. Fyrir ári
síðan komum við fjölskyldan
síðast norður um hvítasunnuna
í fermingu Elsu þinnar – ynd-
isleg stelpa sem þú mátt vera
stoltur af.
Elsku Dóra Fjóla mín,
Hanna Jóna, Siggi, Stefán Leó,
Guðmundur Árni, Elsa Dögg,
Hanna og Jonni, Rúnar og fjöl-
skylda – sorg ykkar og missir
er mikill – ég sendi mínar inni-
legustu samúðarkveðjur til
ykkar.
Minning um góðan dreng lif-
ir. Þín verður sárt saknað,
elsku frændi.
Þín frænka,
Sigurbjörg Stefánsdóttir.
Þegar um er að ræða uppá-
haldsfrænkuna, Dóru Fjólu
Guðmundsdóttur, er matið á
mannsefni hennar strangt. Þeg-
ar við fyrstu kynni af Stefáni
Geir Jónssyni varð okkur ljóst
hversu heppin frænka okkar
var. Honum fylgdi athafna-
kraftur, hlýja, hjálpsemi og
gott skopskyn. Þau komu suður
til Reykjavíkur um skeið, er
Stefán Geir var að nema bak-
araiðn, og tengdust við þeim
þegar sterkum vináttuböndum,
m.a. í heimboðum í Kópavog.
Stefán Geir var mikill
íþróttamaður í æsku og varð og
einn fremsti unglingaskíða-
meistari Íslands. Hann var kos-
inn Íþróttamaður Húsavíkur
fyrir skíðaafrek sín.
Í lífinu sjálfu var Stefán Geir
mikill framkvæmdamaður –
honum datt eitthvað í hug og
framkvæmdi það af mikilli elju,
enda góður verkmaður, laginn
við verklega vinnu, veiðiskap,
trésmíðastörf og steypuvinnu –
allt þetta og margt fleira lék
honum í hendi. Þessir eðliseig-
inleikar hans komu honum til
góða í atvinnulífinu þegar hann
þurfti vegna ofnæmis við bak-
arastörf að skipta um starf og
hóf sjósókn, fyrst sem háseti,
síðan sem stýrimaður og feng-
sæll aflaskipstjóri.
Við komum norður til Húsa-
víkur fyrir þremur árum í sum-
arfrí og þar tóku þau Stefán
Geir og Dóra Fjóla og börn
þeirra, Elsa Dögg sem er
yngst, Guðmundur Árni sem er
næstyngstur og svo Hanna
Jóna, ásamt móður Dóru Fjólu,
Stefaníu Halldórsdóttur (nú
látin), okkur af mikilli gestrisni.
Þar var ekkert til sparað í
heimboðum að Hjarðarhóli tutt-
ugu og tvö, en þar á fjölskyldan
heimili í bestu merkingu þess
orðs. Þessi sumarferð ljómar í
minningu okkar þegar við erum
að kveðja heimilisföðurinn í síð-
asta sinn.
Hann sýndi tengdamóður
sinni, Stefaníu, mikla umhyggju
og bar hana á höndum sér í erf-
iðum veikindum hennar.
Stefán Geir lét aldrei staðar
numið í framkvæmdadug og hóf
þetta ljúfa sumar að byggja
glæsilegan sumarbústað í ná-
grenni Húsavíkur og vann þar
þrekvirki. Hann var þykkur
undir hönd og vasklegur í fram-
göngu. Það fylgdi honum ætíð
brot af björtu norðlensku vori.
Við sendum norður okkar
innilegustu samúðaróskir til
ykkar allra, Dóru Fjólu, Elsu
Daggar, Guðmundar Árna,
Hönnu Jónu og einnig til ný-
skírða afabarnsins, Stefáns
Leós Sigurðssonar, sem og
annarra aðstandenda.
Það var lengi hefð um ára-
mót á Húsavík að Stefán Geir
og skíðakappar hans fóru í
blysför á skíðum niður Húsa-
víkurfjall og þótti fögur sjón.
Þessi siður er nú aflagður en
má taka upp aftur í minningu
íþróttamannsins, heimilisföður-
ins, sægarpsins og Húsvíkings-
ins Stefáns Geirs Jónssonar. Þó
að ekki verði af því munu Hús-
víkingar, þeir sem til þekktu,
ætíð á gamlárskvöldi sjá blys
leiftra efst á Húsavíkurfjalli.
Og hjarnið syngur.
Jónhildur Halldórs-
dóttir (Nóna) og
Halldór Eiríkur S.
Jónhildarson.
Það er stutt í skólalok og
sumarfríið handan við hornið.
Við erum komin í útileiki við
skólann, förum í snú-snú,
hlaupum í skarð eða fallna
spýtu, eltingaleiki og fótbolta-
keppni. Áhyggjulaus æskan
sem á allt lífið fram undan, er
svo ósnertanleg og óhrædd við
lífið og tilveruna. Minningarnar
streyma fram þegar við í dag
kveðjum kæran vin og skóla-
félaga, Stefán Geir Jónsson,
eftir stutt en illvíg veikindi.
Hans tími átti að vera núna,
börnin að vaxa úr grasi, afa-
drengur og nafni nýfæddur.
Seinni hálfleikur rétt að hefjast
og við sáum hann fyrir okkur
verða gamlan með Dóru Fjólu
sinni, því þau hafa ætíð verið
sem eitt. En það er ekki hægt
að spyrja að leikslokum og
hans tími er kominn, allt of
stuttur. Árgangur ’́65 á Húsa-
vík samanstendur af góðum
hópi einstaklinga en við vorum
rúmlega fimmtíu þegar mest
var. Hluti okkar hefur alla tíð
búið á Húsavík, en eins og
gengur margir farið í burtu til
náms eða vinnu og ekki snúið
aftur heim á æskuslóðir. Stefán
Geir er einn þeirra sem hélt
tryggð sinni við bæinn og kom
heim eftir nám sitt. Stefán og
Dóra voru góðir grannar, hjálp-
söm og liðleg. Stefán Geir var
ljúfur, hnyttinn og góður skóla-
bróðir sem breyttist aldrei.
Stutt í brosið og léttan hlát-
urinn en rökfastur og ákveðinn
þegar við átti. Hann mátti ekki
neitt illt sjá og var ávallt tilbú-
inn að taka málstað þeirra sem
minna máttu sín. Við bekkjar-
félagarnir höfum verið þeirrar
gæfu aðnjótandi að koma reglu-
lega saman á Húsavík og átt
góðar stundir. Þá dugar ekki
ein kvöldstund heldur tveggja
daga dagskrá. Þar kom Stefán
oftar en ekki að undirbúningi
því honum fannst mikilvægt að
við værum að hittast. Þá deil-
um við minningum, skoðum
gamlar myndir og rifjum upp
ýmsar prakkarasögur því þær
eigum við vissulega til en um-
fram allt njótum samvista.
Skólaferðalögin í Skjólbrekku,
ógleymanleg skíðaferð í Hlíð-
arfjall þar sem skíðamaðurinn
Stefán naut sín vel, óteljandi
leikþættir sem voru settir upp
og hver man ekki diskókúluna í
litla sal félagsheimilisins? Stef-
án Geir var ótrúlega handsterk-
ur og strákarnir rifja upp að
hann lyfti meira en þeir í bekk-
pressu hjá Villa í þrekinu. Þeir
fundu einnig fyrir því í bolt-
anum því hann var skotfastur
með eindæmum. Markmiðið var
að hittast á fimm ára fresti því
það væri tilefnið. En svo átt-
uðum við okkur á því að það á
ekki að vera tilefni, tíminn er
núna og hans ber að njóta. Síð-
asta sumar var slíkt, án tilefnis
ákváðum við að koma saman en
frestuðum því þó um dag svo
Stefán Geir gæti örugglega
verið með því þá var læknis-
meðferð í Reykjavík þegar haf-
in. Hann mætti galvaskur að
venju, sagðist reyndar ekki
mega keyra en það væri í góðu
lagi að skála við okkur. Svo hló
hann eins og honum einum er
lagið, röddin örlítið hrjúf en
æðruleysi hans skein í gegn.
Stefán Geir var falleg og góð
sál og þeir sem nú taka á móti
honum verða ríkari af mann-
gæsku og góðmennsku. Og
hann mun klárlega vinna alla í
sjómanni.
Elsku Dóra Fjóla og fjöl-
skylda, ykkar missir er mikill.
Megi minning um góðan dreng
ávallt lifa.
Fyrir hönd ’65,
Jóna Matthíasdóttir.
Stefán Geir
Jónsson
Ástkær eiginkona mín, móðir og
stjúpmóðir,
ÁSTA LILJA KRISTJÁNSDÓTTIR
frá Siglufirði,
til heimilis að Vesturgötu 7,
andaðist á lungnadeild Landspítalans 2.
júní.
Jarðarförin verður gerð frá Hallgrímskirkju mánudaginn 12. júní
klukkan 13.
Sigurður Jón Ólafsson
Melkorka Sigurðardóttir Steinar Logi Sigurðsson
Rósa Huld Sigurðardóttir Klara Dögg Sigurðardóttir
Þökkum auðsýnda samúð við andlát
eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa
og langafa,
STEINGRÍMS DAVÍÐS
STEINGRÍMSSONAR
sem lést 10. maí 2017.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðrún Veturliðadóttir