Morgunblaðið - 06.06.2017, Síða 33
DÆGRADVÖL 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2017
HLEYPTU
TÁNUMÚT!
sandalar í miklu úrvali
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú vilt vita hvernig hlutirnir virka
og þess vegna átt þú ýmsu ólokið. Þú berð
skarðan hlut frá borði í einhverju tilliti.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er ekki oft sem menn mega láta
letina ná tökum á sér. Ef þú átt erfitt með
að láta undan og miðla málum, reyndu þá
að halda aftur af þér og bíða betri tíma.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Fjölskyldan og heimilið eru í
brennidepli hjá þér þessa dagana. Sestu
niður, farðu í gegnum eignir og skuldir og
settu þér svo áætlun til að fara eftir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Reyndu að hitta fólk sem er klárt,
vinalegt og skemmtilegt. Ekki láta aðra
segja þér fyrir verkum, þú átt að vera þinn
eigin herra.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Reyndu að finna einhvern sem kann
að deila með þér reynslu þinni. Segðu
einni manneskju eitthvað sem enginn ann-
ar veit.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Réttu hjálparhönd en af kostgæfni
og fyllilega meðvitað. Passaðu upp á að
hvert orð, verk eða áætlun sem tengd eru
þér, þóknist þér.
23. sept. - 22. okt.
Vog Gengur allt á afturfótunum í dag? Það
fer eftir því hvernig þú lítur á það. Varð-
andi leynilegt áhugamál sem þú hefur ekki
sinnt er núna rétti tíminn til þess að leggj-
ast í rannsóknir.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er ekkert hallærislegt við
tilfinningar, jafnvel þótt þér hafi verið
kennt það. Þú kemur miklu í verk og nýtur
góðs af styrk annarra.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Dagurinn er óheppilegur til að
lofa fjölskyldunni einhverju eða gera ráð-
stafanir varðandi fasteignir. Komdu í veg
fyrir rugl með því að segja hreint út hvað
þig vantar.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Sýndu fjölskyldunni þolinmæði í
dag. Er ekki bara einfaldara að viðurkenna
vanmátt sinn? Það er merki um styrk að
viðurkenna veikleika.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Leggðu þig fram um að sýna
öðrum umhyggju í dag. Velgengni annarra
gæti komið sér vel fyrir þig um þessar
mundir.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Hugur þinn verður síkvikur á næstu
vikum. Upplýsingar sem hafa úrslitaþýð-
ingu hjálpa þér til þess að leysa ráðgátu.
Helgi R. Einarsson yrkir um„kaldhæðni“ en tekur fram
að þetta eigi ekki við um sína stoð
og styttu í lífinu:
Ævin er undarleg saga,
sem eftir á tekst ekki að laga.
„Vertu trúr þinni trú
og trygglyndu frú.“
(Hver hefur sinn djöful að draga.)
Og síðan kemur að „uppgjör-
inu“:
Á sunnudag slitnaði strengur
því saman þau eru’ ekki lengur.
Ef hittir þú hann
þennan háttprúða mann
með glóðaraugu hann gengur.
Það lá vel á vísnasmiðum á
Boðnarmiði fyrir helgi. Hjálmar
Freysteinsson gerði sér „Ánægju-
efni“ að yrkisefni:
Guðbrandur ánægður alltaf var
með allt – nema rysjótt tíðarfar,
kenjótta hesta,
kvensama presta
og fádæma þrjósku Þorgerðar.
Áður hafði hann verið í öðrum
hugleiðingum og flóknari:
Vegtyllum sómamenn sæma
er sæmandi á allan hátt,
en ágæti dómara að dæma
er dæmalaust vanþakklátt.
Og Ármanni Þorgrímssyni leist
ágæta vel á útlitið:
Tækifærin aukast enn
eflaust vex hér góðærið
ætla sér nú okkar menn
að einkavæða jafnréttið.
Hallmundur Guðmundsson fann
„þessa væmni“ í vísnabingnum sín-
um:
Hver dagur sem gefinn er gagnast vel
ef gætir að lífsins þrautum,
ræktar þitt hjarta og hugarþel
og hyggur að förunautum.
Ingólfur Ómar Ármannsson er
samkvæmur sjálfum sér og slær á
rómantíska strengi:
Gullnum roða skarta ský
í skini næturinnar.
Dulræn fegurð dvelur í
djúpi sálar minnar.
En Helgi Ingólfsson er alveg laus
við rómantíkina, – það er „fugla-
söngur um sumarnótt“ sem heldur
fyrir honum vöku:
Nú helvítin ætti að handtaka.
Þeir hindra minn svefn – ég er andvaka.
Í miðnæturhúmi
ég mjakast úr rúmi
og mjólkurglas þigg – hér er sandkaka!
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af trygglyndi, glóðarauga
og einkavæddu jafnrétti
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG SAGÐI HENNI AÐ FYRR MYNDU
HIMNARNIR HRYNJA EN AÐ ÉG FÆRI AÐ
VASKA UPP.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að styðja
útlitsbreytinguna!
AF HVERJU ERU
SNIGLAR SVONA
HÆGFARA?
LÚTUR, FAÐIR MINN TELUR ÞIG
EKKI NÓGU KARLMANNLEGAN TIL
AÐ GIFTAST MÉR!
ÉG GÆTI BREYST!
MÉR FINNST ÉG
HAFA SÓLUNDAÐ
ALLRI ÆVI MINNI.
...OG GÓÐUM
SLATTA AF MINNI.
HVERNIG?
ÉG GÆTI LÆRT AÐ
SYNGJA BARÍTÓN!
VIÐ ERUM
ÞAÐ EKKI! ÉG
VEÐJA AÐ ÉG
ER FLJÓT-
ARI EN ÞÚ!
ÉG TEK ÞVÍ! BYRJUM
ÞÁ!
VIÐBÚINN,
TILBÚINN...
NÚ! HEY! ÞETTA ER
SVINDL! Víkverji er nýlega kominn heimeftir vel heppnaða ferð til Evr-
ópu í góðra vina hópi. Alltaf er jafn
yndisleg tilfinning að komast burtu
frá amstri hversdagsins, fara í gegn-
um tollinn í Leifsstöð, fá sér nokkra
„miniatúra“ í nestið og setjast niður
með samloku og einn ískaldan.
x x x
Hér áður var þetta nokkuð einföldathöfn, ekki um marga staði að
ræða í Leifsstöð, en núna er búið að
stækka flugstöðina svo mikið að Vík-
verji fyllist valkvíða þegar velja á
veitingastað eða bar fyrir brottför.
Best væri líklega að vera fastagest-
ur í hinni glæsilegu setustofu Ice-
landair, Saga Lounge, en Víkverji er
ekki svo fjáður að hann geti leyft sér
þann munað í hverju flugi.
x x x
Víkverji ferðast þó töluvert meðIcelandair og hefur ekkert
nema gott um það félag að segja. Af-
þreying og þjónusta yfirleitt afbragð
og sætin oftast þægileg og rúmgóð
Víkverji hefur prófað hin svonefndu
lágfargjaldaflugfélög en oftar en
ekki orðið fyrir vonbrigðum. Sjálfir
flugmiðarnir eru sagðir ódýrir en
síðan er rukkað eftir það fyrir allt
sem hreyfist. Núna flaug Víkverji
með einu slíku félagi og getur ekki
sagt að hann sé uppnuminn. Sætin
voru þröng og lítið rými fyrir fætur,
ekki hægt að halla sætisbakinu
aftur, engin afþreying um borð, úr-
val veitinga heldur dapurt og engin
trygging fyrir því að hjón eða pör
geti setið hlið við hlið í vélinni. Flug-
liðarnir mega eiga það að þeir voru
afskaplega þægilegir í viðmóti og
vildu allt gera svo að flugið yrði sem
þægilegast við þessar aðstæður. Þá
fá flugstjórarnir hrós fyrir mjúka
lendingu. En fleira var það nú ekki.
x x x
Eins gott og það er nú að fara fráLeifsstöð er heimkoman ekki
jafn ánægjuleg. Þá er farið í gegnum
einhverja dýrustu fríhöfn í heimi,
sem Víkverji vonar að Costco-áhrifin
eigi eftir að ná eitthvað til. En alltaf
fylla Íslendingar körfurnar í þessari
verslun, vel gíraðir eða glerþunnir.
Það gæti þó átt eftir að breytast,
þetta með körfurnar.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Ég leitaði Drottins, og hann svaraði
mér, frelsaði mig frá öllu því er ég
hræddist. (Sálmarnir 34:5)