Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.11.2003, Qupperneq 17

Víkurfréttir - 20.11.2003, Qupperneq 17
VÍKURFRÉTTIR I 47. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 20. NÓVEMBER 2003 I 17 Guðbjörg Jóhannsdóttirtók við starfi atvinnu-ráðgjafa hjá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum fyrir stuttu, en Guðbjörg hefur mikla reynslu og þekkingu af frumkvöðlum og áhrifum þeirra í atvinnuuppbyggingu. Guðbjörg hefur lokið við- skiptafræðinámi við Háskóla Íslands og M.s. námi í alþjóða- markaðsfræðum þar sem hún lagði sérstaka áherslu á hlut- verk frumkvöðla og atvinnu- uppbyggingu. Guðbjörg hefur mikla trú á Suðurnesjum í at- vinnulegu tilliti og segir að margt spennandi sé að gerast í þeim málum á svæðinu. Í hverju felst starf atvinnufull- trúa? Starf atvinnuráðgjafa SSS fellst í að styðja og efla atvinnulíf á starfssvæðinu til langs tíma. Það eru ótal leiðir að því markmiði en nefna má m.a. með hand- leiðslu, miðlun upplýsinga og leit að nýjum tækifærum. Samvinna og samþætting eru veigamiklir þættir í starfi atvinnuráðgjafa. Hvernig líst þér á atvinnumálin á Suðurnesjum? Ég lít á atvinnulíf á Suðurnesjum sem áhugavert viðfangsefni í breytingafasa um þessar mundir. Við lifum á tímum breytinga, það má segja að starfsmenn geti gengið að einu vísu - stöðugar breytingar innan sem utan fyrir- tækja. Alþjóðavæðing leiðir af sér nýjar leiðir í rekstri fyrir- tækja, harðari samkeppni og breytt lífsmynstur. Sú þróun sem fylgir alþjóðavæðingunni kemur fyrr en síðar einnig til Íslands og Suðurnesja. Það er því áherslu atriði að greina stöðu í atvinnu- lífi á Suðurnesjum og í framhaldi af því móta ákveðna stefnu sem vinna á að í þeim tilgangi að skapa öflugt og fjölbreytt at- vinnulíf. Eru einhverjar sérstakar áherslur sem þú beinir helst sjónum þínum að? Það er mikilvægt að þekkja um- hverfi og aðstöðu á svæðinu í þeim tilgangi að nýta þær auð- lindir eða þau tækifæri sem hér er að finna eða leita inn á svæð- ið. Framtíðin verður að leiða í ljós hvernig atvinnuumhverfi hér byggist upp, þarfir fyrirtækja eru gríðalega misjafnar og ómögu- legt að staðhæfa um eitt eða neitt. Vert er þó að hafa í huga að aðgengi að starfsfólki á ein- stökum sviðum geta takmarkað möguleika fyrirtækja er varðar innkomu á svæðið sem og fjöl- margir aðrir þættir. Hvaða framtíð telurðu að Suð- urnesin eigi í atvinnulegu til- liti? Segja má að Suðurnesin sem slík sé eitt stórt áhugavert verkefni í atvinnulegu tilliti, hver dagur hjá atvinnuráðgjafa er einstakur. Það sem ég veit í dag er að ég kem til með að leita leiða til frekari ávinninga í atvinnumálum á þessu atvinnusvæði. Guðbjörg Jóhannsdóttir tók við starfi atvinnuráðgjafa hjá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum fyrir stuttu. SPURT&SVARAÐ Mörg spennandi tæki- færi á Suðurnesjum -nýráðinn atvinnuráðgjafi á Suðurnesjum FRAMKVÆMDATILBOÐ - 2 FYRIR 1 Þú kaupir og sækir pizzu og hvítlauksbrauð. Þú færð aðra pizzu sömu stærðar frítt með. Þú greiðir fyrir dýrari pizzuna. Síminn er 421 4067 • Hafnargötu 30 Keflavík Unglingar í GolfklúbbiSuðurnesja hafa hafiðsölu á lukkumiðum sem fjáröflun fyrir æfingaferð til Spánar næsta vor. Tilefnið er 40 ára afmæli klúbbsins. 14 glæsilegir vinningar eru í boði, þar á meðal eru tvær flugferðir til útlanda. Miðaverð er 500 krónur og eru útgefnir miðar einungis 550. Dregið verður 17. desember og birtast vinningsnúmerin hér í Víkurfréttum. Suðurnesjamenn takið vel á móti okkar ungu og efnilegu golfurum. Unglinganefnd Golfklúbbs Suðurnesja VF 47. tbl. 2003 #3 19.11.2003 15:46 Page 17

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.