Víkurfréttir - 20.11.2003, Blaðsíða 23
VÍKURFRÉTTIR I 47. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 20. NÓVEMBER 2003 I 23
Sýningin Betri bær opnarnk. laugardag í Kjarnaað Hafnargötu 57 í
Keflavík. Það er Reykjanes-
bær í samvinnu við Arkitekta-
stofu Suðurnesja, Upplýsinga-
miðstöð Reykjaness,Vegagerð-
ina og samtökin Betri bæ, sem
standa að sýningu á hönnun og
hugmyndum að betri bæ í
göngugötunni í Kjarna. Sýn-
ingin hefst með formlegri opn-
un laugardaginn 22. nóvember
kl.14.00 og lýkur sunnudaginn
30. nóvember.
Tilgangur sýningarinnar er hug-
vekja um betri bæ en á sýning-
unni verður settur upp hug-
myndabanki þar sem allir eru
hvattir til að koma með hug-
myndir og leggja þar með sitt af
mörkum í uppbyggingu bæjarins.
Sýningin er mjög myndræn að
sögn Bjarna Marteinssonar, arki-
tekts. Breytingar á bæjarfélaginu
verða sýndar með myndum fyrir
og eftir breytingar. Þá verður
framtíðarsýn bæjarins sett fram á
myndrænan hátt.
Miklar framkvæmdir hafa staðið
yfir í Reykjanesbæ á undanförn-
um misserum og má þar nefna
endurbyggingu Hafnargötu, að-
komu að bæjarfélaginu sem og
uppfyllingu við Ægisgötu, end-
urbætur á Gamla bænum og um-
hverfi Duushúsa. Tvöföldun
Reykjanesbrautar og tengingar
bæjarins við hana skiptir höfuð-
máli þegar til framtíðar er litið og
síðast en ekki síst samband bæj-
arbúa við allar þær náttúruperlur
sem eru nánast í göngufæri.
Ýmsar hugmyndir eru fylgifiskar
slíkra framkvæmda, sumar er
búið að ákveða en aðrar eru á
hugmyndastigi. Sýningin gefur
íbúum kost á að leggja inn sínar
eigin hugmyndir og taka þátt í
mótun síns bæjarfélags.
Á myndum frá Vegagerðinni
verða tengingar nýrrar tvöfaldrar
Reykjanesbrautar við byggðina í
Reykjanesbæ sýndar. Sýnt er á
myndrænan hátt hvernig bærinn
er að taka breytingum, allt frá því
komið er að bænum við Innri
Njarðvík og allt að DUUS-hús-
um í Grófinni.
Útivistarfólk ætti einnig að legg-
ja leið sína á sýninguna því hægt
verður að fá gefnar göngulýsing-
ar á Reykjanesi, auk þess sem
sýndar verða gamlar þjóðleiðir,
auk styttri sem lengri göngu-
leiða.
Sýning um Betri bæ
opnar um helgina
➤ K J A R N I - H A F N A R G Ö T U 5 7
Glæsilegt kaffihús hefur verið opnað á Fitjum.
VF 47. tbl. 2003 #3 19.11.2003 15:14 Page 23