Víkurfréttir - 15.12.2016, Blaðsíða 18
18 fimmtudagur 15. desember 2016VÍKURFRÉTTIR
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@vf.is
Jóhann vinnur að heilsueflingu innan samfélaga,
fyrirtækja og stofnana og segir hann móttök-
urnar hafa verið góðar. Boðið er upp á heilsu-
farsmælingar fyrir hvern og einn starfsmann auk
þess sem nafnlausar upplýsingar eru nýttar til
þess að byggja grunn undir aðgerðir til lengri
tíma. „Heilsuefling innan vinnustaða getur skilað
miklum árangri ef vel gengur. Hún getur dregið úr
veikindum, aukið framleiðni og ánægju starfsfólks
þannig að það er óhætt að segja að allir græði.“ Þá
segir Jóhann starfsfólk finna að vinnuveitanda sé
ekki sama um heilsu þess og að það skipti einnig
mjög miklu máli.
Hæsta hlutfall
vaktavinnufólks á Suðurnesjum
Streita er einn af þeim þáttum sem valdið geta
veikindum og í einhverjum tilfellum örorku.
Streita á sér þó eðlilegar skýringar þegar starfsfólk
sinnir störfum þar sem það er undir miklu álagi.
Jóhann tekur lögreglumenn sem dæmi. „Það er
alltaf hægt að draga úr áhrifum streitu þó svo við
náum seint að útrýma henni en virk heilsuefling
á vinnustöðum gengur einmitt út á það, að taka á
hlutunum áður en skaðinn verður.“
Á Suðurnesjum er hærra hlutfall fólks sem vinnur
vaktavinnu en annars staðar og segir Jóhann
mikilvægt að gæta að heilsu þess hóps. Í byrjun
árs verður haldið námskeið á vegum Nexis heilsu-
eflingar í samstarfi við Miðstöð Símenntunar
fyrir fólk sem vinnur vaktavinnu. Á námskeiðinu
verður lögð áhersla á að kenna leiðir til að sporna
við óæskilegum áhrifum vaktavinnu á heilsuna en
hún getur haft líkamleg, andleg og félagsleg áhrif
á starfsfólk og aðstandendur þeirra. Jóhann hefur
fengið til liðs við sig góðan hóp fyrirlesara og eru
þar á meðal Ólafur Gunnar Sæmundsson, nær-
ingarfræðingur úr Garði, Lára G. Sigurðardóttir,
læknir hjá Krabbameinsfélaginu og grínistinn
Þorsteinn Guðmundsson.
Eflir heilsu íbúa í Reykjanesbæ
Á dögunum var skrifað undir samning á milli
Nexis heilsueflingar og Reykjanesbæjar um verk-
stjórn verkefnisins Heilsueflandi samfélag. Til-
gangurinn með verkefninu er að nýta áfram það
sem vel hefur verið gert fyrir heilsu íbúa og skapa
enn betri grundvöll fyrir heilsueflandi samfélag.
„Við ætlum að setja okkur markmið til langs tíma
til að bæta heilsu íbúanna á jákvæðan hátt og
auðvitað með þeirra samstarfi. Ég hlakka mikið
til að taka þátt í að bæta heilsu íbúa Reykjanes-
bæjar og vonast til þess að hin að sveitarfélögin
á Suðurnesjum fylgi í kjölfarið, en mér skilst að
Grindavík hafi einmitt sótt um þátttöku nýlega.“
Embætti landlæknis hefur mótað ramma utan
um verkefnið en það verður svo sniðið að þörfum
hvers og eins samfélags. Níu sveitarfélög á landinu
taka nú þátt í verkefninu sem hófst í Mosfellsbæ á
sínum tíma.
Samkvæmt lýðheilsuvísum Embættis landlæknis
eru ýmsar áskoranir á Suðurnesjum. Jóhann
nefnir sem dæmi að reykingar á svæðinu séu mun
algengari en annars staðar á landinu. Á Suður-
nesjum reykja um 17 prósent fullorðinna en hlut-
fallið á landsvísu er 12,5 prósent. Jóhann segir
því þörf á átaki fyrir Suðurnesin til að minnka
reykingar til muna. Ekki er ljóst hverjar ástæð-
urnar eru en hátt hlutfall vaktavinnufólks gæti
verið ein þeirra en samkvæmt rannsóknum er það
líklegra til að reykja en fólk í dagvinnu.
Reykingar á rafsígarettum eru nýlegt vandamál.
Rannsókn á líðan ungmenna sem unnin var af
Rannsóknum og greiningu sýndi að meðal nem-
enda í 8. til 10. bekk grunnskóla voru rafrettu-
reykingar algengastar á Suðurnesjum. Þá hafa
rannsóknir sýnt að andleg heilsa íbúa á Suður-
nesjum er verri en annars staðar og segir Jóhann
aðgengi að heilbrigðisþjónustu mikið áhyggjuefni.
„Hér á Suðurnesjum eru fæstir læknar, hjúkrunar-
fræðingar og hjúkrunarrými miðað við íbúafjölda
og það er vissulega áhyggjuefni. Sem íbúar þurfum
við að standa vörð um Heilbrigðisstofnun Suður-
nesja og efla enn frekar það góða starf sem þar er
unnið. Við eigum ekki að sætta okkur við annað.“
Ýmis jákvæð teikn eru þó á lofti og hafa Suður-
nesjamenn mælst þeir hamingjusömustu á lands-
vísu. Þá er ölvunarakstur fátíðari en annars staðar.
„Við búum að því að hér er virk íþróttastarfsemi
sem birtist okkur meðal annars í góðum árangri
skóla af Suðurnesjum í Skólahreysti auk þess sem
unglingarnir okkar skara fram úr í skipulagðri
hreyfingu. Menntakerfið er gott og aðgangur að
hreyfingu sömuleiðis. Hér er frábær aðstaða til
útivistar sem er vannýtt. Okkur eru allir vegir
færir en í grunninn snýst þetta um breytt við-
horf. Það þurfa ekki allir að fara í ræktina tvisvar
sinnum á dag, heldur þarf hver og einn að finna
út hvað hentar honum. Við erum ekki öll steypt í
sama mótið.“
Fyrr á árinu stofnaði Jóhann Friðrik Nexis heilsueflingu. Fólk í hinum vestræna heimi glímir við breyttar heilsufarslegar forsendur og lengri lífaldur. Jóhann Friðrik segir aukna lífsstílssjúkdóma vega þar
þyngst og því skipti öflugar fyrirbyggjandi aðgerðir sköpum. VF-mynd/hilmarbragi
●● Jóhann●Friðrik●Friðriksson●hjá●Nexis●heilsueflingu●vinnur●að●heilsueflingu●innan●samfélaga,●fyrirtækja●og●stofnana
●● Á●Suðurnesjum●er●hæst●hlutfall●fólks●í●vaktavinnu●á●landinu●og●segir●Jóhann●Friðrik●mikilvægt●að●huga●að●heilsu●þess●hóps
INNLEIÐIR BREYTT
HUGARFAR TIL HEILSU
Keflvíkingurinn Jóhann Friðrik Friðriksson hélt til náms í heilbrigðisvísindum í Bandaríkjunum á því herrans ári 2008 og var þar við störf um tíma að námi loknu. Fyrr á
árinu stofnaði hann fyrirtækið Nexis heilsuefling sem staðsett er í frumkvöðlasetrinu Eldey á Ásbrú. Hann segir starfsemina snúast um að vera nokkurs konar eldvarnareftirlit
heilbrigðiskerfisins og að vinna að því að koma í veg fyrir að fólk veikist. „Við erum að innleiða breytt hugarfar og veitum skimun og ráðgjöf til að halda heilsuhraustu fólki
áfram heilsuhraustu. Fólk í hinum vestræna heimi glímir við breyttar heilsufarslegar forsendur en lengri lífaldur og aukin tíðni lífsstílssjúkdóma vegur þar þyngst. Því er
óhætt að segja að mikilvægi öflugra fyrirbyggjandi aðgerða skipti sköpum í góðri heilsu þjóðarinnar,“ segir hann.
„Hér er frábær
aðstaða til
útivistar sem
er vannýtt“