Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.12.2016, Blaðsíða 54

Víkurfréttir - 15.12.2016, Blaðsíða 54
54 fimmtudagur 15. desember 2016VÍKURFRÉTTIR Hildur Björk Pálsdóttir hildur@vf.is „Við fáum alls kyns fyrirspurnir til okkar í gegnum samfélagsmiðla, allt frá því að breyta bókunum yfir í hvenær norðurljósin sjást á Íslandi. Farþegarnir okkar eru líka virkir í að skrifa skemmtilegar athugasemdir við það markaðsefni sem Icelandair birtir,“ segir Sigrún Ýr Hjörleifsdóttir, en hún starfar í samfélagsmiðladeild Icelandair, sem var stofnuð fyrr á þessu ári. Markaðs- og auglýsingaaðferðir hafa tekið miklum breytingum á undan- förnum árum og hafa mörg fyrirtæki stofnað sérstakar samfélagsmiðla- deildir. Þar starfar fólk við það að birta efni og upplýsingar og svara fyrir- spurnum fyrir hönd fyrirtækis síns á samfélagsmiðlum eins og Facebook, Twitter og Snapchat. Fyrsta samfélags- miðladeildin hjá íslensku fyrirtæki var stofnuð árið 2011 og hefur þeim farið ört fjölgandi, enda kröfur við- skiptavinanna að breytast og einnig vettvangur markaðssetningar, þá sér- staklega sem beint er að ungu fólki. Sigrún Ýr er menntaður almanna- tengill, en hún lauk BSc prófi í „Mass Communications,“ sem þýða mætti sem boðskipta- og fjölmiðlafræði, og útskrifaðist hún af almannatengsla- braut frá Florida International Uni- versity í Miami. „Sem menntaður al- mannatengill nýtist námið mér vel að því leyti að ég lærði vel inn á alla sam- félagsmiðla, hvaða áhrif þeir geta haft. Ég svara fyrir hönd fyrirtækisins um leið og ég passa upp á ímynd þess. Ég starfaði einnig sem umsjónarmaður í farþegaafgreiðslu Icelandair hjá IGS og fyrri reynsla á flugvellinum kemur sér mjög vel í þessu starfi,“ segir Sig- rún Ýr. Aðspurð um helstu verkefni starfs- manna samfélagsmiðladeildarinnar segir hún þau vera að fylgjast með öllum samfélagsmiðlum Icelandair, sem eru Facebook, Twitter, Instagram, YouTube og LinkedIn og svara fyrir- spurnum sem berast þeim frá öllum heimshornum. „Einnig fylgjum við eftir því markaðsefni sem Icelandair sendir frá sér á samfélagsmiðlum samhliða því að vaka yfir ímynd vörumerkisins. Við erum átta manns í deildinni, en hún tilheyrir Service Center Icelandair sem er undir Sölu- og markaðsviði og vinnum við í nánu samstarfi við flest öll svið fyrirtækis- ins.“ Farþegar Icelandair leita mjög mikið til fyrirtækisins í gegnum samfélags- miðla og fer sá hópur ört stækkandi að sögn Sigrúnar. „Flestir eru bein- tengdir við þessa miðla á snjallsímum sínum og því auðvelt að hafa samband við okkur í gegnum þá. Icelandair er til staðar þar allan sólarhringinn að þjónusta viðskiptavini sína.“ Spurð út í kröfur viðskiptavina um svartíma segir Sigrún Ýr að öllu jöfnu sé svar- tími Icelandair innan þrjátíu mínútna. „Einstök flóknari tilfelli taka lengri tíma, þegar leita þarf til annarra deilda fyrirtækisins. En með góðu samstarfi milli deilda náum við að þjónusta far- þegann eins og best verður á kosið.“ „Flestir eru beintengdir við þessa miðla á snjallsímum sínum“ VERÐA NORÐURLJÓS Í KVÖLD? Sigrún Ýr Hjörleifsdóttir starfar í samfélagsmiðladeild Icelandair Sigrún Ýr á útskriftardaginn sinn í Miami í Bandaríkjunum. Sigrún Ýr starfaði áður sem umsjónarmaður í Farþegaafgreiðslu IGS á Keflavíkurflugvelli og segir reynsluna þaðan nýtast vel í starfi sínu hjá Icelandair.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.