Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.12.2016, Blaðsíða 41

Víkurfréttir - 15.12.2016, Blaðsíða 41
41fimmtudagur 15. desember 2016 VÍKURFRÉTTIR Jólabíómyndin sem kemur þér í skapið? Notting Hill, þótt það sé ekki jóla- bíómynd þannig lagað. En það var uppáhalds bíómyndin hennar ömmu og við horfðum alltaf á hana saman á jólunum. Sendir þú jólakort eða hefur Facebook tekið yfir? Ég treysti ennþá á mömmu og pabba að óska öllum nær og fjær gleðilegra jóla fyrir mig, þau senda alltaf út jóla- kort. Ertu vanaföst um jólin, eitthvað sem þú gerir alltaf um hátíðarnar? Ég fer alltaf í kirkju á aðfangadags- kvöld Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið? Geisladiskurinn Jól með Jóhönnu Guðrúnu. Ég svaf með hann í fanginu og var vakandi fram eftir öllu til að klára að hlusta á hann einu sinni áður en ég færi að sofa. Er eitthvað eftirminnilegt í huga þér frá yngri árum þínum á jólum? Ég man mest eftir því þegar við héldum jólin fyrir norðan hjá ömmu. Amma er mikið fyrir jólin og var dugleg að troða mér í alls konar jóla- sveinabúninga og fannst það voða sætt, mér fannst það ekki. Hvað er í matinn á aðfangadag? Hangikjöt og uppstúfur, við höfum líka alltaf kartöflumús að hætti Óla frænda með. Það er besta blandan. Hvenær eru jólin komin fyrir þér? Þau eru næstum komin þegar að tengdamamma byrjar að baka jóla- sortirnar, annars eftir síðasta prófið í jólaprófatíðinni. Hefur þú verið eða gætir þú hugsað þér að vera erlendis um jólin? Ég bjó í tvö ár í Noregi með mömmu og pabba, það var voðalega huggulegt. Við hlustuðum á messuna í útvarpinu og héldum í okkar íslenska sið. Get ekki hugsað mér að vera erlendis í dag á jólunum. Hvernig brástu við þegar þú komst að leyndarmálinu um jólasveininn? Ég varð frekar vonsvikin þegar ég fann bréf sem ég skrifaði jólasveininum uppi á skáp í eldhúsinu um mitt sumar þegar ég var 8 ára. Ég manaði mig svo upp í að segja mömmu og pabba frá því að ég vissi þetta á meðan við vorum í sundi. Þá kallaði ég þetta upp og stakk mér svo í kaf og reyndi að koma ekki upp aftur fyrr en þau væru farin í heita pottinn. Áttu þér uppáhalds jólaskraut? Já, það er kirkjan hennar ömmu. Hún er með ljósi og spiladós og er í algjöru uppáhaldi hjá mér. Hvernig verð þú jóladegi? Ég vil helst ekki fara úr náttfötunum á jóladegi. Ég er yfirleitt að lesa bók og hafa það notalegt. Við fjölskyldan förum samt yfirleitt alltaf í göngutúr eða í bíltúr á jóladag. Ég ætla reyndar að spila Jibber Jabber með fjölskyld- unni á jóladag í ár, bara til þess að geta gert grín að pabba. Jólaspjall: Spiladós ömmu í uppáhaldi Ástdís Pálsdóttir, sálfræðinemi og söngfugl úr Borgarnesi er búsett í Reykjanesbæ og kemst í jólaskapið þegar hún horfir á kvikmyndina Nott- ing Hill. Sem ung stúlka svaf hún með jólaplötu Jóhönnu Guðrúnar í fanginu og vakti fram eftir við að hlusta á hana. Það er hennar eftirminni- legasta jólagjöf. Kaupfélagi Suðurnesja sendir félagsmönnum sínum bestu óskir um gleðileg jól Grindavík Iðavöllum Sendum viðskiptavinum okkar og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um gleðilega jólahátíð og farsæld á komandi ári! Þökkum ykkur viðskiptin á árinu sem er að líða! Lógó jólakveðja kaupmanna Steini höfum Nettó inni þrisvar undir hvar þeir eru og Apótekarinn líka :-) Kóda Langbest Lyfja Georg V Hannah K Sport Skóbúðin Húsasmiðjan Omnis Eymundsson Apótekarinn Apótekarinn SI Verslun Draumaland Bústoð Efnalaugin Vík Ormsson Bykó Optical Studio Nettó Iðavöllum Nettó Nettó Grindavík DRAUMALAND Keflavík Fitjar „Ég svaf með hann í fanginu og var vakandi fram eftir öllu til að klára að hlusta á hann“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.