Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.12.2016, Blaðsíða 45

Víkurfréttir - 15.12.2016, Blaðsíða 45
45fimmtudagur 15. desember 2016 VÍKURFRÉTTIR Jólabíómyndin sem kemur þér í skapið? Elf, hún er algerlega frábær og fjöl- skyldan horfir á hana saman um hver jól og við hlæjum alltaf jafn mikið. Sendir þú jólakort eða hefur Facebook tekið yfir? Þessu er blandað saman. Enn eru send nokkur kort á þá sem ekki eru á Fa- cebook. Ertu vanafastur um jólin, er eitthvað sem þú gerir alltaf um hátíðarnar? Já, mjög vanafastur og fjöl margir hlutir sem hafa sinn fasta sess um há- tíðirnar. Til dæmis hef ég, alveg frá því að ég var lítill strákur, alltaf farið með föður mínum á Þorláksmessu eða að- fangadag (fer eftir veðri) og heimsótt leiði ættingja og vina í kirkjugörðum á svæðinu. Aðrir hlutir eru jafnan í föstum skorðum, bæði hvað varðar mat, drykk og ánægjulegar stundir með fjölskyldunni. Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið? Einhverra hluta vegna dettur mér í hug forláta „Pacman“ tölvuspil sem ég fékk frá bræðrum mínum þegar ég var lítill. Líklega vegna þess að þeir stein- gleymdu að kaupa pakka handa litla bróður sínum fyrir jólin en náðu al- gerlega að bæta fyrir vonbrigðin með þessu flotta tölvuspili eftir jól. Er eitthvað eftirminnilegt í huga þér frá yngri árum þínum á jólum? Já, fjölmargt. Eitt er hvað jólaeplin voru alltaf miklu betri í gamla daga. Hvað er í matinn á aðfangadag? Við Inga konan mín, höfum haft hamborgarhrygg alla tíð frá því við byrjuðum að búa. Það var alls ekki erfitt að koma sér saman um það þar sem svipaðar hefðir voru á heimilum okkar beggja fyrir. Hvenær eru jólin komin fyrir þér? Ég er mikið jólabarn og finnst jólin frábær tími. Aðventan finnst mér mjög skemmtileg og finn sterkt fyrir jólunum alveg frá því að aðventan hefst. Hefur þú verið eða gætir þú hugsað þér að vera erlendis um jólin? Ég hef aldrei prófað það og langar ekk- ert sérstaklega til þess. Ég er þó ekkert að útiloka að það geti gerst síðar. Hvernig brástu við þegar þú komst að leyndarmálinu um jólasveininn? Hvað meinarðu, er eitthvað leyndar- mál? Áttu þér uppáhalds jólaskraut? Já, ég á nokkra uppáhalds muni sem nýttir eru til að skeyta jólatréð og hefur verið safnað í gegnum árin. Hvernig verð þú jóladegi? Slaka á með fjölskyldunni fram eftir degi og undanfarin ár höfum við síðan farið í kaffiboð þegar líður á daginn. Jólaspjall: Jólaeplin voru miklu betri í gamla daga Kjartan Eiríksson, framkvæmdastjóri Þróun- arfélags Keflavíkurflugvallar segist vera mikið jólabarn, er vanafastur og í huga hans voru jóla- eplin alltaf miklu betri í gamla daga. GERIÐ VERÐSAMANBURÐ Á SKÖMMTUNARGJÖLDUM Hringbraut 99 - 577 1150 TÖLVUSTÝRÐ LYFJASKÖMMTUN Opnunartími: Virka daga frá kl. 9:00 - 19:00 og laugardaga frá kl. 14:00 - 18:00. 2016 Skafmiðaleikur Víkur frétta og verslana á Suðurne sjum 2016 Skafmiðaleikur Víkur frétta og verslana á Suðurne sjum 2016 Skafmiðaleikur Víkur frétta og verslana á Suðurne sjum 2016 Skafmiðaleikur Víkur frétta og verslana á Suðurne sjum NÚ BORGAR SIG AÐ SKILA Jólalukku miðum í Nettó því það verður dregið 21. og 24. des. „ Ég finn sterkt fyrir jólunum alveg frá því að aðventan hefst“ Sendum viðskiptavinum okkar og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um gleðilega jólahátíð og farsæld á komandi ári! Þökkum ykkur viðskiptin á árinu sem er að líða! H F RÚÐAN BÍLRÚÐUÞJÓNUSTA S:421-1500 SMIÐJUVÖLLUM 6. REYKJANESBÆR 20 0 BílaþjónustaÞvottahöllin Brekkustíg 41
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.