Víkurfréttir - 15.12.2016, Blaðsíða 46
46 fimmtudagur 15. desember 2016VÍKURFRÉTTIR
Hildur Björk Pálsdóttir
hildur@vf.is
„Þetta byrjaði allt saman sumarið
2010. Við vorum að byrja að fara til
Reykjavíkur að skemmta okkur og
Prikið var mjög vinsæll staður hjá
okkur strákunum. Þar var DJ að nafni
Daníel, betur þekktur sem Danni De-
luxx og hans fag heillaði mig mikið.
Ég var búinn að hugsa um þetta í smá
tíma en það er frekar dýrt að byrja
í þessu sporti. Ég nefndi þetta við
Bjössa og þá sagðist hann líka hafa
verið að hugsa um það sama en við
höfðum ekkert rætt það áður. Við
fórum í Pfaff og keyptum okkar fyrstu
græjur sem hétu „Mixtrack Pro“ frá
Numark, tvær fyrir hvorn.“
Þeir félagar spiluðu svo í fyrsta skipti
saman á veitingastaðnum Kantinum
á Sjómannahelginni í Grindavík. „Jó-
hann Davíð, eða Joey D eins og hann
er kallaður, leyfði okkur að prófa að
spila og það má segja að þetta hafi
verið ást við fyrstu sín,“ segir Egill.
Stuttu seinna voru þeir farnir að spila
reglulega á skemmtistaðnum Center
og á böllum Fjölbrautaskóla Suður-
nesja. Þeir settu sér svo þau markmið
að spila á Prikinu, í Tuborg tjaldinu
á Þjóðhátíð í Eyjum og Bestu útihá-
tíðinni sem var haldin á þessum tíma.
Þegar Egill og Björn höfðu verið að
spila hér og þar í nokkra mánuði
ákváðu þeir að prófa að senda Prik-
inu tölvupóst. „Við spurðum hvern-
ig staðan væri hjá þeim, hvort það
væri möguleiki að fá að spreyta sig.
Nokkrum dögum seinna fengum við
svar um að þeir hefðu einmitt verið
að missa tvo af sínum bestu mönnum
sem væru að fara til útlanda í nám. Við
spiluðum svo í fyrsta skipti á Prikinu
veturinn 2010. Þann vetur spiluðum
við nánast allar helgar, fimmtudag,
föstudag og laugardag.“
Emmsjé Gauti hringdi
Þeir spiluðu eitt sinn á fastakvöldi tón-
listarmannsins Emmsjé Gauta á Prik-
inu sem hét Í freyðibaði með Emmsjé
Gauta. „Eftir helgina hringdi Gauti í
okkur, þakkaði okkur fyrir og bauð
okkur að koma með sér til Akureyrar.
Hann var að fara að rappa og vildi
fá okkur til þess að þeyta skífum um
kvöldið. Í kjölfarið hófst þetta sam-
starf.“
Egill og Björn spiluðu með Joey D
í Tuborg tjaldinu á Þjóðhátíð næstu
þrjú árin og Egill spilaði einnig á Bestu
Útihátíðinni. „Það var mikil upplifun.
Það má segja að öllum markmiðunum
sem við settum okkur hafi verið náð.
Við höfum báðir verið að síðan. Þetta
ár hefur reyndar verið mjög rólegt
hjá mér en Björn Valur hefur tekið
þetta skrefinu lengra. Hann fór til Los
Angeles í nám í „pródúseringu“ og er
farinn að gera eigin tónlist. Hann kom
súkkulaðibrúnn heim og gerði meðal
annars þrjú lög fyrir plötu Emmsjé
Gauta, Vagg ogVelta, en eitt af þeim er
Reykjavík, sem er eitt vinsælasta lag
landsins í dag,“ segir Egill.
Egill starfar nú á tveimur stöðum og
hefur fremur hægt um sig í tónlistinni
en segist búast fastlega við því að byrja
að semja eigin tónlist á næstunni. „Ég
starfa í ljósabúðinni Lumex svo það
er mikið að gera núna í desember og
svo er ég að sjá um grafík vinnslu við
þættina Domino’s Körfuboltakvöld.
En það sem stóð upp úr á árinu var
snjóbrettahátíðin AK Extreme, sem
haldin er á Akureyri árlega. Ég var
fenginn til að sjá um tónlistina í þeirri
keppni, þar á meðal gámastökkinu
sem sýnt var í beinni útsendingu á
Stöð 2 sport. Ég mæli eindregið með
að fara á næsta ári, þetta er fyrir alla
aldurshópa og keppnin er þvílíkt
augnakonfekt.“
Diplo er fyrirmyndin
Spurður út í hans uppáhalds tónlistar-
fólk nefnir Egill raftónlistarmanninn
Diplo sem er meðlimur hljómsveitar-
innar Major Lazer og tvíeykisins Jack
Ü ásamt Skrillex. „Diplo er mín fyrir-
mynd í tónlistinni. Allt sem hann
snertir verður vinsælt. Hann er að
spila öll kvöld um allan heim og ef
hann er ekki að því þá er hann að búa
til tónlist sem fær yfir 100 milljónir
áhorfa á YouTube. Það mætti eigin-
lega segja að hann sé einum of góður í
þessum bransa. En um þessar mundir
er ég líka mikið að hlusta á rapp, nema
þegar ég er heima. Þar dett ég meira í
gamalt funk, þegar ryksugan er dregin
fram eða ég er að gera mig til fyrir eitt-
hvað tilefni.“
Garðar Örn Arnarson, dagskrár-
gerðarmaður á Stöð 2 og kunningi
Egils, hafði samband við hann og
sagðist vera að leita að starfsmanni til
að sjá um útsendingar á körfubolta-
leikjum, en Garðar stýrir vikulegum
sjónvarpsþætti á Stöð 2 Sport sem
heitir Domino’s körfuboltakvöld og
er sýndur í beinni útsendingu. „Starf
mitt felst í því að stjórna útsending-
unni á körfuboltaleikjum ásamt því að
klippa saman aðalatriðin til að sýna
í hálfleik. Í Körfuboltakvöldum sé ég
um grafík vinnslu eins og textaskiltin
sem birtast á skjánum með nöfnum
sérfræðinganna og „tístin“ sem við
birtum frá Twitter. Þetta starf er al-
gjör snilld, það er sterkt að komast
þangað inn og ég er þakklátur Garðari
fyrir tækifærið. Það er aldrei leiðinlegt
að vinna með fagmönnum eins og
honum, Tómasi Þórðarsyni og Stefáni
Geirmundssyni.“ Hann segir vinnuna
á bak við þættina margfalt meiri en
fólk heldur og að sér þætti gaman að
sýna áhorfendum hvað gerist á bak
við tjöldin. „Garðar og Stefán, sem
sjá um meiripart vinnunnar eiga stórt
hrós skilið.“
Egill Birgisson, plötusnúður úr Grindavík, hefur spilað með helstu stjörnum rapp og hip-hop senunn-
ar á Íslandi en hann byrjaði fyrst að fikta með DJ græjur fyrir sex árum með Birni Val, besta vini sínum.
Á stuttum tíma náðu þeir býsna langt og voru fljótlega farnir að spila í mekka rappsins, á skemmti-
staðnum Prikinu, og með Emmsjé Gauta hér og þar um landið.
„Það má segja að þetta hafi
verið ást við fyrstu sýn.“
DJ Egill Birgisson hefur þeytt skífum með „landsliðinu“ í rappi
Funk
á fóninn
þegar ryksugan
er dregin fram
Þessi mynd var tekin þegar Egill og Björn þeyttu skífum saman í fyrsta skipti.
Egill starfar við grafík vinnslu í Domino’s körfuboltakvöldum.