Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.12.2016, Blaðsíða 12

Víkurfréttir - 15.12.2016, Blaðsíða 12
12 fimmtudagur 15. desember 2016VÍKURFRÉTTIR geoSilica Iceland ehf. á Suðurnesjum hefur hafið útflutning á kísilsteinefni, sem er aðal vara fyrirtækisins. geoSi- lica gerði samning við Daria imports LLC sem er Bandarískur dreifiaðili sem sérhæfir sig í dreifingu á náttúru- legum heilsuvörum í Norður-Amer- íku. „Þessir erlendu samningar eru mjög þýðingarmiklir fyrir geoSilica. Þeir gefa fyrirtækinu vissan gæðastimpil sem er nauðsynlegur fyrir markaðs- setningu á viðkomandi vöru og styrkja enn fremur stoðir geoSilica,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Fida Abu Libdeh, framkvæmdastjóri geoSilica, er gríðalega spennt fyrir samstarfinu við Daria Imports og hefur miklar væntingar ti l Bandaríkjamarkaðar. GeoSilica er sprotafyrir- tæki sem hefur það að markmiði að framleiða hágæða kísilríkar heilsu- vörur úr jarðhitavatni Hellisheiðarvirkjunar. Fyrirtækið var stofnað árið 2012 og kom fyrsta varan á markað árið 2015, hágæða 100 pró- sent náttúrulegt íslenskt kísilsteinefni í vökva- formi, tilbúið til inn- töku. Kísilsteinefnið hefur margvís- lega heilsusamlega virkni, getur meðal annars stuðlað að fyrirbyggingu á beinþynningu, örvun kollagen-mynd- unar og bættri nýtingu kalks og ann- arra steinefna. geoSilica er í óðaönn að þróa þrjár nýjar vörur en áætlað er að þær komi á markað um mitt næsta ár. „Nýju vörurnar munu allar inni- halda kísilvatnið í grunninn með við- bættum náttúrulegum efnum. Þessar vörur fara beint í dreifingu á Banda- ríkjamarkað og er það von okkar að salan aukist hjá okkur inngöngu inn á þann markað,“ segir í tilkynningunni. geoSilica hefur útflutning til Bandaríkjanna Jólabíómyndin sem kemur þér í skapið? Christmas Vacation er alveg uppá- halds annars finnst mér allar þessar sígildu jólamyndir koma mér í jóla- skapið. Sendir þú jólakort eða hefur Facebook tekið yfir? Ég sendi ekki jólakort, læt mömmu um það en mér finnst hins vegar rosa- lega gaman að lesa þau. Ertu vanafastur um jólin, eitthvað sem þú gerir alltaf um hátíðarnar? Ég er rosalega vanaföst með jólin ég vil t.d. ennþá fá súkkulaðidagatal. En það sem ég geri alltaf er að aðstoða mömmu í eldhúsinu með smákök- urnar og svo gerum við alltaf saman laufabrauðið. En það sem ég geri ein er að hlusta á jólatónlist á meðan ég skreyti alla jólapakkana fyrir næstum alla í fjölskyldunni það finnst mér rosalega gaman. En svo fer ég alltaf niður í bæ á Þorláksmessu og kíki í búðir. Síðan finnst mér algjört möst að kíkja á jólarúnt og skoða fallegu jólahúsin og jólaskreytingarnar í bænum. Á aðfangadag förum við öll fjölskyldan saman niður í kirkjugarða og kveikjum á kertum síðan skutlum við eitthvað af jólapökkum í leiðinni til nánasta fólkið okkar. Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið? Mér finnst allar jólagjafir mínar eftir- minnilegar en fyrir nokkrum árum fékk ég Michael Kors úr þá var það alveg efst á jólagjafalistanum mínum og ég var rosalega kát með það. Er eitthvað eftirminnilegt í huga þér frá yngri árum þínum á jólum? Ætli það sé ekki að vakna um miðjar nætur og athuga hvort jólasveinnin var ekki búin að koma og gefa mér það sem ég var búin að skrifa til hans og biðja um. Hvað er í matinn á aðfangadag? Á aðfangadag er hamborgahryggur. Hvenær eru jólin komin fyrir þér? Ég er rosalega mikið jólabarn en jólin hjá mér eru komin í nóvember, síðan laumast ég í að hlusta á eitt og eitt jólalag yfir árið. Hefur þú verið eða gætir þú hugsað þér að vera erlendis um jólin? Jájá ég gæti alveg hugsað mér að vera erlendis einu sinni um jólin. Hvernig brástu við þegar þú komst að leyndarmálinu um jólasveininn? Ég man það ekki en ég spurði bróðir minn og hann svaraði því þannig að ég fór í fýlu og heimtaði samt að fá ennþá í skóinn. Áttu þér uppáhalds jólaskraut? Mér finnst allt jólaskrautið heima rosalega fallegt en það sem stendur kannski upp úr er jólaskrautið sem amma Munda bjó til. Hvernig verð þú jóladegi? Á jóladag vill ég liggja heima í leti í náttfötum allan daginn og borða svo einhvern fínan mat um kvöldið. Jólaspjall: Jólin hjá mér komin í nóvember Vigdís Eir Viðarsdóttir er 21 árs Njarðvíkingur sem útskrifast úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja nú um jólin. Hún er mjög vanaföst um jólin en hún hefur gaman af því að hjálpa til í eldhúsinu og skreytir einnig alla pakka fyrir fjölskylduna. Sígildar jólamyndir koma henni í skapið eins og Christmas Vacation. Gerðaskóli óskar eftir: Kennurum í 100% starf Námsráðgjafa í 60% starf Umsóknarfrestur er til 12. janúar 2017 Upplýsingar veitir Jóhann Geirdal skólastjóri johann@gerdaskoli.is og í síma 8984808. ATVINNA HS Orka hf. kynnir drög að tillögu að matsáætlun vegna meðferðar og förgunar útfellinga frá Reykjanesvirkjun í Reykjanesbæ. HS Orka er framkvæmdaraðili verksins en mat á umhverfisáhrifum er unnið af VSÓ Ráðgjöf. Í drögum að tillögu að matsáætlun er gerð grein fyrir meðferð og förgun útfellinga með aukna náttúrulega geislun sem myndast við holutoppa og í safnæðum Reykjanesvirkjunar.  Þá er einnig fjallað um þá umhverfisþætti sem teknir verða fyrir í frummatsskýrslunni og fyrirliggjandi gögn sem nýtt verða í matsvinnunni. Drög að matsáætlun eru aðgengileg á heimasíðu HS Orku, www.hsorka.is, og VSÓ Ráðgjafar, www.vso.is. Hægt er að senda ábendingar og athugasemdir um drögin á netfangið kristin@vso.is. Frestur til að senda inn ábendingar er til 19. janúar 2017. Reykjanesvirkjun: Meðferð og förgun útfellinga Drög að tillögu að matsáætlun „hlusta á jólatónlist á meðan ég skreyti alla jólapakkana fyrir næstum alla í fjölskyldunni“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.