Víkurfréttir - 15.12.2016, Blaðsíða 22
22 fimmtudagur 15. desember 2016VÍKURFRÉTTIR
„EINN AF MÍNUM
UPPÁHALDS RÉTTUM“
INNBÖKUÐ NAUTALUND - BEEF WELLINGTON Á JÓLABORÐI GÍGJU
Hráefni:
800 gr nautalund
2 bakkar sveppir
5 hvítlauksrif
Ferskt timjan eftir smekk
Salt og pipar
Dijon sinnep
2 bréf parmaskinka
Tilbúið smjördeig eða puff pastry deig
1 egg
Aðferð:
Ofninn er hitaður í 180 gráður án
blásturs.
Tveir bakkar af fínt skornum sveppum
steiktir (án olíu) með 5 hvítlauks-
rifjum, salti, pipar og fersku timían
eftir smekk. Mér finnst gott að hafa
nóg af því. Vökvanum er svo hellt af
pönnunni áður en sveppirnir eru not-
aðir. Parmaskinkunni er raðað á plast-
filmu, eins breitt og nautalundin er, ég
var með eitt bréf af parmaskinku en
hefði þurft aðeins meira svo ég fyllti
upp í með hunangs skinku og það var
mjög gott. Nautalundin er snöggsteikt
í heilu lagi á pönnu á öllum hliðum
upp úr olíu með salti og pipar.
Um leið og nautið kemur af pönn-
unni er það penslað með dijon sinn-
epi og sveppablandan er sett ofan á
parmaskinkuna. Nautið er svo klætt í
parmaskinkuna með plastfilmunni og
sett í ískáp í um 10 mínútur. Deigið er
flatt út, kjötið sett í miðju og deiginu
vafið utan um. Deigið er svo penslað
með eggi og hægt er að gera skraut í
deigið. Það er misjafnt hvernig fólk
vill hafa kjötið en mér finnst það best
„medium rare.“ Kjötið var inni í ofni í
25 mínútur, mælirinn sýndi 53 gráður
þegar ég tók það út og leyfði því svo að
standa í 10 til 15 mínútur.
Gígja Sigríður Guðjónsdóttir, flugfreyja, uppeldisfræðingur og matarbloggari á vefnum gigjas.com,
er ennþá jafn spennt að opna einn pakka fyrir matinn á aðfangadag nú, 27 ára, eins og þegar hún
var fimm ára. Gígja er farin að halda jólin á sínu heimili ásamt kærasta sínum, Ásgeiri Elvari, en þau
bjóða móður Gígju og systur í mat á aðfangadag. Eftir matinn rölta þau svo yfir til móður Ásgeirs
með eftirréttinn með sér. „Það var rosalega kósý. Ég var með humar í forrétt, hreindýr í aðalrétt og
þennan ómótstæðilega góða Toblerone ís í eftirrétt. Í ár væri ég til í að vera með rjúpur í staðinn fyrir
hreindýrið, það er að segja ef við náum að redda okkur þeim. Það hefur verið hefð hjá okkur síðustu
ár að fara á jólatónleika í desember sem koma manni í jólafíling, svo er alltaf gaman að fara á Þorláks-
messurölt og mæla sér mót við vini og fjölskyldu þar,“ segir Gígja aðspurð um jólahefðirnar sem hún
heldur í. Hún deilir með lesendum uppskrift að Beef Wellington og Toblerone ís með piparkökuívafi.
„Ég get hiklaust sagt að Beef Wellington sé einn af mínum uppáhalds réttum. Frumraun mín í Well-
ington var þegar ég var stödd í Orlando um áramótin 2014. Ári seinna var auðvitað skellt í aðra slíka
og býst ég sterklega við því að þetta sé orðin árleg hefð. Wellington steikin lítur út fyrir að vera svolítið
flókin í framkvæmd en er það alls ekki. Það ættu allir að geta skellt í eina ef þeir hafa örlitla þolin-
mæði. Svo lengi sem þú hefur góða nautalund og hitamæli, þá ertu í topp málum. Og ekki má gleyma
bernaise sósunni,“ segir Gígja.
Hráefni:
500 ml rjómi
4 egg
1 msk vanilludropar
Hnífsoddur salt
8 msk flórsykur
150 gr Toblerone
100 gr piparkökur
Aðferð:
- Eggin og flórsykurinn þeytt saman
þar til blandan verður létt og ljós.
- Salti og vanilludropum bætt við
og hrært.
- Toblerone og piparkökur saxað
í litla bita.
- Rjóminn er þeyttur sér og svo
er öllu blandað saman varlega
með sleif.
Blandan sett í form og inn í frysti,
best er að útbúa ísinn kvöldið áður.
Kökuna skreytti ég með jarðarberjum,
Toblerone og Mars íssósu sem er
æðisleg með ísnum.
Mars íssósa:
4 Mars súkkulaðistykki
50 gr rjómasúkkulaði
200 ml rjómi
Allt sett í pott og brætt saman
við vægan hita án þess að sjóða.
Toblerone jólaís
með piparkökum
Beef Wellington
„Svo lengi sem þú hefur góða nautalund
og hitamæli, þá ertu í topp málum“