Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.12.2016, Page 22

Víkurfréttir - 15.12.2016, Page 22
22 fimmtudagur 15. desember 2016VÍKURFRÉTTIR „EINN AF MÍNUM UPPÁHALDS RÉTTUM“ INNBÖKUÐ NAUTALUND - BEEF WELLINGTON Á JÓLABORÐI GÍGJU Hráefni: 800 gr nautalund 2 bakkar sveppir 5 hvítlauksrif Ferskt timjan eftir smekk Salt og pipar Dijon sinnep 2 bréf parmaskinka Tilbúið smjördeig eða puff pastry deig 1 egg Aðferð: Ofninn er hitaður í 180 gráður án blásturs. Tveir bakkar af fínt skornum sveppum steiktir (án olíu) með 5 hvítlauks- rifjum, salti, pipar og fersku timían eftir smekk. Mér finnst gott að hafa nóg af því. Vökvanum er svo hellt af pönnunni áður en sveppirnir eru not- aðir. Parmaskinkunni er raðað á plast- filmu, eins breitt og nautalundin er, ég var með eitt bréf af parmaskinku en hefði þurft aðeins meira svo ég fyllti upp í með hunangs skinku og það var mjög gott. Nautalundin er snöggsteikt í heilu lagi á pönnu á öllum hliðum upp úr olíu með salti og pipar. Um leið og nautið kemur af pönn- unni er það penslað með dijon sinn- epi og sveppablandan er sett ofan á parmaskinkuna. Nautið er svo klætt í parmaskinkuna með plastfilmunni og sett í ískáp í um 10 mínútur. Deigið er flatt út, kjötið sett í miðju og deiginu vafið utan um. Deigið er svo penslað með eggi og hægt er að gera skraut í deigið. Það er misjafnt hvernig fólk vill hafa kjötið en mér finnst það best „medium rare.“ Kjötið var inni í ofni í 25 mínútur, mælirinn sýndi 53 gráður þegar ég tók það út og leyfði því svo að standa í 10 til 15 mínútur. Gígja Sigríður Guðjónsdóttir, flugfreyja, uppeldisfræðingur og matarbloggari á vefnum gigjas.com, er ennþá jafn spennt að opna einn pakka fyrir matinn á aðfangadag nú, 27 ára, eins og þegar hún var fimm ára. Gígja er farin að halda jólin á sínu heimili ásamt kærasta sínum, Ásgeiri Elvari, en þau bjóða móður Gígju og systur í mat á aðfangadag. Eftir matinn rölta þau svo yfir til móður Ásgeirs með eftirréttinn með sér. „Það var rosalega kósý. Ég var með humar í forrétt, hreindýr í aðalrétt og þennan ómótstæðilega góða Toblerone ís í eftirrétt. Í ár væri ég til í að vera með rjúpur í staðinn fyrir hreindýrið, það er að segja ef við náum að redda okkur þeim. Það hefur verið hefð hjá okkur síðustu ár að fara á jólatónleika í desember sem koma manni í jólafíling, svo er alltaf gaman að fara á Þorláks- messurölt og mæla sér mót við vini og fjölskyldu þar,“ segir Gígja aðspurð um jólahefðirnar sem hún heldur í. Hún deilir með lesendum uppskrift að Beef Wellington og Toblerone ís með piparkökuívafi. „Ég get hiklaust sagt að Beef Wellington sé einn af mínum uppáhalds réttum. Frumraun mín í Well- ington var þegar ég var stödd í Orlando um áramótin 2014. Ári seinna var auðvitað skellt í aðra slíka og býst ég sterklega við því að þetta sé orðin árleg hefð. Wellington steikin lítur út fyrir að vera svolítið flókin í framkvæmd en er það alls ekki. Það ættu allir að geta skellt í eina ef þeir hafa örlitla þolin- mæði. Svo lengi sem þú hefur góða nautalund og hitamæli, þá ertu í topp málum. Og ekki má gleyma bernaise sósunni,“ segir Gígja. Hráefni: 500 ml rjómi 4 egg 1 msk vanilludropar Hnífsoddur salt 8 msk flórsykur 150 gr Toblerone 100 gr piparkökur Aðferð: - Eggin og flórsykurinn þeytt saman þar til blandan verður létt og ljós. - Salti og vanilludropum bætt við og hrært. - Toblerone og piparkökur saxað í litla bita. - Rjóminn er þeyttur sér og svo er öllu blandað saman varlega með sleif. Blandan sett í form og inn í frysti, best er að útbúa ísinn kvöldið áður. Kökuna skreytti ég með jarðarberjum, Toblerone og Mars íssósu sem er æðisleg með ísnum. Mars íssósa: 4 Mars súkkulaðistykki 50 gr rjómasúkkulaði 200 ml rjómi Allt sett í pott og brætt saman við vægan hita án þess að sjóða. Toblerone jólaís með piparkökum Beef Wellington „Svo lengi sem þú hefur góða nautalund og hitamæli, þá ertu í topp málum“

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.