Víkurfréttir - 15.12.2016, Blaðsíða 36
36 fimmtudagur 15. desember 2016VÍKURFRÉTTIR
Sigurvegarar:
KIRKJUHLJÓMAR
eftir Særúnu Lilju Eysteinsdóttur 9 ára
Hún hringdi mjög
drungalegum hljómi tikkrrrrak
ooootikk takk reyndar
er ekki grafið dáið
fólk heldur draugar o
g kirkjan er löngu farin úr
bænum því að enginn
þorði að koma þangað
LITLI VITINN
eftir Kristján Birkir Bjarkason 11 ára.
Ég stend,
horfi á fjöruna fínu,
öldur í sjónum.
Sólin skín í Garðinum
á litla vitann.
HÚSIÐ HANS AFA
eftir Brynjar Ægir Freysson.
Húsið hans afa er gamalt og
þakið er að hrynja og
það er góð lykt inni hjá honum og
hann er alltaf að laga það.
Tvenn hvatningarverðlaun
eru veitt eftirtöldum:
LITLA HÚSIÐ
eftir Patrycja Elisa Porzezinzka.
Litla húsið mitt heitir holan mín.
Nú ert þú orðið að gistihúsi
og orðið að fínasta húsinu í Garðinum
mínum.
GÖMUL HÚS
eftir Hildur Ósk Óskarsdóttir.
Húsið er tvö hundruð ára gamalt.
Húsið veitir skjól
og þakið var að hrynja
og þar bjó lítil mús.
Um ljóðin:
Í raun eru þetta allt saman skemmtileg
og frumleg ljóð, um gamalt hús, kirkju
og Garðinn okkar.
Vandi er að velja úr sigurljóð – því að
í raun eru allir sem taka þátt í ljóða-
keppni sigurvegarar. En við verðum
að tína til nokkra og veita viðurkenn-
ingar til þess að formsatriðum sé full-
nægt.
Það bárust að þessu sinni nokkru
færri ljóð en í fyrra og öll úr Gerða-
skóla. Það er þó enn jafnmikill kraftur
í skáldunum og vonandi verða bara
fleiri með á næsta ári.
Fyrstu verðlaun fær Sæunn Lilja Ey-
steinsdóttir 9 ára, fyrir ljóð sitt Kirkju-
hljómur. Þetta skemmtilega ljóð er
hálfgerð hrollvekja og fjallar um
drauga og afturgöngur. Og sniðugt
bragð að lýsa því yfir að kirkjan sé
farin úr bænum! Það sem gerir ljóðið
enn fremur frumlegt eru hljóðlíking-
arnar, þar sem reynt er að líkja eftir
hljómum kirkjuklukknanna.
Önnur verðlaun hlýtur Kristján Birkir
Bjarkason, 11 ára, fyrir ljóð sitt Litli
vitinn.
Þetta stutta ljóð minnir um sumt á
japanska hækú, þar sem skáldið fer
penslum um náttúruna og umhverfið,
í örstuttu myndmáli sem er þó um leið
fjölyrt. Þarna kemur fyrir fjaran, hafið
og Garðurinn okkar með báða vitana,
þótt aðeins annar sé nefndur á nafn.
Þriðju verðlaun hlýtur svo Brynjar
Ægir Freysson, fyrir ljóð sitt Húsið
hans afa.
Þetta stutta ljóð er ljóðrænt og mjög
persónulegt. Það fjallar um afa sem er
gamall eins og húsið og angar af því,
enda er hann alltaf að laga og bæta
húsið sitt. Það er það sem afar gera,
betrumbæta og ilma eins og hús.
Ljóðin tvö sem fá sérstaka hvatningu
er skemmtileg og hnittin. Húsinu er
líkt við holu, kannski músarholu? Í
ljóðinu er skírskotun til mikillar fjölg-
unar ferðamanna á Íslandi sem kallar
á ný úrræði við að hýsa þá alla.
Bæði ljóðin lýsa hlýju gömlu húsanna,
notalegt að vera í þeim, þótt þau séu
sum hver að hrynja, enda bjó þar mús!
Hvatningar viðurkenningar fá Hildur
Ósk Óskarsdóttir og Patrycja Elisa
Porzezinzka.
DAGSTJARNA
●● ljóðasamkeppni●Unu●í●Sjólyst●2016
Ljóðasamkeppni Hollvina Unu í Sjólyst, Dagstjarna 2016, var haldin
nú á haustmánuðum. Verðlaun og viðurkenningar voru svo veittar á
Unukvöldi í Útskálakirkju á dögunum.
FRÁBÆRT
FÓLK ÓSKAST
Hjá Olís er lögð áhersla á góðan aðbúnað starfsfólks,
stuðning til náms og heilsueflingar, heiðarleika í
samskiptum, snyrtimennsku og fagleg vinnubrögð.
Störn fela í sér almenna afgreiðslu,
áfyllingar vöru, vörumóttöku, þrif,
þjónustu við viðskiptavini og annað
tilfallandi á þjónustustöð Olís,
Básnum í Keavík.
Áhersla er lögð á ríka þjónustulund,
stundvísi, snyrtimennsku og hæfni í
mannlegum samskiptum.
Unnið er á tvískiptum vöktum.
Skilyrði er að umsækjendur ha
hreint sakavottorð og séu reyklausir.
Umsóknir á olis.is og hjá
verslunarstjóra. Umsóknar-
frestur er til 19. desember.
OKKUR VANTAR
STARFSFÓLK
Í KEFLAVÍK