Víkurfréttir - 15.12.2016, Blaðsíða 14
14 fimmtudagur 15. desember 2016VÍKURFRÉTTIR
Home Alone
í uppáhaldi
Uppáhalds jólaminning?
Við pabbi að gera piparkökuhús
fyrir hver jól.
Uppáhalds jólamynd?
Home Alone myndirnar.
Eftirminnilegasta gjöfin?
Ætli það sé ekki Ipadinn og vél-
menni sem ég stýri með appi í sím-
anum.
Það besta við jólin?
Piparkökuhúsin og að fá að skjóta
upp flugeldum. Ég hef mjög gaman
af því.
„Sigurður, frændi minn er búinn að
gera piparkökuþorp í fjölda ára og
þaðan kom hugmyndin. Hann segir að
nú taki ég við hefðinni,“ segir Finnur
Guðberg Ívarsson, tólf ára gamall
bakari, rennismiður og fiðluleikari en
honum er margt til lista lagt. Finnur
gerði þorp úr piparkökuhúsum frá
grunni en hann hrærði deigið, skar
út, límdi saman og skreytti sjálfur
auk þess að smíða undirlag þorpsins.
Í þorpinu er meðal annars að finna
hreindýr, jólatré, kirkju og kirkju-
tröppur, Stúf sjálfann í strompinum og
jafnvel Erlu, sóknarprest Keflavíkur-
kirkju.
Þorpið er hið glæsilegasta en það
tók Finn um það bil viku að útbúa
það. „Ég teiknaði það fyrst eins og ég
vildi hafa það. Svo sagaði ég út boga í
viðarplötu og setti viðarkubba undir
upphækkunina sem er eins og kirkju-
tröppur. Ég fékk svo mótin fyrir hús-
unum lánuð hjá Sigurði frænda, en
hann hafði sýnt mér hvernig hann
gerir sitt þorp.“
Spurður hvort fjölskyldan tími nokkuð
að borða piparkökuhúsin í þorpinu að
lokum segir Finnur það einfaldlega
vera hluta af þessu, að þurfa að búa til
nýtt á hverju ári. Finnur og Ívar, faðir
hans, hafa gert piparkökuhús saman á
aðventunni frá því Finnur man eftir
sér. „Þá bjó ég til mót sjálfur úr pappa
sem við notuðum.“
Finnur hefur mikinn áhuga á bakstri
og ætlar sér að verða bakari þegar
hann verður eldri. „Ég var vanur
að sitja uppi á borði og fylgjast með
mömmu elda þegar ég var lítill. Mér
finnst mjög gaman að baka og geri
mikið af því með vini mínum.“ Kræs-
ingarnar létu ekki á sér standa þegar
blaðamenn Víkurfrétta heimsóttu
Finn en meðal annars bauð hann upp
á ljúffengt, heimabakað þýskt jóla-
brauð, Stollen, en hann á ættir að rekja
til Þýskalands. „Stollen er eins konar
rúsínubrauð en það inniheldur einn-
ig marsipan,“ segir Finnur. Hann var
svo heppinn að fá að vinna við það að
baka í Valgeirsbakaríi í sumar og segir
það hafa verið góða reynslu.
Ívar er með rennibekk í skúrnum og
þar hefur Finnur einnig látið hæfileika
sína í ljós. Hann sýnir blaðamönnum
fallegan viðarkertastjaka og tvær
skálar sem hann bjó til. Í herberg-
inu hans má sjá veggklukku sem er
hönnuð og smíðuð af Finni auk „graf-
fiti“ listaverks sem hann hannaði og
spreyjaði með aðstoð afa síns og Júlí-
usar, sem er maður frænku hans og er
bílasprautari en þeir kenndu honum
réttu handtökin. Finnur spilar einnig
á fiðlu en hann hefur stundað Suzuki
fiðlunám frá þriggja ára aldri. „Ég er
lesblindur og með athyglisbrest, til að
mynda hentar skólakerfið mér ekki
mjög vel. En ég held að það að ég sé
góður að baka og vinna hluti í hönd-
unum komi í staðinn fyrir hitt.“ Hann
segir að nota mætti aðrar kennsluað-
ferðir og nefnir vendinám þar sem
nemendur kynna sér námsefnið
heima og nýta svo kennslustundina til
dæmis til að vinna verkefni og geta þá
fengið aðstoð frá kennaranum þegar
þarf.
Piparkökuþorp
Finnur Guðberg Ívarsson
er ungur bakari, rennismiður og fiðluleikari
Finns
Finnur er líka hæfileikaríkur rennismiður en hér er hann með kertastjaka og
skálar sem hann bjó til.
Listaverkið á veggnum er hönnun Finns og veggklukkan einnig.
Jólaþorpið er hið glæsilegasta.
Við kirkjudyrnar stendur Erla, sóknarprestur í Keflavík og ef að vel er gáð má sjá Stúf í strompi eins hússins.
„Ég held að það að ég sé góður að baka
og vinna hluti í höndunum komi í staðinn fyrir hitt“