Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Page 8
8 Áramótablað 29. desember 2017fréttir 1 Níðingar á eftir Sigrúnu: Skólabílstjóri, nauðgari, og fleiri karlmenn vildu Sigrúnu Ósk í heimsókn DV stóð fyrir tilraun í sumar sem stóð yfir í nokkra mánuði. Blaða- mennirnir Kristjón Kormákur og Guðrún Ósk bjuggu til Facebook- síðu fyrir unglingsstúlku og gáfu henni nafnið Sigrún Ósk. Til að gera síðuna trúverðuga greindi Sigrún frá því að hún væri að stofna nýja síðu þar sem Face- book hefði lokað á þá síðu sem hún hafði áður. Myndir af Sigrúnu á síðunni voru af Guðrúnu blaða- konu DV frá unglingsaldri. Til að koma síðunni af stað sendi Sigrún vinabeiðnir á alls konar fólk, unga sem aldna og reyndi að hafa vina- hópinn sem fjölbreyttastan. Með- al þeirra sem hún sendi til voru þrír aðilar sem blaðamenn DV vissu að væru meðlimir á síðum þar sem vændiskonum eru gefn- ar einkunnir. Þá var Sigrún einnig með Snapchat-aðgang og síma sem blaðakonan notaði, bæði í símtöl og skeytasendingar. Sigrún var með þá reglu gegnumgang- andi í sínum samskiptum á mið- lunum að hún skyldi aldrei hefja samræður að fyrra bragði við karl- menn. Til að gera langa sögu stutta sendu tugir karlmanna skilaboð á tálbeitu DV. Blaðamenn DV hittu nokkra þeirra, þar á meðal dæmd- an nauðgara, skólabílstjóra og yf- irmann hjá virtu fyrirtæki. Fréttin vakti mikla athygli. Eftir umfjöll- unina voru skólabílstjórinn og yf- irmaðurinn reknir. Fréttin var sú mest lesna á árinu. 227.753 lásu 2 Myndband sýnir mann ganga yfir götuna: Myndefnið úr eftirlitsmynda- vélinni sýnt í nýju ljósi Frétt um myndskeið úr eftirlits- myndavél á Laugavegi eftir hvarf Birnu Brjánsdóttur vakti mikla athygli. Þóttust sumir sjá dular- fulla menn koma fyrir á mynd- skeiðinu á sama tíma og Birna átti leið þar hjá. Í ljós kom að maður- inn var ekki að veita Birnu eftirför og var myndbandið síðar fjarlægt. 196.657 lásu 3 Grét í Costco Frétt um að ekki væri allt með felldu í Costco endaði í fjórða sæti. Þar ræddi DV við bæði nú- verandi og fyrrverandi starfsmenn sem sögðu farir sínar ekki sléttar. DV barst ábendingar frá starfsfólki um ýmsa bresti sem voru í rekstri stórverslunarinnar. Meðal annars um gegndarlausa matarsóun sem starfsmönnum blöskraði og slæma framkomu yfirmanna í garð undirmanna sem stuðlaði að gríðarlegri starfsmannaveltu. 141.518 lásu 4 Gunnar: „Mínar kennd-ir eru til kvenna sem eru á milli bleia en þú ert með kenndir til kvenna sem eru komnar af seinni bleiu“ Þriðja mest lesna fréttin á árinu var afhjúpun DV á barnaníðingn- um Gunnari Jakobssyni. Dv fór með falda myndavél á ógeðfellt heimili níðingsins á Stokkseyri. Í ljós kom að Gunnar hafði safn- að miklu skeggi til að dulbúast svo hann gæti farið óáreittur í sund að horfa á lítil börn. Gunnar sagði að hann hefði frá fæðingu haft annarlegur kenndir. Hann flúði land í sumar og er sestur að í Svíþjóð. 134.508 lásu 5 Barnaverndarnefnd hrifs-ar nýfætt barn úr höndum móður á Landspítalanum Frétt DV um að Barnavernd hefði tekið nýfætt barn úr höndum móð- ur á Landspítalanum var umdeilt. DV hitti foreldrana, hjónin Arleta og Adam Kilichowska, sem sögðu far- ir sínar af Barnavernd ekki sléttar. Hjónin viðurkenndu að þau væru ekki fullkomnir foreldrar en bæði þau og lögmaður þeirra, Leifur Run- ólfsson héraðsdómslögmaður, töldu aðgerðir barnaverndarnefndar allt of harkalegar og að beita mætti öðr- um aðferðum til að tryggja velferð barnanna. Málið vakti einnig mikla athygli í Póllandi. 131.828 lásu 6 Þeir eru í varðhaldi DV var ásamt Stundinni fyrst til að myndbirta og nafn- greina mennina sem sátu í varð- haldi grunaðir um að tengjast hvarfi Birnu Brjánsdóttur. Þetta voru þeir Thomas Möller Olsen og Nikolaj Olsen. Nikolaj var síð- ar sleppt og er laus allra mála en Thomas var dæmdur fyrir morð. 123.381 lásu 7 Skemmdarverk á Snæfells-nesi: „Sendu myndina á kínversk yfirvöld“ Þessi frétt komst óvænt inn á list- ann yfir þær fréttir sem vöktu mesta athygli á árinu. 115 þús- und lesendur vildu vita meira um skemmdarverk á Snæfellsnesi. Sá sem vann skemmdarverkið var fordæmdur víða um heim en táknin þýddu einfaldlega „Kína“. 115.952 lásu 8 Tinna fundin: „Við erum sorgmædd og reið“ Tugir manna leituðu að tíkinni Tinnu sem fannst að lokum dauð undir steini við smábátahöfnina í Keflavík. Ljóst er að óhæfuverk hafði verið unnið. Fréttin vakti mikla athygli og fóru lesendur hamförum í kommentakerfinu af reiði. Ágúst Ævar, annar eigandi Tinnu, sagði: „Ég trúi á karma og veit að það tekur við á þessa manneskju sem hefur sýnt Tinnu okkar þessa vanvirðingu. Vanvirðingu við líf og tíma annarra sem tóku þátt í þessari leit.“ 113.952 lásu 9 Diljá stígur fram og segir frá ofbeldi Björns Diljá Tara Helgadóttir steig hetjuskref og greindi frá ofbeldi sem hún hafði orðið fyrir af hendi Björns Daníels Sigurðssonar, fyrrverandi sambýlis manns hennar. Björn var dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir hrottalegt ofbeldi. Þótti Diljá sýna mikið hug- rekki að stíga fram og leyfði DV að birta myndir sem sýna afleiðingar af skelfilegu heimilisofbeldi. 113.728 lásu 10 Guðbjörn tjáir sig um kyn-ferðisbrot gegn dóttur hans Guðbjörn Guðbjörnsson, sjálfstæð- ismaður til 30 ára, steig fram og opnaði sig um þær erfiðu tilfinn- ingar sem kviknuðu í brjósti hans þegar hann komst að því að 16 ára dóttur hans hefði verið nauðgað. Dóttir hans gerði allt rétt til að leita réttar síns en eins og svo oft áður var ofbeldismaðurinn sýknaður. Guðbjörn sagði í viðtali við DV að fyrir ofbeldið hefði hann verið hefð- bundin karlremba en að vera að- standandi hefði opnað augu hans. Vildi Guðbjörn meina að ástæðan fyrir vægum dómum væri hugar- far og skapgerð dómaranna. Hann taldi að flestir þeirra væru nákvæm- lega sömu karlremburnar og hann var sjálfur fyrir nokkrum árum. 106.775 lásu Fréttirnar sem vöktu meiri athygli en aðrar D V og dv.is voru í mikilli sókn á árinu. Lestur á blaði DV hefur aukist um 74% á hálfu ári. Þó hefur lestur á vef dv.is aldrei verið meiri frá því að hann var settur á laggirnar. Til marks um þennan mikla lestur að þá er í fyrsta sinn í sögu dv.is all- ar innlendar fréttir með meira en 100 þúsund í lestur. Þess má geta að 19 innlendar fréttir á árinu fóru yfir 100 þúsund. Þær fréttir sem voru mest lesnar á árinu voru eft- irfarandi: n Vinsælustu fréttir ársins á DV.is n Ofbeldi, koma Costco og níðingsskapur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.