Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Side 8
8 Áramótablað 29. desember 2017fréttir
1 Níðingar á eftir Sigrúnu: Skólabílstjóri, nauðgari,
og fleiri karlmenn vildu Sigrúnu
Ósk í heimsókn
DV stóð fyrir tilraun í sumar sem
stóð yfir í nokkra mánuði. Blaða-
mennirnir Kristjón Kormákur og
Guðrún Ósk bjuggu til Facebook-
síðu fyrir unglingsstúlku og gáfu
henni nafnið Sigrún Ósk. Til að
gera síðuna trúverðuga greindi
Sigrún frá því að hún væri að
stofna nýja síðu þar sem Face-
book hefði lokað á þá síðu sem
hún hafði áður. Myndir af Sigrúnu
á síðunni voru af Guðrúnu blaða-
konu DV frá unglingsaldri. Til að
koma síðunni af stað sendi Sigrún
vinabeiðnir á alls konar fólk, unga
sem aldna og reyndi að hafa vina-
hópinn sem fjölbreyttastan. Með-
al þeirra sem hún sendi til voru
þrír aðilar sem blaðamenn DV
vissu að væru meðlimir á síðum
þar sem vændiskonum eru gefn-
ar einkunnir. Þá var Sigrún einnig
með Snapchat-aðgang og síma
sem blaðakonan notaði, bæði í
símtöl og skeytasendingar. Sigrún
var með þá reglu gegnumgang-
andi í sínum samskiptum á mið-
lunum að hún skyldi aldrei hefja
samræður að fyrra bragði við karl-
menn. Til að gera langa sögu stutta
sendu tugir karlmanna skilaboð á
tálbeitu DV. Blaðamenn DV hittu
nokkra þeirra, þar á meðal dæmd-
an nauðgara, skólabílstjóra og yf-
irmann hjá virtu fyrirtæki. Fréttin
vakti mikla athygli. Eftir umfjöll-
unina voru skólabílstjórinn og yf-
irmaðurinn reknir. Fréttin var sú
mest lesna á árinu.
227.753 lásu
2 Myndband sýnir mann ganga yfir götuna:
Myndefnið úr eftirlitsmynda-
vélinni sýnt í nýju ljósi
Frétt um myndskeið úr eftirlits-
myndavél á Laugavegi eftir hvarf
Birnu Brjánsdóttur vakti mikla
athygli. Þóttust sumir sjá dular-
fulla menn koma fyrir á mynd-
skeiðinu á sama tíma og Birna átti
leið þar hjá. Í ljós kom að maður-
inn var ekki að veita Birnu eftirför
og var myndbandið síðar fjarlægt.
196.657 lásu
3 Grét í Costco Frétt um að ekki væri allt
með felldu í Costco endaði í fjórða
sæti. Þar ræddi DV við bæði nú-
verandi og fyrrverandi starfsmenn
sem sögðu farir sínar ekki sléttar.
DV barst ábendingar frá starfsfólki
um ýmsa bresti sem voru í rekstri
stórverslunarinnar. Meðal annars
um gegndarlausa matarsóun
sem starfsmönnum blöskraði og
slæma framkomu yfirmanna í
garð undirmanna sem stuðlaði að
gríðarlegri starfsmannaveltu.
141.518 lásu
4 Gunnar: „Mínar kennd-ir eru til kvenna sem eru á
milli bleia en þú ert með kenndir
til kvenna sem eru komnar af
seinni bleiu“
Þriðja mest lesna fréttin á árinu
var afhjúpun DV á barnaníðingn-
um Gunnari Jakobssyni. Dv fór
með falda myndavél á ógeðfellt
heimili níðingsins á Stokkseyri.
Í ljós kom að Gunnar hafði safn-
að miklu skeggi til að dulbúast
svo hann gæti farið óáreittur í
sund að horfa á lítil börn. Gunnar
sagði að hann hefði frá fæðingu
haft annarlegur kenndir. Hann
flúði land í sumar og er sestur að
í Svíþjóð.
134.508 lásu
5 Barnaverndarnefnd hrifs-ar nýfætt barn úr höndum
móður á Landspítalanum
Frétt DV um að Barnavernd hefði
tekið nýfætt barn úr höndum móð-
ur á Landspítalanum var umdeilt.
DV hitti foreldrana, hjónin Arleta og
Adam Kilichowska, sem sögðu far-
ir sínar af Barnavernd ekki sléttar.
Hjónin viðurkenndu að þau væru
ekki fullkomnir foreldrar en bæði
þau og lögmaður þeirra, Leifur Run-
ólfsson héraðsdómslögmaður, töldu
aðgerðir barnaverndarnefndar allt
of harkalegar og að beita mætti öðr-
um aðferðum til að tryggja velferð
barnanna. Málið vakti einnig mikla
athygli í Póllandi.
131.828 lásu
6 Þeir eru í varðhaldi DV var ásamt Stundinni
fyrst til að myndbirta og nafn-
greina mennina sem sátu í varð-
haldi grunaðir um að tengjast
hvarfi Birnu Brjánsdóttur. Þetta
voru þeir Thomas Möller Olsen
og Nikolaj Olsen. Nikolaj var síð-
ar sleppt og er laus allra mála en
Thomas var dæmdur fyrir morð.
123.381 lásu
7 Skemmdarverk á Snæfells-nesi: „Sendu myndina á
kínversk yfirvöld“
Þessi frétt komst óvænt inn á list-
ann yfir þær fréttir sem vöktu
mesta athygli á árinu. 115 þús-
und lesendur vildu vita meira um
skemmdarverk á Snæfellsnesi.
Sá sem vann skemmdarverkið
var fordæmdur víða um heim en
táknin þýddu einfaldlega „Kína“.
115.952 lásu
8 Tinna fundin: „Við erum sorgmædd og reið“
Tugir manna leituðu að tíkinni
Tinnu sem fannst að lokum dauð
undir steini við smábátahöfnina
í Keflavík. Ljóst er að óhæfuverk
hafði verið unnið. Fréttin vakti
mikla athygli og fóru lesendur
hamförum í kommentakerfinu af
reiði. Ágúst Ævar, annar eigandi
Tinnu, sagði:
„Ég trúi á karma og veit að
það tekur við á þessa manneskju
sem hefur sýnt Tinnu okkar þessa
vanvirðingu. Vanvirðingu við líf
og tíma annarra sem tóku þátt í
þessari leit.“
113.952 lásu
9 Diljá stígur fram og segir frá ofbeldi Björns
Diljá Tara Helgadóttir steig hetjuskref
og greindi frá ofbeldi sem hún hafði
orðið fyrir af hendi Björns Daníels
Sigurðssonar, fyrrverandi sambýlis
manns hennar. Björn var dæmdur í
fjögurra ára fangelsi fyrir hrottalegt
ofbeldi. Þótti Diljá sýna mikið hug-
rekki að stíga fram og leyfði DV að
birta myndir sem sýna afleiðingar af
skelfilegu heimilisofbeldi.
113.728 lásu
10 Guðbjörn tjáir sig um kyn-ferðisbrot gegn dóttur hans
Guðbjörn Guðbjörnsson, sjálfstæð-
ismaður til 30 ára, steig fram og
opnaði sig um þær erfiðu tilfinn-
ingar sem kviknuðu í brjósti hans
þegar hann komst að því að 16 ára
dóttur hans hefði verið nauðgað.
Dóttir hans gerði allt rétt til að leita
réttar síns en eins og svo oft áður
var ofbeldismaðurinn sýknaður.
Guðbjörn sagði í viðtali við DV að
fyrir ofbeldið hefði hann verið hefð-
bundin karlremba en að vera að-
standandi hefði opnað augu hans.
Vildi Guðbjörn meina að ástæðan
fyrir vægum dómum væri hugar-
far og skapgerð dómaranna. Hann
taldi að flestir þeirra væru nákvæm-
lega sömu karlremburnar og hann
var sjálfur fyrir nokkrum árum.
106.775 lásu
Fréttirnar sem vöktu
meiri athygli en aðrar
D
V og dv.is voru í mikilli
sókn á árinu. Lestur á blaði
DV hefur aukist um 74% á
hálfu ári. Þó hefur lestur á
vef dv.is aldrei verið meiri frá því
að hann var settur á laggirnar. Til
marks um þennan mikla lestur að
þá er í fyrsta sinn í sögu dv.is all-
ar innlendar fréttir með meira en
100 þúsund í lestur. Þess má geta
að 19 innlendar fréttir á árinu fóru
yfir 100 þúsund. Þær fréttir sem
voru mest lesnar á árinu voru eft-
irfarandi:
n Vinsælustu fréttir ársins á DV.is n Ofbeldi, koma Costco og níðingsskapur