Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Blaðsíða 37
KYNNING Skapa atvinnu fyrir fólk með skerta starfsorku Múlalundur selur fjölbreyttar skrifstofuvörur sem öll fyrir-tæki þurfa á að halda. Með því að kaupa þær af okkur eru fyrir- tæki í leiðinni að styðja við atvinnu- sköpun fólks með skerta starfsorku og ná þannig árangri á sviði samfélags- legrar ábyrgðar án aukavinnu eða kostnaðar,“ segir Sigurður Viktor Úlf- arsson, framkvæmdastjóri Múlalund- ar, Vinnustofu SÍBS, sem starfrækt er á lóð Reykjalundar í Mosfellsbæ. Á síðasta ári fengu um 70 einstaklingar með skerta starfsorku tækifæri til að spreyta sig á Múlalundi. „Fyrirtæki geta verslað við okkur í gegnum vefverslun okkar mulalund- ur.is, hringt, sent tölvupóst eða kíkt til okkar. Verslun Múlalundar er opin öllum alla virka daga. Við sendum vörurnar um hæl og ef keypt er fyrir 16.000 krónur eða meira sendum við frítt um allt land. Á höfuðborgar- svæðinu koma vörur yfirleitt næsta virka dag,“ segir Sigurður. Vöruframboð og þjónusta samanstendur af vörum framleiddum á Múlalundi og öðrum vörum sem Múla- lundur selur til að viðskipta- vinir geti nálgast sínar skrifstofuvörur allar á einum stað. „Margar framleiðsluvör- ur Múlalundar eru vörur sem fólk þekkir, s.s. Egla- möppurnar, plastvasarnir, gatapokarnir, stóra vegg- dagatalið okkar, fjölbreyttar möppur af ýmsum stærðum og gerðum og margt fleira. Einnig sérvinnum við vörur fyrir tiltekna viðskiptavini, til dæmis Andrésar Andar-möppurnar sem til eru á flestum heimilum. Þá framleiðum við sérhannaðar verkstæðismöppur fyrir verkstæði og bílaleigur, möppur hannaðar undir atvinnuskírteini sjómanna, mat- og vínseðla fyrir veitingastaði og hótel og margt fleira. Starfsfólk Múlalundar framleiðir seðlana frá grunni ásamt áprentun eða þrykkingu. Ferðaskrifstofur hafa einnig verið að nýta sér töskumerkin okkar með merki fyrirtækisins. Þá sker farangur ferðaskrifstofunnar sig frá öðrum og viðskiptavinurinn fær merki fyrirtækisins sem hann notar áfram, jafnvel í mörg ár.“ Þessu til viðbótar vinnur starfs- fólk Múlalundar ýmsa handavinnu fyrir fyrirtæki, s.s. við að strikamerkja vörur, pakka hlutum, setja í umslög og margt fleira sem fyrirtæki sjá hag sinn í að láta starfsfólk Múlalundar sjá um – og skapa með því verð- mæt störf. Starfsemi Múlalundar er óneit- anlega víðtæk og líklega fjölbreytt- ari en flestir gera sér grein fyrir: „Við getum flest,“ segir Sigurður um þetta og hlær. Ljóst er að starfsemi Múlalundar, Vinnustofu SÍBS, er stórmerkileg og vörur fyrirtækisins koma víða við sögu í daglegu lífi fólks. Með því að kaupa vörur frá Múlalundi – vörur sem fyrirtæki þurfa hvort eð er að kaupa fyrir sína daglegu starfsemi – er verið að viðhalda og fjölga störf- um fyrir fólk með skerta starfsorku í samfélaginu. ÞEiR SEM kAupA SkRiFStoFuVöRuR FRÁ MÚLALundi:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.