Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Blaðsíða 30
30 Áramótablað 29. desember 2017fréttir - erlendur fréttaannáll
en margir álíta merkin hampa
sögu þrælahalds og kynþáttamis-
mununar. Fjöldi fólks mótmælti
kröfugöngunni og lenti fylkingun-
um tveimur saman. Ung kona var
myrt og fjöldi slasaðist þegar yfir-
lýstur kynþáttahatari keyrði inn í
hóp mótmælenda.
25. ágúst
Þjóðarmorð
á Róhingjum
Stjórnarherinn í Mjanmar og
stjórnlaus múgur almennra borg-
ara ræðst á Róhingja-múslima í
Rakhine-héraði eftir að hryðju-
verkamenn myrða 12 lögreglu-
menn. Þar með hefst nýjasta og
versta aldan í þjóðernishreins-
unum á hópnum sem hefur verið
kúgaður um árabil, en meirihluti
landsmanna eru búddistar. Hund-
ruð Róhingja hafa verið drepnir
og hundruð þúsunda þurft að flýja
heimili sín og yfir landamærin til
Bangladess. Friðarverðlaunahafi
Nóbels og leiðtogi landsins, Aung
San Suu Kyi, hefur verið gagnrýnd
fyrir að taka ekki upp hanskann
fyrir Róhingja.
September
20. september
Eyðilegging á Púertó Ríkó
Fellibylurinn Maria lendir á Karí-
bahafseyjuna Púertó Ríkó. Meira
en 500 manns látast þar og á
nærliggjandi eyjum. Þetta var sá
stærsti og mannskæðasti af fjöl-
mörgum stórum fellibyljum á
Karíbahafinu árið 2017, en sjald-
an hafa jafn margir stórir fellibylir
myndast á einu ári á svæðinu og
haft jafn mikil áhrif.
24. september
Þjóðernissinnar á
þýska þinginu
Kosningar fóru fram í Þýskalandi
í september. Kristilegir demókrat-
ar (CDU), flokkur Angelu Merkel
kanslara, tapaði þingmönnum en
var þó enn langstærsti þingflokk-
urinn. Það sem var þó fréttnæm-
ast var að flokkur þjóðernissinna,
Annar valkostur fyrir Þýskaland
(AfD), náði 94 mönnum inn á
þing og er það í fyrsta skipti frá
sjöunda áratugnum sem yfirlýst-
ir þjóðernissinnar ná inn á þýska
þingið.
25. september
Kúrdar krefjast
sjálfstæðis
Ríkisstjórn sjálfsstjórnarsvæðis
Kúrda í Írak stóð fyrir atkvæða-
greiðslu um sjálfstæði héraðsins.
Sjálfstæðið var samþykkt með yf-
irgnæfandi meirihluta kjósenda
en stjórnvöld í Írak viðurkenna
ekki niðurstöðuna og hafa beitt
Kúrda ýmiss konar þrýstingi til að
þeir falli frá.
Október
1. október
Katalónar kjósa
Í byrjun október fóru fram kosn-
ingar um sjálfstæði Katalóníu frá
Spáni. Kosningarnar voru um-
deildar meðal Katalóníumanna
sjálfra og hafði spænskur dóm-
stóll þegar dæmt kosningarn-
ar ólöglegar. Hundruð slösuðust
þegar lögregla reyndi að koma í
veg fyrir að borgarar kysu og vakti
lögregluofbeldið hörð viðbrögð
um alla Evrópu. Alls 92% þeirra
sem kusu studdu sjálfstæði.
Í lok mánaðarins sam-
þykkti katalónska
þingið að lýsa yfir
sjálfstæði, en í
kjölfarið leysti for-
seti Spánar upp
þingið og skipaði
fyrir um handtöku
stjórnar héraðsins.
Fjöldamorð í Vegas
Klukkan fimm mínútur yfir tíu að
staðartíma hóf hinn 64 ára gamli
Stephan Paddock að skjóta úr
sjálfvirkum byssum á gesti á úti-
tónlistarhátíðinni Route 91 Har-
vest úr herbergi sínu á 32. hæð
Mandalay Bay-hótelsins í Las
Vegas. Alls 58 létust og á sjötta
hundrað slasaðist áður en lög-
regla fann lík Paddocks í her-
berginu. Ástæða árásarinnar er
enn ókunn.
14. október
Mannskæðasta
hryðjuverkið
Mannskæðasta hryðjverkaárás
ársins átti sér stað í Mogadishu,
höfuðborg Sómalíu. Stór vöru-
flutningabíll með um 350 kíló af
sprengiefnum í farangursgeymsl-
unni sprakk með þeim afleiðing-
um að byggingar hrundu og yfir
500 manns létu lífið. Talið er að
árásarmennirnir tengist hryðju-
verkasamtökunum Al-Shabab og
markmiðið hafi verið að ráðast á
byggingar tengdar ríkisstjórninni
og alþjóðlegum stofnunum.
17. október
Höfuðvígi ISIS fellur
Eftir fjögurra mánaða blóðuga
bardaga tók Sýrlenski lýðræðis-
herinn, undir stjórn Kúrda og
með stuðningi Bandaríkjamanna,
yfir sýrlensku borgina Raqqa, sem
hafði verið höfuðvígi Íslamska
ríkisins (ISIS) frá því í janúar
2014. Meirhluti borgarinnar var
eyðilagður í átökunum og stór
hluti íbúanna lést eða flúði heim-
ili sín. Draumur ISIS-liða um ís-
lamskt kalífadæmi var því orðinn
mun fjarlægari en áður.
21. oktbóber
Weinstein og
Metoo-bylgjan
Fyrstu ásakanirnar um kynferð-
islega áreitni og ofbeldi á
hendur bandaríska kvik-
myndaframleiðandan-
um Harvey Weinstein
koma fram. Á næstu
mánuðum koma tugir
eða hundruð kvenna
fram og saka Wein-
stein um áreitni. Í kjöl-
farið byrja konur um allan
heim að segja frá áreitni og
ofbeldi sem þær þurfa að lifa við
dags daglega og deila sögum und-
ir myllumerkinu Me Too. Fjöldi
valdamikilla manna í ýmsum
starfsgreinum neyðast til að segja
af sér í kjölfar ásakana og enn
sér ekki fyrir endann á áhrifum
þessarar feminísku byltingar.
24. október
Xi Jiaping
styrkir völd sín
Nítjánda aðalþing
Kínverska komm-
únistaflokksins fór
fram í Peking. Þar
styrkti aðalritarinn
Xi Jiaping stöðu sína
sem einn allra valda-
mesti maður heims. Hann
valdi enga unga menn sem gætu
mögulega tekið við af honum í
aðalráð flokksins, og kom hug-
myndafræði sinni – sem nefnd
hefur verið „Xi Jiaping-hugsun“
– nn í námskrá allra kínverskra
skólabarna. Í stefnuræðu sinni á
þinginu talaði hann um hvernig
Kína ætti að taka við leiðtogahlut-
verki í heiminum.
Nóvember
5. nóvember
Paradísarskjöl
opinbera elítuna
Fréttir birtust samtím-
is í 96 fjölmiðlum um allan
heim sem unnar voru upp úr
13,4 milljónum skjala sem lek-
ið hafði verið frá panömsku lög-
fræðistofunni Appleby, sem
hafði aðstoðað við að koma upp
fyrirtækjum í skattaparadísum.
Meðal þess sem skjölin sýndu
voru hvernig Apple komst hjá því
að greiða skatta, hvernig Eng-
landsdrottning og krónprinsinn,
formúlukappinn Lewis Hamilton
og poppsöngvarinn Bono hafa
öll átt fyrirtæki í skattaskjólum.
Þá komu í ljós náin tengsl við-
skiptaráðherra Bandaríkjanna við
tengdasyni Vladimirs Pútíns.
7. nóvember
Hreinsanir í
Sádi-Arabíu
Tíu prinsar, fjórir ráðherrar og
tugir fyrrverandi ráðherrar voru
handteknir í Sádí-Arabíu. Það var
hinn ungi krónprins Mohammed
bin Salman sem fyrirskipaði
handtökurnar og sagði þær vera
vegna spillingar. Þar með styrkti
hann stöðu sína sem valdamesti
maður landsins, en margir þeirra
sem voru handteknir voru ósátt-
ir við stefnu hans, meðal annars
hvað varðar samskipti við Katar,
um einkavæðingu ríkisfyrirtækja
og loforð um að opna landið og
gera það frjálslyndara – meðal
annars leyfa konum að keyra bíla
og íbúum að fara í kvikmyndahús.
15. nóvember
Langdýrasta málverk
sögunnar
Málverkið Salvator Mundi, sem er
eignað listamanninum Leonardo
Da Vinci, varð lang-lang-lang-
dýrasta listaverk allra tíma þegar
það var selt fyrir 450
milljónir dollara
– tæplega 50
milljarða króna
– á uppboði
í New York.
Fljótlega kom
í ljós að kaup-
andinn var sá-
dí-arabískur prins
og verður verkið sýnt
í nýju útibúi Louvre-safnsins sem
verður opnað í Abu Dhabi.
21. nóvember
Mugabe missir völdin
Hinn 93 ára gamli forseti Simba-
bve Robert Mugabe, elsti og einn
þaulsetnasti þjóðarleiðtogi heims,
var hrakinn úr embætti
með valdaráni hersins
í landinu í nóvem-
ber. Fyrr í mánuðin-
um hafði Mugabe
rekið varaforsetann
Emmerson Mn-
angagwa úr emb-
ætti og þess í stað
ráðið eiginkonu sína,
Grace, að því er virtist til að
koma á fjölskylduveldi í landinu.
Her landsins tók þá til sinna ráða
og kom Mnangagwa á forseta-
stól. Þar með lauk 40 ára valdatíð
Mugabe í landinu.
28. nóvember
„Rocket man“ fiktar
með sprengjur
Langdrægri eldflaug
af gerðinni Hwa-
song-15 var
skotið á loft frá
Norður-Kóreu
og segja þar-
lend stjórnvöld
að eldflaugin
geti borið kjarna-
odd og hæft skot-
mörk hvar sem er á
meginlandi Bandaríkjanna. Til-
raunaskotið jók enn á spennuna
milli Norður-Kóreu og Banda-
ríkjanna sem hefur farið stigvax-
andi allt árið vegna kjarnorku- og
eldflaugatilrauna. Donald Trump
hefur farið mikinn í twitter-fær-
slum um leiðtoga Norður-Kóreu
og uppnefndi hann meðal annars
eftir slagara Elton John: „Rocket
man.“
Desember
5. desember
Rússar bannaðir á
Ólympíuleikum
Alþjóðaólympíunefndin bannaði
rússneska íþróttasambandinu að
taka þátt í vetrarólympíuleikun-
um árið 2018 vegna skipulags og
víðtæks lyfjasvindls. Rússneskir
íþróttamenn mega þó keppa und-
ir fána ólympíusambandsins.
6. desember
Tölva kennir sér skák
Tölvuforritið AlphaGo Zero tókst að
kenna sjálfu sér skák og aðeins fjór-
um klukkustundum síðar gat það
sigrað færustu skáktölvur heims
í leiknum. Fyrri útgáfa forritsins,
sem er hannað af gervingreindar-
fyrritækinu DeepMind sem er í
eigu Alphabet Inc. (móðurfyrir-
tækis Google), hafði áður komist í
fréttirnar á árinu þegar því tókst að
sigra alla bestu spilara heims í kín-
verska borðspilinu Go, sem þykir
flóknari og erfiðari en skák.
7. desember
Jerúsalem verði
höfuðborgin
Donald Trump Bandaríkja-
forseti viðurkenndi Jer-
úsalem sem höfuðborg
Ísraels og tilkynnti að
Bandaríkin muni flytja
sendiráð sitt þangað.
Hann nefndi ekki kröfu
Palestínumanna til borgar-
innar og var ákvörðunin olía
á eldinn í friðarviðræðunum.
Stærstur hluti alþjóðasamfélags-
ins fordæmdi ákvörðunina á alls-
herjarþingi Sameinuðu þjóðanna
síðar í mánuðinum.
18. desember
Bitcoin-bóla
Verðmæti rafmyntarinnar Bitcoin
margfaldaðist á seinni hluta
ársins og vakti mikið umtal.
Margir hagfræðingar spá því að
bólan sé að springa en aðrir vinna
í því að gera hana að raunhæfum
valkosti við opinbera gjaldmiðla.
Stórt skref var tekið í þá átt þegar
sala á framvirkum samningum
með rafmyntina hófst hjá CME
Group, einu stærsta og öflugasta
fyrirtækinu á mörkuðum fyrir ým-
iss konar fjármálaviðskipti og af-
leiðusamninga.