Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Page 37
KYNNING
Skapa atvinnu fyrir fólk
með skerta starfsorku
Múlalundur selur fjölbreyttar skrifstofuvörur sem öll fyrir-tæki þurfa á að halda. Með
því að kaupa þær af okkur eru fyrir-
tæki í leiðinni að styðja við atvinnu-
sköpun fólks með skerta starfsorku og
ná þannig árangri á sviði samfélags-
legrar ábyrgðar án aukavinnu eða
kostnaðar,“ segir Sigurður Viktor Úlf-
arsson, framkvæmdastjóri Múlalund-
ar, Vinnustofu SÍBS, sem starfrækt
er á lóð Reykjalundar í Mosfellsbæ. Á
síðasta ári fengu um 70 einstaklingar
með skerta starfsorku tækifæri til að
spreyta sig á Múlalundi.
„Fyrirtæki geta verslað við okkur í
gegnum vefverslun okkar mulalund-
ur.is, hringt, sent tölvupóst eða kíkt
til okkar. Verslun Múlalundar er opin
öllum alla virka daga. Við sendum
vörurnar um hæl og ef keypt er fyrir
16.000 krónur eða meira sendum
við frítt um allt land. Á höfuðborgar-
svæðinu koma vörur yfirleitt næsta
virka dag,“ segir Sigurður.
Vöruframboð og þjónusta
samanstendur af vörum
framleiddum á Múlalundi og
öðrum vörum sem Múla-
lundur selur til að viðskipta-
vinir geti nálgast sínar
skrifstofuvörur allar á einum
stað.
„Margar framleiðsluvör-
ur Múlalundar eru vörur
sem fólk þekkir, s.s. Egla-
möppurnar, plastvasarnir,
gatapokarnir, stóra vegg-
dagatalið okkar, fjölbreyttar
möppur af ýmsum stærðum
og gerðum og margt fleira. Einnig
sérvinnum við vörur fyrir tiltekna
viðskiptavini, til dæmis Andrésar
Andar-möppurnar sem til eru á
flestum heimilum. Þá framleiðum
við sérhannaðar verkstæðismöppur
fyrir verkstæði og bílaleigur, möppur
hannaðar undir atvinnuskírteini
sjómanna, mat- og vínseðla fyrir
veitingastaði og hótel og margt fleira.
Starfsfólk Múlalundar framleiðir
seðlana frá grunni ásamt áprentun
eða þrykkingu. Ferðaskrifstofur hafa
einnig verið að nýta sér töskumerkin
okkar með merki fyrirtækisins. Þá sker
farangur ferðaskrifstofunnar sig frá
öðrum og viðskiptavinurinn fær merki
fyrirtækisins sem hann notar áfram,
jafnvel í mörg ár.“
Þessu til viðbótar vinnur starfs-
fólk Múlalundar ýmsa handavinnu
fyrir fyrirtæki, s.s. við að strikamerkja
vörur, pakka hlutum, setja í umslög
og margt fleira sem fyrirtæki sjá hag
sinn í að láta starfsfólk Múlalundar
sjá um – og skapa með því verð-
mæt störf.
Starfsemi Múlalundar er óneit-
anlega víðtæk og líklega fjölbreytt-
ari en flestir gera sér grein fyrir:
„Við getum flest,“ segir Sigurður um
þetta og hlær.
Ljóst er að starfsemi Múlalundar,
Vinnustofu SÍBS, er stórmerkileg
og vörur fyrirtækisins koma víða við
sögu í daglegu lífi fólks. Með því að
kaupa vörur frá Múlalundi – vörur
sem fyrirtæki þurfa hvort eð er að
kaupa fyrir sína daglegu starfsemi –
er verið að viðhalda og fjölga störf-
um fyrir fólk með skerta starfsorku í
samfélaginu.
ÞEiR SEM kAupA SkRiFStoFuVöRuR FRÁ MÚLALundi: