Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Page 14
14 Áramótablað 29. desember 2017fréttir - innlendur fréttaannáll
var útgáfa bókar þeirra, Handan
fyrirgefningar, þar sem þau kryfja
málið til mergjar en þar segir Þór-
dís meðal annars að ekki sé nóg
að brotaþolar tjái sig, heldur þurfi
gerendur einnig að rjúfa þögnina
og axla ábyrgð.
7. febrúar
Óánægja lögreglu
með fréttir RÚV af
Birnumálinu
Grímur Grímsson yfirlögreglu-
þjónn, sem fór með rannsókn
á láti Birnu Brjánsdóttur, sagði
við DV að óánægju gætti með-
al þeirra sem að rannsókninni
kæmu, vegna fréttaflutnings RÚV
af málinu kvöldið áður, þar sem
fram kom að dánarorsök Birnu
hefði verið drukknun. Grímur
hafði þennan sama morgun, í við-
tali við RÚV, ekki viljað gefa upp
banamein Birnu, þar sem það
gæti skaðað rannsóknarhagsmuni
málsins.
12. febrúar
Bjargaði börnunum
úr brennandi húsi
Eldur kviknaði í íbúð fjölbýlishúss
í Hraunbænum um 11-leytið
þann 12. febrúar. Unnar Þór Sæ-
mundson á heima í íbúðinni fyrir
ofan eldsupptökin og flúði með
fjölskyldu sinni úr íbúðinni fram
á reykfylltan stigaganginn. Ekki
urðu meiri háttar slys á fólki, en
einn 15 ára drengur brenndist þó
á höndum.
12. febrúar
Tilkynntu andlát lif-
andi konu
Guðný Ásgeirsdóttir, 94 ára íbúi
á dvalarheimili fyrir aldraða, var
fyrir mistök tilkynnt látin til ætt-
ingja sinna. Þegar barnabarn
hennar kom til að kveðja hana
hinsta sinni, opnaði hún augun
og var hin hressasta. Kom í ljós að
nafnaruglingur hafði átt sér stað
þar sem önnur kona með svipað
nafn hefði látist og hringt hefði
verið í ættingja rangrar konu.
21. febrúar
Ásta Guðrún baðst
afsökunar á íbúðar-
kaupaummælum
Ásta Guðrún Helgadóttir, þing-
flokksformaður Pírata, birti af-
sökunarbeiðni á Facebook vegna
orða sem hún lét falla í Silfrinu,
um að hún sæi sér ekki fært að
geta keypt íbúð fyrir þrítugt. Ásta
verður þrítug eftir þrjú ár og laun
hennar eru um 800.000 á mánuði,
eftir skatt. Sagði Ásta að orð
hennar hefðu verið sögð í „hugs-
analeysi“.
26. febrúar
Metsnjókoma
Sökum mikillar snjókomu á suð-
vesturhorninu þurfti lögregla
að biðja fólk um að vera ekki á
ferli að ástæðulausu og halda sig
heima þar til búið væri að ryðja
helstu götur. Mikið var um fasta
bíla sem töfðu snjómokstur og
mældist snjódýpt 51 cm, en metið
í febrúarmánuði er 48 cm frá
1952. Mesta snjódýpt sem mælst
hefur er 55 cm frá 1937.
Mars
3. mars
United Silicon-for-
stjóri handtekinn
DV upplýsir um að
Magnús Garðars-
son, fyrrver-
andi forstjóri og
stærsti hluthafi
United Silicon,
hafi verið hand-
tekinn undir lok
ársins 2016, grun-
aður um að hafa
með vítaverðum akstri
valdið umferðarslysi á Reykjanes-
braut. Magnús þverneitaði fyrir
handtökuna í samtali við blaðið.
3. mars
Gjaldþrot Brúneggja
Eigendur Brúneggja ehf. óska eftir
að félagið sé tekið til gjaldþrota-
skipta. Öllu starfsfólki fyrirtæk-
isins var sagt upp. Ástæðan var
afhjúpun Kastljóss á vítaverðum
rekstri félagsins þann 28. nóv-
ember 2016. Umfjöllunin varð til
þess að öll eggjasala fyrirtækis-
ins stöðvaðist og rekstri þess varð
ekki bjargað.
4. mars
Hríseyjarnauðgarinn
finnst látinn
Eiríkur Fannar Traustason finnst
meðvitundarlaus í klefa sínum í
fangelsinu á Akureyri og er fluttur
þungt haldinn á gjörgæsludeild.
Hann er úrskurðaður látinn tveim
dögum síðar. Eiríkur Fannar af-
plánaði fimm ára fangelsisdóm
sem hann hlaut í Hæstarétti um
mitt ár 2016 fyrir að nauðga frans-
rki stúlku í Hrísey. Þá var ann-
að kynferðisbrot Eiríks Fannars í
ákæruferli.
9. mars
Annþór og Börkur loks
sýknaðir
Annþór Kristján Karlsson og
Börkur Birgisson eru sýknaðir í
Hæstarétti en þeim var gefið að
sök að hafa veitt Sigurði Hólm
Sigurðssyni áverka sem leiddu til
dauða hans í maí 2012. Hæsti-
réttur staðfesti þar með niður-
stöðu Héraðsdóms Suðurlands
frá því í fyrra.
11. mars
Svala fulltrúi Íslands í
Eurovision
Svala Björgvinsdóttir vann ör-
uggan sigur í undankeppninni
fyrir Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva. Lag hennar,
Paper, hlaut flest atkvæði í einvígi
gegn senuþjófinum Daða Frey
Péturssyni sem flutti lagið Is This
Love.
12. mars
Gjaldeyrishöft
afnumin
Bjarni Benediktsson for-
sætisráðherra greinir frá á
blaðamannafundi að fjár-
magnshöft verði afnumin á
einstaklinga, fyrirtæki og lífeyr-
issjóði.
13. mars
Magnús handtekinn
vegna heimilisofbeld-
is í Texas
Íslenskur karlmaður á fertugs-
aldri, fyrrverandi forstjóri og
þekktur maður í heimi viðskipta á
Íslandi, var á fimmtudag handtek-
inn af lögreglunni Austin í Texas,
fyrir að beita fjölskyldumeðlim
ofbeldi.
Lögregla handtók manninn
um miðja nótt, klukkan 02.15 að
staðartíma. Var hann færður á
lögreglustöð og skoðaður þar af
heilbrigðisstarfsmanni. Meint
brot hans voru færð til bókar
klukkan 03.32, samkvæmt upp-
lýsingum sem DV bárust frá lög-
reglunni í Austin.
Hann var fluttur í Travis
County Jail í Texas og var í haldi
þar til síðdegis næsta dag.
Manninum var sleppt klukkan
16.47 á föstudag. Honum var gert
að greiða sex þúsund dollara í
tryggingarfé, eða um 667 þúsund
krónur, en sætir að líkindum far-
banni. Hann getur þó óskað eftir
leyfi til að ferðast.
Maðurinn hefur ekki hlotið
refsidóm, svo DV sé kunnugt um.
14. mars
Ragnar Þór nýr
formaður VR
Ragnar Þór Ingólfsson hefur
óvænt betur í kosningum gegn
sitjandi formanni VR, Ólafíu B.
Rafnsdóttur. Ragnar Þór hlaut
tæp 63% greiddra atkvæði en
Ólafía 37.
27. mars
HB Grandi lokar á
Akranesi
HB Grandi ákveður að láta af
botnfiskvinnslu á Akranesi.
86 starfsmenn missa vinnuna,
meirihlutinn konur.
28. mars
Mútur bornar á
Sigmund Davíð
„Orðalagið var með ýmsum hætti
en ekki hægt að skilja það öðru-
vísi en svo að miðað við þá hags-
muni sem þarna væru undir þá
gætu menn vel hugsað sér að sjá
af örlítilli prósentu til að liðka fyr-
ir samningum og sú litla prósenta
væri umtalsverð upphæð,“
segir Sigmundur Davíð
í samtali við DV og
tekur þar með af
öll tvímæli um að
einstaklingar á
vegum vogunar-
sjóða hafi boðið
honum mútur fyr-
ir hagfellda niður-
stöðu í viðræðum við
íslensk stjórnvöld. Áður
hafði Sigmundur Davíð gefið slíkt
í skyn í útvarpsviðtali á Bylgjunni.
29. mars
Sláandi niðurstaða
rannsóknarnefndar
Rannsókarnefnd Alþingis kynn-
ir skýrslu sína þar sem nefndin
kemst að þeirri niðurstöðu að
kaup þýska bankans Hauck &
Aufhäuser á 45,8% hlut í Búnað-
arbanka Íslands af íslenska ríkinu
í janúar 2003 hafi verið til mála-
mynda. Margir nafntogaðir Ís-
lendingar komu að fléttunni en
lykilmennirnir voru Ólafur Ólafs-
son, fyrrverandi stjórnarformaður
Eglu, Guðmundur Hjaltason, fyrr-
verandi framkvæmdastjóri sama
félags, Sigurður Einarsson og
Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri
og aðstoðarforstjóri Kaupþings á
þeim tíma.
Apríl
3. apríl
Pírati á stúdenta-
görðunum
Jón Þór Ólafsson, þingmaður
Pírata, var harðlega gagnrýndur
fyrir að búa á stúdentagörðunum
FS þrátt fyrir að vera með 1.300
þúsund krónur í mánaðarlaun.
Jón Þór sagði að það væri hins
vegar konan hans sem hefði feng-
ið íbúðina úthlutaða þar sem hún
stundar nám við Háskóla
Íslands. Að fá íbúð-
ina væri hennar
réttur og óeðli-
legt ef þing-
mennska hans
myndi skerða
þau réttindi. Í
kjölfar frétta-
flutnings lýsti
Jón Þór því yfir
að fjölskyldan myndi
flytja af görðunum eins fljótt og
mögulegt er til að rýma fyrir fólki
sem ekki væri í jafn góðri stöðu
og þau.
3. apríl
Stunginn í
bakið á Metro
Starfsfólki hamborgaraveitinga-
staðsins Metro var brugðið þegar
maður var stunginn í bakið í dyra-
gættinni klukkan hálf átta um
kvöld. Maðurinn sem varð fyrir
árásinni snæddi á staðnum með
unnustu sinni og tveimur stjúp-
börnum. Eftir máltíðina brá hann
sér út fyrir til að reykja en þá kom
til orðaskipta milli hans og tveggja
drengja á tvítugsaldri sem hann
þekkti ekkert. Annar drengjanna
stakk manninn í bakið og hlupu
þeir síðan á brott. Hringt var á
neyðarlínuna og drengirnir voru
handsamaðir um klukkutíma síð-
ar. Áverkinn var lífshættulegur en
fórnarlambið komst á bataveg.
7. apríl
Dæmdar fyrir að
reyna að kúga
forsætisráðherra
Systurnar Hlín Einarsdóttir og
Malín Brand voru dæmdar fyrir
að reyna að kúga fé af Sigmundi
Davíð Gunnlaugssyni, þáverandi
forsætisráðherra. Einnig voru
þær dæmdar fyrir að kúga
fé af Helga Jean Claes-
sen, ritstjóra vefrits-
ins menn.is. Systurn-
ar voru handteknar í
júní árið 2015 eftir að
hafa sent Sigmundi
bréf og krafist þess að
hann afhenti stóra pen-
ingaupphæð á ákveðnum
tíma í Vallahverfinu í Hafnarfirði.
Systurnar fengu tólf ára fangelsis-
dóm, þar af níu mánuði skilorðs-
bundna. Malín ákvað síðar að
áfrýja dómnum til Hæstaréttar.
10. apríl
„Ekki gefast upp“
veldur usla
Skiptar skoðanir voru á auglýs-
ingu Íslandsbanka sem birtist á
forsíðu Fréttablaðsins. Þar stóð:
„Ekki gefast upp. Það er hægt.
Ef þú hefur plan.“ Húsnæðismál
voru mikið í deiglunni á árinu
og sérstaklega staða ungs fólks
sem á erfitt með að koma þaki
yfir höfuðið. Með auglýsingunni
vildi bankinn vekja athygli á að
þetta væri vel leysanlegt vanda-
mál ef skipulagið væri í lagi hjá
fólki. Mikael Torfason og Gunnar
Smári Egilsson voru meðal þeirra
sem gagnrýndu bankann fyrir að
skella skömminni á almenning.
Andrés Jónsson almannatengill
var hins vegar meðal þeirra sem
fagnaði skilaboðum bankans.
11. apríl
Gunnar Smári stofnar
Sósíalistaflokk
Gunnar Smári Egilsson hætti sem
útgefandi Fréttatímans í byrjun
apríl og stofnaði nýtt stjórnmálaafl
viku síðar, Sósíalistaflokk Íslands.
Gunnar taldi hina hefðbundnu
vinstri flokka á Íslandi, Samfylk-
ingu og Vinstri græna, komna
af sporinu í stéttabaráttunni
og einungis beita sér fyrir
mannréttindamálum og
gæluverkefnum. Flokk-
urinn var mjög umtalaður
allt árið en fór ekki hátt í
skoðanakönnunum. Þegar
ljóst var að alþingiskosn-
ingar yrðu haldnar í haust
ákvað Gunnar að flokkurinn yrði
ekki í framboði. Hann hefur nú
sagt að Sósíalistaflokkurinn muni
bjóða fram í fyrsta skipti í sveitar-
stjórnarkosningunum 2018.