Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Qupperneq 16
16 Áramótablað 29. desember 2017fréttir - innlendur fréttaannáll
18. apríl
Eldur í kísilveri
United Silicon
Kísilver United Silicon í Helgu-
vík var mikið í fréttum ársins 2017
og voru þær sjaldnast jákvæð-
ar. Klukkan fjögur aðfaranótt 18.
apríl kviknaði eldur í ofnhúsi kís-
ilversins. Þegar slökkvilið kom
á staðinn logaði eldur á þremur
hæðum byggingarinnar og að-
stæður erfiðar til slökkvistarfs
vegna þess hversu nálægt ofnin-
um sjálfum bálið var. Einungis var
hægt að nota duft í fyrstu vegna
hás rafstraums á svæðinu og illa
gekk að ráða niðurlögum elds-
ins. Síðar var straumurinn tekinn
af og hægt var að nota vatn. Loks
tókst að ráða niðurlögum eldsins
á sjöunda tímanum um morgun-
inn. Þetta var annar eldsvoðinn
í kísilverinu í mánuðinum en 4.
apríl hafði kviknaði í vörubrettum
en starfsmönnum tókst þá sjálf-
um að slökkva eldinn.
25. apríl
Klósett á 20 milljónir
Ákveðið var að byggja 22 fermetra
klósettskála í Vatnajökulsþjóð-
garði og kostnaðarmatið á hon-
um var 20 milljónir. Í skálanum
myndu vera tvö klósett, sturta,
þurrsalernisbúnaður til notk-
unar yfir vetrartímann og stór
pallur. Mörgum Austfirðingum
fannst þetta mikið bruðl og sagði
einn í viðtali við DV: „Við erum
ekki að tala um pýramídana í Eg-
yptalandi.“ Þórir Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri þjóðgarðsins, sagði
að taka yrði með í reikninginn
að mun dýrara sé að byggja langt
uppi á hálendi en í byggð.
26. apríl
Hagar kaupa Olís
Hagar keyptu allt hlutafé í Olís en
áður hafði verslunarrisinn keypt
lyfjakeðjuna Lyfju, en þau
kaup voru síðar dregin
til baka af Samkeppn-
iseftirlitinu. Heildar-
virði Olís var metið á
rúma fimmtán millj-
arða en tæpir sex millj-
arðar voru vaxtarber-
andi skuldir. Kaupverðið
voru því rúmir níu milljarð-
ar. Ljóst er að kaupin voru við-
bragð við komu Costco sem bæði
selur bensín og lyf. Vegna þessa
miklu fjárfestinga Haga á árinu
var ákveðið að greiða hluthöfum
engan arð á árinu.
29. apríl
Kajakræðari lést í
Þjórsá
Neyðarkall barst frá tveimur
kajakræðurum við ósa Þjórs-
ár klukkan rúmlega níu kvöldið
29. apríl. Þeir voru í vandræð-
um í briminu og voru tvær þyrl-
ur Landhelgisgæslunnar sendar
á svæðið auk björgunarsveitar-
manna, lögreglu og sjúkraliðs.
Þegar komið var á staðinn voru
ræðararnir á hvolfi austan við
ósinn. Ölduhæð var mikil og að-
stæður erfiðar til björgunar. Um
klukkan ellefu tókst að koma
þeim úr vatninu og voru þeir
færðir á sjúkrahús. Næsta dag var
annar þeirra úrskurðaður látinn.
Maí
4. maí
Mannréttindadóm-
stóllinn dæmir DV í vil
Mannréttindadómstóll Evrópu
dæmdi fyrrverandi ritstjóra og
fréttastjóra DV í vil vegna um-
fjöllunar þeirra á rannsókn lög-
reglu á fyrirtækinu Sigurplasti
árið 2012. Reynir Traustason
ritstjóri, Jón Trausti Reynisson
ritstjóri og Ingi Freyr Vilhjálms-
son fréttastjóri höfðu áður verið
dæmdir í Hæstarétti til að greiða
Jóni Snorra Snorrasyni, stjórnar-
formanni Sigurplasts og lektors í
viðskiptafræði við HÍ miskabæt-
ur, auk þess sem tvenn ummæli
voru dæmd dauð og ómerk í frétt
þeirra. Mannréttindadómstóllinn
komst hins vegar að þeirri niður-
stöðu að íslenska ríkið hefði brot-
ið 10. grein mannréttindasátt-
mála Evrópu um tjáningarfrelsi.
4. maí
Met í komu
skemmtiferðaskipa
Áætlað var að 155
skemmtiferðaskip
legðust við bryggj-
ur Sundahafn-
ar næstu fimm
mánuðina, en
árið á undan
voru þau 113.
Samtals var búist
við 129.000 farþeg-
um úr þessum 155 skip-
um, flestir þeirra Þjóðverjar. Þá
var áætlað að 2,2 milljónir ferða-
manna kæmu til landsins með
flugi, flestir frá Bandaríkjunum.
4. maí
Magnús sakar lög-
reglu um upplýs-
ingaleka
Magnús Ólafur Garðarson, fyrr-
verandi forstjóri og stærsti hlut-
hafi United Silicon, ásakaði lög-
reglu um upplýsingaleka vegna
fréttar í DV um handtöku hans
vegna vítaverðs aksturs á 20 millj-
óna króna Teslu-bifreið, sem olli
umferðarslysi á Reykjanesbraut í
desember í fyrra. Bíllinn var gerð-
ur upptækur. Í samtali við DV
neitaði Magnús því að hann hefði
verið handtekinn, heldur sagðist
einungis hafa beðið lögregluna
um „far í vinnuna“.
11. maí
HB Grandi segir upp
86 starfsmönnum
Botnfisksvinnsludeild HB
Granda á Akranesi sagði upp 86
starfsmönnum en fyrirhugað var
að flytja starfsemina til Reykja-
víkur. Uppsagnirnar áttu að taka
gildi 1.september, en samtals
starfa um 270 manns hjá fyrirtæk-
inu og blóðtakan því mikil.
15. maí
Nauðgunarlímmiðar
gagnrýndir
Söngkonan Þórunn Anton-
ía Magnúsdóttir, sem starfaði að
tónlistarhátíðinni Secret Solstice
í sumar, stakk upp á því að setja
límmiða yfir drykkjarglös gesta
hátíðarinnar, til varnar því að
óminnislyfjum væri blandað út í
drykki grunlausra, líkt og þekk-
ist allt of víða í skemmtanalífinu.
Þórunn vildi með þessu vekja
umtal, skapa samstöðu og auka
öryggiskennd en fékk þó held-
ur bágt fyrir á samfélagsmiðlum,
meðal annars frá femínistanum
Hildi Lilliendal Viggósdóttur, og
alþingismanninum Hildi Sverr-
isdóttur, sem vildu meina að með
þessu væri verið að varpa ábyrgð-
inni á kynferðisbrotum á brota-
þolann, í stað gerandans.
16. maí
Umdeildum fyrirlesara
byrlað eitur á Íslandi?
Robert Spencer, sem er ritstjóri
Jihad Watch og hélt hér umdeild-
an fyrirlestur um Íslam og fram-
tíð evrópskrar menningar, sagði á
Facebook-síðu sinni að sér hefði
verið byrlað eitur á veitingastað
í Reykjavík. Sagði hann eitur-
byrlarann vera ungan íslensk-
an karlmann sem sé pólitískur
andstæðingur sinn. Eftir að þeir
hafi heilsast á veitingastaðnum
og drengurinn sagt honum að
fara fjandans til, sagðist Robert
hafa liðið mjög illa og leitað á
Landspítalann. Honum hafi liðið
illa í marga daga á eftir og kært
málið til lögreglu.
17. maí
Versló afbókar Gillz
vegna femínísks
þrýstings
Nemendafélag Verslunarskóla
Íslands ákvað að afbóka Egil
„Gillzenegger“ Einarsson sem
skemmtikraft á lokaballi skólans.
Áttan var fengin í hans stað. Í til-
kynningu formanns Málfundafé-
lags skólans, Viktors Finnssonar,
segir að forsvarsmenn félagsins
hafi sýnt ákveðið dómgreindar-
leysi við bókun Egils og í framtíð-
inni muni félagið ráðfæra sig við
FFVÍ, sem er femínistafélag skól-
ans. Egill var ekki sáttur við þessi
málalok, sagðist „bully-aður“ í
málinu, en myndi senda nem-
endafélaginu reikning engu að
síður.
18. maí
Mannréttindadóm-
stóllinn dæmir Jóni
Ásgeiri í vil
Jón Ásgeir Jóhanns-
son fjárfestir og
Tryggvi Jóns-
son, sem
dæmdir
voru í skil-
orðsbundið
fangelsi fyrir
fjórum árum
í Hæstarétti
fyrir skattalaga-
brot , fengu dómnum
snúið fyrir Mannréttindadóm-
stól Evrópu. Var íslenska ríkið sagt
brjóta gegn banni við endurtek-
inni málsmeðferð. Þarf íslenska
ríkið að greiða þeim Jóni Ásgeiri
og Tryggva 5000 evrur hvorum
auk málskostnaðar.
18. maí
Sérsveitin í eftirför á
Grensás
Sérsveitin var kölluð til þegar
slagsmál brutust út á umferð-
arljósunum á Grensásvegi. Þrír
menn stigu út úr bíl og réðust
að manni sem var í bílnum við
hliðina. Einn árásarmannanna
var vopnaður kúbeini er hann
sló til fórnarlamdsins, sem fékk
högg á andlitið og stökk alblóð-
ugur upp í bíl til að flýja menn-
ina. Árásarmennirnir eltu hann
á miklum hraða. Lögregla óskaði
eftir aðstoð sérsveitarinnar sem
veitti þeim eftirför í sex bílum, en
þrettán sérsveitarmenn tóku þátt
í aðgerðunum. Árásarmennirnir
voru handteknir, en aðeins einn
þeirra var kærður.
19. maí
Neytendasamtökin
lýstu vantrausti á for-
manninn
Á stjórnarfundi Neytendasam-
takanna var samþykkt að lýsa yfir
vantrausti á formann samtak-
anna, Ólaf Arnarson, sem hafði
aðeins verið í embætti frá því í
október. Var Ólafur sagður hafa
tekið ákvarðanir sem bera hefði
átt undir stjórn, þar sem þær
væru skuldbindandi fyrir samtök-
in. Því ríkti ekki lengur trúnaður
milli stjórnar og formanns.
23. maí
Costco opnað
í Garðabæ
Bandaríski verlsunarrisinn
Costco opnaði verslun í Kaup-
túni í Garðabæ. Mikil eftirvænting
hefur ríkt vegna opnunarinnar,
þar sem verslunin býður lægra
verð en áður hefur þekkst á Ís-
landi. Blaðamaður DV bjóst því
við langri röð árla morguns,
líkt og þekkst hefur við opn-
anir annarra búða hér-
lendis, en slík varð þó ekki
raunin. Mesta fjölmennið
var í röðum fjölmiðlafólks
og björgunarsveitarmanna
fyrst um sinn og mátti heyra
á tali starfsmanna að búist
hafði verið við fleira fólki.
24. maí
Sigmundur Davíð stofn-
ar Framfarafélagið
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
þingmaður Framsóknarflokksins,
boðar stofnun hugmyndasmiðju
sem koma á Framsóknarflokkn-
um til aðstoðar. Hann sagði félag-
ið ekki vísi að nýjum stjórnamála-
flokki, heldur ætti það að styðja
við grasrótina í Framsóknar-
flokknum.
26. maí
Kom undir í Atlavík og
leitar nú föður síns
Borghildur Dóra Björnsdóttir hef-
ur lengi leitað föður síns. Hún
kom undir í Atlavík árið 1983, á
útihátíðinni margfrægu. Upplýs-
ingar sem hún hefur frá móður
sinni eru ekki fullkomlega áreið-
anlegar og því greip Dóra til þess
ráðs að setja inn færslu á Face-
book hvar hún óskaði eftir ljós-
myndum frá útihátíðinni í von
um að það varpaði ljósi á málið.
Júní
1. júní
Jón Þór Pírati sagði
„fokking“ í ræðupúlti
Alþingis
Jón Þór Ólafsson, þingmaður
Pírata, missti stjórn á skapi sínu
í pontu Alþingis með þeim af-
leiðingum að hann bölsótaðist á
engilsaxnesku. Rætt var um tillög-
ur Sigríðar Á. Andersen dóms-
málaráðherra vegna skipan dóm-
ara í Landsrétt. Sagði hann ferlið
allt ófaglegt og það þyrfti að rann-
saka. „Við þurfum fokking tíma