Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Page 18
18 Áramótablað 29. desember 2017fréttir - innlendur fréttaannáll
til að vinna þetta mál,“ bætti Jón
við reiður. En sá síðan að sér og
baðst velvirðingar á að hafa misst
úr úr sér „þetta orð“. Sigríður hefði
betur hlustað á Jón Þór, þar sem
Hæstiréttur komst að þeirri niður-
stöðu í desember að ráðherrann
hefði brotið lög við dómaraskip-
an sína.
1. júní
Dæmdur nauðgari á
fjölum Þjóðleikhússins
Jozef Pali, albanskur ríkisborgari
og hælisleitandi sem lék í leik-
verkinu Húsið í Þjóðleikhúsinu,
var dæmdur í tveggja ára fang-
elsi fyrir nauðgun í febrúar. Hús-
ið var frumsýnt 10. mars og var
Josef enn í leikhópnum þann 1.
júní. Ari Matthíasson þjóðleik-
hússtjóri kom af fjöllum þegar DV
hafði samband og var auðheyri-
lega brugðið við tíðindin. Ari brást
strax við og kom Josef ekki fram
eftir þetta.
2. júní
Grunur um vændi og
mansal í Bólstaðar-
hlíðarblokk
Lögreglan var með umfangsmikla
aðgerð í fjölbýlishúsi í Bólstaðar-
hlíð þar sem þrennt var hand-
tekið. Var málið rannsakað sem
mansals- og vændismál, en einnig
fannst eitthvað af fíkniefnum í
íbúðinni. „Ég held að íslenskt fjöl-
býlishús, þar sem allir þekkja alla,
sé ekki gáfulegasti vettvangurinn
fyrir undirheimastarfsemi sem
þessa,“ sagði einn íbúi hússins.
3. júní
Costco-gíraffinn seldur
Sumar vörur í Costco fengu
meiri athygli en aðrar. Frægar að
endemum eru stórar styttur af fíl
og gíraffa, búnar til úr málmi, sem
kostuðu um hálfa milljón króna.
Það vakti því nokkra athygli þegar
Costco-gíraffinn seldist, en hann
keypti Gunnar Páll Tryggvason.
Gíraffinn stóð í garði Gunnars og
vakti svo mikla athygli að heilu
rútufarmarnir af fólki flykktust
að til að berja gíraffann augum.
Þá má geta þess að gíraffinn var
skreyttur fallegum jólaljósum í
desember og prýddi jólakort fjöl-
skyldunnar á Facebook.
5. júní
Brotist inn hjá Bubba
Bubbi Morthens greindi frá því á
Twitter að brotist hefði verið inn
til sín í Kjósinni. Bubbi var ekki
heima, en hurðir voru eyðilagðar
og skartgripum stolið. Sagði hann
lögreglu hafa gómað þjófinn, en
saknaði enn dýrmætra muna.
„Kauði náðist, flest allt kom til
baka, ógæfa, vona hann finni líf-
ið,“ sagði Bubbi einnig á Twitter.
6. júní
Stjórnandi Costco-hóps
á Facebook sakaður um
einræðistilburði
Í kjölfar komu Costco var stofnað-
ur Keypt í Costco-hópur á Face-
book, sem telur nú tæplega hund-
rað þúsund manns. Stjórnandi
hópsins, Sólveig Fjólmundsdótt-
ir, var þó fljótlega sökuð um vald-
níðslu og einræðistilburði, en hún
þótti henda út færslum meðlima
af miklum móð, í anda ritskoðun-
ar. Flestar færslurnar voru á léttu
nótunum, meðal annars ljóð, en
slíkt virtist ekki hljóta náð fyrir
augum Sólveigar.
6. júní
Auglýsing Reykjavíkur-
borgar innihélt þrettán
innsláttarvillur
Reykjavíkurborg óskaði eftir ráð-
gjafa á sviði máls og læsis með aug-
lýsingu á job.is og atvinnuvef vísis.
Hið fréttnæma er að auglýsingin
innihélt 13 innsláttarvillur, meðal
annars var auglýst eftir: „„ráðgjafn
til að efla læsibarna“. Ekki var um
snilldarlega kaldhæðna auglýsinga-
herferð að ræða, því auglýsingin var
leiðrétt stuttu síðar.
7. júní
Manndráp í Mosfellsdal
Sex voru handteknir eftir að hafa
veist að manni í Mosfellsdal. Var
málið sagt tengjast handrukk-
un en í tilkynningu lögreglu kom
fram að rannsókn málsins væri
umfangsmikil. Hinn látni hét Arn-
ar Jónsson Aspar.
11. júní
Katrín Jakobsdóttir
ósátt við vopnaburð
lögreglu á Colour Run
Katrín Jakobsdóttir, formaður
Vinstri grænna, gagnrýndi vopna-
burð lögreglu á Colour Run-
hlaupinu í miðborginni. Hún
sagðist ósátt við að almenning-
ur hefði ekki fengið að vita um
það fyrirfram og ætlaði að taka
málið upp á fundi Þjóðaröryggis-
ráðs Íslands. Þessi aukni við-
búnaður lögreglu kom í kjölfar
hryðjuverkaárásanna í London og
Manchester skömmu áður.
13. júní
Hetjudáð héraðslög-
reglumanns í Ölfusá
Kolbeinn Helgi Kristjánsson, hér-
aðslögreglumaður á Suðurlandi,
vann mikla hetjudáð þegar hann
bjargaði manni er hugðist svipta
sig lífi, í Ölfusá. Áin sú er ein sú
straumharðasta og hættulegasta á
landinu og hafa margar sálir ekki
átt afturkvæmt þaðan. Guðrún
Eva Mínervudóttir, rithöfundur
og ljóðskáld, er systir Kolbeins.
Hún skrifaði um bróður sinn á
Facebook: „Bróðir minn hefur
alltaf verið hetja, en nú er það op-
inbert!“
15. júní
Barnaníðingurinn
Robert Downey fær
uppreist æru
Robert Down-
ey, áður Róbert
Árni Hreiðars-
son, fékk lög-
mannsréttindi
sín að nýju eftir
að Hæstiréttur
staðfesti úrskurð
Héraðsdóms
Reykjaness, þar sem
svipting réttinda hans til
að starfa sem lögmaður var felld
niður. Róbert var dæmdur fyrir
barnaníð árið 2008 fyrir brot gegn
fjórum stúlkum. Í dómnum sagði
að Róbert hefði ríka hagsmuni
til að fá aftur réttindin, þar sem
hann ætlaði að sinna sams konar
störfum að nýju. Þar sagði einnig:
„Þá skipti það hann miklu máli að
geta skilið við þann kafla í lífi sínu
sem leitt hafi til dómsins á árinu
2008.“
16. júní
Guðni forseti miður
sín vegna uppreist
æru-málsins
Guðni Th. Jóhannesson, for-
seti Íslands, kvaðst miður sín
vegna uppreist æru-málsins,
þegar Robert Downey hlaut lög-
mannsréttindi sín að nýju, þar
sem hann hlaut uppreist æru hjá
forsetanum. Guðni útskýrði þó
að ákvörðunin væri ekki hans,
heldur dómsmálaráðuneytisins.
Undirritun forseta væri einfald-
lega formlegs eðlis og arfur frá
liðinni tíð. Mælti Guðni með að
lögum yrði breytt, ef hann þyrfti
að taka ákvarðanir um uppreist
æru, annars væri þetta staða sem
hann vildi ekki vera settur í.
21. júní
Gagnrýndi Stígamót
fyrir andlegt ofbeldi
og einelti
Fráfarandi fram-
kvæmdastjóri Samtak-
anna 78, Helga Baldvins-
dóttir Bjargardóttir,
sagðist hafa orðið fyrir
andlegu ofbeldi og einelti
af hálfu yfirmanna Stíga-
móta, meðan hún starf-
aði þar. Hún gagnrýndi einnig
ófaglega starfsemi samtakanna,
til dæmis að henni hafi verið tjáð
nöfn fjölda þjóðþekktra manna
sem sakaðir voru um að brjóta
kynferðislega á þeim sem leitað
höfðu til Stígamóta. Helga sagðist
ekki vera að reyna að koma höggi
á samtökin, margt gott starf væri
þar unnið, en engin stofnun væri
hafin yfir gagnrýni.
23. júní
Hjalti Úrsus segir
son sinn sak-
lausan af morð-
tilraun
Hjalti Úrsus Árnason,
faðir Árna Gils, sem
ákærður var fyrir morðtil-
raun og sat í fjóra mánuði í
gæsluvarðhaldi, segir alvarlegar
brotalamir á rannsókn málsins.
Hann viðurkennir að sonur sinn
hafi ekki hagað sér eins og engill,
en sé þó ekki sekur um morðtil-
raun. Hann segir að ekki sé allt
sem sýnist í málinu og ber því við
að um nýtt Geirfinnsmál sé að
ræða, slík séu vinnubrögð lög-
reglu.
24. júní
Fjallið ber til baka
fregnir af barsmíðum í
garð barnsmóður
Aflraunamaðurinn Hafþór Júl-
íus Björnsson, einnig þekktur
sem Fjallið, hafnar því að vera
ofbeldismaður sem beitt hafi
barnsmóður sína barsmíðum.
Thelma Björk Steimann, sem er
barnsmóðir Hafþórs, bar því við
í Fréttablaðinu að Hafþór hefði
ítrekað beitt sig ofbeldi meðan á
sambandi þeirra stóð og kærði
Hafþór til lögreglu. Hafþór neit-
aði sök og sagði Thelmu hafa beitt
sig bæði líkamlegu og andlegu
ofbeldi.
Júlí
2. júlí
Ferðamenn slátruðu
lambi með hníf
Tveir ferðamenn voru hand-
teknir á Austurlandi og færð-
ir á lögreglustöðina á Fáskrúðs-
firði klukkan níu um kvöldið.
Mennirnir, sem voru banda-
rískir ríkisborgarar, ættaðir frá
Afganistan, höfðu tekið lamb og
skorið það á háls en lambið var í
eigu Hreins Péturssonar, bónda
á Ósi í Breiðdal. Dóttir bónda af
næsta bæ kom að mönnunum þar
sem þeir voru að skera lambið. Í
samtali við DV sagði Hreinn það
hafa verið gert á frekar áhuga-
mannalegan hátt. Mennirnir voru
kærðir fyrir eignaspjöll og brot á
dýraverndunarlögum og var mál-
ið afgreitt með sektargreiðslu á
staðnum.
5. júlí
Bónusgreiðslur
LBI valda reiði
Fjórir stjórnendur LBI, sem held-
ur utan um eignir gamla Lands-
bankans, skiptu með sér 370
milljóna króna bónusgreiðslum
vegna skuldauppgjörs bankans
níu árum á undan áætlun. Hver
þeirra fékk um 90 milljóna króna
greiðslu. Var þetta réttlætt á þann
hátt að það þjónaði hagsmun-
um bankans að flýta greiðslunum
til að losna við fjármagnskostn-
að. Mörgum blöskraði þetta, þar
á meðal Ragnari Þór Ingólfssyni,
formanni VR. Hann sagði: „Manni
verður hreinlega óglatt við að lesa
svona fréttir.“
7. júlí
Tveir ferðamenn hröp-
uðu til dauða
Erlendur ferðamaður féll fram af
hamrabrún í Hljóðaklettum í Jök-
ulsárgljúfri um klukkan þrjú síð-
degis. Fallið var um fimmtán til
tuttugu metra hátt og var mað-
urinn úrskurðaður látinn á vett-
vangi. Þyrla var köll-
uð til en snúið við
þegar ljóst var að
maðurinn var
látinn. Þá lést
erlend kona á
fjallinu Kirkju-
felli á norðan-
verðu Snæfells-
nesi. Hún var