Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Blaðsíða 24
24 Áramótablað 29. desember 2017fréttir - innlendur fréttaannáll
mældist fylgi Vinstri grænna tæp-
lega 29 prósent og myndu þeir
samkvæmt því fá 20 þingmenn.
Fylgi flokksins dalaði smám
saman í könnunum út mánuðinn
eftir því sem áróðurinn og gagn-
rýnin á flokkinn harðnaði.
6. október
DV afhjúpar níðinga
DV gerði tilraun með því að búa
til platprófíl unglingsstúlku á
Facebook til að athuga hvort
barnaníðingar myndu hafa sam-
skipti við hana að fyrra bragði og
reyna að tæla hana. Reglan var sú
að tala ekki við þá að fyrra bragði.
Fjölmargir föl-
uðust eftir
kynnum við
stúlkuna
og hittu
blaða-
menn tvo
þeirra á
fyrirfram
ákveðnum
stað og var þeim
þá gert kunnugt um hvað væri á
seyði. DV birti hluta af netsam-
skiptum við þá, myndir og samtöl
á fundunum í stórri frétt í helgar-
blaðinu. Þetta var gert til þess að
fólk áttaði sig á því í hversu mik-
illi hættu börn og unglingar eru
þegar þeir samþykkja vinabeiðnir
frá ókunnugum á netinu.
11. október
Sagður fullur á
framboðsfundi
Pétur Einarsson, annar maður á
lista Flokks fólksins í Norðaustur-
kjördæmi, var sagður hafa angað
af áfengi og hagað sér sérkenni-
lega á sameiginlegum framboðs-
fundi á vegum Hugins, skólafé-
lags Menntaskólans á Akureyri.
Upptaka af fundinum fór hátt á
netinu og þar sást Pétur svara
flestum spurningum á einkenni-
legan hátt, hvort sem þeim væri
beint að honum eða ekki. Inga
Sæland, formaður flokksins, sagði
hann ekki hafa verið drukkinn en
með einhvern „svartan húmor“
sem hún kunni ekki við. Um-
mæli Steingríms J. Sigfússonar hjá
Vinstri grænum á fundinum um
að sjálfstæðismenn væru „fatlað-
ir“ og „gætu ekki aflað“ tekna ollu
líka miklu fjaðrafoki.
13. október
Matarsóun og slæm
meðferð starfsfólks
hjá Costco
Costco hefur valdið straumhvörf-
um á íslenskum smásölumark-
aði eftir að búðinvar opnuð í maí
og vilja margir meina til mikill-
ar hagsældar fyrir íslensk heim-
ili. DV gerði stóra úttekt á mat-
arsóun og starfsmannamálum
fyrirtækisins sem virðist í miklum
ólestri. Rætt var við marga fyrrver-
andi starfsmenn sem fæstir vildu
koma fram undir nafni vegna eig-
in atvinnumöguleika í framtíð-
inni. Sumir sögðu frá því að þeim
blöskraði hvernig mat væri sóað og
aðrir lýstu því hvernig breskir yfir-
menn kæmu hrottalega fram við
starfsfólk undir gríðarlegu álagi og
segðu upp fólki fyrir minnstu sakir.
13. október
Lögbann á Stundina
Sýslumaður bankaði upp á hjá
Stundinni og krafðist þess að
fréttaflutningur af málefnum
Bjarna Benediktssonar, þáver-
andi forsætisráðherra, úr gögnum
Glitnis yrði hætt. Með sýslumanni
í för var lögfræðingur Glitnis. Ekki
var þó hægt að uppfylla allar kröf-
ur lögbannsins af tæknilegum
ástæðum. Málið olli mikilli úlfúð í
samfélaginu og Bjarni sagðist ekki
hafa beitt sér fyrir því, enda kæmi
það hvorki honum sjálfum né
Sjálfstæðisflokknum vel að banna
fréttaflutning.
18. október
Lögbann á Loga
Logi Bergmann Eiðs-
son, fréttamaður
365, sagði upp
störfum sínum
og var sama
dag ráðinn hjá
Árvakri, útgáfu-
félagi Morgun-
blaðsins. Átti
hann að taka að sér
dagskrárgerð á útvarps-
stöðinni K100. Í samningi Loga
við 365 var ákvæði um að hann
mætti ekki vinna hjá samkeppn-
isaðila í 24 mánuði eftir uppsögn
samningsins og fór fyrirtækið því
fram á lögbannið. Af tillitssemi
var þó einungis óskað eftir því að
lögbannið gilti til tólf mánaða. Þar
sem Logi hætti fyrirvaralaust fékk
hann ekki greiddan uppsagnar-
frestinn og 365 vildu ekki taka við
honum aftur.
28. október
Kosningar
Kosið var snemma til Alþing-
is vegna stjórnarslita ríkisstjórn-
ar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar
og Bjartrar framtíðar. Sjálfstæð-
islokkurinn fékk mest fylgi en
tapaði engu að síður fimm þing-
mönnum. Vinstri grænir bættu
við sig einu prósentustigi og ein-
um manni. Þótti það nokkurt
áfall fyrir flokkinn sem flaug með
himinskautum fram að því. Sam-
fylkingin bætti við sig fjórum
þingmönnum og Framsóknar-
flokkur hélt sínum átta. Miðflokk-
urinn og Flokkur fólksins voru
taldir sigurvegarar kosninganna
og fengu sjö og fjóra þingmenn.
Viðreisn hékk inni með fjóra
menn eftir formannsskipti og Pí-
aratar töpuðu fjórum. Þá þurrk-
aðist Björt framtíð út af þingi með
einungis rúmt eitt prósent.
Nóvember
1. nóvember
Beit tunguna
úr manni sínum
Karlmaður var fluttur tungulaus á
slysadeild eftir að kona beit hana
úr honum. Var tungan saum-
uð í manninn á spítala en
óvíst var með árangur að-
gerðarinnar.
1. nóvember
Beitti börn sín
ofbeldi
Þriggja bana móðir var dæmd í
tveggja ára fangelsi í Héraðsdómi
Reykjavíkur fyrir að beita börn
sín grófu ofbeldi á árunum 2012
til 2016. Beitti hún andlegum og
líkamlegum refsingum, ógnaði
þeim og sýndi þeim vanvirðandi
háttsemi, yfirgang og ruddalegt
athæfi.
3. nóvember
Þrír létust í
umferðarslysi
Karlmaður, kona og barn létust
eftir að bifreið þeirra fór í sjóinn
við höfnina á Árskógssandi. Fjöl-
skyldan, sem var pólsk, var bú-
sett í Hrísey og var hún á leiðinni
í Hríseyjarferjuna þegar slysið
varð.
6. nóvember
Íslendingar í
Bermúda-leka
Íslendingar eru meðal þeirra sem
nýttu sér skattaskjól samkvæmt
hinum svokölluðu Paradísarskjöl-
um frá Appleby-lögmannsstof-
unni á Bermúda. Nöfn nokkurra
tuga Íslendinga var að finna í
skjölunum, en þó engin nöfn
stjórnmálamanna.
6. nóvember
Nýfætt barn hrifsað úr
höndum móður
Hjónin Arleta og Adam Kil-
ichowska urðu fyrir því áfalli að
stúlkubarn sem Arleta fæddi var
tekið frá henni á fæðingardeild
Landspítalans, að kröfu barna-
verndarnefndar Rangárvalla- og
Vestur-Skaftafellssýslu. Áður hafði
önnur dóttir hjónanna, tveggja og
hálfs árs gömul stúlka, verið tekin
af þeim og sett í fóstur. Í viðtali við
DV viðurkenndu Arleta og Adam
að þau væru ekki fullkomnir for-
eldrar en bæði þau og lögmaður
þeirra, Leifur Runólfsson, töldu
aðgerðir barnaverndarnefndar
alltof harkalegar.
9. nóvember
Hetjudáð við
Hringbraut
Kanadíski uppistandarinn York
Underwood, sem búsettur er á Ís-
landi, vann sannkallaða hetju-
dáð þegar hann blés lífi í tveggja
mánaða ungbarn en móðir barns-
ins kallaði á hjálp hans þar
sem hann var gang-
andi á Hringbraut.
Að sögn Yorks
hreyfði barnið sig
ekki fyrr en hann
hafði hnoðað það
nokkrum sinnum.
14. nóvember
Brynjar hætti
á Facebook
Brynjar Níelsson, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokksins, tók þá
ákvörðun af heilsufarsástæð-
um að hætta á Facebook. Brynjar
hafði farið mikinn á Facebook frá
árinu 2012 og oft verið fjörugar
umræður á Facebook-síðu hans.
16. nóvember
Snorri fékk
milljónir í bætur
Snorri Óskarsson, kenndur við
Betel, fékk dæmdar 6,5 milljón-
ir króna frá Akureyrarbæ. Snorra
var sagt upp störfum sem kennari
við Brekkuskóla í Akureyrarbæ
sumarið 2012 eftir að hafa ver-
ið vikið tímabundið frá störfum
í byrjun árs 2012. Ástæður upp-
sagnarinnar voru ummæli Snorra
um samkynhneigð, en hann skrif-
aði bloggpistla sem Akureyrar-
bær taldi ekki samrýmast starfi
kennarans.
18. nóvember
Þórhalla send burt frá
fjölskyldunni
Frétt DV um Þórhöllu Karlsdóttur,
91 árs konu, vakti mikla athygli.
Hún hafði dvalið á Landspítalan-
um svo vikum skiptir en síðan var
tekin ákvörðun um að senda hana
á Akranes eða Borgarnes, fjarri
ástvinum sínum. Eftir fréttaflutn-
ing DV var tekin ákvörðun um að
senda Þórhöllu á Hrafnistu.
21. nóvember
Ragnar birti mynd af
Áslaugu Örnu
Ragnar Önundarson, fyrrver-
andi bankastjóri, vakti reiði
margra þegar hann birti
mynd af Áslaugu Örnu
Sigurbjörnsdóttur,
þingmanni Sjálfstæðis-
flokksins, og gaf í skyn
að hún byði upp á kyn-
ferðislega áreitni. Ragn-
ar fékk yfir sig holskeflu af
gagnrýni í kjölfarið.
23. nóvember
Geir tapaði í Strassborg
Mannréttindadómstóll Evrópu
úrskurðaði íslenska ríkinu í vil í
Landsdómsmálinu svokallaða,
máli Geirs H. Haarde, fyrrver-
andi forsætisráðherra. Geir kvart-
aði til Mannréttindadómstólsins
þar sem hann taldi að ákæran á
hendur honum hafi verið af póli-
tískum toga, að gallar hafi verið á
málatilbúnaði og að Landsdóm-
ur hafi ekki verið sjálfstæður og
hlutlaus.