Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Blaðsíða 29
Áramótablað 29. desember 2017 fréttir - erlendur fréttaannáll 29
2017: Árið þegar konurnar sögðu frÁ
Þyrilsnælduæði
Fidget Spinner-æði grípur heim-
inn. Þyrilsnældan er upphaflega
hönnuð fyrir þá sem eru hand-
óðir eða ofvirkir til að fikta í og
halda einbeitingu, en í apríl verð-
ur sprenging í vinsældum hennar
sem leikfangs. Öll börn og ömm-
ur þeirra eignast snældu.
Maí
7. maí
Macron verður forseti
Hinn 39 ára gamli Emanuel
Macron varð yngsti forseti franska
lýðveldisins, eftir að hann sigr-
aði þjóðernissinnann Marine
Le Pen í úrslitaeinvígi frönsku
forsetakosninganna með 66,1%
atkvæðanna. Macron, sem er
Evrópusinnaður frjáls-
hyggjumaður, fyrrum
bankamaður og fjár-
málaráðherra, þótti
ekki líklegur sigur-
vegari í upphafi bar-
áttunnar, en vegna
óvinsælda sósía-
listaflokksins og spill-
ingarmála hjá frambjóð-
anda Íhaldsflokksins náði
Macron, með hinn nýstofnaða
flokk En Marche! á bakvið sig, að
bera sigur úr býtum.
12. maí
Stærsta gagnatöku-
árás sögunnar
Stærsta gagnatökuárás internet-
sögunnar hófst með Wannacry-
tölvuvírusnum svokallaða. Árásin
var gríðarlega umfangsmikil,
hundruð þúsunda tölva um allan
heim voru sýktar á einum sólar-
hring, meðal annars tölvukerfi
stofnana á borð við breska heil-
brigðis- og sjúkratryggingarkerfis-
ins (NHS). Öll gögn í viðkomandi
tölvu voru dulkóðuð og hótað
að þeim yrði eytt ef eigandinn
greiddi ekki ákveðna upphæð í
Bitcoin-gjaldmiðlunum. Fljót-
lega tókst að hemja útbreiðslu
veirunnar og fáir greiddu lausnar-
gjaldið. Ekki er enn ljóst hver stóð
fyrir árásinni.
13. maí
Einlægnin sigraði í
Eurovision
Hjartveiki hjartaknúsarinn
Salvador Sobral frá Portú-
gal söng sig inn í
hjörtu Evrópubúa
í söngvakeppni
evrópskra sjón-
varpsstöðva í
maí. Hann sigr-
aði keppnina
með hjartnæmum
flutningi á lagi sínu,
Amar pelos dois, sem
hann samdi með systur
sinni.
17. maí
Rannsaka tengsl
Trump og Rússa
Dómsmálaráðuneyti Bandaríkj-
anna réð Robert Mueller, fyrrver-
andi yfirmann FBI, til að fara fyrir
rannsókn á mögulegum tengslum
rússneskra yfirvalda og einstak-
linga sem komu að kosninga-
baráttu Donalds Trump. Rann-
sókninni var hrint af stað eftir
að Trump hafði rekið yfirmann
bandarísku leyniþjónustunnar,
James Comey, vegna rannsókn-
ar stofnunarinnar á tengslum og
áhrifum rússneskra yfirvalda á
kosningarnar.
22. maí
Hryðjuverk í
Manchester
Sprengja sprakk skömmu eftir að
tónleikum bandarísku tónlistar-
konunnar Ariana Grande lauk
í Manchester Arena í Manche-
ster. Ódæðismaðurinn Salman
Abedi og 22 aðrir létust og
yfir 500 slösuðust. Þó að
árásarmaðurinn hafi
verið einn að verki
hafði hann tengsl
við hryðjuverka-
samtökin sem kalla
sig Íslamska rík-
ið. Þetta var önnur
hryðjuverkaárásin á
þessu ári í Bretlandi, en
í heildina áttu þær eftir að
verða fjórar.
Júní
1. júní
Parísarsáttmálinn í
uppnámi
Donald Trump tilkynnti að hann
hygðist draga Bandaríkin úr Par-
ísarsáttmálanum um aðgerðir til
að sporna við loftslagsbreyting-
um, sem var samþykktur árið 2015.
Rökin voru að samningurinn kæmi
sér illa fyrir bandarísk fyrirtæki og
þar með vinnandi fólk í landinu:
„Ég var kjörinn fulltrúi íbúa í Pitts-
burgh, ekki París.“ Fjöldi þjóðar-
leiðtoga fordæmdi ákvörðunina og
hefur biðlað til Trump að endur-
skoða afstöðuna sem þeir telja að
muni gera þverþjóðlegar aðgerð-
ir gegn loftslagsbreytingum allt að
því ómögulegar.
5. júní
Stjórnmálakrísa á
Arabíuskaga
Í byrjun júní skáru Sádi-Arab-
ar og nokkrar vinaþjóðir þeirra,
Sameinuðu arabísku furstadæm-
in, Barein og Egyptaland,
öll stjórnmálaleg tengsl
við grannríkið Kat-
ar. Meginástæðan var
sögð vera stuðningur
katarskra stjórnvalda
við hryðjuverkahópa,
en einnig eru sam-
skipti landsins við Íran
og rekstur fréttastöðvar-
innar Al-Jazeera þyrnir í augum
Sáda. Sádar settu fram 13 kröfur
sem Katarbúar telja sig ekki geta
uppfyllt.
8. júní
May bíður afhroð
Kosið var til breska þingsins í júní.
Kosningabaráttan gekk hörmu-
lega hjá Íhaldsflokki Theresu May
forsætisráðherra. Hún var gagn-
rýnd fyrir að setja aukinn skatt á
eldri borgara, fyrir viðbrögð við
hryðjuverkuárásinni í Manchester
og fyrir að mæta ekki meginand-
stæðingi sínum, Jeremy Corbyn,
formanni Verkamannaflokksins,
í kappræðum. Vinsældir Cor-
byns jukust hratt og örugglega,
og þegar talið var upp úr kössun-
um að kvöldi 8. júní hafði Íhalds-
flokkurinn þvert á allar spár misst
meirihluta sinni og neyddist til að
bæta við hinum ofur-íhaldssama
norður-írska sambandsflokki í
ríkisstjórnina.
14. júní
Grenfell-turninn
brennur
Mannskæðasti bruni Bretlands
í áraraðir átti sér stað þegar 24
hæða fjölbýlishús í Kensington-
hverfinu í London brann til kaldra
kola. 70 manns og eitt ófætt barn
lést í eldsvoðanum sem var talinn
hafa breiðst svo hratt út vegna ytri
klæðningar sem hafði verið sett á
bygginguna skömmu áður. Hús-
ið var í eigu borgarinnar og flestir
íbúarnir úr verkamannastétt og
dökkir á hörund. Borgaryfirvöld
voru gagnrýnd fyrir að hafa ekki
brugðist við viðvörunum íbúa
og forsætisráðherrann gagnrýnd
fyrir sein viðbrögð og sækja ekki
fórnarlömbin heim til að votta
þeim samúð sína.
24. júní
Seld fyrir 5000
evrur og sendibíl
Sú erlenda frétt sem var mest les-
in á DV.is á árinu sagði frá því að
búið væri að finna 14 ára rúm-
enska stúlku, búsetta í Pedrera
á Spáni, sem foreldrar höfðu
tilkynnt horfna í apríl. Stúlkan
fannst í austurhluta Slóveníu í
fylgd með eldri manni, þar sem
þau voru á leið til Rúmeníu. For-
eldrarnir voru handteknir fyrir
mansal eftir að ljóst varð að það
voru þeir sem höfðu selt dóttur
sína fyrir 5000 evrur og sendibíl.
Júlí
30. júlí
Kosið í skugga óeirða
Kosningar til nýs stjórnlagaþings
fóru fram í Venesúela en með
stofnsetningu þess jukust völd for-
setans Nicolas Maduro til muna
á kostnað stjórnarandstöðunnar
sem er með meirihluta á þinginu.
Stjórnarandstaðan sniðgekk kosn-
ingar til stjórnlagaþingsins og
hélt því fram að tölur um kjör-
sókn hefðu verið falsaðar. Mikil og
mannskæð mótmæli hafa verið í
landinu frá upphafi árs þar sem
þess er krafist að Maduro fari frá
völdum, en hann er sagður bera
ábyrgð á því að efnahagur landsins
er í rúst og mikill skortur er á nær
öllum nauðsynjavörum.
Gleymda stríðið í
Jemen
Blóðug átökin í Jemen virtust
engan enda ætla að taka á árinu,
þúsundir hafa látist og milljón-
ir búa við stöðugt stríðsástand
í einu fátækasta landi heims.
Deiluaðilar eru studdir af stór-
veldum múslimaheimsins, Upp-
reisnarmenn Húta eru studdir af
Írönum en Abed Rab bo Man sour
Hadi forseti og liðsmenn hans eru
studdir af Sádí-Aröbum.
Ágúst
2. ágúst
Byltingarkennd
erfðatækni
Í byrjun ágúst var greint frá því að
vísindamönnum hafi í fyrsta skipti
tekist að fjarlægja gallað erfðaefni
úr fósturvísi með erfðabreytinga-
tækninni Crispr. Erfðagallinn
sem um ræðir veldur hjartasjúk-
dómi sem getur leitt til skyndi-
legs hjartastopps. Tilraunin hefur
aukið vonir um að í náinni fram-
tíð verði hægt að koma í veg fyrir
ýmsa arfgenga sjúkdóma. Á sama
tíma er bent á hinar ýmsu sið-
ferðilegu spurningar sem kvikna
þegar hægt verður að „hanna“
börn með breytingum á erfðaefni
fósturvísa.
12. ágúst
Handtekinn fyrir
morðið á Kim Wall
Danski uppfinningamaðurinn
og auðkýfingurinn Peter Mad-
sen var handtekinn í tengslum
við hvarf sænsku blaðakonunnar
Kim Wall. Degi áður hafði heima-
smíðaður kafbátur hans, Nautili-
us, sokkið við Eyrarsund, að því
var talið með Wall innanborðs.
Aflimaður búkur blaðakonunnar
fannst hins vegar tíu dögum síðar.
12. ágúst
Rasistar í kröfugöngu í
Charlotteville
Stærsta samkoma bandarískra
þjóðernissinna og kynþáttahatara
í áraraðir fór fram í Charlottesville
í Virginíuríki undir slagorðinu:
„Hægrið sameinast.“ Hópur-
inn fór í kröfugöngu gegn því
að minnismerki um Suðurríkja-
sambandið væru tekin niður,